Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 14.01.1957, Síða 7

Mánudagsblaðið - 14.01.1957, Síða 7
Mámklagur 14. janúar 1957 7 HELGAR TÖLUR . . . Framhald aí 5. síðu. reikistjörnur). Og líklegt er, að helgi tölunnar hafi aukizt, af því að hún er summa hinna helgu talna 3 og 4. 9 Níu voru heilög tala með Forn-Germönum, Forn-Keltum, Grikkjum og fleiri þjóðum. Heimdallur átti sér níu mæður, Óðinn hékk níu daga í Aski Yggdrasils, Hel réð yfir níu himnum, níu dísir vógu Þíðranda Siðu-Hallsson. Menníagyðjur Grikkja voru níu, og þeir töldu svo langa leið til undirheima, að steðji væri niu sólarhringa að falla þangað niður. Helgi tölunn- ar níu stafar sennilega að ein- hverju leyti af því að hún er veldi af helgitöluríni 3. Sumir halda þó, að hún tákni í öndverðu níu mánaða mðgöngutíma kvenna, en flest það, sem stend- ur í sambandi við'frjósemi mann- fólksins fær á sig blæ helgi og dulrænu með frumstæðum þjóð- 10 Tíu voru heilög tala hjá ýmsum fornþjóðum í Asíu, sam- anber hin tiu boðorð Gyðinga. Tálnakerfi okkar, sem er byggt á 1Ö, er runnið frá Indlandi, en Arabar fluttu það til Evrópu. Frumstæðar veiðimannaþjóðir hafa oft mikla helgi á 10, og á- stæðan er augljós, talan táknar fingur beggja handa. 12 í fyrndinni voru tólf heil- ög tala víða í Asíu. Talnakerfi Súmera og Babyloníumanna var byggt á 12. Hjá Gyðingum var helgi tölunnar mikil. Tólf voru synir Jakobs og ættkvíslirnar frá þeim, postularnir voru tólf o.s. frv. Sennilega er helgi tölunnar sprottin af tunglgöngunni, sem mánaðaskiptingin er svo byggð á. Aukna helgi hefur hún svo fengið af því að hún er marg feldi helgitalnanna 3 og 4. 13 Þá er komið að sjálfri ó- happatölunni, sem milljónum manna um allan heim stendur enn í dag hinn mesti stuggur af. Ef 13 manns setjast til borðs slær oftast nær óhug' á mannskap- inn, jafnvel forhertum efnis- hyggjumönnum verðurÁrótt inn- anbrjðsts, þó að þeir láti kannski ekki á því bera. Það ér eins og skuggi falli á veizluborðið og hverjum um sig af gestunum dett- ur kannski í hug, að hann eigi ekki langt eftir. í mörgum gistihúsum erlendis er ekki til neitt gestaherbergi nr. 13, og oft er klefa nr. 13 sleppt úr farþega- skipum. Það þykir ekki vita á gott, ef fólk tekur upp á því að opinbera trúlofun sína eða gifta MÁNUÐAGSBLAÐIÐ sig hinn 13. í mánuðinum eða skíra barn á slíkum óhappadegi. Ekki þykir heldur vænlegt að ráðast í nein meiri háttar fyrir- tæki hinn 13. Sums staðar kveð- ur svo rammt að þessu, að sjó- mönnum er illa við að leggja úr höfn hinn 13.,, en sú hugprúða og ágæta stétt mánna er engan veg- inn laus við hjátrú á þessu sviði og fleirum. Til er að .vísu íólk, sem snýr hlutunum við og telur 13 happatölu sína, alveg eins og sumir eru farnir að telja það heillamerki að sjá svartan kött, sem annars hefur þótt hinn mesti óheillaboði. Hvernig hefur talan 13 lent i þessum ósköpum að vera útskúf- uð meðal talnanna, úrhrak þeirra allra, nærri því eins og holds- veikur maður, sem allir flýja? Hvað hefur talan gert af sér? Al- gengasta skýringin á vanvirðu hennar er sú, að þetta stafi af því, að 13 sátu til borðs kvöldið sem Júdas sveik Krist. Og líklega er þessi skýring að einhverju leyti rétt. Fleiri skýringar eru þó til. Fyrr á Öldum var það mjög algengt, að 12 menn væru í ræningjahópum þeim, sem höfðust við i fjöllum Sikileyjar og Suður-Ítalíu. Ef einhver lenti í klóm ræningjanna átti sá hinn sami venjulega ekki langt eftir ólifað. Sumir halda, að það sé að einhverju leyti af þessu sprottið, að það er talið feigðárboði, að 13 séu saman. En hvernig svo sem á þessari hjátrú stendur í sam- bandi við 13, er hún undarlega lífseig eins og ýmsar fleiri hug- myndir af líku tagi. Ég gæti vel trúað því, að fluggörpum fram- tíðarinnar yrði ekkert vel við það að leggja af stað í geimfari til tunglsins eða Marz hinn 13. í mánuðinum. AÐRAR HELGITÖLUR 19 er helgitala sums staðar í Asíu. Hjá hinurn sérkennilega trúflokki Babista er hún helgust af öllu heilögu, tákn lífsins og heimsrásarinnar allrar. 