Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer að
vanda fram í dag, sumardaginn
fyrsta, og hefst það í Tjarnargötu kl.
13. Þetta er í nítugasta skipti sem
hlaupið fer fram en það hefur ekki
fallið úr hlaup síðan fyrst var keppt
árið 1916. Hlaupnir verða 5 km um
göturnar við Tjörnina og á stígum í
Hljómskálagarðinum. Hlaupinu lýk-
ur við Ráðhúsið og fyrstu hlauparar
koma í mark rúmum stundar-
fjórðungi eftir að þeir lögðu af stað.
Í tilefni afmælisins er meira haft
við en venjulega. Sérstakir verð-
launapeningar hafa verið steyptir,
glæsileg verðlaun verða veitt sig-
urvegurum í karla- og kvennaflokki,
litprentuð leikskrá hefur verið gerð
og hið ómissandi kaffihlaðborð að
hlaupi loknu verður hlaðið veislu-
föngum.
Marteinn Guðjónsson, fyrrver-
andi sleggjukastari, verður að
vanda ræsir í hlaupinu en hann hef-
ur í yfir fimmtíu skipti haft þann
starfa.
Víðavangshlaup ÍR
þreytt í 90. sinn
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Aston Villa – Charlton ............................ 0:0
31.312.
Blackburn – Crystal Palace ................... 1:0
Morten Gamst Pedersen 45. – 18.006.
Chelsea – Arsenal .................................... 0:0
41.621.
Everton – Manchester United................ 1:0
Duncan Ferguson 55. Rautt spjald: Gary
Neville (Man.Utd) 72., Paul Scholes
(Man.Utd) 90.
Manchester City – Birmingham ............ 3:0
Maik Taylor 55. (sjálfsm.), Richard Dunne
80., Antoine Sibierski 86. (víti) – 42.453.
Norwich – Newcastle.............................. 2:1
Youssef Safri 68., Dean Ashton 90. – Pat-
rick Kluivert 89. – 25.503.
Portsmouth – Liverpool ......................... 1:2
Diomansy Kamara 34. – Fernando Morien-
tes 4., Luis Garcia 45. – 20.205.
Tottenham – WBA................................... 1:1
Robbie Keane 52. – Zoltán Gera 24. –
35.885.
Staðan:
Chelsea 33 25 7 1 62:12 82
Arsenal 33 21 8 4 73:33 71
Man. Utd 33 19 10 4 48:20 67
Everton 33 17 6 10 40:33 57
Liverpool 34 16 6 12 48:35 54
Bolton 34 15 8 11 44:38 53
Tottenham 34 13 9 12 42:38 48
Middlesbro 33 12 10 11 46:44 46
Aston Villa 34 12 10 12 41:42 46
Charlton 34 12 9 13 40:50 45
Man. City 34 11 11 12 42:37 44
Blackburn 33 9 12 12 29:37 39
Birmingham 34 9 11 14 35:42 38
Newcastle 32 9 11 12 42:51 38
Fulham 33 9 8 16 39:53 35
Portsmouth 34 9 8 17 38:53 35
WBA 33 5 14 14 32:53 29
Southampton 34 5 13 16 37:55 28
Cr. Palace 34 6 9 19 36:58 27
Norwich 34 5 12 17 37:67 27
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Bielefeld – Bayern München.................. 0:2
Michael Ballack 3., Roy Makaay 90. (víti)
Rautt spjald: Buckley (Bielefeld) 90.
Bayern mætir Schalke í úrslitaleik.
Ítalía
AC Milan – Chievo ................................... 1:0
Clarence Seedorf 65. – 54.894.
Cagliari – Lazio ....................................... 1:1
Mauro Esposito 70. – Sebastiano Siviglia
90. – 15.000.
Fiorentina – Messina............................... 1:1
Dario Dainelli 61. – Arturo Di Napoli 90.
Rautt spjald: Cristian Maggio (Fiorentina)
89., Marco Zoro Kpolo (Messina) 90.
Juventus – Inter Mílanó.......................... 0:1
Julio Cruz 24. – 25.000.
Lecce – Bologna....................................... 1:1
Guillermo Giacomazzi 19. – Claudio Bel-
lucci 41. – 10.894.
Palermo – Brescia ................................... 3:3
Luca Toni 39. (víti), 78., Christian Terlizzi
13. – Pierre Wome 16., Luigi Di Biagio 21.
(víti), Andrea Caracciolo 84. Rautt spjald:
Christian Terlizzi (Palermo) 68., Simone
Dallamano (Brescia) 26.
Parma – Sampdoria ................................ 1:1
Alberto Gilardino 38. – Andrea Gasbarroni
34. – 14.170.
