Mánudagsblaðið - 23.04.1956, Side 8
i
'GREINUf ANNAB
„Hörmuleg" öríög -- „Sjoppur", félagssamfök —
Fiugþernur — áfhafnasamur úfvarpssfjórs —
Mjólk send heim — Ný frahaidssaga.
Margt er spaugilegt hjalað um einstaklinga í sam-
bandi við hin miklu veizluhöld varðandi kon-
ungskomuna. Ein af þeim fínu frúm, sem boðnar
voru í veizluna fékk kjól frá Parísarborg, nýjasta
tízka, en sá var ljósbleikur að lit og fór ekki sem bezt
við andlit frúarinnar, sem var fölleit mjög.
| Réðu vinkonur hennar af, að ekki væri betra úr-
kosta fyrir hana en „fara í ljós“ og freista þess hvort
ekki kæmi þá roði í kínnar. Gerði frúin svo og leið
j að veizludegi.
Daginn, sem veizlan átti að fara fram fór frúna
að heldur að klæja í andlit og skipti engum togum,
að blástur hljóp í kinnarnar og jókst þegar á daginn
leið, en um kvöldið var andlit kerlingar sem einn
f ýsibelgmr og ómögulegt að bæta úr, svo hún varð af
öllum fagnaðinum.
Blöðin hafa við og við ritað um slælegt eftirlit á
þeim stöðum, sem selja gosdrykki og annað góðgæti
ungjingum og daglega nefnast „sjoppur“. Er deilt
■ 'p harðlega á eigendur og þeir sakaðir um kæruleysi
varðandi lög og reglur. Ef eitthvað er til í þessu, þá
er i'éttmætt að gagnrýna. En þá liggur í augum uppi,
að ekki á síður að gagnrýna þá staði, sem njóta op-
inbers styrks til starfsemi sinnar, t.d. sum íþrótta-
félög s’em hafa í laumi vín og þar af leiðandi þann
brag, em ósæmilegastur er íþróttamönnum og leið-
togum þeirra. Er ekki þörf að hert sé á eftirliti meðal
slíkra félaga?
★
Uni þessar mundir stendur yfir flugþernunámskeið
hjá Loftleiðum h.f„ en þar er nú þörf fleiri flug-
þerna sökum aukinna anna félagsins. Flugþernustörf
virðast. vera óskadraumur flestra ungra stúlkna, enda
bárust Loftleiðum fjöldi umsókna, en úr voru valdar
tólf en átta verða ráðnar. Stúlkurnar læfa öll þau
störf er slíkri vinnu fylgir, t.d. hjálp í viðlögum, fram-
reiðslustörf — allt það, sem gerir þessar ungu stúlk-
ur hæfar og aðlaðandi enda eru þær undantekningar-
lítið hugljúfi farþeg^nna, brosa blítt þegar flugförin
líða um loftið, hughreysta þá hræddu og ylja ung-
um sem gömlum um hjartarætur.
Þulir útvarpsins eru farnir að líta útvarpsstjóra öf-
undarauga, enda hefur hann nú ráðist inn á nær öll
starfssvið þeirra nema veðurfregnir og dánartilkynn-
ingar. Síðast mætti hann í morgunútvarpi, heilsaði
sumri og kvaddi vetur; sagði hann m.a. að stundum
væru sumur köld, stundum heit en þó væri svo, að oft
kæmu miðlungssumur — bæði heit og köld.
Það væri gaman að vita hvort útvarpsstjóri gerir
þetta af einskærri góðvild í garð útvarpsins eða hann
taki gjald fyrir og væri það ekki lítil tekjuábót ef
hið síðarnefnda reyndist rétt.
★ ---------------------
Oft hefur verið á það minnst, að hlutast verði til
um að mjólk verði send heim til neytenda, en ekki hef-
ur mikið bólað á framkvæmdum. Það yrði sannarlega
vel þegið ef hlutaðeigandi yfirvöld sæju sér fært að
gera tilraunir í þessa átt, því raunverulega er hér um
aðeins sjálfsagða greiðasemi að ræða, jafnvel þótt
það hefði í för með sér að kaupendur greiddu ein-
hverja smávægilega þóknun fyrir heimsendinguna.
★---------------------
I dag hefst í blaðinu ný framhaldssaga „Juditþ“ —
spennandi frásögn um unga stúlku, lækni og „þriðja
manninn“, sem bauð henni öll gæði og gleði heims-
borgarinnar — nema ástina — Hvað skeði? — fylg-
ist með.
■ iHiuiiixiiHiiiiuiiiikviTniiiiiininuiiiiiiiiiitiuiiuuiuMtMiinnmaai1
Mánudagsblaðið
Aðaifundur Sambands
smásöluverzlana
var haldinn 16. apríl s.l. Eft-
irfarandi samþykktii' voru
gerðar á fundinum:
1. Aðalfundur Sambands
smásöluverzlana, 'haldinn 16.
apríl 1956 átelur þann drátt,
sem orðið hefur á endurskoð-
un skatta- og útsvarslaganna
fyrir félög. Fundurinn skorar
á næsta Alþingi að sam-
þykkja skatta oð útsvarslög-
gjöf fyrir félög í anda þeirra
tillagna,' sem samtök atvinnu-
rekenda sendu milliþinga-
nefnd í skattamálum.
2. Aðalfundur Sambands
smásöluverzlana, haldinn 16.
apríl 1956, þakkar Iðnaðar-
málastofnun íslands fyrir for
göngu um komu erlendra sér-
fræðinga í smásöludreifingu
til Islands og fyrirgreiðsln um
utanfarir íslenzkra kaup-
manna.
