Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 C 3
lsea til að félagið missti af titl-
m úr þessu. Chelsea verðskuldar
staratignina, liðið hefur verið
taklega stöðugt í leik sínum.
ður óskar alltaf sigurvegurum til
mingju, Chelsea hefur gert frá-
a hluti í vetur og á svo sannar-
hrós skilið.
helsea skapaði sér nokkur góð
, en það var greinilegt að leik-
nn liðsins hugsuðu fyrst og
mst um að tapa ekki leiknum.
da voru þeir í þannig stöðu í kvöld
það var ekki þeirra að blása til
nar. Við vorum mikið með bolt-
en það var erfitt að brjótast í
n,“ sagði Arsene Wenger, knatt-
rnustjóri Arsenal.
Við erum ekki orðnir
meistarar ennþá
Við erum ekki orðnir meistarar
þá, við verðum að ljúka verkinu.
það skiptir okkur ekki öllu máli
nær það gert, við ætlum ekki að
a of mikla pressu á okkur sjálfa í
m efnum,“ sagði Steve Clarke, að-
stoðarmaður Josés Mourinhos,
knattspyrnustjóra Chelsea.
„Við lögðum hart að okkur og
fengum nokkur marktækifæri.
Drogba var líka tvisvar nálægt því að
skora en við vörðumst vel og liðs-
heildin var mjög sterk hjá okkur í
leiknum. Chelsea vill spila aftarlega
og láta mótherjana um að vera með
boltann, og við reyndum eins og við
gátum að sækja að þeim en þeir
vörðust mjög vel. En við höldum
áfram okkar striki og reynum að ná
þremur stigum í hverjum leik. Samt
sem áður erum við alveg sáttir við
jafntefli út úr þessum leik,“ sagði
Ashley Cole, bakvörður Arsenal.
Neville og Scholes reknir af
velli á Goodison Park
Gary Neville og Paul Scholes hjá
Manchester United voru báðir rekn-
ir af velli þegar lið þeirra tapaði, 1:0,
fyrir Everton á Goodison Park. Ne-
ville fyrir að sparka boltanum í
stuðningsmenn Everton og Scholes
fyrir að sparka á eftir Tim Cahill,
leikmanni Everton, undir lok leiks-
ins. Duncan Ferguson skoraði sig-
urmark Everton með glæsilegum
skalla snemma í síðari hálfleik og lið
hans er enn með undirtökin í barátt-
unni um fjórða sæti deildarinnar.
„Það er ekki hægt að réttlæta
gjörðir Garys. Menn sparka ekki
boltanum í áhorfendur, það eiga allir
að vita. Auðvitað reyna áhorfendur
að æsa leikmenn upp, og það var nóg
af slíku í þessum leik, en í svona að-
stöðu verða menn að halda stillingu
sinni,“ sagði Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United.
Hann hrósaði kraftinum og baráttu-
gleðinni í liði Everton en sagði jafn-
framt að leikmenn þess hefðu nýtt
sér það til hins ýtrasta að dómarinn
hefði verið of linur.
Liverpool lagði Portsmouth á
útivelli, 2:1, með mörkum frá Fern-
ando Morientes og Luis Garcia og er
þremur stigum á eftir Everton en
hefur leikið einum leik meira.
Hermann Hreiðarsson var ná-
lægt því að tryggja Charlton sigur í
markalausri viðureign gegn Aston
Villa á Villa Park. Hermann átti
hörkuskalla, hárfínt framhjá mark-
stöng Villa. Hann fór af velli þremur
mínútum fyrir leikslok.
Norwich galopnaði fallbarátt-
una með ævintýralegum sigri á New-
castle, 2:1. Patrick Kluivert jafnaði
fyrir Newcastle þegar ein mínúta
var eftir af leiknum en Dean Ashton
náði að svara fyrir Norwich og
tryggja liði sínu þrjú dýrmæt stig.
WBA náði ennfremur í gott stig á
útivelli gegn Tottenham, 1:1, en
Crystal Palace tapaði í Blackburn,
1:0.
SUÐUR-Afríkumaðurinn Retief
Goosen sem sigraði á Opna banda-
ríska meistaramótinu í fyrra er
ekki á því að konur eigi að fá að
taka þátt í atvinnumannamótum á
bandarísku og evrópsku mótaröð-
inni. Goosen sagði á fundi með
blaðamönnum fyrir Johnnie Walk-
er-mótið sem hefst í dag í Kína að
flestir atvinnukylfingar telji það
óréttlátt að konum sé boðið að taka
þátt á sterkum atvinnumótum – og
vill Goosen að þeir kylfingar sem
komist í gegnum erfið úrtökumót
fái að njóta þess að fá boð um að
taka þátt. „Að mínu mati eiga þær
ekki að fá að fara aðrar leiðir en
við. Ef konur eiga að taka þátt á
mótaröðum fyrir karla þá eiga þær
að fara í gegnum sömu síu og karl-
arnir. Ég tel að það sé óréttlátt að
styrktaraðilar bjóði konum að taka
þátt til þess eins að vekja athygli á
mótinu,“ sagði Goosen en hann er
þar með kominn í hóp Vijay Singh
frá Fijíeyjum sem gagnrýndi þátt-
töku Anniku Sörenstam á Colonial
mótinu. Greg Norman frá Ástralíu
hefur einnig gagnrýnt það að kon-
um sé boðið að taka þátt án þess að
fara í gegnum úrtökumót. Goosen
tók þátt í góðgerðarmóti á Phuket-
eyju á Taílandi um síðustu helgi og
þar var Grac Park ein fremsta golf-
kona heims á meðal keppenda. „Ég
hef hins vegar ekkert á móti því að
konur taki þátt á slíkum mótum þar
sem unnið er að góðu málefni líkt á
fámennu boðsmóti sem er aðeins til
skemmtunar,“ bætti Goosen við.
