Morgunblaðið - 02.05.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flug og gisting
frá kr. 49.990í 5 daga
M.v. 2 í herbergi á Hotel Atlantis með
morgunverði, 20. maí. Netverð.
Barcelona
í maí
frá kr. 24.090
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Verð kr. 24.090
Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
20. maí. Netverð.
Beint flug
13. maí - uppselt
20. maí - nokkur sæti laus
27. maí - nokkur sæti laus
Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins í þessari
einstöku borg á frábærum kjörum.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
HLUTAFÉÐ í Mosaic Fashions
sem boðið verður til sölu hér á landi
jafngildir um 13% hlut í félaginu.
Boðið verður hlutafé fyrir 4,8 millj-
arða, þar af verður fagfjárfestum
boðið að kaupa 3,6 milljarða en al-
menningi 1,2 milljarða. Verðið til al-
mennings ræðst af niðurstöðu út-
boðsins til fagfjárfesta, samkvæmt
upplýsingum frá Kaupþingi banka
sem er ráðgjafi félagsins við söluna
og fyrirhugaða skráningu í Kauphöll
Íslands.
Stærstu hluthafar félagsins eru
Baugur Group, Kaupþing banki og
lykilstjórnendur í félaginu og stofn-
endur Karen Millen, þau Kevin
Stanford og Karen Millen. Þessir
aðilar hyggjast ekki selja hluti sína
heldur verða eingöngu seldir nýir
hlutir við fyrirhugað hlutafjárútboð.
Í kjölfar hlutafjársölunnar er stefnt
að sölu skuldabréfa fyrir 6 milljarða.
Mosaic Fashions varð til við sam-
einingu Oasis Store og Karen Millen
í fyrra en auk þess rekur félagið
verslanirnar Coast og Whistles.
Þessi vörumerki eru, samkvæmt
upplýsingum frá félaginu, meðal
þeirra þekktustu á sviði hátísku-
kvenfatnaðar í Bretlandi og hafa
sterka stöðu hjá aldurshópnum
18–45 ára.
Þrjár verslanir á Íslandi
Upphaf félagsins má annars veg-
ar rekja til ársins 1981 þegar fyrsta
Karen Millen-búðin var opnuð og
hins vegar til ársins 1991 þegar Oas-
is var sett á laggirnar. Verslanir fé-
lagsins eru nú alls um 600, flestar í
Bretlandi og á Írlandi en einnig rek-
ur félagið verslanir á meginlandi
Evrópu, í Mið-Austurlöndum,
Bandaríkjunum og Kína. Hér á
landi rekur félagið þrjár verslanir
og nokkrar verslanir eru á Norð-
urlöndunum. Helsti markaður fé-
lagsins er eftir sem áður breski
kvenfatamarkaðurinn og í tilkynn-
ingu félagsins er sá markaður talinn
velta um 1.900 til 2.000 milljörðum
íslenskra króna á ári. Markaðurinn
hafi að jafnaði stækkað um 4,7% á
ári á árunum 1999–2004. Hlutdeild
Mosaic af þeim markaði sé um 2%
og framtíðarhorfur félagsins eru
sagðar góðar.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
reksturinn hafi gengið mjög vel und-
anfarin ár. Innri vöxtur hafi verið
13% á ári að jafnaði síðustu þrjú ár
og á sama tímabili hafi hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnskostnað
(EBIDTA) aukist um 27% á ári.
Veltan á síðasta ári hafi verið rúmir
43 milljarðar króna og hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnskostnað
6,3 milljarðar. Eftir að tekið hefur
verið tillit til afskrifta og fjármagns-
kostnaðar nam hagnaðurinn um 2,5
milljörðum króna, samkvæmt upp-
lýsingum frá Kaupþingi.
Til að fjármagna kaupin á Karen
Millen í fyrra þurfti félagið að taka
lán. Með hlutafjáraukningunni er
ætlunin að endurskipuleggja fjár-
mál fyrirtækisins, grynnka á skuld-
um en jafnframt afla fjár til frekari
uppbyggingar, jafnt í Bretlandi og á
Írlandi sem og á alþjóðlegum mörk-
uðum. Að sögn Örvars Kærnested,
framkvæmdastjóra fyrirtækjaráð-
gjafar Kaupþings, verða skuldir fé-
lagsins á bilinu 17,5–18 milljarðar að
lokinni hlutafjársölunni og skulda-
bréfanna sem teljist ekki mikið mið-
að við stærð félagsins og afkomu
þess.
