Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.08.1955, Qupperneq 8

Mánudagsblaðið - 22.08.1955, Qupperneq 8
tJR EINU 1 ANNAÐ | I í „Snemma ólæs" — Óliasl villeysur — Lands- leikurinn - Siefnuljós bifreiða - Eflirsóil blanda Steinn Steinar, skáld, og Barði Guðmundsson, þjóðskjalavöi'ður, sátu saman á veitingahúsi og ræddu bókmenntir. Bar þar ýmislegt á góma, og um síðir minntist Steinn þess, að margt væri gott um ævisögu Þórðar hreppstjóra, sem Hagalín reit á árunum, en þó væri galli á, þvi framarlega í bókinni stæði: „Snemma varð Þórður ólæs“. Þá segir Barði: „Þetta er vitanlega prentvilla, en ef ég, sem vísindamaður, ætti að sjá um nýja út- gáfu af þessari bók, myndi ég ekki þora að breyta þvi“ ★---------------------- Menn sátu í Sjálfstæðishúsinu yfir kaffibollum og ræddu um málfar Morgunblaðsins og bar margt á góma. Voru menn á einu máli, að margt mætti betur fara í Morgunblaðinu, en sumum þótti taka út yfir er Morgunblaðið skýrði frá því, að í Noregi væri það notað til jafns við Snorra-Eddu og Heimskringlu í sambandi við íslenzkukennslu. Aðrir töldu mein mik- ið, að börnin, sem blaðið læsu, kynnu að taka upp rit- hátt og mállýzku Moggans, og yrði það unglingum að óbætanlegu tjóni. Eitt af vinsælustu ljóðskáldum þjóðarinnar, sem jafnframt er frægt fyrir hnyttin svör, varð þá að orði: „Það yrði þó enn verra, ef svo yrði, að bömin þyrðu ekki að taka orðréttar setningar upp úr Morgunblað- inu, af ótta við að þær væru vitlausar.“ ★---------------------- Mikill spenningur er meðal almennings í sam- bandi við landsleikinn við Bandaríkjamenn nú í vik- | uni. Má telja, að vart hafi verið beðið nokkurs leiks hérlendis með jafn miklum spenningi, enda ber margt til, og má ætla að geysilegt fjölmenni sæki leikinn. Blaðið vill góðfúslega benda fólki á að tryggja sér aðgöngumiða að leiknum í tíma til þess að forðast biðraðir og þrengsli rétt áður en leikurinn hefst. Er það bezt að kaupa miðann nokkram dögum áður en leik urinn hefst, og vísast hérmeð til auglýsingar um sölu aðgöngumiða, sem birt er á innsíðum blaðsins. ★----------------------- Síðustu mánuði hefur flutzt inn mikið af nýjum bifreiðum í landið og þær búnar beztu öryggistækjum, sem völ er á. Bifreiðastjórar hafa bent oss á, að öku- menn almennt hafi ekki kynnt sér nægilega stefnuljós þau, sem bifreiðir þessar hafa bæði „að framan og aftan“, og gefa til kynna áttina sem bifreiðin ætlar að beygja. Ættu bifreiðastjórar að athuga vel ljós þessi og myndi það eflaust koma í veg fyrir allmarga árekstra ef vel er að gætt. I ★------------------------ Mikið hefur verið spurt um ediksblöndu þá (cider vinegar) sem sagt var frá í síðasta tölublaði Mánu- dagsblaðsins. Var sagt, að blanda þessi, ef tekin er inn eftir reglum tvisvar á dag, myndi vinna gegn offitu, þrátt fyrir mataræði einstaklinga, sem af henni þjáð- ust vegna ofáts. Segjast þeir, sem reynt hafa, leggja af allt að hálfu pundi á viku tíma. Verzlun ein hér í bæ fékk margar fyrirspurnir um þessa blöndu, og tjáðu forráðamenn hennar oss, að hún myndi fást innan skamms, en unz það verður getum við ekki birt nafn verzlunarinnar. MMvað á íið germ í hröld? Gamla bíó: Genevieve. John Gregson. Kl. 5, 7 og 9. Nýja bíó: Kvenstúdentar. Jeanne Crain. Kl. 5, 7 og 9. Tjamarbíó: Sveitastúlkan. Bing Crocby, Grace Kelly. 