Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.08.1955, Síða 4

Mánudagsblaðið - 22.08.1955, Síða 4
« írfámidagur #?. :ágúst. 1955 MÁNUDAGSBLAÐIÐ — BlaS fyrir alla — Ritstjórí og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. •laðið kemur út á mánudögum. — Verð 2 kr. (lausasölu. Afgreiðsla: Tjaraarg. 39. — Simi ritstj. 3466: , . .... ... .1 ; ... ' rt -tí „ 'r\ ’ . ■ ! fíJU {rt • .-f; TL i\. A •• ^ „ PrentsmiSja Þfóðviljans h.}. Olafur Thors — Stjórnarsamvinnan Upplausn á kærleiksheimilinu — — „A skal að ósi stemma“ Hvað lengi ætlar Ólafur Thors að halda áfram að sitja í stjórn með flokki, sem hans eigið blað heldur fram að sé stjórnað af verstu tegund æfintýramanna, sem dæmi séu til í sæmilega siðuðu landi? Hvað lengi ætlar sjálfur forsætis- ráðherrann að veita þeirri stjórn forstöðu, sem setin er af þremur Framsóknarmönnum „sem hugsa jafnframt fyrst um eigin vasa, frændur, vini og fIokkshagsmuni“ (Mbl. 17. ágúst a.l.). Morgunblaðið ber fram eftirfarandi ósk í leiðara mið- vik^daginn 17. ágúst. „Eitt getur Þjóðin gert:; Veitt framsóknarmönnum í náð lejTi frá störfum að málum þjóðarinnar svo þeir komizt aldrei í þá óþægi- Iegu aðstöðu að þurfa að velja milli sín og hennar. Reynslan hefur sýnt, að þeir velja jafnan fyrri kost- inn“. Þetta segir blað forsætisráðherra í leiðara undir fyrir- sögmnni: .„Ráðherrann og Grímisárhneykslið“, þar sem Steingrímur er borin hinum verstu sökum, réttilega. Þetta eru nokkuð stór orð, þegar þess er gsett að þau fjalla um mann og flokk, sem sitja í stjórn með Sjálfs- stæðismönnum. Þau myndu meira að segja þýða það „í siðmenntuðum löndum“, að stjómarsamyinnan væri komin í strand og stjómarslit væm framundan. Þessi leiðari Morgunblaðsins vakti nokkra von meðal manna um það, að nú myndi Sjálfstæðisflokkurinn hefja þá sókn á hendur óvininum, sem enda myndi með fullum fjandskap. Var beðið með eftirvæntingu eftir framhaldi næsta dag, en sú von brást óhugnanlega. Daginn eftir birti Morgunblaðið í leiðaraplássi sínu, einskonar samsull úr Time magazine, Observer og hugmynd- um stjómmálai’itstjórans úm notkun vinnuafls í Sovétríkj- unum!!! Hvað lengi ætlar formaður Sjálfstæðisflokksins að sitja undir fullyrðingum stjórnarblaðsins Tímans, að „Hann (Sjálfstæðisflokkurinn) sé' nákvæmlega sama fyrirbæri og liokkar auðstéttanna í Suður-Ameríku, sem láta engin meðöl ónotuð tíl að tryggja yfirráð purkunarlausrar gróðaklíku“. (Tíminn 18. ágúst s.l.). Hversu líður forsætisráðherra er hann setzt á fund með mönnum, sem hann raunverulega hafur ásakað um stór- felld afbrot í embættisfærslu — mönnum, sem næsta dag bera hann og flokksmenn hans þeim sökum að nota öll meðul til pólitískra glæpa, sem hugsanleg eru — að morðum og uppreisnum undanteknum — sennilega? Heldur Ólafur Thórs að kjósfendum flokksins þyki nóg, að einn daginn sé hann og flokksmenn hans bornir svívirði- legaun sökum, og næsta dag lýsi Morgunblaðið yfir þvi, að raforkumálaráðherra sé nálega óálandi og óferjandi fyrir „græðgi“, „tílhliðrunarsemi“, „valdníðslu“ og íslendingum sé bezt að sparka Framsókn á brott fyrir fullt og allt? Svona ásakanir og gagnsakir eru orðnar daglegur við- burður í blöðum stjórnarinnar, og fólkið er farið að undrast hve mikið langlundargeð forráðamenn Sjálfstæðisflokksins ætla að sýna þeim suður-amerísku æfintýramönnum, sem Sjálfstæðismenn hafa unnið með undanfarin ár. Upphrópanir um Framsóknarflokkinn nægja ekki lengur íslenzkum kjósendum. Sjálfstæðisflokkurinn verður að slíta allri samvinnu við þann flokk, sem mest vinnur gegn frjálsu og heilbrigðu viðskiptalífi, níðir og rægir allt það, sem sannir Sjálfstæðismenn trúa á. Hann verður að skjóta loku fyrir hinn sjúklega hugsunarhátt lestreka Vil- hjálms Þórs — eysteinskuna — hermaníuna, sigurði jónas- synina og þau þjóðfélagsmein, sem skapast hafa kringum þessa menn. Þetta minnir einna helzt á það, þegar skólafélag í menntaskólanum samþykkti