Morgunblaðið - 06.05.2005, Síða 4

Morgunblaðið - 06.05.2005, Síða 4
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson var bjargvættur Halmstad sem lenti í miklum vandræðum með 1. deild- arliðið Boden í sænsku bikar- keppninni í knattspyrnu í gær. Boden, sem hefur ekki unnið leik í fyrstu þremur umferðum 1. deild- ar, komst í 2:0 á heimavelli Halm- stad, sem varð í öðru sæti úrvals- deildar í fyrra. Gunnar Heiðar, sem fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu á tímabilinu, skor- aði tvívegis og jafnaði metin, 2:2, Seinna markið kom fimm mín- útum fyrir leikslok. Í framlenging- unni var Gunnar Heiðar svo enn á ferð og lagði upp sigurmark Halmstad fyrir Patrik Ingelsten, 3:2. Gunnar Heiðar bjargvættur JÓHANN B. Guðmundsson, knatt- spyrnumaður hjá Örgryte, fór snemma í sturtu þegar lið hans sótti 2. deildarliðið Syrianska heim í sænsku bikarkeppninni í fyrra- kvöld. Eftir aðeins 9 mínútna leik fékk Jóhann að líta rauða spjaldið eftir stimpingar við mótherja, sem líka var rekinn af velli. Bæði lið léku því með 10 menn mestallan leikinn og Örgryte var ekki í telj- andi vandræðum með að tryggja sér áframhald í bikarkeppninni og sigraði, 4:0. Stutt gaman hjá Jóhanni Það má hins vegar segja að KR-ingar hafi haft heppnina með sér því Þróttarar voru sterkari að- ilinn megnið af leiknum. Það var þó Gunnar Einarsson sem kom KR yfir undir lok fyrri hálfleiks, með skalla eftir hornspyrnu, 1:0 í hálfleik. Guð- finnur Ómarsson jafnaði með skoti frá vítateig á 56. mínútu og Páll Ein- arsson kom Þrótti í 2:1 á 69. mínútu úr vítaspyrnu eftir að Guðfinnur var felldur. Sextán ára með glæsimark Skúli Jón Friðgeirsson, 16 ára piltur, kom þá inn á hjá KR og hann var aðeins tvær mínútur að jafna metin – með glæsilegum skalla í þverslána og inn eftir hornspyrnu, 2:2. Það var svo Sigmundur sem skoraði sigurmarkið með fallegu skoti rétt innan vítateigs eftir send- ingu Sölva Davíðssonar. Atli Jónasson, markvörður KR, var annar ungur strákur í stóru hlut- verki. Atli, sem er 17 ára, varði mark Vesturbæinga mjög vel, meðal ann- ars þrívegis úr dauðafærum Þrótt- ara. Hann var hins vegar varnarlaus í fyrri hálfleik þegar Dusan Jaic, serbneski varnarmaðurinn sem Þróttur fékk frá Færeyjum, átti hör- kuskalla í varnarmann og þaðan fór boltinn í markstöng KR-inga. Rauð spjöld eftir stimpingar Á lokamínútu fyrri hálfleiks sauð upp úr milli liðanna. Gera þurfti tals- vert hlé á leiknum vegna stimpinga og þeim lauk með því að Bjarnólfur Lárusson úr KR og Jens Sævarsson voru báðir reknir af velli. Liðin voru því með tíu menn hvort allan síðari hálfleikinn. KR-ingar hafa með þessum sigri jafnað Skagamenn í deildabikarnum en félögin hafa nú unnið keppnina oftast, þrisvar hvort. Sýndum að við erum með góða breidd „Ég er mjög sáttur við okkar frammistöðu, við vorum með þunn- skipaðan hóp og hefðum getað lent í vandræðum. En það þarf góða breidd til að ná langt og við sýndum að við erum með hana. Það voru ná- lægt tíu mönnum fjarverandi en strákarnir sem komu í staðinn stóðu sig mjög vel. Við fórum taplausir í gegnum tíu leiki í þessu móti, ásamt fleiri leikjum, og það er góður vani að vinna. En við megum ekki fara upp í skýin við þetta, það sem skiptir máli er