Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Qupperneq 4

Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Qupperneq 4
Máttödagur 15. ágúst 1955 MÁNTJÐAGSBLAÐIÐ MÁNUDAGSBLAÐIÐ — Blað fyrir alla — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Blaðið kcmur ut á mánudögum. —*^Vcr8 2 kr. í lausasölu. Afgreiðala: Tjamarg. 39. — Sími ritstj. 3496. PrentsmiÍja ÞjóSviljans h.J. .—.--------------— -------— Aðalfimdur Loftleida lif. Aðalfundur Loftleiða h.f. var haldinn miðvikudaginn 2. þessa mánaðar í veitingastofu félagsins á Reykjavíkur- flugvelli. Formaður félagsins, Kristján Guðlaugsson, hæsta- léttarlögmaður, setti fundinn. Fundarstjóri var kjörinn Jón I’ Emils, héraðsdómslögmaður og fundarritari Jón Magnús- ton, héraðsdómslögmaður. Á fundinum mættu umráðamenn hlutafjár að upphæð kr. 1.276.700,00 en allt giæitt hlutafé er tæpar 2 milljónir króna, og var fundurinn því lögmætur. Skýrslur félagsstjprnar og framkvæmdastjóra Þá fluttu skýrslur um starf- semina á liðnu ári þeir Kristján Guðlaugsson, formaður félags- Síjórnar, varaformaður Sigurður Helgason og Alfi’eð Elíasson fram kvæmdastjóri. Hafði veltan num- ið rúraum 28 milljónum króna og var það rúmlega 60% aukn- áng. miðað við árið 1952. Fluttir voru 11 þúsund farþegar og farn ar 115 ferðir fram og til baka milli meginlanda Evrópu og Ameríku. Fram kom á fundinum að Loftleiðir eru nú stærsti íslenzki auglýsandinn erlendis, og í ferða fjöida yfir Atlantshafið hefur fé- lagið nú komizt fram úr flugfé- lögum stærri þjóða, til dæmis Spánverja, og eru nú farnir að riálgast flugfélög ítala og ísraels- manna í Atlantshafsflugi. Félagið hefur nú byggt upp mjög víðtækt sölukerfi erlendis, og hefur í því sambandi opnað nýjar skrifstofur vestan hafs og austan. Starfsmannafjöldi og fleira Starfandi eru nú hjá félaginu hérlendis og erlendis 150 manns, þar af 85 í Reykjavík. í fyrrasumar opnaði félagið vistlega veitingastofu á Reykja- víkurflugvelli, þar sem hægt er &ð taka sgpxtímis á móti farþeg- jum úr tveim millilandaflugvélum en áliR þess er þar tilreiddur allur sá matur, sem borinn er fram í flugvélunum á ferðum þeii'ra héðan. Reksturinn í ár A þessu ári hefur félagið keypt Skymastervél, og hefur nú þrjár slíkar vélar í förum, enda ferðum fjölgað í vor upp í fimm á viku milli meginlanda Amex-íku og Evrópu. Farþegafjöldinn frá síðast liðn trni áramótum til júlíloka er 8.528 og er það 54% aukning, miðað Við sama tíma í fyrra. Farnar haía verið 94 ferðir fram og til foaka yfir Atlantshafið, miðað við 68 á sama tíma í fyrra. Á þessu ári var opnuð ný flugleið milli Reykjavíkur og Luxemborgar. Deilan við Svia Rætt var um uppsögn. loftferða £t ™ningsins milli Islands og Sví þjóðar, og kom fram á fundinum að mönnum þótti afstaða Svía í því máli hin furðulegasta, og vildu fundarmenn ekki tx'úa því að Svíar væru ráðnir í að neyða íslenzku flugfélögin til að. hætta flugi til Svíþjóðar um næstu ára mót. Stjórnarkosning Stjórn félagsins var einróma endui'kjörin, en hana skipa: Ki-istján Guðlaugsson, foi'maðui', Sigurður Helgason, varaformað- ur og meðstjói'nendur, Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen, og Ólaf- ur Bjarnason. Varastjórnin var einnig endurkjörin, en hana skipa: Einar Ái'nason og Sveinn Benediktsson. Önnur mál Rætt var almennt um rekstur félagsins og komu í því sam- bandi fram nokkrar tillögur frá fundarmönnum, sem allar voru samþykktar einróma. Innanlandsflug' Fulltrúi nokkurra hlutliafa í Vestmannaeyjum kom fram með tillögu þar sem skorað var á stjórn félagsins að athuga mögu- leika á að hefja innanlandsflug að nýju, svo fljótt sem verða má, og afla hentugra flugvéla til rekstursins. Nýjar