40 var helgitala hjá Semítum, og má sjá þess merki víða í biblíunni. Þann- ig stóð syndaflóðið í 40 daga og 40 nætur (syndaflóð Grikkja stóð í 9 daga og 9 nætur), Gyð- ingar voru 40 ár að hrekjast í eyðimörkinni, Kristur fastaði í 40 daga og 40 nætur, 40 dagar liðu milli upprisu og uppstign- ingar. Helgi tölunnar stendur í einhverju sambandi við helgina á 4 og 10. Á sama hátt er helgi tölunnar 70 tengd helginni á 7. Almenningur fer ekki hærra en þetta í trú sinni á helgitölur. En þeir, sem sökkv sér nið- ur í dulræna talnafræði geta fundið út marga hluti og undar- lega, og þeir geta sjálfsagt fund- ið undratölur, sem nema mörg- um milljónum. Sérstaka áherzlu hafa slíkir dulspekingar lagt á það að nota fræði sín til að reikna út hvenær heimsendir muni verða, en það hefur bæði fyrr og síðar verið boðað með miklum sannfæringárkrafti að hann væri alveg á næstu grösum, talnafræð- ingarnir hafa reiknað hann út upp á ár og dag. En hann hefur samt látið standa á sér, fræði- mönnunum til mikillar furðu. Á 10. öld var það almenn trú i kristnum löndum, að heimsendir yrði árið 1000, enda var talan fög- ur. Og illa er ég svikinn, ef ein- hverjir dulspekingar og sértrú- arflokkar fara ekki að boða heimsendi árið 2000. Sannleikur- inn er sá, að tölur má nota til að spá flestum hlutum, ef menn fara með þær eftir sínu höfði. Ef menn fengju það á heilann, að heimsendir yrði 1957 mætti sjálf- sagt sanna það fagurlega með einhverju dulspekilegu talna- kerfi. Það hefur svo sem verið spáð mörgu heimskulegra en því að þeim herramönnum, sem ríkj- um og löndum ráða, tækist á þvi ári að sprengja hnöttinn sundur. Hin dulræna talnatrú er búin að hafa geysimikil áhrif á mann- fólkið í þúsundir ára. En þó að við leggjum ekki alltof mikinn. trúnað á slíka speki verður þvi ekki neitað, að margt er skrýtið við tölur. Og þegar allt kemur til alls eru þær kannski ekki all- ar þar sem þær eru séðar. Ef til vill eru tölurnar á einhvern hátt tengdar innsta eðli alheimsins. Að minnsta kosti lét hinn heims- frægi brezki visindamaður Jeans svo um mælt, að hann gæti helzt líkt skapara alheimsins við stór- kostlegan stærðfræðing. Tölurn- ar rista svo djúpt niður í innsta kjarna allra hluta, að ekki er að furða, þótt þær á bernsku- stigi mannkynsins séu hjúpaðar dularblæ. Ólafur Hansson. t HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS i * - verðtir velta happrjraettisins tvöföldlið, bæði vúiningar og verð; Vinningar tíu þúsund — samtals 13.44 niiil.jónir kr. Verð 1/1: 40 kr., .1/2: 20 kr., 1/4 : kr. á ináiiuði Hæsti vinningur í janúar er hálf milljón. Hæsti vinningur í desembér er hálf milljón. Enginn .1 vinningur lægrj' en 1000 M VINNINGAR ERU 70% AF SAMANLÖGÐU ANDVIRÐI ALLRA MIÐA. EKKERT ANN- AÐ HAPPDRiETTI HEFUR HEIMILD TIL AÐ GREIÐA VINNINGA í PENINGUM. ÖNNUR HAPPDRÆTTI HÉR GREIÐA NÚ 45—50% 1 VINNINGA. — -HAPPDRÆTTIÐ HEFUR FRÁ UPPHAFI GREITT 55-56 MILLJÓNIR í VINNINGA, SKATTFRJÁLST FÉ fe !

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.