Mánudagsblaðið - 04.04.1955, Blaðsíða 5
Mánudagur 4. april 1955
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
5
Kvenfólk - Dtvarp - Skrítlur - ofl.
w
Frá skýjunum fá-
um við fegurðina
Vitið þið að rigningavatn-
ið, sjálft fegurðarmeðal
náttúrunnar, hefur töfraáhrif
á húðina og greir hana mjúka
og fallega.
Ef húðin hefur orðið hrjúf
af slæmri meðferð, þá er
bezta ráðið að þvo sér upp
úr rigningarvatni, og mun
hún þá verða silkimjúk og
falleg.
Hin fagra franska Diane de
Poitiers fegurðardrottning á
dögum Hinriks konungs átt-
unda, var spurð þegar hún
var áttræð, hvað væri leynd-
armálið að hinum fagra hör-
imdslit hennar.
Það er ekkert leyndarmál,
svaraði hún, ég nota rigning-
arvatn til að þvo mér úr, og
því einu og engu öðru, á ég
að þakka þá fegurð sem ég á.
Allar konur ættu að not-
færa sér þessa guðs gjöf. Not-
ið því tækifærið þegar rigning
er, og safnið ykkur eins miklu
af rigningarvatni og þið get-
ið, ekki eingöngu fyrir and-
litið heldur allan líkamann.
BragÓbelri matur
Kigningarvatnið er ekki að-
eins gott til fegrunar líkam-
ans heldur er þáð líka ómet-
anlegt við matargerð.
Flesk eða saltað nautakjöt
sem soðið er í rigningarvatni
er mýkra og miklu bragð-
betra heldur en ef notað er
vatnið úr kranum.
Grænmeti heldur miklu
betur hinum ferska græna lit,
þegar það er soðið í rigninga-
vatni.
Þurrkaðir ávextir verða
mýkri og bragðbetri ef soðnir
eru í rigningarvatni.
Málning
Alit, sem málað er verður
fallegra og auðveldara að
þrífa, ef hún er þvegin upp
úr rgningarvatni.
Munið, áð áður en þið not-
rigningavatnið að síja það
vel.
Smávegir
I litlu blaði sem heitir
Smávegis og var gefin út
1872 eru þessar sundurlausu
hugsanir.
★ Fyrstu hundrað ástar-
kossarnir eru úr eldi, hinir
næstu 899 úr gulli, en sú þús-
undasti úr steini.
★ Kvenmannslaust heimili
er eins og sykurlaust kaffi.
★ Konan er nokkurskonar
grammatík, sem öll verba
ganga óreglulega í.
Hraði
Krossgáta
[ M ánudag sb la ðsins
SKÝRINGAR:
Lárétt: 1. Eyja í Miðjarðarhafi -— 5. Fyrirtæki í Rvík
— 8. Sund — 9. Kirkjustaður — 10. Óþrif — 11. Blekking
— 12. Baun — 14. Eldsneyti — 75. Bleytur — 18. Upp-
hafsstafir — 20. Kona — 21. Tveir ósamstæðir — 22. Amboð
— 24. Nauðsynlegt í ferðalögum — 26. Tré — 28. Huppar
— 29. Bráðlyndur maður — 30. Geislabaugur.
Lóðrétt: 1. Stjómmálamaður (útl.) — 2. Verkfæri —
3. Tala illa um — 4. Upphafsstafir — 5. Andstæður — 6.
Fisk — 7. Eldstæði — 9. Tangi — 13. Léleg — 16. Sjór —
17. Buga — 19. Halda — 21. Gras — 23. Húsmóðir — 25.
Ýfirhöfn — 27. Glíma.
Maður nokkur missti konu
sínu á sunnudegi. Hann lét
jarðsetja hana á mánudag-
inn, syrgði hana á þriðjudag-
inn, bað sér annarar konu á
miðvikudaginn og gjörði brúð
kaup til hennar á fimmtudag-
inn.
Hann gerði heimnn forviða
með hraða sínum; en nú kom
röðin að heiminum, að gjöra
hann forviða, Kona hans
fæddi honum son á föstudag-
inn; þett gramdist honum svo
mjög, að hann hengdi sig á
laugardaginn, og var hann
svo grafinn á sunnudaginn.