Reggina – Atalanta ................................. 0:0
Roma – Siena............................................ 0:2
Massimo Maccarone 60., Enrico Chiesa 88.
Rautt spjald: Francesco Totti (Roma) 64.
Udinese – Livorno ................................... 1:1
Stefano Mauri 8. – Christiano Lucarelli 86.
Staðan:
Juventus 32 21 7 4 55:22 70
AC Milan 32 21 7 4 52:20 70
Inter 32 14 17 1 57:35 59
Sampdoria 32 15 7 10 34:24 52
Udinese 32 14 8 10 47:34 50
Palermo 32 12 12 8 39:34 48
Lazio 32 11 8 13 41:42 41
Cagliari 32 10 10 12 45:51 40
Livorno 32 10 10 12 38:44 40
Messina 32 10 10 12 35:43 40
Bologna 32 9 12 11 30:30 39
Roma 32 10 9 13 50:52 39
Reggina 32 10 9 13 31:38 39
Lecce 32 9 11 12 54:59 38
Siena 32 7 15 10 34:45 36
Parma 32 8 10 14 37:52 34
Chievo 32 9 7 16 26:44 34
Fiorentina 32 7 12 13 35:46 33
Brescia 32 8 7 17 29:44 31
Atalanta 32 6 10 16 29:39 28
Spánn
Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur:
Osasuna – Atletico Madrid ...................... 1:0
Frakkland
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit:
Nimes – Sochaux ...................................... 4:3
Boulogne – Auxerre ................................. 1:2
Eftir framlengingu.
Holland
Úrvalsdeild:
Utrecht – Alkmaar ................................... 3:2
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Feyenoord – PSV Eindhoven ..................1:1
PSV sigraði í vítaspyrnukeppni.
Belgía
Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikir:
Club Brugge – Lierse .............................. 1:0
Lokeren – Germinal Beerschot .............. 1:1
Danmörk
Bikarkeppnin, undanúrslit, síðari leikir:
Midtjylland – Horsens ............................. 1:0
Midtjylland áfram, 5:0 samanlagt.
FC Köbenhavn – Bröndby ...................... 2:2
Bröndby áfram, 3:2 samanlagt.
Vináttulandsleikur
Eistland – Noregur.................................. 1:2
Aleksander Saharov 80. – Frode Johnsen
24., Daniel Braaten 54.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Post Schwerin – Düsseldorf ................ 29:29
Essen – Wilhelmshavener ................... 30:24
Grosswallstadt – Nordhorn................. 28:25
HSV Hamburg – Göppingen ............... 26:31
Pfullingen – Gummersbach................. 28:33
Wetzlar – Flensburg ............................ 21:29
N-Lübbecke – Minden......................... 32:28
Magdeburg – Kiel................................. 35:39
Staðan:
Flensburg 28 23 2 3 864:713 48
Kiel 27 23 2 2 863:733 48
Magdeburg 28 20 0 8 922:826 40
Lemgo 28 19 0 9 873:765 38
Essen 28 17 3 8 803:743 37
Nordhorn 28 17 2 9 834:779 36
Gummersb. 28 16 2 10 810:745 34
Hamburg 28 15 2 11 779:754 32
Wallau 28 14 3 11 828:832 31
Göppingen 28 14 2 12 791:776 30
Wilhelmshav. 28 11 1 16 750:819 23
Lübbecke 28 10 2 16 834:865 22
Grosswallst. 28 9 1 18 728:786 19
Wetzlar 28 9 1 18 765:845 19
Düsseldorf 28 6 3 19 727:812 15
Minden 27 4 4 19 724:822 12
Pfullingen 28 5 1 22 720:836 11
Schwerin 28 3 1 24 720:884 7
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Cleveland – Boston .............................100:85
New Jersey – Washington................109:101
Miami – Charlotte .................................99:80
Atlanta – Detroit ...................................68:95
Chicago – New York .............................92:91
Milwaukee – Toronto ........................109:127
Dallas – Seattle....................................101:96
Denver – Portland.............................119:115
ÍSHOKKÍ
Fyrsti úrslitaleikur:
SR – SA ..................................................... 9:6
PÁLMI Rafn Pálmason, knatt-
spyrnumaður úr KA, æfir með
enska úrvalsdeildarliðinu Man-
chester City í 7–10 daga um næstu
mánaðamót. Lið KA fer til Eng-
lands í dag og verður í æfingabúð-
um í Manchester og Pálmi Rafn
verður síðan eftir í herbúðum City.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra knatt-
spyrnudeildar KA, er boð City til
Pálma til komið vegna kunn-
ingsskapar Þorvalds Örlygssonar,
þjálfara KA, og Stuarts Pearce,
knattspyrnustjóra City, en þeir
léku saman með Nottingham Forest
á sínum tíma. Pálmi Rafn er tvítug-
ur miðjumaður og hefur leikið með
KA í úrvalsdeildinni undanfarin tvö
ár en spilaði áður með Völsungi.