Þar sem starfsemi I.M.S.I.
er að verulegu leyti á sviði
smásöludreifingar, telur fund
urinn mjög eðlilegt að smásal-
an eigi fulltrúa i stjórn stofn-
unarinnar og-skorar á næsta
Alþingi að hlutast til um að
samband smásöluverzlana fái
fulltrúa i stjórn I.M.S.I.
Oddamaður í stjórn S.S.
var kjörinn Axel Sigurgeirs-
son og Sveinbjörn Árnason til
vara.
Endurskoðendur voru kosn
I
ir Björgvin Jónsson og Þor-;
steinn J. Sigurðsson.
Á stjórnarfundi 18. apríl
skipti stjórnin þannig með
með sér verkum:
Kristján Jónsson, formað-l
ur, Páll Sæmundsson, varafor
maður, Þorvaldur Guðmunds-
son, gjaldkeri og meðstjórn-
endur: Ágúst Jónsson, Axel
Sigurgeirsson, Björn Jóns-
son, Björn Öfeigsson, Björn
Pétursson, Eggert Gíslason,
Gísli Gunnarsson, Jón Guð-
mundsson, Ólafur Þorgiíms-
son og Óskar Norðmann.
(Frétt frá Sambandi
smásöluverzlana).
Heimsókn dönsku kon-
ungshjónanna
Nýja bíó sýnir um þessar
mundir íslenzka kvikmynd,
sem tekin var í sambandi við
konungskomuna. Að kvik-
mynd þessari hafa unnið Ósk-
ar Gíslason, Vigfús Sigur-
geii’sson, Guðmundur Hann-
esson og Hannes Pálsson. —
Myndina, sem nefnist „Heim-
sókn dönsku kommgshjón-
anna“ hefur Óskar Gíslason
sett saman og er sýningar-
tíminn um 40 mínútur.
Þeir félagar hafa kvik-
Sfarfsfólk Loftleiða 125
Hér er nú staddur Helmuth
Ness, sem veitir forstöðu
skrifstofu Loftleiða í Ham-
borg, en starfsmenn félagsins
þar eru 14.
Um næstu mánaðamót mun
Loftleiðir opna nýja skrif-
Istofu í Frankfurt, en auk
skrifstofanna á lendingar-
stöðunum hafa Loftleiðir nú
útibú í Chicago og San Franc-
isco. Alls munu starfsmenn
félagsins hér og erlendis vera
125 talsins.
-Frá Loítleiðum
Æflngastöð
fatlaðra
Framhald af 1. síðu.
Ýms fyrirtæki hafa látið
félaginu í té ýmsar nauðsynj-
ar endurgjaldslaust og þakk-
aði Svavar þeim alla fyrir-
greiðslu svo og frú Bodil Beg-
trup ambassador Dana sem
hefur haft milligöngu um
ýmsa hjálp úr heimalandi
sínu.
Viðstaddir opnunina varu
m. a. Haraldur Guðmundsson
forstj. Tryggingastofnun rik-
isins og G. Möller forstjóri
Sjúkrasamlagsins ásamt stj.
Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra.
myndað flest þau atvik, sem
máli skipta við heimsóknina,
verið viðstaddir alla helztu
atburði frá því vél kóngs lenti
hér í Reykjavík unz hún lagði
af stað héðan að morgni hins
14. þ. m.
Margt er dável gert í mynd-
inni, en ónógur ljósaútbúnað-
ur hefur sett sitt mark á ýms
atriði, þannig að þau verða
of dökk á sýningartjaldinu
— og persónur ógreinilegar.
Engu að síður ber að lofa
verk þessara manna, því hér
er um góða heimild að ræða
frá þessari merkis heimsókn
og viðtökum Reykvíkinga.
Merkustu frétttr vorsins
úr tízkuheimi kvenna
Nýjustu fréttir eru þær að
nú liti konur á sér hárið viku-
lega, og það ekki með venju-
legum hárlit ljósum eða dökk-
um, heldur öllum mögulegum
litum, helzt skærum og áber-
andi, þú getur þessa vikuna
verið með grænt hár, næstu
vikuna fjólublátt, bleikt svo
og aprikósulitað þar á eftir;
o.s.frv. Spurningin er aðal-
lega sú um hverja helgi hvaða
lit á ég að hafa á hárinu á
mér næstu viku.
Köflóttur jakki með víðum erm
um er nú mjög í móð.
Hrufi á að gera í hvöld?
Kvikmyndahús:
Gamla bíó^Syngjum og dönsum. Fred Astaire. Kl. 5, 7 og 9.
Nýja bíó: Árásin. Van Heflin. Kl. 7 og 9. Konungsheimsókn kl. 5.
Tjarnarbíó: Búktalarinn. Danny Kaye. KI. 5, 7 og 9.
Austurbæjarbíó: Hondo. John Wayne. Kl. 5, 7 og 9.
Stjöriiubíó: Stigamaðurinn. Alberto Ruschel. Kl. 5, 7 og 9.
Hafnarbíó: Systir María. Kl. 7 og 9. Eyja leyndardómanna kl. 5.
Trípolíbíó: Wichita. Joel Mc Crea. Kl. 5, 7 og 9.
Laugarásbíó: Fiskimaðurinn og aðalsmærin. Kl. 7 og 9. Víkinga-
kappinn kl. 5.
Leikhús:
Þjóðleikhúsið: íslandsklukkan. Brynjólfur Jóhannesson. Kl. 20.
Iðnó: Systir María. Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Kl. 20.