að vera tilbúnir hinn sautjánda,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari KR, við Morgunblaðið. Frekar svekkjandi en árang- urinn eykur sjálfstraustið „Ég neita því ekki að það er frekar svekkjandi að hafa tapað þessum leik. Við vorum aðeins betri, að mínu mati, en það eru mörkin sem ráða úr- slitum. Það er samt gott að hafa náð svona langt í keppninni, það eykur sjálfstraustið fyrir sumarið. Liðið er í ágætu formi, þessi hópur hefur ver- ið lengi saman og þekkist vel og við erum bjartsýnir fyrir Íslandsmótið. Það eru engin meiðsli að trufla okkur og við verðum með allt okkar lið tilbúið þegar mótið hefst,“ sagði Páll Einarsson, fyrirliði Þróttar, við Morgunblaðið. Nýliðarnir sýndu góðan fótbolta, í stíl Ásgeirs Elíassonar, en þeir stjórnuðu leiknum á löngum köflum og gerðu oft harða hríð að marki KR. Þeir geta reynst öllum skeinuhættir andstæðingar í sumar. Morgunblaðið/Árni Torfason Sigurvin Ólafsson og Kristján Finnbogason lyfta deildabikarnum eftir sigur KR á Þrótti í gær. Sig- urvin var fyrirliði í stað Kristjáns sem hvíldi vegna smávægilegra meiðsla. KR-strákarnir kræktu í bikar KR-INGAR geta eytt peningunum í annað en leikmenn næstu árin, ef marka má lið þeirra sem tryggði sér sigur í deildabikarnum í gær – með því að sigra Þrótt, 3:2, í fjörugum úrslitaleik í Egilshöllinni. Níu af fjórtán leikmönnum sem Magnús Gylfason, þjálfari KR, tefldi fram í leiknum eru á aldrinum 16 til 21 árs, átta uppaldir í Vest- urbænum og sá níundi, Sigmundur Kristjánsson, er Þróttari að upp- lagi. Það var einmitt hann sem skoraði sigurmarkið, sex mínútum fyrir leikslok, og gerði draum síns gamla félags um fyrsta sigur sinn í stóru móti á landsvísu að engu. Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is ÓLAFUR Víðir Ólafsson, landsliðs- maður í handknattleik úr HK, ætl- ar að breyta til og leika með Kópa- vogsfélaginu í 1. deildinni í knatt- spyrnu í sumar. Ólafur Víðir hefur æft og spilað með knattspyrnuliði HK undanfarnar vikur og sagði við Morgunblaðið að hann sæi engin vandamál í því að leggja stund á báðar greinarnar. „Mig hefur lengi langað til að reyna fyrir mér aftur í fótboltanum og verð í enn betri æfingu fyrir vikið þegar ég kem aftur í handboltann í september,“ sagði Ólafur Víðir sem þótti geysi- lega efnilegur knattspyrnumaður á unga aldri en ákvað snemma að einbeita sér að handboltanum. Ólafur Víðir í fótboltann  GUÐJÓN L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, handknattleiksdómar- ar, dæmdu sinn síðasta leik hér á landi í gærkvöldi. Þeir hafa ákveðið að hætta dómgæslu en eiga einn leik í Evrópukeppninni eftir. Þeir hafa verið lengi að, Guðjón frá 1972 og Ólafur frá 1974.  BJARNÓLFUR Lárusson úr KR og Jens Sævarsson úr Þrótti, sem voru reknir af velli í úrslitaleik deildabikarsins í knattspyrnu í gær, þurfa að bíða í níu mánuði eftir því að afplána refsinguna fyrir það. Spjöld í deildabikar hafa ekki áhrif á Íslands- mótið og þeir verða því í banni þegar næsta deildabikarkeppnin hefst í febrúar á næsta ári.  TRYGGVI Bjarnason og Sölvi Sturluson, sem hafa leikið sem mið- verðir með KR undanfarnar vikur, voru ekki með í úrslitaleik deildabik- arsins gegn Þrótti í gær þar sem báðir tóku út leikbann. Tryggvi var rekinn af velli í annað sinn í mótinu þegar KR vann ÍBV í átta liða úrslit- unum og fékk þá tveggja leikja bann.  