Þeir kveð ja í út-
varpmu
Tveir fastir þættir kvöddu
hlustendur í síðustu viku.
Fyrst kvaddi Björn Th.
Björnsson sem hafði á hendi
þáttinn, Úr heimi myndlistar-
innar, og gerðt það af snilld.
Vafalaust hefur öllum þótt sá
þáttur bæði skemmtilegur og
fróðlegur; á hann góðar þakk-
ir skilið fyrir hann-
Rétt á eftir kvaddi Jónas
Jónsasson, sem hefur haft á
hendi þáttinn Léttir tónar,
eru það frekar hlustendur en
hann sjálfur sem stjórna þætt
inum, svo hann á ekki svo
mikið í sínum þætti og Björn
á í sínum, en hvað um það,
hann kvaddi og kvaddi vel
með því að enda hann á að
syngja sjálfur.
Og nú í kvöld (föstudag)
kveður Helgi Hjörvar með
sína sögu. Það er leiðinlegt
hvað Hjörvar hefur verið ó-
heppinn með val tveggja
sagna í vetur. Eymdin í þeim
báðum var svo mikil, að
flestum hlustendum, sem
hlusta á sögur sér til skemmt-
unar, hefur víst þótt nóg um.
Ert nú er spurningin, ætlar
útvarpsráð að láta okkur í té
enn meiri eymd, eða leyfir
það Hjörvar að vera einráðum
og velja og lesa fyrir okkur
hlustendur eina góða skemmti
lega sögu, sem uppbót fyrir
hinar ?
Sögur í útvarpinu geta haf t
geipimikið aðdráttarafl. Á-
í’eiðanlega veit það enginn
betur en Hjörvar, sem hefur
slegið met í því efni.
Þessvegna er það áskorun
að Helgi Hjörvar komi nú
fram og lesi fyrir okkur eina
reglulega spennandi sögu
sem hann velur sjálfur.
Kvöldvakan á fimmtudags-
kvöld var vel lukkuð. Fræðslu
þættir, eru sjálfsagt góðir, en
því er eytt heilu kvöldi í þá?
Áreiðanlega væri betur þegið
aðfá einn fræðsluþátt á kvöldi
og svo eitthvað léttara með
Hvernig stendur á að þátt-
ur Bjarna Böðvarssonar,
Gamlar minningar, hefur fall-
ið niður ? Gerði hann of mikla
lukku?
Þátturinn „Hvað er á seiði“
er vægast sagt ósköp lélegur,
enda varla við öðru að búast
þegar kallað er í Pétur og Pál
til að skemmta Pétri og Páli
og engin dómgreind fyrir
hendi hvað sé hægt og hvað
ekki.
★
Læknavísindin segja að
fólk lifi núna 20 árum lengur
en það gjörði fyrir 100 árum.
Þeir verða að gera það, til
þess að borga skattana.
★
Presturinn í umvöndunar-
tón: „Þeir segja að þú takir
9% fyrir peningalánin en þú
veist að þú mátt ekki taka
meir en 6%.. Hvernig heldur
þú að himnaföðurnum líki
þetta?"
Okrarinn: „Þegar hann sér
töluna 9 ofanfrá, þá heldur
hann að það sé 6“.
Faðirinn: „Mundu nú að
lesa bænirnar þinar, . Óli
minn“.
Öli: „Eg þarf þess ekki, —
þeir halda á himnum að ég
sé dáinn“.
Faðirinn: „Hvað er að
heyra, af hverju heldurðu
það?“
Auglýsið
Óli, hróðugnr: „Eg hef ekki
lesið bænirnar mínar í hálfan
mánuð og svo hugsa þeir bara
að ég sé dáinn“.
Mánudagsblaðinu
Myndimar að ofan sýna ýms-
ar tegundir hálsmena en
neðsta myndin sýnir bæði
hálsmen og eymalokka.
ll-t
— fyrsti trúlofuuarhringurinn minn!“