Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.05.1955, Page 8

Mánudagsblaðið - 09.05.1955, Page 8
ÚR EINUí ANNAÐ * __ __'■ . ,'<v- "• »' •» Draugur í Nauslí — Sleinar og Páll biskup — I , j 8óð hugmynd — Hál skóiasljérans I — Já eéa nei — Kysstu mig aftur Framhald af 5. síðu. „Eg gæti komið með þær,“ sagði hún hjáróma, „ef þú kærir þig um. Á sunnudag- inn. Við skuluni ekki hafa hátt — en það er draugur í Naustinu. Skyggnir menn sjá hann á kvöldin — í ein- hverju horninu; hann glottir að dansfólkinu. Sumir segja að han fái sér sjúss á laugardögum, jafvel heyr- ist róta í vínföngum kjallarans. Hver er hann? Jú — pólskur skipstjóri, sem fylgir stýrishjólinu, sem hangir yfir dansgólfinu. Hjólið er úr skipi, sem strandaði austur á söndum. Síeinn Steinar skáld og Dósoþeus Tímóteusson gengu suður á Þjóðminjasafn og skoðuðu sig um. Var þar margt að sjá en að lokum staðnæmdust þeir við steinkistu Páls biskups Jónssonar, skoðuðu nákvæm- lega hinar jarðnesku leyfar kirkjuhöfðingjans frá upp- hafi Sturlungaaldarinnar. „Jæja“ segir Steinn, „hann lítur bara þokkalega út — en heldur grannvaxinn“. „Og þú ert nn andskoti lítið þykkari á bóginn“ svaraði Dósi. ★----------------- Unnendum leiklistar ber sannarlega að þakka hinum ungu leikurum, sem nú sýna „Lykil að leynd- armáli“ í Austurbæjarbíói. Hversu, sem þetta leikrit kann að takast, og oss er tjáð að það takist vel, þá er þetta vissulega spor í rétta átt. Leikarastéttin er fjölmenn, en atvinnulítil. Meira af svo góðu! *----------------- Ekkert heyrist nýtt frá rannsókninni á f jármálum Ingimars skólastjóra. Fréttir herma að upphæðin sé alltaf að stækka og segja sumir hana kr. 800.000 en aðrir rúmlega milljón. Hvað á lengi að þegja um þetta mál? Þátturinn „Já eða nei“ er nú hættur en þó fór svo, að þessi vinsæli þáttur slapp ekki við illgimistal, eins og flest það, sem vel er gert og eftir farandi sýnir. Menn ræddu þáttinn og lof uðu sumir en aðrir löstuðu. Einn viðstaddra gall þá framm í og segir: „Eini mun- urinn á Sveini og hagyrðingunum hans er sá, að þeir botna allar vísur, en hann botnar ekkert í þeim.“ Hrað á að gera í hvöld? SUNNUBAG KYlkmyndabús: i íJamla bíó: Pétur Pan. Walt Disney. Kl. 5, 7 og 9. Nýja bíó: Kjólar í heildsölu. Susan Hayward. KI. 5, 7 og 9. Tjamarbíó: Ástríðulogi Elanora Rossi Drago. Kl. 7 og 9. Stjörnudaus kl. 5. Austurbæjarbíó: Salka Valka. Gunnel Boström. Kl. 7 og 9.15. Stríðstrumbur Indíánanna. Kl. 5. Stjörnubíó: Montana. Lon McCallister. Kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó: Forboðið. Toni Curtis. Kl. 5, 7 og 9. Tripolibíó: Korsikubófarnir. Richard Greene. Kl. 5, 7 og 9. leikhús: jÞjóðJeikhúsið: Krítarhringurinn. Margrét Guðmundsdóttir. Kl. 20.00. Kðnó. Kvennamál kölska. Brynjólfur Jóhannesson. Kl. 20.00. „Vertu ekki að hafa fyrir því, Jill. Auk þess verð ég ekki heima á sunnudag. Ef þú skilur þær bara eftir innpakk aðar, þá gæti ég sótt þær seinna í vikunni.“ Hann kvaddiog hringdiaf. Hún starði um stund á tól- ið í hendinni og skellti því svo á með öllu afli örvænting- arinnar. Hafði hún raunveni- lega misst Jan? Hún varð að hitta hann. Hún gaf þá lélegu afsökun að hún væri kvefuð, svo hún gæti verið heima síðustu tvo daga vikunnar þegar hann kæmi að sækja bækurnar. En á föstudagsmorgun Eileen, systir hans, sem Jill þekkti varla, að sækja bæk- umar. Stúlkan fékk henni þær í forsalnum — en á bak við glugga stóð Jill og horfði á Eileen fara. Það var eins og hún héldi á hjartanu úr Jill undir hendinni. Á sunnudaginn fór hún til Clevedon. Til þess að heim- sækja aftur þessa staði þar sem þau höfðu átt svo marg- ar himingjustundir virtist eins og lina sársaukann. En þennan sunnudag rigndi Fáir vom úti við, og hún fann ein- veruna, kalda og gráa eins og hafið læsast um sig. Hún byrj aði að ganga gegnum skóg- inn, sem stóð hátt uppi í klett- unum. Er gráir skuggarnir settust að henni og fætur hennar sukku í vota jörðina, fann hún að það hafði aðeins gert illt verra að koma aftur. Jan .... Ó, Jan, þú skild- ir ekki . .. .! Og þá, skyndilega, hljóp hún fram og laut niður eftir einhverju hvítu, sem glitraði í mosanum. Ein hvít fjóla, sem svignaði undan regn- þunganum. Hún sleit hana upp og regndropi valt úr f jól unni í lófa hennar. Trjágrein brotnaði og liún hrökk við að heyra fótatak. Hún snerist á hæli og í sama bili sagði Jan: „Jill“. Hún stóð upp: Þau horfðu þegjandi hvort á annað með- an regnið draup. 