Mosaic Fashions hyggst bjóða hlutafé til sölu hér á landi og skrá félagið í Kauphöll Íslands
Almenningi býðst 1⁄4 af
nýju hlutafé í Mosaic
Hlutafjáraukningin jafngildir 13% hlut
Um 600 verslanir eru reknar undir merkjum Mosaic Fashions víða um heim.
DEREK Lovelock, forstjóri Mosaic,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
sjálfsagt hefði stjórnendum fyrir-
tækisins ekki
dottið í hug að
skrá fyrirtækið í
Kauphöllinni á Ís-
landi nema vegna
þess að Jón Ás-
geir Jóhann-
esson, forstjóri
Baugs, stakk upp
á því. „Eftir að
hann nefndi
þessa hugmynd
skoðuðum við málið, leituðum ráð-
gjafar, heyrðum álit nokkurra aðila í
Bretlandi og tókum síðan ákvörð-
unina. Hefði hann ekki minnst á
þetta þá hefði okkur ekki endilega
dottið þetta í hug,“ sagði hann.
Lovelock sagði að kostir þess að
skrá fyrirtækið á Íslandi tengdust
einkum stærð fyrirtækisins sem
væri fremur lítið á breskan mæli-
kvarða. Með skráningu á Íslandi yrði
það á hinn bóginn eitt stærsta fyr-
irtækið á hlutabréfamarkaði hér á
landi en slíkt hefði ýmsa kosti í för
með sér, m.a. mundi væntanlega
reynast auðveldara að afla frekari
hlutafjár ef ákvörðun um slíkt yrði
tekin. Þá væri upphæðin sem ætl-
unin væri að afla með sölu hlutafjár,
4,8 milljarðar króna, fremur lág og í
Bretlandi hefði það almennt verið
talið erfiðleikum bundið að afla
hlutafjár fyrir svo lága upphæð.
Aðspurður sagði Lovelock að allt-
af hefði staðið til að skrá félagið á
hlutabréfamarkað. Eftir kaup fyr-
irtækisins á Karen Millen og Whistl-
es í fyrra hefði fyrirtækið setið uppi
með tiltölulega dýr lán og eftir að
hafist var handa við að endur-
skipuleggja fyrirtækið hefði orðið
ljóst að einnig var þörf á fjárhags-
legri endurskipulagningu. Með því
fé sem fengist með hlutafjárútboð-
inu yrði hægt að losa fyrirtækið við
dýr lán og jafnframt safna fé til
frekari uppbyggingar. Tímasetn-
ingin væri góð fyrir fyrirtækið en
einnig væri eftir talsverðu að slægj-
ast fyrir fjárfesta því að þó svo að ár
væri liðið frá kaupunum á Karen
Millen og Whistles ætti hagnaður af
sameiningunni, og hagræðingu sem
fylgdi í kjölfarið, enn eftir að skila
sér í rekstri fyrirtækisins. Þá gengi
reksturinn afar vel hjá öllum keðj-
unum og stefnt væri að því að opna
enn fleiri búðir. Oasis ræki t.a.m. 34
búðir í Kína, í samvinnu við kín-
verskan aðila, og væri stefnt að því
að þær yrðu 70 í sumarlok. Þá hefði
nýlega verið opnuð Karen Millen
búð í Madríd og Moskvu og stefnt
væri að því að opna fljótlega búð
skammt frá New York.
Lovelock kom til landsins í gær-
kvöldi, eftir talsverðar tafir á
Heathrow vegna skordýraeitursleka
í flugvél Icelandair, og hyggst eiga
fundi með ráðgjöfum og hugsan-
legum fjárfestum.
Lítið á Bretlandi en stórt á Íslandi
Derek Lovelock
runarp@mbl.is
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að til að byrja með
yrði Mosaic
Fashions ein-
vörðungu skráð í
Kauphöll Ís-
lands. „Það er
seinni tíma mál
að skrá félagið
einnig í Kaup-
höllinni í Lond-
on. Við teljum að
félagið sé enn
ekki nógu stórt
til þess að fara á
markað í Bretlandi. Okkar reynsla
er sú, að fyrirtæki þurfi að vera
með veltu upp á um það bil einn
milljarð punda, til þess að ná ein-
hverjum sýnileika á markaðnum,“
sagði Jón Ásgeir.