Goosen vill ekki að kon-
um sé boðið á karlamótin
ÓLAFUR Már Sigurðsson, at-
vinnukylfingur úr Golfklúbbi
Reykjavíkur, lék vel í gær á
EPD-mótaröðinni á Pader-
borner-vellinum í Þýskalandi
og lék Ólafur samtals á einu
höggi undir pari vallar. Hann
lék á 70 höggum í gær eða
tveimur undir pari en hann
fékk alls 6 fugla og fjóra
skolla á hringjunum þremur.
Ólafur Már endaði í 12.–14.
sæti af alls 46 kylfingum sem
komust í gegnum niðurskurð-
inn en alls voru um 120 kepp-
endur skráðir til leiks. Efsti
maður mótsins var á samtals
12 undir pari en Ólafur fékk
um 50.000 kr. fyrir árang-
urinn. EPD-mótaröðin er vett-
vangur fyrir atvinnumenn
sem eru ekki að leika mikið á
Áskorenda- eða Evrópumóta-
röðinni en vilja öðlast aukna
reynslu. Logi Geirsson lands-
liðsmaður í handknattleik og
leikmaður Lemgo var kylfu-
sveinn Ólafs á mótinu.
Ólafur Már
í 12. sæti
AC MILAN náði
Juventus að stigum á
toppi ítölsku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu í
gærkvöldi. Milan lagði
Chievo að velli, 1:0, og
fékk síðan góða aðstoð
frá grönnum sínum í
Inter sem sóttu Juven-
tus heim á Delle Alpi í
Torino og hirtu þar öll
þrjú stigin – sigruðu
1:0. AC Milan og
Juventus eru með 70
stig hvort, ellefu stig-
um á undan Inter sem
er í þriðja sæti, og
verði þau jöfn að
deildakeppninni lokinni leika þau úrslitaleik
um meistaratitilinn.
Clarence Seedorf skoraði sigurmark AC Mil-
an gegn Chievo þegar 16 mínútur voru til leiks-
loka. Juventus réð ferðinni allan tímann gegn
Inter en náði ekki að skora. Það gerði hins veg-
ar Julio Cruz sem skoraði sigurmark Inter með
fallegum skalla á 24. mínútu leiksins.
Milan náði
Juventus
Seedorf og
Stam fagna
marki AC Milan.
ÞAÐ verður Bayern München sem mætir
Schalke í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í vor. Schalke vann Werder Brem-
en eftir vítaspyrnukeppni í fyrrakvöld og í
gærkvöld lék Bayern við Arminia Bielefeld og
sigraði, 2:0. Bayern fékk óskabyrjun því Mich-
ael Ballack skoraði strax á 3. mínútu með
skalla eftir sendingu frá Bastian Schwein-
steiger. Þegar þrjár mínútur voru komnar
framyfir venjulegan leiktíma var dæmd víta-
spyrna á Bielefeld. Delron Buckley fékk rauða
spjaldið fyrir mótmæli og Roy Makaay innsigl-
aði sigur Bayern úr vítaspyrnunni.
Bayern og Schalke
í úrslitaleik
SAMTÖK úrvalsdeildarliða í Englandi hafa
samþykkt að Chelsea eigi rétt á að leita eftir
skaðabótum vegna brots Rúmenans Adrian
Mutu á samningi við félagið. Chelsea hafði far-
ið fram á að dómstóll á vegum samtakanna úr-
skurðaði í málinu. Chelsea mun krefjast að fá
endurgreiddar 8 milljónir punda, helming
þeirrar upphæðar sem það greiddi Parma fyrir
Mutu sumarið 2003. Chelsea segir að Mutu hafi
með eiturlyfjanotkun sinni brotið samkomulag
sitt við félagið. Mutu gerði í vetur samning við
Juventus eftir að hafa verið rekinn frá Chelsea
eftir að upp komst um neyslu hans á eitur-
lyfjum. Mutu getur leikið síðustu leiki Juventus
á leiktíðinni þegar keppnisbanni hans verður
lokið. Chelsea ætlar að höfða mál gegn Mutu en
verði félaginu dæmdur sigur þá kemur það
væntanlega í hlut þess félags sem hann leikur
með að greiða bæturnar. Málið fer nú inn á
borð FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins.