flugleiðir Samþykkt var svohljóðandi til- laga: Aðalfundur Lloftleiða h.f. hald- inn 3. ágúst 1955, telur að stjói'n félagsins hafi að undanförnu stefnt í rétta átt með aukningu miliilandaflugsins, og skorar á stjórnina að athuga möguleika á fjölgun viðkomustaða erlendis, til dæmis í Stóra-Bretlandi. Skattfrelsi flugfélaga Samþykkt var eftirfarandi: Aðalfundur Loftleiða h.f. hald inn 3. ágúst 1955, ályktar að nauðsyn beri til að ríkisvaldið styrki flugstarfsemi í landinu með því að láta flugfélög njóta skattfrelsis. í þessu sambandi vill fundurinn benda á að erlend flugfélög njóta beinna og óbeinna styrkja af opinberri hálfu. Gistlhúsmál Fram kom á fundinum eftir- , Framhald á 8. sí5u Ólafur Bansson• menntaskólahennari: Vísindamennska og draumórar Thor Heyerdahl hinn norski er kominn á stúfana einu sinni enn. Hann varð millj- ónamæringur á Kontiki-för- inni hér um árið, og má kannske segja, að það hafi verið að verðleikum, því að sú för var mikið afrek. En kenningar Heyerdahls í sam- bandi við þessa ferð voru fár- ánlegur þvættingur, sem eng- inn vísindamaður á sviði þjóð fræðinnar tók hið minnsta mark á, en meðal almenn- ings, ekki sízt hér á landi, voru sumir stórhrifnir af þeim. Kenning Heyerdahls var sú, að Suðurhafseyjar hefðu byggzt frá Ameríku, en ekki Indónesíu. Hann þótt- ist hafa sannað þetta með því að láta sig reka á fleka frá Perú til Suðurhafseyja. Hitt lét hann sér í léttu rúmi liggja, að óteljandi sannanir eru fyrir þvi, að Suðurhafs- eyjar hafa byggzt frá Indó- nesíu. Þá landnámssögu má meira að segja stundum rekja all ítarlega í einstökum atriðum. Tungumál allra Suð- urhafseyjabúa eða Pólynesa eru greinilega skyld málum Indónesa, en alls óskyld Indíánamálunum í Ameríku. Málfræðingar telja tilraunir Heyerdahls til að finna skyld- leika með málum Indíána og Suðurhafseyjabúa svo mikla fjarstæðu, að þær séu ekki svaraverðar. Sannleikurinn er sá, að Heyerdahl er alger fúskari á þeim vettvangi, sem hann hefur hér kvatt sér hljóðs á. Hann er dýrafræð- ingur að menntun en hefur ekki kynnt sér svo mikið sem undirstöðuatriðin í þjóðfræði og málfræði, en það eru þær vísindagreinar, sem hljóta að skera úr um þetta mál. Og bæði þjóðfræðingar og mál- fræðingar hvar sem er í heiminum hafa fyrir löngu talið það fullsannaða stað- reynd, að Polynesía hafi byggzt frá Indónesíu. Nú undanfarið hafa ís- lenzku blöðin verið að birta fréttir af fyrirætlunum Hey- erdahls, sem varpa skæru ljósi á vísindamennsku hans. Þau segja, að hann sé að und- irbúa leiðangur til Páskaeyj- ar til að sanna, að íbúar eyj- arinnar hafi í öndverðu kom- ið frá Suður-Ameríku og með því sé fengin skýring á hinum einkennilegu höggmyndum þar á eyjunni, sem margir hafa brotið heilann um, bæði fyrr og síðar. Það er athygl- isvert, að Heyerdahl fer ekki í þessa för til hlutlausra rannsókna og til að hafa það, er sannara reynist, heldur er hann fyrirfram ákveðinn í því, að hvaða niðurstöðu hann ætlar að komast. I þeim „rannsóknum" skal ekkert komast að, sem ekki fellur í hans kram. Hvílík vísinda- mennska! En ekki er að efa, að þegar Heyerdahl kemur heim frá Páskaeyju þykist hann vera búinn að sanna, að líkneskin miklu eigi rætur sinar að rekja til Suður-Ame- ríku. En gáta líkneskjanna verður jáfn óráðin eftir sem áður, og hún verður áreiðan- lega ekki ráðin af neinum fúskui’um í faginu. Það er í sjálfu sér ekkert nýtt, þótt menn, sem enga sérþekkingu hafa á einhverri fræðigrein, komi fram með kenningar, sem stangast ger- samlega við skoðanir allra sérfræðinga. Það er heldur ekkert nýtt, að talsvert af fólki gíni við slíkum kenn- ingum, ef þær eru bornÉfr fram á litríkan og dramatísk- an hátt. Þannig trúði