„Það er hluti af endurfjár-
mögnun félagsins, að skrá það á
markaði. Við teljum að félagið eigi
góða möguleika á að spjara sig á
íslenska hlutabréfamarkaðnum.
Þetta er spennandi og ört vaxandi
félag, með fjögur mjög góð vöru-
merki og mun því væntanlega
vekja athygli íslenskra fjárfesta,“
sagði Jón Ásgeir.
Baugur Group á, að sögn Jóns
Ásgeirs, 43% í Mosaic Fashions,
stjórnendur félagsins eiga um 20%,
Kaupþing banki á 11%. 26% hlut-
arins eru síðan í dreifðri eign og
stofnendur Karen Millen, þau Kev-
in Stanford og Karen Millen, eru
stærstu eigendurnir í þeim hópi.
„Baugur Group ætlar sér að
vera áfram kjölfestufjárfestir
þessa félags, á því verður engin
breyting,“ sagði Jón Ásgeir, og
bætti við að hlutafjáraukningin
hér á landi færi öll til íslenskra
fagfjárfesta og almennings, ekki
núverandi eigenda. Það væri
hlutafjáraukning upp á um 12%.
Jón Ásgeir kvaðst bjartsýnn á
að það tækist að safna þeim 4,8
milljörðum króna í nýju hlutafé
hér á Íslandi, bæði meðal almenn-
ings og fagfjárfesta, eins og að er
stefnt.
Aðspurður hvenær hlutafjár-
útboðið yrði haldið sagði Jón Ás-
geir að forsvarsmenn félagsins
myndu þegar í næstu viku byrja að
hitta fjárfesta. Almenningur kæmi
til með að geta skráð sig fyrir
hlutabréfum í Mosaic síðar í þess-
um mánuði.
Mosaic
spennandi
og ört vax-
andi félag
Jón Ásgeir
Jóhannesson
EITUREFNI helltist niður í vél Icelandair á Kefla-
víkurflugvelli í gærmorgun. Átti vélin, sem kom frá
Minneapolis, að fara til London klukkan átta en flug-
inu var frestað vegna lekans. Vélin lagði þó af stað til
London kl. 11.45 og seinkaði þannig um tæpa fjóra
tíma.
Lögregla girti strax af svæðið í kringum vélina og
var eiturefnateymi kallað til í því skyni að hreinsa upp
eitrið. Þar var um að ræða skordýraeitur sem verið
var að flytja frá framleiðanda í Minneapolis og átti það
að fara áfram til Parísar, að sögn Guðjóns Arngríms-
sonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.
Guðjón segir ákveðnar reglur gilda um hvernig
bregðast skuli við í slíkum tilfellum og sú atburðarás
hafi verið sett í gang. „Það er kallað á lögreglu,
slökkvilið, eiturefnateymi kemur að þessu auk þess að
þeir sem hugsanlega gátu hafa komist í snertingu við
efnið voru sendir í læknisskoðun,“ segir Guðjón og
bætir við að í ljós hafi komið að ekkert amaði að
hvorki farþegum né áhöfn vélarinnar.
Efnið var í fragtrými flugvélarinnar en að sögn Guð-
jóns eru slík efni dagsdaglega flutt í farþegavélum um
allan heim. Um flutning slíkra efna gildi þó strangar
reglur. „Svo virðist sem í þessu tilviki hafi verið farið
að öllum reglum varðandi frágang efnanna. Við vitum
ekki á þessu stigi hvernig stóð á að lekinn varð,“ segir
Guðjón og bætir við að málið verði rannsakað. Segir
Guðjón málið þó ekki flokkast undir flugatvik og þurfi
því ekki að kalla til Rannsóknarnefnd flugslysa á þeim
forsendum.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi Bárðar
Lögregla, slökkvilið og sérstakt eiturefnateymi voru
kölluð til vegna eiturlekans í vél Icelandair í gær. Þá
var Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja gert viðvart.
Skordýraeitur helltist
niður í vél Icelandair