Pálmi Rafn
til Man. City
Robert Pires fékk tvö gullin færitil að koma Arsenal yfir á
fyrstu 10 mínútum leiksins. Fyrst
átti hann þrumufleyg í þverslána á
marki Chelsea og skaut síðan
framhjá markinu úr galopnu færi.
Chelsea var síðan þrívegis nálægt
því að skora, Didier Drogba tvívegis
og Frank Lampard einu sinni, en í
heildina séð var jafnteflið sanngjörn
niðurstaða í líflegum leik sem þó
bauð upp á fá marktækifæri.
Eiður Smári Guðjohnsen lék
áfram á miðjunni hjá Chelsea og
spilaði vel. Hann átti eitt ágætt
marktækifæri en skallaði þá framhjá
marki Arsenal eftir fyrirgjöf. Eiði
Smára var skipt af velli þegar mín-
úta var eftir af uppbótartíma.
Stórslys ef þeir verða
ekki meistarar
„Við vinnum ekki meistaratitilinn í
ár og við vissum það áður en við
mættum til leiks. Chelsea verður
meistari nema einhver sprengi stað-
inn í loft upp. Það þyrfti stórslys hjá
Chel
inum
meis
einst
Mað
ham
bæra
lega
Ch
færi
men
frem
End
að þ
sókn
ann
gegn
spyr
„V
ennþ
En þ
hven
setja
þeim
GAMLA orðatiltækið; Frændur eru
frændum verstir, hefur loðað við
Knattspyrnufélagið Fram á undan-
förnum árum, en ófáir félagsmenn-
irnir í Safamýrinni hafa verið
hraktir frá störfum sem þjálfarar,
þannig að félagsandinn hefur ekki
verið samur á eftir. Það er svo í
íþróttafélögum, að það er alltaf
skynsamlegri stefna að fá fleiri fé-
lagsmenn til starfa en fæla frá.
Þær komu geysilega á óvart
fréttirnar úr herbúðum handknatt-
leiksmanna Fram á þriðjudaginn,
að búið væri að segja Heimi Rík-
arðssyni upp störfum. Heimir hefur
verið trúr sínu félagi og tekið til
hendinni þegar aðrir vildu ekki,
eða þorðu ekki. Það má segja að
Heimir hafi verið sannkallaður fað-
ir handknattleiksins hjá Fram síð-
ustu árin. Hann hóf að starfa við
þjálfun yngri handknattleiksmanna
hjá Fram 1982.
Var það rétt að láta Heimi fara,
þegar hann átti eftir eitt ár af
samningi sínum sem þjálfari og hef-
ur unnið gott starf? Menn gætu skil-
ið að breytingar væru gerðar, ef
samningur Heimis væri útrunninn
og menn vildu breyta til.
Gat ég ekki skorast undan
Heimir tók við meistaraflokki
Fram við afar erfiðar aðstæður 23.
ágúst 2001 – þegar rússneski þjálf-
arinn Anatolí Fedjúkin hljóp óvænt
á brott um sumarið. Þá tók Heimir
við með þeim orðum að hann hafi
ekki getað skorast undan.
Það var aðeins sex vikum áður en
Íslandsmótið hófst.
Þegar Heimir tók við Framliðinu
höfðu leikmenn liðsins verið þjálf-
aralausir í hálfan mánuð og þjálfað
sig sjálfir. Miklar breytingar höfðu
orðið á leikmannahópi Fram og
Heimir þurfti þá að móta liðið frá
grunni á skömmum tíma. Hann var
ákveðinn í að leggja sig allan fram
við að byggja nýtt Framlið upp á
heimamönnum, en það hafði ekki
verið gert undir stjórn Guðmundar
Þ. Guðmundssonar 1995–1999 og
Fedjúkins 1999–2001.
Heimir kunni til verka, enda
hafði hann alið upp margar kyn-
slóðir handknattleiksmanna hjá
Fram frá árinu 1982, en það ár voru
margir leikmenn sem hann stjórn-
aði í meistaraflokki ekki farnir að
ganga.
„Ég ætlaði aldrei út í þessa meist-
araflokksþjálfun. Ég kenni for-
manni deildarinnar, Hermanni
Björnssyni, algerlega um þetta! Ég
var úti í Danmörku með unglinga-
landsliðið þegar vandræðin komu
upp. Hermann var í stöðugu sam-
bandi við mig og þegar ég fann vilja
stjórnarmanna og leikmanna – gat
ég ekki skorast undan því að taka
þetta verkefni að mér. Ég sé ekki
eftir því núna, það er geysilega
gaman að starfa í kringum þennan
meistaraflokk og vinna með strák-
unum, enda gjörþekki ég að sjálf-
sögðu bæði þá og allt umhverfið hjá
Fram,“ sagði Heimir í viðtali við
Morgunblaðið þegar fyrsta keppn-
istímabil hans var hálfnað og undir
hans stjórn voru ungu strákarnir
komir í úrslitakeppnina – nokkuð
sem fáir reiknuðu með.
Það reiknuðu heldur ekki margir
með því að Heimir kæmi enn yngra
liði Fram í úrslitakeppnina í vetur,
en það má segja að Framarar hafi
verið óheppnir að leggja ekki ÍBV
að velli og komast í undanúrslit. Ég
efast um að nokkur annar þjálfari
en Heimir hefði komist svo langt
með Framliðið í vetur.
Þess vegna kom fréttin um að bú-
ið væri að koma Heimi frá störfum
á óvart. Heimir hefur verið vakinn
og sofinn við uppbyggingu hjá
Fram í 23 ár. Það er ekki nema von
að Heimir sé ósáttur, en hann sagði
í viðtali við Morgunblaðið á mið-
vikudaginn:
„Ég er að sjálfsögðu ekki sáttur
við þessa ákvörðun stjórnarmanna
Fram, tel hana ranga og ekki gæfu-
spor fyrir félagið á þessum tíma-
punkti. Ég er búinn að þreyja þorr-
ann með Fram í gegnum erfiða
tíma og finnst hart að fá ekki að
njóta þess þegar rofar til hjá félag-
inu,“ sagði Heimir, sem sagði þetta
um árin sín með meistaraflokk:
„Það hefur verið ákveðin uppbygg-
ing í gangi á þessum tíma og ég
horfi stoltur til baka yfir þessi fjög-
ur ár. Við komumst tvisvar í bikar-
úrslit og í vetur tefldum við fram
kornungu liði eftir að hafa misst
sex leikmenn, en unnum 1. deildina
og spiluðum þrjá jafna leiki gegn
ÍBV. Ég var mjög sár þegar mér
var tilkynnt þessi ákvörðun, ég
vildi halda áfram með þá uppbygg-
ingu sem ég hef unnið að undan-
farin ár.“
Já, Heimir má vera sár eftir 23
fórnfús ár í herbúðum Framara.
Hann hefur unnið mjög gott upp-
byggingarstarf og byggt lið sitt
upp á ungum heimamönnum. Við
hans starfi tekur þjálfari, sem hef-
ur ekki verið þekktur fyrir að
byggja lið sín upp á heimamönnum.
Það má því búast við miklum breyt-
ingum hjá Fram.
Frændur eru
frændum verstir
sos@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson
Á VELLINUM
William Gallas, franski varnarmaðuri
bert Pires, í viðure
„Við v
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í C
í áttina að enska meistaratitlinum í knat
markalaust jafntefli við Arsenal á Stamf
með skilja enn 11 stig liðin að þegar þau
og nú gæti Chelsea fagnað sigri í deildin
Til þess þarf liðið að sigra Fulham á laug
að tapa stigum gegn Tottenham á mánu
Arsene Wenger se
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni karla:
Fífan: Grindavík - ÍBV...............................14
Fylkisvöllur: Fylkir - ÍA............................16
KR-völlur: KR - Völsungur .......................16
Egilshöll: Valur - Breiðablik .....................17
Fífan: Haukar - Selfoss..............................12
Deildabikarkeppni kvenna:
Egilshöll: Valur - FH .................................21
Egilshöll: Þróttur R. - Fjölnir...................19
Í DAG
RÚNAR Sigtryggsson, fyrrum
landsliðsmaður í handknattleik,
verður annaðhvort í herbúðum
Þórs eða Hauka á næsta keppn-
istímabili. Hann er á heimleið frá
Eisenach í Þýskalandi. Fari Rúnar
til Þórsara, síns uppeldisfélags,
verður hann þjálfari ásamt Axel
Stefánssyni og einnig leikmaður, en
hjá Haukum yrði hann leikmaður.
„Já, það eru þessir tveir kostir eftir
í stöðunni en það liggur ekki fyrir
ennþá hver endanlega niðurstaðan
verður. Það er ekki bara handbolt-
inn sem ræður úrslitum í því, held-
ur hvar við viljum koma okkur fyrir
til frambúðar,“ sagði Rúnar við
Morgunblaðið í gær.
Rúnar með
Þór eða
Haukum