Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Blaðsíða 7
Márvudagur 15. ágúst 1955 MÁNUDAGSBLAÐIÖ Framhald af 3. síðu. skepnum hvernig prestarnir nota kvenfélagskonurnar víðs vegar í landinu í þarfir fjár- söfnunar til kirkna. Þeim mun þykja upphefð í öllu þessu stússi enda þótt þær sveitist blóðinu í öllum þræl- dómnum. Þær eru mátulega heimskar til þess að láta narra sig út í þessa vitleysu. En hvað sem um heimsku kvenfólksins er að segja, þá er þó eitt víst: Kvenfólk hef- ur aldrei haft karlmannsvit og því fer sem fer fyrir því. VH. Ekki má gleyma tignar- merkjum ríkisins. Orðuregnið okkar, utanlands og innan, er orðið athyglisvert. Sögur segja, að um 150 manns á Norðurlöndum hafi verið sæmt íslenzku Fálkaorðunni. Fyrir hvað veit enginn. Sagt er að jafnvel matreiðslukonur meðal Norðurlandaþjóðanna beri íslenzku Fálkaorðuna. • Eftir hvaða reglum orðan er veitt veit enginn. Heill her- skari þjóðarinnar hefir verið sæmdur Fálkaorðunni. Fyrir hvað er almenningi óljóst. Eitt er vist, að f jöldi mætra sona þjóðarinnar sem á mik- inn starfsdag að baki fær ekki orðuna, enda ekki hægt að láta öllum slíkt í té, sem vel vinna fyrir land og þjóð. Komum við þá að þeirri spurningu. Hvers virði er ein- staklingnum þetta merki. Dr. med. Gunnlaugur Classen var á sínni tíð sæmdur æðsta tignarmerki voru. Hann end- ursendi orðuna og taldi sig ekkert hafa með hana að gera. Dr. Classen stóð í fylk- ingarbrjósti stéttar sinnar og það með miklum ágætum. Hann lét verkin tala, í þarfir lands og þjóðar, tala máli, sem alþjóð skildi og þjóðin býr að, en skapgerð hans leýfði honum ekki að hengja þennan dinglanda á sig sem tákn um unnin afrek. Vilji hans og bragur allur var haf- inn yfir hégóma, enda var hann afbragð annara góðra manna, sem þjóðin mun lengi minnast, sem eins af sínum ágætustu sonum. VIII. Eins og stimdum hefir ver- ið minnst á, er það ógrynni fjár, sem Reykvíkingar greiða árlega í kirkjugarðs- gjald; hart nær tvær millj- ónir króna árlega. Þessu fé er eytt í þarfir kirkjugarða Reykjavíkur, en þek- eru kirkjugarðurinn við Suður- götu og Fossvogskirkjugarð- ur. 1 viðhald þessara garða er allri þessari skelfilegu fúlgu eytt. En það, sem merkileg- ast er í þessu efni, er að stjórn kirkjugarðanna og framkvæmdastjóri láta alger- lega undir höfuð leggjast að birta ársreikninga garðanna. Manni verður' á að spyrja: Hvað eru þessir háu herrar að fela? Telja þeir sig hafna yfir þær borgaralegu skyldur, að standa hlutaðeigandi skatt borgurum skilagrein fyrir gerðum sínum í þessum efn- um? Ef svo er, að stjórn garð- anna álítur að skattborgur- unum komi ekkert við um með höndlun þessa f jár, þá vil ég benda á, að sérhver skatt- borgari Reykjavíkur getur látið setja sig inn í bókhald kirkjugarðanna og séð með eigin augum hvemig fénu er varið. Cera má ráð fyrir því, að sá, er þetta ritar, snúi sér bráðlega til borgarfógeta Reykjavikur með beiðni um innsetningargerð í gerðabæk ur kirkjugarða Reykjavíkur. Verður þá úr þvi skoxið hvort stjóm og framkvæmdastjóri garðanna hefur einskorað vald yfir bókum og fjárreið- um garðanna. IX. Á fjái’lögum yfirstandandi árs er söngmálastjói’a þjóð- kirkjunnar ætlaðar kr. 2.400.- 00 í ferðakostnað vegna starfs síns. Hlutverk hans er að stofna kirkjukóra víðsveg- ar um landið, æfa þá í og kenna þeim kirkjutónlist og söng. Að öllum líkindum eru ca. 300 kirkjukórar í landinu, sem söngmálastjórinn á að ferðast á milli og veita föðm’- lega forsjón. Ef þessi hður fjárlaganna á ekki að fara fram úr áætlun verður söng- málastjórinn, á þessum kennsluyfirreiðum sínum, að hfa á risnu fólksins hkt og Símon Dalaskáld og Sölvi Helgason, er þeir á smni tíð höfðu yfirreiðir sínar xxm byggðir landsins. Hitt mun þó mála sannast, að í ferðakostn að söngmálastjórans er borg- að mikið meira fé úr ríkis- sjóði, en fjárlagafrumvarpið sýnir og þjóðin þannig leynd . hinrnn í’aunverulega ferða- kostnaði.1 X; Th eru í landi voru tveir Þórsteinar. Þetta eni sóma- menn. Þeir hafa um sína daga haft gaman af bókum. Þeir eru alveg sérstaklega miklir skrudduskjóðar. Þeir eiga heljar mikil bókasöfn, sem þeir eru alveg í ráðaleysi með. Þá vantar hús yfir bæk- urnar, þjón til að hirða þær, þeir eru hættir að líta í þær og þær eru þeim einskis virði. Þeir eru búnir að gera miklar tilraunir til að selja þess bókasöfn, en það hefur mis- tekizt. Annar hefur haft á prjón- unum miklar tilraunir um að selja sitt safn til Rússlands, hann er sólginn í rússneskar rúblur, því á þeim má græða. En sala bókanna til Rúss- lands hefur mistekist og er með öllu vonlaus. Nú reyna þessir Þórstein- ai’, að selja ríkissjóði þéssi bókasöfn. Annað handa Skál holtsstað, en Hitt handa Kenn ai’askólanxxm. Við þetta er að athuga. Kennaraskólinn hefir ekkert með stórt bókasafn að gera, þar sem að hann er ekki heimavistai’skóli, en nem endur hans hafa ávallt og gei’a enn, að nota sér bóka- söfn borgarinnar og þeim miklu hentugra en bókasafn skólans. Að fara að kaupa hitt safn ið fyrir Skálholtsstað, meðan allt er óséð hvemig endurreisn hans verður er fiúleit vit- leysa. Hvort bókasafnanna um sig mun kosta eina millj- ón króna. Væri hórfið að kaup unum mmidi verða að setja á stofn bókavarðarembætti á hvorum staðnum auk alls annars kostnaðr sem af-þess- um ástæðulausu bókakaupum leiddi. P. Jak. Hr. ritstjóri. Við undirritaðir, sem borðum að jafnaði á „Röðli“ óskum að gefnu tilefni að taka eftir- farandi fram. Afgreiðslustúlka sú, sem í síðasta tölublaði Mánudags- blaðsins var borin ómaldegum sökum og talin óhæf til að gegna störfum, er að okkar dómi höfð fyi’ir rangri sök. Okkar reynsla af þessari af- greiðslustúlku er þveröfug við þá, sem Guðm. nokkur Jónas- son telur sig hafa af fram- reiðslu hennar. Teljum við stúlkuna rækja starf sitt með mestu prýði og höfum við aldr- ei orðið annars varir, en að hún sé ávalt kurteis og alúð- leg við matargesti. Gagnýni er rættmæt og nauðsynleg, en sé hún eigi á rökum reist, eins og hér er um að ræða, særir hún og skaðar þann sem fyrir verð- ur. Virðingarfyllst, Bragi Jónsson, Viðar Gunn- laugsson, Júlíus J. Daníels- son, Vigfús Guðbrandsson. 