5, 7, 9. Austurbæjarbíó: Hneykslið í kvennaskólanum. Walter Gill,- er. Kl. 5, 7 og 9. Stjörnubíó: Galapagos. Guðrún Brunborg. Kl. .5, 7 og 9. Hafnarbíó: Undrin í Auðninni. Richad Carlson. Kl. 5, 7, 9. Tripolibíó: Fransmaður í fríi. Jacques Tali. Kl. 5, 7 og 9. Leikhús Heimdallar: „Nei“. Haraldur Björnsson. Kl. 8.30. „UNGFRÚ ÍSLAND“ Framhald af 1. síðu. MÁNIJDAGSBLABIB UIIUMIIiniHIHtlfllllllllHKtllllllllllllllHllimKlllinillllHIMIUKinilllllHlim verða samkeppendur hennar öllu veraldarvanari en kepp- endur hér heima og ber þeim skylda að gefa Örnu, sem gleggstar hugmyndir um tilhögun alþjóðakeppn- innar áður en á vettvang er komið, svo henni sé ljóst að hverju er gengið. iMargar þær stúlkur, sem fegurðardrottning okkar keppir við, munu eflaust hafa lært sitthvað í „listinni að koma fram á sýningar- palli“ — öryggi í framkomu, hreyfingum og öllu fasi. Án þess að kastað sé nokkrum skugga á persónulega fram- komu ungfrú Örnu ber að hyggja að því, að hún er slíku óvön, sem von er, og skylda að sjá svo til að henni sé ekki gerður ógreiði með því að kynna hana ekki full- komlega fyrir öllum þeim ráðstöfunum, sem aðrar feg- urðardísir gera til að allt það bezta komi fram í fari þeirra, þegar á hólminn er komið. Viljum vér vinsamlega benda forráðamanni Tívoli- skemmtigarðsins, sem svo ágætlega stóð fyrir keppn- inni, að hann geri allt, sem í hans valdi er, til að tryggja „Ungfrú ísland“ allar nauð- synlegar upplýsingar um keppnina. Iiversu, sem kepnin kann að fara, er ungfrú Arna full- trúi þjóðar sinnar og hennar ósk er vissulega sú að verða henni til sæmdar og sóma. Eysteinn við sama heygarðshomið - Verður „kvöldsöluverð" sett á áfengi! Eins og alþjóð er kunnugt, þá situr f jármálaráðherra, Eysteinn Jónsson, alla daga við svarta iðju. Hlutverk hans í lífinu er orðið það, að finna upp nýjar og nýjar skatta- álögur til að íþvngja þjóðinni andi óhófsútgjöld rikisins. Hafa sögur flogið víða um „bjargráð" fjármálaráðherr- ans og nú síðastí Alþýðu- blaðinu 19. ágúst, að hann hefði í huga að skattleggja barnavagna og sælgæti til að bjarga karfaveiðunum. Eins og alþjóð veit hafa bændur á Suðvesturlandi orðið illa úti vegna óþurrka og má telja víst að einhverj- ir skattar verði „fundnir upp“ til að bjarga óþurrka- svæðinu. Kvöldverð Nú berast út þær sögur að Eysteini hafi dottið enn eitt snillibragðið í hug í sam- bandi við fjáröflun í ríkis- sjóð. Er sagt, að hann leyti nú hófanna um að fá sam- þykki til þess að láta á- fengiseinkasöluna standa opna frá kl. 7 — 12 á kvöld- in og selja þyrstum bæjar- búum vín á kvöldverði. Þessi hugmynd ráðherra, ef sönn reynist, er alls ekki verri en aðrar hugmyndir og jafnframt standazt sívax- hans — því hún getur látið margt gott af sér leiða. Leynivínsala hverfur Ef hún kemst í fram- kvæmd má heita víst, að öll leynivínsala á bifreiðastöðv- um leggist niður. Talsverð- ur hópur bifreiðastjóra stunda vínsölu fremur ,en akstur og er þetta á allra vitorði. Drekkandi menn eru sjaldan nógu forsjálir að kaupa birgðir fyrir kvöldið, þótt drukkið sé daglangt og leita þeir óspart til stöðv- anna er kvölda tekur. Hví ætti ráðherrann ekki að reyna þessa leið? Hún yrði eflaust vinsælli en flest- ar aðrar fjáröflunaraðferðir hans: myndi þetta ef til vill útiloka lögbrot af þessari tegund og vissulega auka tekjur ríkissjóðs. Það er ósköp barnalegt að stinga höfðinu í sandinn og þykjast eklci vita um leyni- vinsöluna. t>ýzk gamanmynd í Ausiurbæjarbíói „Hneykslið í kvennaskólanum“, heitir myndin sem Austurbæjarbíó sýnir um þessar mund- ir. Mynd þessi hefur verið sýnd við mikla aðsókn og hlotið frábæra dóma, enda gaman- myndi 1 Frænku Charleys stíl. — Aðalhlutve rk leika Walter Giller og Giinther Luders, en danskir skýringartextar fylgja. (Augl.)

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.