Morgunblaðið - 02.05.2005, Side 36
36 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
The Jacket kl. 5.50 - 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 8
9 Songs kl. 10,30 b.i. 16
Maria Full of Grace kl. 6 b.i. 14 á
Napoleon Dynamite kl.8 - 10
Beyond the Sea kl. 5,30
Vera Drake kl. 8
Hole in my Heart kl. 10,30 b.i. 16
Don´t Move kl. 5,40 b.i. 16
Garden State kl. 8 b.i. 16
Beautiful Boxer kl. 10,15
3
ÓSKARSTILNEFNINGAR
MBL
Ó.H.T Rás 2
Síðasta sýning
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist
bestur. Með Óskarsverðlaunahafanum,
Adrien Brody (The Pianist)
og Keira Knightley úr „Pirates of the
Caribbean” og „King Arthur”.
ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA!
DV
S.V. MBL
A Hole
in my Heart
Síðasta sýning
Ó.H.T Rás 2
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með
Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira Knightley úr
„Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
Framlengt til 2. maí
Lokadagur
SKEMMTIKRAFTURINN Bjarni Ara er
landsmönnum að góðu kunnur allt frá því hann
var valinn Látúnsbarki Stuðmanna árið 1987.
Nú vinnur Bjarni hörðum höndum að nýrri
breiðskífu sem stefnan er að komi út með haust-
inu. Af plötunni er nú eitt lag nýkomið í spilun á
útvarpsstöðvum, endurútgáfa af lagi Hilmars
Oddssonar „Allur lurkum laminn“ úr kvikmynd
hans „Eins og skepnan deyr“. Bjarni segir þó að
lagið sé í hans flutningi komið í allt annan bún-
ing en upprunalega útgáfan. „Laginu er snúið
algjörlega við. Það er það skemmtilega við mús-
íkina, hún er svolítið eins og arkitektúr, hægt að
innrétta á svo margan hátt.“
Lengi langað að gera
plötu í Big Band-stílnum
„Allur lurkum laminn“, eins og önnur lög
plötunnar, er nefnilega í svokölluðum stórsveit-
arstíl eða Big Band sem er þema plötunnar.
Platan er enn á frumvinnslustigi og því segir
Bjarni að ekki sé komið nafn á gripinn. Á plöt-
unni verði aðallega að finna íslensk lög þó ein-
hver erlend slæðist með. Hann hafi leitað í hin-
um og þessum kistum að efni en fyrst og fremst
haft í huga tónlist sem sé lagræn og þjóðinni
þyki vænt um. Síðast en ekki síst sé skilyrði að
hægt sé að snúa lögunum í stórsveitarsveiflu.
Bjarni segir að sig hafi raunar lengi langað að
gera slíka plötu, aðspurður hvers vegna hann
hafi valið stórsveitarstílinn. Til að byrja með
hafi það ekki verið hugmyndin með einmitt
þessa plötu en einhvern veginn hafi hún orðið
ofan á. Þrýstingur frá góðum vinum hafi
kannski haft sitt að segja. Segja má að Bjarni
leiti til upphafsins með plötunni, en áður en
hann byrjaði að syngja spilaði hann sjálfur á
trompet og lék í stórsveit sem spilaði tónlist í
anda Glen Miller og gömlu meistaranna. Einnig
segist Bjarni ásamt hljómsveitinni Milljóna-
mæringunum hafa fengist við skylda tónlist.
„Snilld hvað Þóri tekst vel upp“
Ásamt Bjarna koma að plötunni ýmsir vanir
hljóðfæraleikarar. Sjálfur tekur Bjarni tromp-
etinn upp á ný en meðal annarra má nefna Sam-
úel Samúelsson „Samma í Jagúar“, Einar Val
Scheving trommuleikara og Róbert Þórhallsson
bassaleikara. Bjarni segir að ekki sé um að
ræða stórsveit í bókstaflegri merkingu sem
mæti í hljóðverið, heldur séu það mikið sömu
mennirnir, vanir hljóðfæraleikarar sem spila
inn á í lögunum. Síðastan en ekki sístan ber að
nefna Þóri Úlfarsson, en hann er bæði upp-
tökustjóri, útsetjari og leikur á píanó á nýju
plötunni. „Þórir er svona altmulig-maðurinn á
bak við plötuna. Það er snilld hvernig hann
vinnur þetta og frábært að heyra hvað honum
tekst vel upp með Allur lurkum laminn.“
Bjarni segir ekki komna nákvæma tímasetn-
ingu á útgáfu plötunnar en að næsta lag fái að
heyrast í sumar. Líklega verði um fjögur lög bú-
in að heyrast áður en platan sjálf komi út.
Blaðakonu fannst liggja beint við að spyrja
hvort svona plata bjóði ekki upp á ballstemn-
ingu og Bjarni telur því ekki að neita.
Bjarni Ara í stór-
sveitarstemningu
Morgunblaðið/Þorkell
Bjarni leikur sjálfur á trompet á plötunni.
Látúnsbarkinn Bjarni Arason vinnur nú að nýrri breiðskífu
sem kemur út með haustinu. Platan verður í svokölluðum stór-
sveitarstíl en fyrsta lag plötunnar er komið í spilun á útvarps-
stöðvum. Anna Pála Sverrisdóttir átti stutt spjall við Bjarna.
Tónlist | Fyrsta lag af nýrri plötu komið út
FJÖLDI fólks lagði leið sína í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í
gær, en Iðnnemasamband Íslands
(INSÍ), Bandalag íslenskra náms-
manna (BÍSN) og Samband ís-
lenskra námsmanna erlendis
(SÍNE) buðu til fjölskylduhátíðar
og skemmtidagskrár í tilefni af
frídegi verkalýðsins.
Á skemmtidagskránni var m.a.
boðið upp á tónlistarflutning frá
Skólahljómsveit Kópavogs og
hljómsveitinni Hraun!. Þá var í
boði andlitsmálning og blöðru-
trúðar bjuggu til dýr úr blöðrum
fyrir börnin. Gestir garðsins
gæddu sér á pylsum og Hi-C auk
þess sem Skoppa og Skrítla
skoppuðu um garðinn og spjöll-
uðu við börn og fullorðna til
skiptis.
Hulda Katrín Stefánsdóttir,
formaður INSÍ, segist afar ánægð
með daginn og aðsóknina að
garðinum, en alls er talið að um
3.500 manns hafi sótt garðinn í
gær. „Það var ánægjulegt að sjá
aukinn áhuga ungs fólks á fyrsta
maí og hátíðahöldum á þessum
degi,“ segir Hulda. „Yngra fólk
hefur undanfarin ár sýnt bar-
áttudegi verkalýðsins sífellt
minni áhuga, en við viljum efla
þátttöku ungs fólks í verkalýðs-
baráttu yfir höfuð og það
endurspeglast í þátttöku í há-
tíðarhöldum 1. maí. Dagurinn
kórónaðist með örfáum snjó-
kornum sem komu niður í sólinni,
sem kom ekki að sök og var í
rauninni bara mjög fallegt.“
Iðnnemasambandið hefur und-
anfarin ár boðið félagsmönnum
sínum frítt í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn og hefur mikil að-
sókn verið í garðinn á þeim há-
tíðum.
Kátt í Fjöl-
skyldu- og
húsdýra-
garðinum
Mikil hátíðarstemning ríkti í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær.
Frá æfingasvæði ökumanna framtíðarinnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessi ungi maður
hefur kunnað vel að
meta pylsur sem
gestum garðsins
var boðið upp á.
Sara Líf ásamt hinum hressu Skoppu og Skrítlu.