Ef ekki vill betur þá hyggst Chelsea höfða mál-
ið fyrir almennum dómstólum.
Krefjast bóta vegna
Adrian Mutu
ÅRHUS GF komst í gærkvöldi í
annað sæti dönsku úrvalsdeildar-
innar í handknattleik með því að
sigra Team Helsinge á útivelli,
32:29. Róbert Gunnarsson skoraði 5
mörk fyrir Árósaliðið og Sturla Ás-
geirsson 3. Magnús Agnar Magn-
ússon skoraði ekki fyrir Team Hels-
inge en hinn hálfíslenski Hans
Lindberg gerði hinsvegar 10 mörk
fyrir liðið. Kolding er með 43 stig á
toppnum, Århus GF 38 og GOG 36
en GOG á leik til góða. Þessi lið
leika ásamt Viborg til úrslita um
meistaratitilinn.
SKJERN, undir stjórn Arons
Kristjánssonar, burstaði botnliðið
Svendborg á útivelli, 44:29, en er í
fimmta sæti og á ekki möguleika á
að komast áfram. Ragnar Óskars-
son og Jón Þorbjörn Jóhannsson
skoruðu 4 mörk hvor fyrir Skjern.
GÍSLI Kristjánsson skoraði 3
mörk fyrir Fredericia sem tapaði
fyrir AaB á útivelli, 30:25.
Fredericia er í 10. sæti af 14 liðum í
úrvalsdeildinni.
RÍKHARÐUR Daðason, fyrrver-
andi landsliðsmaður í knattspyrnu,
framlengdi í gær samning sinn við
Fram um eitt ár. Hann er þar með
samningsbundinn félaginu út tíma-
bilið 2006. Ríkharður kom til Fram
í fyrra eftir langa dvöl erlendis og
var markahæsti leikmaður liðsins í
úrvalsdeildinni með 7 mörk í 15
leikjum.
KEFLAVÍK tapaði fyrir Víkingi
R., 2:4, í æfingaleik sem fram fór í
Egilshöllinni í gærkvöldi. Baldur
Sigurðsson og Guðmundur Stein-
arsson skoruðu fyrir Keflavík en
Halldór Jón Sigurðsson gerði
þrennu fyrir 1. deildarlið Víkings.
GRÉTAR Rafn Steinsson lék all-
an leikinn með Young Boys sem
tapaði, 1:3, fyrir Zürich í undan-
úrslitum svissnesku bikarkeppninn-
ar í knattspyrnu í gærkvöldi. Zür-
ich leikur til úrslita gegn Luzern,
félaginu sem landsliðsmennirnir
Sigurður Grétarsson og Ómar
Torfason léku með á árum áður.
DAVID Moyes og Alex Ferguson,
knattspyrnustjórar Everton og
Manchester United, lentu í rifrildi á
hliðarlínunni undir lok leiks liðanna
í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Hvorugur vildi gera mikið úr atvik-
inu eftir leikinn. „Við töluðum sam-
an á skosku, þetta hendir þegar
tveir skoskir knattspyrnustjórar
mætast,“ sagði Moyes brosandi.
EVERTON tókst loksins að sigra
Manchester United, í fyrsta skipti í
20 leikjum síðan 1995. Duncan
Ferguson skoraði sigurmarkið þeg-
ar liðin áttust við fyrir tíu árum og
hann lék sama leik í gærkvöldi.
Manchester United hafði unnið 17
af þessum síðustu 20 leikjum lið-
anna.
FÓLK
Reuters
inn hjá Chelsea, sækir hart að landa sínum í liði Arsenal, Ro-
eign liðanna á Stamford Bridge í gærkvöld.
vinnum ekki“
Chelsea tóku enn eitt skrefið
ttspyrnu þegar þeir gerðu
ford Bridge í gærkvöldi. Þar
u eiga fimm leikjum ólokið
nni næsta mánudagskvöld.
gardaginn og Arsenal síðan
udag.
egir að Chelsea verðskuldi enska meistaratitilinn
ARNAR Grétarsson sá til þess að Lokeren ætti
enn ágæta möguleika á að komast í úrslitaleik
belgísku bikarkeppninnar með því að jafna
metin, 1:1, gegn Germinal Beerschot í fyrri
undanúrslitaleik liðanna sem fram fór í Loker-
en í gærkvöldi. Mark Arnars kom sex mínútum
fyrir leikslok, hann átti þá hörkuskot úr erfiðri
stöðu sem markvörður Germinal varði en Arn-
ar fylgdi á eftir og náði að koma boltanum í
netið.
Arnar Þór Viðarsson kom aftur inn í lið
Lokeren eftir ökklameiðsli og tók á ný við fyr-
irliðastöðunni af Rúnari Kristinssyni. Rúnar
var tvívegis nærri því að skora í fyrri hálf-
leiknum. Liðin leika aftur á heimavelli Germ-
inal eftir þrjár vikur.
Mikilvægt
mark Arnars