Morgunblaðið - 07.04.2005, Side 4
FÓLK
JACK Nicklaus, hin geðþekki
bandaríski kylfingur, ætlar að taka
þátt á Masters-mótinu í golfi sem
hefst í dag á Augusta-vellinum en
Nicklaus hafði áður gefið í skyn að
hann myndi ekki keppa þar sem 17
mánaða barnabarn hans lést fyrir
mánuði.
NICKLAUS sagði: ,,Augusta er
staður sem hefur skipt miklu máli í
mínu lífi. Ég mun uppfylla óskir for-
ráðamanna klúbbsins en þeir ósk-
uðu eftir því að ég yrði með og ég
mun gera það,“ sagði Nicklaus en
hann hefur að mestu verið með
næstelsta syni sínum, Steve, und-
anfarnar vikur en Steve var faðir
barnsins sem drukknaði í heitum
potti utan við heimili þeirra.
NICKLAUS hefur oftast allra
sigrað á Masters eða sex sinnum og
næstur í röðinni er Arnold Palmer
með fjóra sigra. Tiger Woods hefur
þrívegis sigrað og gæti skotist í
þriðja sætið með sigri í ár.
SVÍINN Jesper Parnevik var eitt-
hvað utan við sig þegar hann mætti
til æfinga á Augusta-vellinum fyrir
Masters-mótið, en Parnevik
gleymdi golfsettinu heima hjá sér í
Flórída. „Ég er líklega fyrsti kylf-
ingurinn sem gleymir golfsettinu í
bílskúrnum fyrir stórmót,“ sagði
Parnevik á sunnudaginn en þetta er
í sjöunda sinn sem hann tekur þátt á
Masters-mótinu. „Þeir sem þekkja
fjölskyldu mína skilja örugglega um
hvað er að ræða,“ bætti Svíinn við
en hans besti árangur á Masters-
mótinu er 20. sæti árið 2001.
KAPPINN fékk þó settið sitt því
hann hringdi í Tiger Woods félaga
sinn og bað hann um að renna við
heima hjá sér og kippa settinu með.
„Eftir að hann hafði hlegið í tíu mín-
útur samþykkti hann að gera það
fyrir mig, en ég tel mig enn eiga
nokkra greiða inni hjá honum,“
sagði Parnevik. Woods er giftur
Elínu Nordegren, sem var barn-
fóstra hjá Parnevik og þar kynntist
Wood konu sinni.
FANNY Sunnesson, sem var
kylfuberi hjá Nick Faldo í fjölda
ára, er mætt á Augusta, en mun
bera kylfur Ian Poulter að þessu
sinni. Eiginkona kylfusveins hans á
von á sér og hljóp Sunnesson í
skarðið.
ÞAÐ eru margir skemmtilegir
ráshópar fyrstu tvo dagana á Mast-
ers. Sem dæmi má nefna að Vijay
Singh verður með Bretanum Lee
Westwood og með þeim leikur Chad
Campbell. Tiger Woods verður með
Darren Clarke og Carlos Franco
frá Paragvæ í ráshóp.
PHIL Mickelson, sem verður í
ráshópnum á undan Singh, leikur
með Stuart Appelby og áhuga-
manninum Ryan Moor sem er
bandarískur. „Það hafa margir
áhugaverðir áhugamenn keppt á
Masters og ég geri fastlega ráð fyrir
að Ryan eigi góða daga hér. Það
kæmi alls ekki á óvart þó að hann
næði langt,“ segir Mickelson um
landa sinn.
EINS og venja er til var kvöld-
verður í klúbbhúsinu á Augusta á
þriðjudagskvöldið. Það er meistari
síðasta árs sem ákveður matseðilinn
og í kvöldverðinn mæta allir þeir
sem sigrað hafa á mótinu. Mickel-
son var með ítalska línu. „Ég á ættir
mínar að rekja til Ítalíu, raunar tals-
vert langt aftur í ættir. Ég er hrif-
inn af ítölskum mat og ákvað að
hafa það sem mér þykir gott, einfalt
og gott,“ sagði meistarinn, sem bauð
upp á humar-ravioli, hvítlauksbrauð
og Caesar-salat.
ÞEGAR Tiger Woods sigraði
bauð hann upp á hamborgara og
mjólkurhristing. „Það er hluti af því
að vera ungur! Þetta er það sem ég
borða og þykir gott,“ sagði Tiger
við það tækifæri.
Mickelson hafði fyrir mótið ífyrra breytt áherslum í æfing-
um sínum talsvert og þá fyrst og
fremst með áherslu á að þjálfa hug-
ann. Það gaf góða raun í fyrra og því
segist kappinn einbeita sér á sama
hátt núna enda ekki ástæða til ann-
ars. Og sjálfstraustið ætti að vera í
lagi því hann sigraði á móti í vikunni
þar sem hann lenti í fimm manna
bráðabana.
