Morgunblaðið - 02.05.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 33
Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Miðasala í síma 568 8000 -
og á netinu: www.borgarleikhus.is
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
3. maí kl. 20 - 3. sýn 8. maí kl. 20 - 4. sýn
10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
Vínarferð Vinafélags Íslensku óperunnar
Örfá sæti laus - Skráning í síma: 562-1077
Nánari upplýsingar á Óperuvefnum
HREYFIAFLIÐ í Blessuðu
barnaláni er eins og löngum í
gamanleikjum togstreita kynslóð-
anna. Unga fólkið sýnir þeim sem
eldri eru enga
ræktarsemi og
það er ekki fyrr
en hin kúgaða
heimasæta lýgur
upp andláti móð-
ur sinnar sem
systkini hennar
ómaka sig aust-
ur í fæðing-
arþorpið. Og
gömlu sam-
skiptamunstrin
eru þarna enn þó æskuheimilinu
hafi verið breytt í hótel og hver
farið sína leið. Síðan gengur á með
tilheyrandi veseni út af lyginni og
alls kyns pínlegum uppákomum
þar til tjaldið fellur.
Verkið er kannski ekki eins vin-
sælt verkefni nú og það var fyrir
nokkrum árum, en við það að sjá
hvað það verður Seltirningum efni
í líflega og skemmtilega sýningu
er alveg ljóst að það er hvorki úr-
elt né byggir vinsældir sínar á for-
tíðarþrá. Það er lipurlega skrif-
aður og áreynslulaus gamanleikur
með sterku farsabragði en missir
aldrei tökin á því að fjalla um fólk
af holdi og blóði af hlýju og sam-
úð. Ég hef enga trú á að þetta
verk eigi nokkurn tíma eftir að
falla í gleymsku. Spái því að eftir
svona tuttugu ár muni fólk kalla
Blessað barnalán klassík án þess
að blikna.
Bjarni Ingvarsson er bæði gjör-
kunnugur verkum af þessum toga
og þaulvanur að vinna með fé-
lögum á borð við Leiklistarfélag
Seltjarnarness sem ekki státar af
langri sögu og sterkri hefð þó
sumir leikaranna kunni greinilega
eitt og annað fyrir sér. Upp-
færslan er enda hefðbundin mjög,
umgjörðin með viðteknum hætti,
óaðfinnanlega útfærð reyndar af
leikstjóranum, og allt gengur lip-
urlega fyrir sig. Sýningin er heilt
á litið kraftmikil og fjörug, þó ein-
staka leikarar ættu enn eftir að
hrista af sér skrekkinn á frumsýn-
ingunni og gefa í botn. Mestu
skiptir þó að kómíkinni er vel til
skila haldið með góðum tímasetn-
ingum og hæfilegum hraða þegar
það átti við. Fyndin tilsvör hittu í
mark, framsögn öll til fyrir-
myndar. Í stuttu máli sagt: þetta
virkar.
Þó svo allir hafi tækifæri til að
sýna skemmtilega takta, og geri
það, hvílir ábyrgðin á að halda
sýningunni á floti þyngst á þrem-
ur leikurum. Jóhanna Ástvalds-
dóttir skilaði hlýjunni í frú Þor-
gerði með mikilli prýði og var
aukinheldur fyndin þegar á þurfti
að halda. Askur Kristjánsson er
ungur að árum og greinilega efni í
afbragðs gamanleikara ef marka
má hinn kostulega og vandræða-
lega séra Benedikt sem hann
skapar hér án teljandi áreynslu að
sjá. Síðast en ekki síst er Guðrún
Ágústsdóttir yndisleg sem hin
bælda systir sem kemur öllu af
stað og glímir við afleiðingarnar
út verkið. Hún á samúð áhorfenda
óskipta þó við hlæjum að hverjum
þeim ógöngum sem höfundurinn
sendir hana í af stráksskap sínum.
Þetta er fyrsta sýningin sem ég
sé hjá Leiklistarfélagi Seltjarn-
arness. Það er óhætt að segja að
þau kynni fari vel af stað. Blessað
barnalán er ósvikin skemmtun af
gamla skólanum, en fersk samt
eins og góð leiklist er ævinlega;
búin til á staðnum og því síung.
Takk fyrir mig.
Hún lifir!
LEIKLIST
Leiklistarfélag Seltjarnarness
Höfundur: Kjartan Ragnarsson, leikstjóri.
Bjarni Ingvarsson. Félagsheimili Seltjarn-
arness 29. apríl 2005.
BLESSAÐ BARNALÁN
Kjartan
Ragnarsson
Þorgeir Tryggvason
SÝNINGIN á Súperstar í Horna-
firði er samvinna eins og hún gerist
best í litlu plássi. Á milli fimmtíu og
sextíu manns undirbúa
söngleikinn; þrettán
krakkar úr skólanum
leika og syngja af list,
átta manna kór leik-
félaga, kennara og for-
eldra nemendanna
syngur af þvílíkum
krafti og færni að það
er eins og þau hafi aldr-
ei gert annað og tónlist-
in er leikin, stjórnað og
tekin upp af atvinnu-
tónlistarmönnum á
staðnum. Það er auðvelt
að hrífast af sýningunni
í heild sinni því öll um-
gjörðin er glæsileg og
vönduð og lýsingin sér-
kapítuli.
Tónlistin er glæsilega samin og
sagan spennandi hjá Webber og
Rice og mjög gaman að rifja upp
gæsahúðina frá því í Austurbæj-
arbíói um árið; sirka sjötíu og fimm.