1 hendinni hélt hann á litlum f jóluvendi. Hann steig fram og stakk þeim i hnappagatið á frakk- anum hennar og einhvern veginn breyttist sú aðgerð í ástríðuþrungin faðmlög. „Jan!“ hvíslaði Jill. „Ó, Jan, elskan mín — kysstu mig núna.“ Það skipti ekki nokkru máli að f jólumar mörðust á brjósti hennar. MÁNUÐAGSBLAÖIÐ Frábær æfiiilýramynd í Gamla bíói Um þessar mundir sýnir Gamla bíó eina skemmtileg- ustu æfintýramynd, sem enn- þá hefur verið sýnd hér, æfin- týrið um Pétur Pan eftir J. M. Barries. Æfintýrið um Pétur er heimsþekkt, fjallar um draum bamanna litlu, sem fara með Pétri og ljósálfin- um í annan heim og lenda þar í alls kyns æfintýrum hjá Indíánum, sjóræningjum og öðrum. Walt Disney hef ir f ramleitt þessa mynd, sem er teiknuð í tilefni af 25 ára starfsafmæli hans og sýnd í technicolor. List Disneys og starfsmanna hans er með slíkum ágætum, að ekkert hefur hér betra sézt af því tagi. Það er alveg misskilningur að þessi mynd sé fyrir börnin ein. Því fer víðs fjarri. Fullorðnir hafa vissulega jafn mikla skemmt- un af myndinni og ungling- arnir. Persónurnar eru stór- snjallar, spaugilegar, voða- legar, og börnin öll eins og barna er siður full af æfin- týraþrá. Vart má telja, að öllu betri mynd fyrir börnin hafi komið hingað til landsins, og má sannarlega hvetja unga sem gamla að gera sér ferð nú í Gamla bíó og sjá Pétur Pan. Það er sagt, að allir ungling- ar hafi í laumi sína hetju- drauma og að einmitt Pétur Pan sé einn af slíkum draum- um.Hérer tækifærið til að sjá æskudrauma sína og fyrir unglingana að sjá þá rætast — á mynd. A.B. Vöm „okrarans” Framhald af 1. síðu. ur fjórfaldri til tuttugfaldri upphæð ágóðans af viðskipt- uni þeim sem kærð voru. En baktjaldamennirnir — þeir sem sagðir eru eiga pen- ingana ? Það er einnig refsivert at- hæfi, og verður þeim báðum refsað millimanni og fjáreig- anda fyrir sama brot á sömu löggjöf. Hversu lýst yður á okur- nef nd Alþingis ? Hlægilegt fyrirtæki. Allir sem telja að lög hafi verið brotin á sér geta leitað réttar síns hjá embætti sakadómara. Viðskipti okkar við borgar- ana hafa algerlega byggzt á frjálsum samningum við þá, og ég verð að segja, að það eru litlir karlar, sem hlaupast burt frá gerðum samningum undir pilsfald okumefndar. Nöfn þeirra verður gaman að sjá. Þá má til gamans geta þess, að upphafsmaður þess- arar nefndar er Gunnar M. Magnúss, og flestir kannast við. Hann hefur nú sjálfur reynt að selja þúsund krónu víxla, en ekki fundið kaup- endur. Þessi piltur hefur hefur starfað í mörgu um æf- ina með misjöfnum árangri en spaugilegast var þegar hann hélt fyrirlestur um knattspymu eða einhverja slíka íþróttagrein. Hann seldi inngang að fyrirlestrinum og játaði þegar í upphafi, að að vísu bæri hann ekki skyn á íþróttina en hefði hinsvegar heyrt unglinga ræða bolta- leikinn. Væri það nú hugmynd hans að stofna æskulýðsfylk- ingu utan um boltaleikinn. Brostu margir hlustenda og skildu ekki almennilega hver tilgangur hans var. Vel má búast við að svona maður hafi í hyggju að leggja undir sig skátahreyfinguna, en þar ræður maður, sem vel veit hvemig tala á við slíka karla og hvar athafnasvæði þeirra er. ★ Þetta em nú orð eins af „okrurunum" og skýrir hann málin frá sjónarmiði þeirra. Eins og vér tókum fram í upp- hafi þá er afstaða blaðsins sú sama og í fyrstu. En margt er athyglisvert í þessum mál- um og vissulega verður gam- an að sjá hvemig yfirvöldin bregðast við ef það reynist rétt, að opinberar stofnanir hafa lánað út fé með af- föllum. Að endingu sagði „okrar- inn“ þetta: Úr því, að alþingi tók rögg á sig og skipaði nefnd til að rannsaka hvað sé að ger- ast í þjóðfélaginu, þá átti nefnd til þess að rannsaka skattsvik að vera skipuð fyrst. Mikið er talað um húsaleiguokur. En sannleik- urinn er sá, að fasteignir bera sig ekki með þeirri leigu, sem nú gildir, ef tillit er tekið til kaupverðs þeirra. Dæmi: I- búð, sem kostar kr. 300.000 þarf að gefa af sér minnst 30.000 á ári. Það samsvarar því, að þriggja herbergja í- búð sé leigð út á kr. 2.500 á mánuði. Skattsvik leigusala og leigutaka, aðallega þó leigusala, nemur árlega í Reykjavík nokkrum tugmn milljóna. Aðalmein þjóðfélags okkar eru hin geypilegu skattsvik, en stjómmála- flokkarnir allir virðast sam- mála um, að láta þau af- skiptalaus. Þeir hafa þar all- ir hagsmuna að gæta.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.