„Ég hugsa oft um púttið á síðustu
flötinni, púttið sem ég setti niður og
tryggði mér sigur. Tilfinningin þegar
boltinn datt ofan í holuna var stór-
kostleg. Og ég fæ enn þann dag í dag
hroll þegar ég hugsa um þetta atvik.
Slíkir atburðir hvetja mann til þess
að gera betur og halda áfram að bæta
sig,“ sagði Mickelson en hann hefur
miðað undirbúning sinn á þessu ári
fyrir Masters-mótið.
„Það er mikill heiður að vera kom-
inn í þann hóp kylfinga sem fá boð
um að leika á þessu móti það sem eft-
ir er ævinnar. Ég er hluti af sögu
mótsins og þetta mót er einstakt í
alla staði.“
Augusta völlurinn hentar Mickel-
son ágætlega en til að ná góðum ár-
angri á vellinum þurfa menn að vera
með löng og nákvæm teighögg og
stutta spilið þarf einnig að vera í lagi.
„Völlurinn hentar mér ágætlega þar
sem boltinn flýgur oftar en ekki í
sveig frá hægri til vinstri hjá mér,“
segir Mickelson. „Nákvæmni er allt
sem þarf á Augusta. Margir tala um
að völlurinn sé opinn og auðveldur.
En það er einfaldlega ekki rétt,“ seg-
ir hann.
Ernie Els varð í öðru sæti í fyrra
og hyggst gera betur í ár. „Ég skal
fúslega viðurkenna að hugurinn leit-
ar oft til þessa vallar og síðustu vik-
urnar fyrir mót er stundum erfitt að
einbeita sér að öðru en undirbúningi
fyrir þetta mót. Á æfingasvæðinu
kemur Augusta völlurinn oft upp í
hugann, allt árið, og þá fer maður
ósjálfrátt að æfa höggin sem þurfa að
vera í lagi þar. Upphafshöggin þurfa
að vera frá hægri til vinstri og síðan
þarf stutta spilið að vera nákvæmt og
ef þetta tvennt er í lagi þá gengur þér
vel á Augusta,“ segir Els.
Einn af mestu efnum golfsins í dag
er Ástralinn Adam Scott og fróðir
menn telja aðeins spurningu hvenær
hann stendur uppi sem sigurvegari á
stórmóti. „Ég efast ekki um að ég
hafi hæfileika til að sigra á stórmóti
og ég hlakka mikið til að reyna mig á
Augusta vellinum þar sem stutta
spilið er lykilatriði,“ segir Scott sem
er með löng teighögg og oftast ná-
kvæm þannig að þau ættu ekki að
vera vandamál hjá honum.
Fjórir kylfingar þykja þó sigur-
stranglegastir, auk þeirra Mickel-
sons og Els eru það Vijay Singh, sem
er í efsta sæti heimslistans, Tiger
Woods, sem hefur þrívegis sigrað á
Masters. „Þetta er allt að koma hjá
mér,“ segir Woods en hann hefur
verið að breyta sveiflunni hjá sér síð-
ustu árin og ekki verið eins sigursæll
og hann var þegar honum skaut upp
á stjörnuhimininn. „Það hafa margir
spurt hvers vegna ég sé að þessu,
hvers vegna ég haldi ekki áfram að
slá eins og ég gerði árið 2000 og halda
sigurgöngunni áfram. Ég vil ekki
vera eins og árið 2000, ég vil verða
betri og það er tilgangurinn með
þessum breytingum,“ segir Woods,
sem vann sjö af ellefu stórmótum sín-
um á árunum 1999 til 2002.
Gamla kempan Jack Nicklaus,
sem hefur sigrað oftast allra segir að
þeir sem ætli sér sigur í ár, verði að
leggja Tiger að velli. „Tiger þarf ekki
að leika sitt besta golf til að sigra hér.
Hann hefur ótrúlega hæfileika og
aðrir verða að ná sínum besta leik
ætli þeir sér sigur.“
Reuters
Svíinn Jesper Parnevik er jafnan í litríkum fatnaði.
Meistari
Mickelson í
fínu formi
MASTERS-MEISTARI síðasta árs, örvhenti bandaríski kylfingurinn
Phil Mickelson, er í fínu formi þessa dagana og líklegur til að verja
titil sinn á Augusta vellinum. Það mun sjálfsagt ekki ganga átaka-
laust því flestir, ef ekki allir 93 keppendurnir, hafa fullan hug á að
sigra á mótinu, sem er eitt af þeim fjóru stóru sem fram fara árlega.
,
/
0
*
*
, 1 2
1
(3(
# (
4
.!!$.
5*6
7*
3$89
!
9
!
!
"
#
4*):;6)3 ##
<
% =
6 >
?
-1
7*
3
$8
$
<$
<
-
@
$%
*
&&&
%