Júdas er í forgrunni; öfund hans og
svik vegna velgengni Jesú og vin-
sælda. Júdas er kvengerður hjá
Gunnari leikstjóra og tekst það
prýðilega því að Nanna H. Imsland
syngur svo ljómandi vel. Það var þó
synd hvað lítið skildist af texta henn-
ar í fyrri hlutanum og sennilega
mest um að kenna hvað tónninn í
hljómflutningstækjunum var al-
mennt hvellur. Þetta hafði verið lag-
að eftir hlé. Verkið er vel þýtt og
textinn áheyrilegur og leitt að heyra
ekki hvert orð. En tónlistin var firna
vel flutt og vel blönduð með kunn-
uglegum áherslum. Unga fólkið söng
almennt vel og sumir áttu stjörnu-
leik og -söng. Þar ber fyrstan að
telja Þórð Ingvarsson í hlutverki
Pontíusar Pílatusar með flotta rödd
og mjög sterka útgeislun. Elvar
Bragi Kristjónsson var mjög
skemmtilegur í hlutverki prests,
drengurinn iðar af leiklist og ætti að
rækta hana vel. Ingibjörg Ingv-
arsdóttir var í stutta númerinu hans
Heródesar sem hafði verið gerður að
gleðikonu dyntóttri en stúlkan sló í
gegn með söng sínum og leik. Í
heildina var leikstjórnin til fyrir-
myndar, hraði og jafnvægi ríktu frá
upphafi til enda og mörg glæsileg at-
riði fengu áhorfendur til að grípa
andann á lofti. Hins vegar hefði
þurft að sinna betur hverjum og ein-
um, draga fram sérkenni persón-
anna.
Galli uppfærslunnar er valið á
leikaranum í hlutverki Jesú. Strákn-
um er enginn greiði gerður með
þessu grundvallarhlutverki. Í það
þarf leikara með sterka útgeislun og
hæfileika í erfiðum söngnum en því
var ekki hér að heilsa og þess vegna
vantaði alveg ástæður hinna persón-
anna fyrir að trúa á hann og ástæður
Júdasar fyrir svikunum. Allt annað
var samt glæsilegt hjá Hornfirð-
ingum sem sönnuðu hér stórhug
sinn og listrænan metnað eins og oft
áður.
LEIKLIST
Leikfélag Hornafjarðar, Fram-
haldsskólinn í Austur-Skafta-
fellssýslu, Tónskóli Austur-
Skaftafellssýslu
Höfundar: Tim Rice og Andrew Lloyd
Webber. Þýðendur: Emilía og Hannes Örn
Blandon. Leikstjóri: Gunnar Sigurðsson.
Tónlistarstjóri: Jóhann Moravek. Tónlist-
arvinnsla og upptaka: Heiðar Sigurðs-
son. Ljósahönnun: Sigurður Kaiser. Leik-
myndarhönnun: Gunnar Sigurðsson.
Búningar: Guðleif Kristbjörg Bragadóttir
og Heiðveig Maren Jónsdóttir.
Sýning í Mánagarði 20. apríl.
Rokksöngleikurinn
Súperstar
Hrund Ólafsdóttir
Stórhugur og
listrænn metnaður
Júdas kyssir Krist í Súperstar.
ÁRBÓK Ferðafélags Íslands 2005
nefnist Austfirðir frá Reyðarfirði
til Seyðisfjarðar eftir Hjörleif Gutt-
ormsson, náttúrufræðing í Nes-
kaupstað. Í bókinni eru á fjórða
hundrað litljósmyndir og einnig eru
12 mynda syrpur úr hverjum þétt-
býlisstað svæðisins, Reyðarfirði,
Eskifirði, Neskaupstað og Seyð-
isfirði. Þá eru birtar 20 gamlar ljós-
myndir af mannvirkjum og merk-
ismönnum fyrri tíðar.
Guðmundur Ó. Ingvarsson land-
fræðingur hefur teiknað öll stað-
fræðikort bókarinnar, 11 talsins og
einnig 13 jarðfræðikort og skýring-
aruppdrætti unnin eftir frum-
gögnum annarra. Í þessum kortum
og teikningum felast miklar upplýs-
ingar sem ekki hafa verið almenn-
ingi aðgengilegar áður, svo sem um
berggrunninn, rof hans og aðra
landmótun.
Síðasti kafli bókarinnar geymir
ágrip af jarðfræði Austfjarða sem
höfundur hefur tekið saman eftir
ritgerðum jarðfræðinga sem birst
hafa undanfarin 50 ár.
Í landlýsingu sinni nefnir höf-
undur alla sveitabæi sem byggðir
hafa verið á svæðinu og gerir grein
fyrir því hvernig þéttbýli hefur
myndast og segir
helstu drætti at-
vinnusögunnar.
Hann lýsir stað-
háttum, stað-
setur öll helstu
örnefni og segir
þann hluta þjóð-
arsögunnar sem
gerst hefur á
þessum austasta
hluta landsins. Landlýsing bók-
arinnar hefst við Eyri á suður-
strönd Reyðarfjarðar og lýkur í
landi jarðarinnar Brimness í Seyð-
isfirði á mörkum við Loðmund-
arfjörð.
Þetta er 75. árbókin sem FÍ gefur
út og er hún afhent félagsmönnum
gegn greiðslu árgjalds sem er 3.900
krónur.
Árbók Ferðafélags Íslands 2005
Austfirðir frá Reyðar-
firði til Seyðisfjarðar
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn