Mánudagsblaðið - 14.01.1957, Síða 8
QR EINU I ANNAÐ
Snögg viSbrögð - LeikháshorniS - Ellimörk - Full-
hugi - SlysavarSsfofan - rrHonky-lonk,r-bragur
LEIKARAR lenda oft í vandræðum þegar eitthvað óvænt
kemur fyrir á sviði, en góðir leikendur og sviðsvanir geta
jafnan „reddað“ málinu með innskotum eða hreyfingum frá
eigin brjósti. Þegar leikritið „Það er aldrei að vita“ var frum-
sýnt í haust var Brynjólfur Jóhannesson á sviðinu í hlutverki
þjóns. Svo tókst til að „þjónninn“ braut glas og hrutu brotin
víðsvegar um sviðið. Þetta hefði getað komið hiki á leikinn,
því margir viðvaningar léku með. í stað þess fór Brynjólfur
hinn rólegasti að tína upp brotin, en tautaði jafnan fyrir munni
sér svo vel heyrðist:
„Sjaldan brýtur gæfumaður gler“.
Hugðu margir, að hér væri um setningu úr leiknum að
ræða, sem alls ekki var tilfellið.
★---------------------------
NÆSTA viðfangsefni Þjóðleikhússins á eftir Don Camillo, er
Dulari'ullt bros“ eftir A. Huxley. Þetta er mjög spennandi
leikrit sálf”æðilegs eðlis, en kvikmynd byggð á því var sýnd
hér í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Leikstjóri og þýðandi
er Ævar Kvaran og er þetta annað verkefnið, sem hann
stjórnar við leikhúsið.
★---------------------------
„KONAN þín er orðin alveg góð á taugum — hætt að skamm-
ast og sieppa sér að tilefnislausu. Hvernig fór læknirinn að
lækna hana?“
„Mjög auðvelt, hann sagði henni bara, að taugaæsingurinn
væri fyrirboði elhnnar".
★——1-------------------——
: SMÁVAXINN maður, sem átti við tengdamömmuerfiðleika
að etja, stóð „rnjúkur" við vínbar og sagði regingslega:
„Tengdamamma kom skríðandi til mín á fjórum fótum í
gærkvöldi".
„Og hvað sagði hún?“ spurði vinur hennar.
„Komdu undan rúminu, «f þú þorir væskillinn þinn“.
★---------------------------
SVO ER AÐ sjá, sem nauðsyn sé á því, að læknum verði bætt
við á næturvakt Slysavarðstofunnar. Fjöldi kvartana eru á
lofti um það, að mjög erfitt sé að ná í lækni á nóttum, enda
umsvifasan.t hjá þeim. Úr þessu er mikil nauðsyn að bæta,
því mikið getur legið við, og ættu viðkomandi yfirvöld að
finna lausn á þessu hið snarasta.
★---------------------------
HEFUR Jóhannes á Borg látið af stjórn hótelsins? Unglinga-
lýður virðist vera að „taka yfir“ veitingasalina og hljóm-
sveitin spilar nú ískrandi músik, sem áður ekki tíðkaðist
þar (sem hún auk þess ræður ekki við) og nær lífshættu-
legt að fara út á dansgólfið.
Það var öðruvísi í tíð Jóhannesar og óskandí að hann hlut-
aðist til að þessi ,,honky-tonk“-bragur hyrfi burtu af hótel-
inu, sem til skamms tíma var einn þokkalegasti samkomu-
staður bæjarins.
★---------------------------
í SÍÐASTA tölublaði birtist rammaklausa á forsíðu undir
fyrirsögninni „Nýtt fjármálahneyksli“. Var þar getið þess,
að rannsóknarlögreglan hafi verið beðin staðfestingar á
fréttinni en ekki fengizt. Þetta er rangt, því heimildar-
maður blaðsins náði ekki í rannsóknarlögregluna, og kom
leiðréttingu sinni til blaðsins um seinan. Er viðkomandi
skrifstofa beðin velvirðingar á tómlæti þessu.
Þá er og þess að geta að vegna fjölda getgáta i sambandi
við klausuna um að lögfræðingar eigi hlut að máli, að slíkt
er alveg úr lausu lofti gripið og enginn löglærður maður átti
þar hlut að máli.
Hvað á að gera í kvöld?
Kvikmyndahús:
Gamla bíó: Morgunn iífsins. W. Borchert. Kl. 5, 7, 9.
Nýja bíó: Fannirnar á Kilimanjaro. G. Peck. Kl. 5, 7, 9.
Tjarnarbíó: Hirðfíflið. D. Kaye. Kl. 5, 7, 9.
Tripólibíó: Marty. E. Borgnine. Kl. 5, 7, 9.
Austurbæjarbíó: Ótti. Ingrid Bergman. Kl. 5, 7, 9.
úSljörnubíó: Héðan til eilífðar. B. Lancaster. Kl. 5, 7, 9.
Hafnarbíó: Spellvirkjar. J. Chandler. Kl. 5, 7, 9.
Laugarásbíó: Fávitinn. G. Philippe. Kl. 5, 7, 9.
Leikhús:
Þjóðleikhúsið: Tehús ágústmánans. Lárus Pálsson. KI. 20.
Iffnó: Þrjár systur. Þorsteinn Ö. Stephensen. KJ. 20.
SKRÝTLUR
Tveir skrifstofumenn kvört-
uðu sárt um hve stuttan tíma
þeir fengju til hádegisverðar.
Porstjórinn tekur sér alltaf
hálfan annan tíma í mat, en
ætlar okkur aðeins hálftíma,
sagði Pétur.
Ef ég hefði aðeins fimmtáni
mínútur í viðbót, sagði Skúli,
myndi ég komast heim að
borða.
Forstjórinn er aldrei á
skrifstoftmni í hádeginu, svo!
þú ættir bara að taka þessarj
fimmtán mínútur auka, sagðij
Pétur.
Skúli var honum sammála,J
og fór heim í hádegisverð dag
inn eftir. Þegar hann fann
ekki konu sína í stofunni leitj
hann hljóðlega inn í svefn-!
herbergið og sá hana þá í
rúminu með forstjóranum.
Skúli lagði hægt á eftir sér
dymar, læddist út og beint í
vinnuna. Daginn eftir spurði
Pétur hvort hann ætlaði ekki
að stelast heim aftur í dag.
Nei, kemur ekki til mála,
sagði Skúli, ég var nærri napp
aður í gær.
— O —
Það er komið upp í hverfi
einu hverfi einu í New York,
að óvenjulega örar barneign-
ir hjóna þar, slá öll met í
borginni.
Eftir nána rannsókn er á-
stæðan fundin. Á hverjum
morgni klukkan 6.15 fer hrað-
lestin um þann borgarhluta
og flautar nær viðstöðulaust.
Þá er of snemmt að fara á
fætur og of seint að leggja
sig aftur.
— O —
ánudagsblaðið
ÖTTI
Austurbæjarbíó sýnir nú þýzka stórmynd, „Ótti“, sem byggist á
smásögu eftir Stefan Zweig. Fjallar myndin um ást, afbrýSi og fjár-
Maður einn var að koma
heim úr jarðarför konu sinn-
ar, sem hafði verið mjög fög-
ur, enda var hann ákaflega
hryggur.
Vinur hans, sem reyndi að
hressa hann og hugga, sagði:
Ég veit hve hryggur þú ert,
en þú ert enn ungur og tím-
inn læknar sárin. Þú kynnist
ábyggilega bráðlega annarri
stúlku, sem skapar ykkur
hamingjuríka framtíð.
Ég veit það, veit það vel,
sagði syrgjandinn, ’en hvað
verður um kvöldið í kvöld ?
Skipstjórinn kom heim eft-
ir tveggja ára ferðalag um
heimshöfin og sá konu sína
hygla mánaðargömlu barni.
Hver á þetta? spurði hann
æstur, var það vinur minn,
Georg ?
Nei, sagði kona hans hljóð-
látlega.
Einmitt, var það þá vinur
minn, Jón?
Konan hristi höfuðið.
Siggi, spurði þá skipstjór-
inn, var það þá Siggi, vinur
minn?
Vinur minn, vinur minn,
sagði konan óþolinmóð. Þú
talar alltaf um þína vini.
Heldurðu kannski að ég eigi
ekki neina vini?
svik, en í henni leikur m.a. Ingrid Bex-gman, og er þetta fyrsta
þýzka myn.din hennar. Aörir sem leika í myndinni eru m.a. Mathias
Wieman og Kurt Kreuger. — Mynd þessi er mjög spennandi.
„Síðbuxnatízka” í SuSur-Frakklandi
íslenzkar stúlkur em nú þegar farnaí- að ganga mikið í síðum
Luxum um sumar og vetur. Stallsystur þeirra í suðrænum lönd-
um keppast í sífellu við að slá hverja aðra út í sniði og litum
„síðbuxna“ og sýnir myndin, sem er frá Riviera-ströndinni í
(Endursagt. Playboy, des. ’S6).
S-Frakklandi, árangur
tveggja stúlknanna.