að víta harðlega utanríkis- stefnu Rússa hér áður fyrr, enda telja kunnugir að Bulg- anin hafi skelfst ógurlega við orð Sigurðar. Vart verður annað sagt en að svona hlaup út í heims- málin þegar allt annað stendur okkur nær hér heima fyrir, stafi aðeins af einhverri óskiljanlegri hræðslu við að punda á Framsókn því, sem fyrir löngu hefði átt að punda á Framsóknarflokkinn. Blaði forsætisráðherra ætti að vera ljóst, að það er ekki vel séð meðal flokksmanna og annara landsmanna, sem fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum, að hótað sé stjórn- arslitum-einn daginn, en abbast út í rússneskt vinnuafl þann næsta. Morgunblaðið á fylgjendur víða en það þarf ekki að ætla sér áhrif hvorki í innan- né utanríkismálum stór- veldanna. Það er einmitt um þessar mundir að Sjálfstæðisflokk- urinn á mestum vinsældum að fagna. Vissulega er margt rangt í starfi hans og margt yrði ef til vill lagfært ef ekki þyrfti að drattast með Framsókn í eftirdragi. Höfuðstað- urinn er í hættu vegna sífelldrar innrásar Sambandsins. Framsóknarflokkurinn kaupir íbúðir undir uppflosnaða sveitabændur og lið þeirra hér í Reykjavík. Hann skaffar þeim atvinnu og styrkir þá á ýmsan hátt til þess að auka kjósendafylgi sitt. Áhugamál og fyrirætlanir Sjálfstæðis- manna ei’u oftast bornar ofurliði vegna heimtufrekju Fram- sóknar og einhvers óskiljanlegs ótta Sjálfstæðismanna. Þetta verður að koma í veg fyrir áður en skriðan er orðin of sterk. „Á skal að ósi stemma“ sagði Þór ■— og ekkert myndi frekar stöðva gleðikonu Framsókn en að senda henni slíka sendingu, sem Þór tröllkonunni. (Aðsent, stytt. Sfjórnarstif undirbúin .;v,í'í :> '•> * %' Framhald af 1. síðu. hann hefur skort kjark og festu til að halda málefn- um sínum til sleitu gegn stanzlausri sókn Fram- sóknar. Sjálfstæðismenn hafa of oft gefið undan. Þeir hafa dregizt, illu heilli, meira og meira niður í svikafen Framsóknar þó enn standi höfuð og herð- ' kr uþþi ' — eri Framsókn kömin’í kaf. ' ■ " En Sjálfstæðisflokkurinn hefur það sem Framsökn vantar. Ef gripið er í taum ana strax, þá getur hann kippt sér upp úr feninu og jtekið upp þráðinn á ný. Blekkinga- og svindlvefur Framsóknar er svo auð- sær, svikin, valdníðslan og prettirnir svo margir, að sá flokkur getur ekki af- sakað forkólfa sína á. nokkurn hátt. Eru þessir flokkar, að búa sig undir opinbera styrjöld. Þvi verður ekki svarað að sinni. En eitt er- víst: Stjómarrof og nýjar kosningar mundu bæta að- stöðu Sjálfstæðisflokksins og hnekkja Frasókn. Sjálfstæðismenn vilja að flokkur þeirra hverfi úr ó- heillasamstarfi við Fram- sókn. Meðan hún er við völd komast engin fram- faramál þjóðarinnar á. rétta braut. Þjóðin þolir ekki lengur- ágang og ok það, sem. Framsókn leiðir yfir hana. í æ rikari mæli. Viðskipta- frelsinu er voði búinn. At- hafnafrelsið er í hættu og jafnvel efnahagslegt og' þjóðernislegt sjálfstæði er í voða fyrir fésjúkum,. valdamiklum einstakling- um innan herbúða Fram- sóknar. Að þessu leyti getur- Sjálfstæðisflokkurinn una. ið heillastarf með að hrinda framsókn frá völd- um Aðrar og smærri mis- fellur má bæta fyrir síðaiv Það verður ekki erfitt þeg- ar höfuðóvinurinn er lagð- ur að velli. I.S.1 K.S.I. Landsleikurinn ISLAND - BANDARIKIN FEK FRAM A ÍÞRÓTTAVEHINPM I REYKIAVÍK FIMMTUDA6INN 25. AGOST KL. 7.30 SÍÐDE6IS ASgöngumiÖasala hefst á morgun (laugardag) í aðgöngumiðasölu íþróttavallarins og stendur til kl. 7 Aðgöngumiðar seldir sem hér segir; Laugardag 20. ágúst Sunnudag 21. ágúst Mánudag 22. ágúst Þriðjudag 23e ágúst M’ðvikudag 24. ágúst Fimmtudag 25. ágúst frá kl. 1. Kaupið miða tímanlega Verð aðgöngumiðanna: Stúkusæti .......... Kr. 50.00 Önnur sæti ........... — 35.00 Stæði ................ — 20.00 ' Bamamiðar .............. — 3.00 i rrui Tnn SELD VERÐA 200 STOKUSÆTI Allllijltr. QG 500 ÖNNUR SÆTI Móttökunefndin ■MMIIIlMltlllllOIMIIIIUUmilUlH piMBl

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.