fjöldi manna því einu sinni, að kenningar Svíans Rudbecks væru heilagur sannleikur, en hann hélt því fram, að Svíar væru forfeður menningarþjóð anna í fornöld, svo sem Hellena og Rómverja. Og enn í dag er það ekki svo fátt fólk, sem trúir á vitleysuna um Kensingtonsteininn, þó að vísindamenn séu búnir að sanna að áletranirnar á hon- um eru bamalegar falsanir. Við Islendingar erum flestum þjóðum ginkeyptari fyrir dellukenningum af þessu tagi. Eg þekki hér fjölda manna sem bregðast reiðir við ef bomar eru brigð- ur á, að kenningar Heyerdals séu hárréttarr Og ekki alls fyrir löngu fór einn aðdáandi Heyerdahls á stúfana í ís- lenzku dagblaði og byggði mikla spilaborg á kenningum hans. Hann dró ekki í efa, að það væri rétt að Suðurhafs- eyjar hefðu byggzt frá Ame- iiku, en bætti því svo við frá sjálfum sér, að líklega hefðu Indíánarnir, sem byggt hefðu Suðurhafseyjar, verið af ís- lenzkum ættum, afkomendur Björns Breiðvíkingakappa og annarra Islendinga, er hrakið hefðu til Ameríku í fymdinni. Þessi greinarhöfundur var auðsjáanlega verðugur læri- sveinn Heyerdals og líkur læriföður sínum í algerri fyr- irlitningu á staðreyndum. En svona kenningar em vissar með að ganga í fólkið, sem allt afar ginlteypt fyrir dramatískum einfaldleika í hlutunum. Nýlega var því haldið fram í fullri alvöru í íslenzku blaðið, að Snorri Sturluson hefði skrifað Njáls- sögu, og næstu daga á eftir var ég alltaf að mæta mönn- um, sem sögðu, að nú væri gátan ráðin, íslenzkur bóndi hefði sér skotið fræðimönn- unum ref fyrir rass, og kenn- ing hans væri eflaust hin rétta. Yfirleitt eru það „rök- þéttir“ menn, sem taka svona kenningum fegins hendi, við þá verður ekki rætt með neinum rökum. En þeir eru f jölmargir hér í voru landi og horfa með meðaumkvunar- brosi á fræðimennina, sem em að velta fyrir sér hinum tor- ráðnu gátum fornbókmennta okkar. Þeim finnst það hlægi- legt að vera að brjóta heil- ann um slíkt, þegar lausnin er svona einföld. Það kemur líklega næst, að öll Eddu- kvæðin séu ort af Snorra Sturlusyni, það væri svo sém" ekki miklu verra. En í sann- leika sagt er svona vísinda- mennska a la Heyerdahl að verða plága í andlegu lífi okk ar, miklu meiri plága en með flestum öðmm þjóðum. Á. bak við þetta býr andlegur níhil- ismi, viðleitni til að draga á- lyktanir án hins minnsta til- lits til staðreynda, sem get- ur orðið að andlegri farsótt fyrr en varir. Og ef verulegur hluti þjóðarinnar tekur slík- um kenningum opnum örm- um hlýtur að draga vemlega úr þeirri virðingu sem sönn vísindi eiga að njóta með þjóðinni. Ölafur Hansson. Hvaðan var skáldið Vinje? Árni Öla blaðamaður hef- ur að undanförnu ritað fróð- lega og skemmtilega ferða- pistla frá Noregi, en þar var hann á ferð síðastliðið vor. í þessum pistlum er geysimik- inn fróðleik að finna, ekki sízt um ýmis söguleg efni. Á einum stað í frásögninni er þó skekkja, sem að vísu skipt- ir ekki miklu máli. Hún er um átthaga skáldsins mikla, A. O. Vinje. Ámi Óla segir að hann hafi verið frá bænura Vinje milli Stalheim og Vors. Þetta er byggt á misskilningi. Vinje var frá sveitinni Vinje á Vestur-Þelamörk. Hann kallaði sig í æsku Aasmund Olavsson, en síðan um hríð A. Olsen. Eftir að hann fór að fást við ritstörf að ráði tók hann að kenna sig við sveit- ina sína á Þelamörk og nefnd- ist upp frá því Aasmund Olafsson Vinje. A. O. Vinje var Þelamerkingur í Húð og hár. Það em f jöllin á Vinje á Þelamörk, sem hann hefur í huga í ljóðinu fræga: „Nu ser eg atter slike f jöll og dal- ar“, enda er það ort við Rondaf jölhn, sem um allt eru líkari Þelamerkurfjölhmum en f jöllum Vestur-Noregs. Ólafur Hansson.. j

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.