KRISTJÁN Finnbogason, Arnar Gunnlaugsson, Bjarki Gunnlaugs- son og Ágúst Gylfason voru ekki með KR vegna smávægilegra meiðsla en verða tilbúnir í slaginn þegar Íslandsmótið hefst. Sama er að segja um Halldór Hilmisson Þróttara sem er að jafna sig af meiðslum en þau eru ekki alvarleg.  ATLI Jóhannsson verður líklega ekki með ÍBV þegar Íslandsmótið í knattspyrnu hefst hinn 16. maí. Atli er meiddur í baki og hefur ekki verið með í síðustu leikjum Eyjamanna.  SCOTT Cassie, skoski knatt- spyrnumaðurinn sem kom til reynslu hjá ÍA, er farinn aftur. Hann var með í 5 mínútur á æfingu liðsins í fyrrakvöld en þá tóku meiðsli í baki sig upp og hann varð að hætta.  ÓSKAR Örn Hauksson skoraði tvö marka Grindvíkinga sem unnu 1. deildarlið Breiðabliks með yfirburð- um, 5:1, í æfingaleik í Grindavík í fyrradag.  HJÁLMAR Jónsson var hvíldur ásamt fimm öðrum fastamönnum hjá IFK Gautaborg þegar lið hans sótti 3. deildarliðið Skelleftå heim í sænsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu í gær. Það kom ekki að sök því Gautaborgarliðið vann yfirburða- sigur, 11:2.  GUÐMUNDUR Viðar Mete lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Norrköping, eftir langvarandi meiðsli, þegar lið hans vann Lund, 4:1, á útivelli í sænsku bikarkeppn- inni í gær. Stefán Þ. Þórðarson var hins vegar ekki í liði Norrköping að þessu sinni.  KÁRI Árnason lék ekki með Djurgården vegna veikinda og Sölvi Geir Ottesen vegna meiðsla þegar lið þeirra vann Väsby, 2:0, á útivelli í sænska bikarnum í gær.  GUNNAR Lúðvík Nelson úr Kar- atefélagi Reykjavíkur var valinn efnilegasti karatemaður landsins á uppskeruhátíð Karatesambandsins. Auður Olga Skúladóttir úr Þórs- hamri var valin efnilegasta karate- konan. Bikarmeistarar urðu þau Jón Ingi Þorvaldsson og Sólveig Sigurð- ardóttir sem bæði eru í Þórshamri.  TOTTENHAM varð fyrir miklu áfalli þegar ljóst varð að Paul Rob- inson markvörður liðsins léki ekki síðustu tvo leiki liðsins í deildinni. Þar með telja forráðamenn liðsins að möguleikinn á sæti í UEFA bikarn- um minnki. Robinson meiddist á hné þegar hann lenti í samstuði við Dar- ius Vassell leikmann Aston Villa.  TÉKKNESKI markvörðurinn Radek Czerny fer í mark Totten- ham í staði Robinsons, en hann er 29 ára gamall og í láni frá Slavía Prag. Tottenham er í 7. sæti og heimsækir Middlesbrough um helgina. FÓLK KR-INGAR verða án þeirra Bjarna Þorsteinssonar og Garðar Jó- hannssonar þegar Íslandsmótið í knattspyrnu hefst annan mánudag. Bjarni hefur verið frá vegna meiðsla síðan í janúar en er á góð- um batavegi, að sögn Magnúsar Gylfasonar þjálfara. Garðar meiddist í nára í undanúrslitaleik deildabikarsins, gegn Breiðabliki. Magnús sagði við Morgunblaðið að hann reiknaði ekki með þeim klár- um í slaginn í byrjun Íslandsmóts- ins. Grétar Hjartarson og Arnljótur Ástvaldsson fóru báðir meiddir af velli gegn Þrótti í úrslitaleik deildabikarsins í gær en meiðsli þeirra virðast ekki alvarleg. „Ég stífnaði upp í lærinu og tók enga áhættu. Þetta verður allt í lagi,“ sagði Grétar við Morgunblaðið. Bjarni og Garðar frá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.