Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 1
2005 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KÖRFUKNATTLEIKUR: HELENA OG SIGURÐUR LEIKMENN ÁRSINS / C4
ÞRÍR knattspyrnumenn frá Serbíu-Svartfjallalandi eru
til reynslu hjá úrvalsdeildarliði ÍA þessa dagana. Þeir
heita Milos Glogovac, 24 ára varnarmaður, Igor Pesic,
22 ára miðjumaður, og Jovan Kuc, 19 ára sóknarmaður.
Pesic hefur leikið í úrvalsdeildinni í heimalandi sínu
með Borac Cacak og Zemun.
„Við ætlum að hafa þessa leikmenn hjá okkur fram í
næstu viku og þá skýrist nánar hvort af því verður að
einhver eða einhverjir þeirra leiki með okkur í sumar.
Við erum fyrst og fremst að leita að sóknarmanni og
miðjumanni,“ sagði Eiríkur Guðmundsson, formaður
meistaraflokksráðs ÍA, við Morgunblaðið í gær.
ÍA á einnig möguleika á að fá leikmenn frá Reading í
Englandi. „Það skýrist hins vegar ekki fyrr en tímabilið
í Englandi er búið. Reading á góða möguleika á að kom-
ast í umspil um úrvalsdeildarsæti og vill halda öllum sín-
um hópi þar til það er yfirstaðið. En við getum fengið
leikmenn þaðan til reynslu eftir þann tíma,“ sagði Eirík-
ur.
Þrír Serbar hjá
Skagamönnum
ALFREÐ Gíslason, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Magdeburg,
fær að glíma við sinn gamla læri-
svein, Ólaf Stefánsson, þegar
Magdeburg verður þátttakandi á
móti í Ciudad Real í lok ágúst í sum-
ar. Þangað hefur Magdeburg verið
boðið að koma og taka þátt í fjög-
urra liða móti, en auk heimamanna
í Ciudad Real tekur Celje Lasko frá
Slóveníu þátt í því og rússneska lið-
ið Chehovski Medvedi.
Með mótinu vill Ciudad Real
þakka fráfarandi þjálfara sínum,
Juan de Dios Román, fyrir sam-
starfið en hann
hætti þjálfun
liðsins í sumar.
Um leið hyggst
Román hætta
alveg þjálfun
handknattleiks-
manna og fara
á eftirlaun. Við
starfi hans tek-
ur hinn kunni
leikmaður Ciu-
dad, Talant Dushjebaev og verður
mótið jafnfram frumraun hans með
Ciudad Real-liðið.
Alfreð mætir
Ólafi á Spáni
Alfreð
GUNNAR Þorvarðarson hefur verið
ráðinn sem aðstoðarmaður Einars
Árna Jóhannssonar, þjálfara bikar-
meistaraliðs Njarðvíkur í körfu-
knattleik karla. Gunnar er einn
reyndasti körfu-
knattleiksmaður
Íslands enda lék
hann með
Njarðvík á árun-
um 1968–1985
og var jafnframt
þjálfari liðsins
síðustu tvö árin
sem leikmaður.
Gunnar þjálf-
aði Keflavík
1986–1988 og var þjálfari Grindavík-
ur 1990–1992. Hann var formaður
körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur á
árunum 1997–2001 og ekki má
gleyma því að hann var aðstoðar-
landsliðsþjálfari karlalandsliðsins á
árunum 1985–1989. Á heimasíðu fé-
lagsins segir Gunnar að hann muni
ekki skipta sér mikið af þjálfun liðs-
ins og hans hlutverk sé að vera þjálf-
aranum til aðstoðar við ýmis mál
sem komi upp hverju sinni.
Á heimasíðu Njarðvíkinga kemur
einnig fram að íslenski landsliðsmið-
herjinn Friðrik Stefánsson ætli sér
að semja á ný við félagið en hann hef-
ur verið orðaður við mörg lið að und-
anförnu. Páll Kristinsson, framherji
liðsins, hefur hins vegar samið við
Grindvíkinga til tveggja ára.
Gunnar
aðstoðar
Einar í
Njarðvík
Einar Árni
Guðjón Valur Sigurðsson lét líkamikið að sér kveða og skoraði
sex mörk fyrir Essen sem vann Wil-
helmshavener, 30:24. Gylfi Gylfason
var ekki á meðal markaskorara Wil-
helmshavener. Essen lyfti sér upp í
fimmta sæti með sigrinum.
Alexander Petersson skoraði sjö
mörk fyrir Düsseldorf og Markús
Máni Michaelsson eitt þegar lið
þeirra gerði jafntefli, 29:29, í fallslag
gegn Post Schwerin á útivelli.
Magdeburg, lið Alfreðs Gísla-
sonar, tapaði fyrir Kiel á heimavelli,
35:39, í stórleik kvöldsins og á ekki
lengur möguleika á að veita Kiel og
Flensburg keppni um titilinn. Sigfús
Sigurðsson skoraði ekki fyrir
Magdeburg en var tvisvar rekinn af
velli og Arnór Atlason lék ekki með
vegna meiðsla. Magdeburg saknaði
líka Grzegorz Tkaczyks og Olegs
Kuleschovs af sömu ástæðu. Stefan
Kretzschmar lék sem leikstjórnandi
hjá Magdeburg og skoraði sjö mörk
en Markus Ahlm og Johan Petters-
son skoruðu tólf mörk hvor fyrir
Kiel.
Jaliesky Garcia skoraði fimm
mörk fyrir Göppingen sem vann
góðan útisigur á HSV Hamburg,
31:26.
Róbert Sighvatsson skoraði eitt
mark fyrir Wetzlar sem tapaði sín-
um áttunda leik í röð, 21:29, gegn
toppliði Flensburg á heimavelli.
Snorri og Einar í
stórum hlutverkum
SNORRI Steinn Guðjónsson og Einar Hólmgeirsson voru í aðal-
hlutverkum hjá Grosswallstadt í gærkvöldi þegar lið þeirra vann
Nordhorn, 28:25, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Snorri og Ein-
ar skoruðu 6 mörk hvor fyrir Grosswallstadt sem komst af mesta
hættusvæði deildarinnar með sigrinum.
■ Úrslit / C2
Joe Cole, leikmaður Chelsea, hefur betur gegn Patrick Vieira, fyrirliða Arsenal, í slag Lundúnaliðanna á Stamford Bridge í gær-
kvöld. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og með því steig Chelsea enn eitt skrefið í áttina að enska meistaratitlinum. / C3
Reuters