4 S /íl | Framhald af 2. síðu. Þar sem við íslendingar erum nú farnir að senda skemmti-’ krafta okkar á erlendan vett- vang, er sízt að lasta að flytja inn skemmtikrafta, sem geta kennt okkar fólki ýmsar nýjung- ar í listinni. Hótel Borg og ýnús önnur veitingahús og skemmti- staðir eru nú farin að vanda til um val erlendra skemmtiki-afta og ber sannarlega að þakka það sem slíkt. Þótt gamaldags fólk telji það óþarfa útgjöld, þá verðum við fyrr eða seinna að beygja okk- ur undir þá staðreynd, að okkur er ómögulegt að berjast gegn straumum nágrannalanda okkar í þessum málefnum, og ber að þakka þeim, sem forstöðu hafa um það, að fá hingað góða. „hreina“. skemmtikrafta. A. B. Enn um samkomuna á Selfossi Nokkrir mætismenn og góð- kunningjar rnínir hafa réttilega bent' mér á, að ég hafi orðið fyrir skynvillu, er ég reit grein- ina: „Samkoman að Selfossi“, sem birtist í Mánudagsblaðinu 1. ágúst s.l., að get.a. þar ekki. séra Sveinbjarnar Högnasonar, prófasts, að Breiðabólstað í Rangárvallasýslu. Þetta skal hér fúslega viðurkennt. Mörg, ef ekki öll blöð, sem gátu samkom- unnar minntust hans sem ræðu- manns, enda flutti hann aðra aðalræðuna. Séra Sveinbirni gerði ekki svo mikið til þótt ég gleymdi honum í áminnstri grein, því hróður hans-.stendur ofar mínu lofi. Þegar þess er minnst, að séra Sveinbjöm Högnason hafi haldið ræðu, þarf slíkt ekki umsagn- ar, því svo gáfaður, málsnjall og geðríkur maður, sem séra Sveinbjörn er, hlýtur ávallt og æfinlega að halda góða ræðu. Hins er verðugt að geta, að séra Sveinbjörn hefur verið um tvo áratugi, einn af aðalmáttar- viðum bændasamtakanna á Suð- urlandsundirlendinu og landinu í heild. Hann hefur um tuttugu ára skeið verið í stjórn Mjólkur- bús Flóamanna og jafnlengi ver- ið formaður Mjólkursamsölunn- ar í landinu, að því ég bezt veit og leyst hvorttveggja af hendi með viðurkenndum ágætum. í hafróti átakanna milli bænda og borgarlýðs hafa brotnað all- þungir sjóir á séra Sveinbirni, en hann hefur staðið þá af sér með glans, enda er hann mikill málafylgjumaður til sóknar og varnar og veit vel hvar í fylk- ingu hann stendur og gáfur hans bíta eins og stál hvar sem hann beitir þeim. Af þessu er hann kjörviður sinna stétta og merkisberi þeirra. Það er vitað og viðurkennt um séra Sveinbjöm, að hann er maðux. hálærður í sinni aðal- fræðigrein, guðfræðinni, og auk þess fjölfróður maður. Þá má ekki gleyma því, að séra Svein- björn er búhöldum ágætur og er á undan stéttarbræðrum sín- um, prestunum, í þeim efnum um gjörvallt landið. En það hafa fleiri gleymt séra Sveinbirni en ég á þeim stundum sem bar að minnast hans. Á síðustu fimmtán árum hafa farið hér fram tvö biskups- kjör, en prestar landsins hafa í bæði skiptin gleymt honum enda þótt hann standi í fylking- arbrjósti presta um gáfur, lær- dóm og hverskyns hæfileika sem einn biskup. má prýða, Þar sem það er vitað og við- urkennt, að séra Sveinbjörn Högnason, er meðal hinna beztu stuðningsmanna bændasamtak- anna í landinu er vert og viðeig- andi, að óska bændum og búa- lýð þess, að hans megi sem lengst njóta við um máleíni bænda í landinu og ennfremur, að kirkja þessa lands megi eign- asf sem flesta menn honum líka, að lærdómi, mælsku, mál- snilld og hverskonar glæsi- mennsku sem einn höfðingja má prýða. P. Jak, Isgarns Ullar %loner«pe %loii Bómnllar SOREAR Heildsölubirgðir: Isl.-erlenda verzlunarfélagið hi. Garðastræti 2 Sími 5333.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.