Mánudagsblaðið - 09.09.1957, Qupperneq 8
OR EINU I ANNAD
Harka Unnsfeins — Erindi Einars — öpinberir
endurskoSendur — Verndið Geysi — Aðal-|
íundir Póla — Pressan
Uimsteinn Beck, yfirmaður tollvarða, gerist nú ærið
umfangsmikill í starfi. Nýjasta afrek hans í tollgæzlu
mun þó nálega einsdæmi. Það er haft fyrir satt, að
Unnsteinn hafi gengið um borð í eitt kaupskipanna og
sagt við skipstjórann, að ef ekki yrði skilað ,,á stund-
inni“ einni milljón og átta hundruð sigarettum yrði
skipið kyrrsett á kostnað útgerðarinnar. Kvaðst hann
hafa fulla vissu fyrir máli sínu. Svo illa vildi til að tals-
verðu af magninu hafði verið smyglað í land og urðu
skipverjar að smygla því aftur um borð — unz mælir
Unnsteins varð fullur.
| *---------------------------------
Fyrsti nemandinn
eftir „Fnlbrightu-
samningnum
Fyrsti íslendingurinn, sem
stunda mun nám í Bandaríkjun-
um i samræmi við hinn nýundir-
ritaða ,,Fulbright“samning milli
Bandarikjanna og íslands um
menningarskipti þjóðanna, fór til
Bandaríkjanna hinn 4. sept. sl.
Fræðslustofnun Bandaríkjanna
(U.S. Education Foundation)- á
íslandi mun borga ferðakostnað
styrkþegans, Jóns G. Þórarins-
sonar, tónlistarkennara í Reykja
vík. Einnig mun Jón fá laun
frá Bandaríkjastjórn til þess að
kynna sér tónlistarkennsluaðferð
ir víðsvegar í Bandaríkjunum,
en þar mun hann dveljast í sex
mánuði.
Gaman væri að vita hvort meðal annarra erinda
Einars Olgeirssonar til Moskvu væri það, að fá sement
og timbur í stað umsamins innflutnings á Moskvich- j
bílum, en flytja á 300 bifreiðir inn á ári. Stjórnin er(
í mesta vanda með innflutning og greiðslu nauðþurfta
og segja menn að Einar hafi verið beðinn reyna að fá
þennan nauðsynjavarning í stað bifreiða.
Nú er ináii Ingimars skólastjóra lokið í bráð. En ná
engin lög yfir þá menn, sem eiga að líta eftir hinum
miklu sjóðum sem ískðlar hafa 1 vörzlum sínum.
Skólastjórinn virðist hafa óáreittur getað ráðstafað
sjóðunum í 10—12 ár — án allrar endurskoðunar. Virð-
ist full ástæða til að endurskoðendur sæti fullri ábyrgð
fyrir vanrækslu.
J»að er haft eftir dr. Sigurði Þórarinssyni, jarðfræð-
ingi, að æskilegt yrði að Geysir yrði nú látinn í friði
Samningurinn um stofnun
þessa var undirritaður af hálfu
íslands og Bandaríkjanna hinn
23. febrúar 1957. Samkvæmt hon-
um getur stofnunin greitt ferða-
kostnað íslendinga, sem fara til
námsdvalar í Bandaríkjunum, og
ferða- og dvalarkostnað Banda-
ríkjamanna, sem veljast kunna til
þess.að stunda nám, halda fyrir-
lestra eða vinna að rannsóknum
á íslandi.
Nokkrir aðrir ísl. kennarar
munu feta í fótspor Jóns Þórarins
sonar til Bandaríkjanna þetta há-
skólaár, og mun Fulbright-stofn
unin greiða ferðakostnað þeirra.
Næsta háskólaár munu væntan-
lega verða gagnkvæm skipti á
námsmönnum og er búizt við, að
nokkrir Bandaríkjamenn komi til
íslands í samræmi við ákvæði
í nokkur ár svo hann ekki eyðilegðist með öllu. Vitað
er, að um mjög fá, ef nokkur, gos hafi verið að ræða
í sumar og kann ástæðan að vera sú, að sápu og öðru
er sífellt hellt í hverinn. Hver útlendingur, sem hingað
kemur, er teymdur austur til að sjá „the great Geysir“
en fæstir munu hafa séð annað en bullandi hver en
ekkert gos.
★-------------------------
Stjórn „Póla h.f. virðist hafa hið rétta form á hlut-
unum þegar til aðalfunda kemur. Nýlega hélt stjórnin
þriðja framhaldsaðalfund sinn — í Vetrargarðinum.
Ekki er annars getið, en meðlimir stjórnarinnar hafi
skilið sáttir og ánægðir, allir reikningar samþykktir
í hvelli — og tillaga, utan dagskrár, að halda enn einn
auka-aðalfund.
★-------------------------
Sumir brostu í kampinn s.l. fimmtudag er Morgun-
blaðið birti á öftustu síðu í feitletraðri fyrirsögn •—
BÍRÆFINN ÞJÓFUR STAL DRÁTTARVÉLINNI
MEÐAN BÓNDINN SVAF. Háðslegasta fyrirsögnin
var þó í sama blaði. ísland hafði 1:0 eftir 15 sek. —
en Belgiumenn áttu svo leildnn.
samningsins.
Styrkir þeir, sem stofnunin hef
ur yfir að ráða, eru heimilaðir í
Bandariskum lögum, sem kennd
eru við höfund þeirra, öldunga-
deildarþingmannin J. W. Ful-
bright. Þar er svo fyrir mælt, að
fé því, sem kemur vegna sölu á
umframbirgðum úr stríðinu,
skuli verja til alþjóðlegrar menn-
ingarstarfsemi.
í nefnd þeirri, sem komið hefur
verið á fót samkvæmt 4. gr. samn
ingsins, eiga þessir menn sæti:
John J. Muccio, ambassador
Bandaríkjanna, heiðursformaður;
Birgir Thorlacius, ráðuneytisstj.,
formaður; Mr. D. Wilson, for-
stöðumaður upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna; dr. Þorkell Jó-
hannesson, háskólarektor; frú
Dóris Finnsson; dr. Halldór Hall
dórsson, prófessor og Mr. Edgar
I S. Borup, starfsmaður í upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna.
Mánudagur 9. septcmber 1957.
Guðrún Á. Simosiísr komin
heim úr frœgðorför
Fer með hlwfverk Toscu í ÞjóðSeikbifsinu
Hin víðreista söngkona, ungfrú Guðrún Á Síinonar,
kom flugleiðis frá Lundúnum til Reykjavíkur fyrra föstu-
dag. Að bessu sinni er hún lieim komin m. a. til þess að fara
með hið slóra og dramatíska hlutverk Toscu í samnefndri
ópera eftir Puccini, sem flutt verður í Þjóðleikhúsinu á
liausti komanda.
Guðrún var síðast hér
heima fyrir 1% ári. Þá fór
'hún með þrjú hlutverk í óper-
um, Santuzzu í „Cavalleria
Rustieana“, Mimi í „La Bo-
héme“ og Serpinu í „La Serva
Padrona“ (Ráðskonuríki), en
1952 söng hún hlutverk Rósa-
lindu í óperettunni „Leður-
blakan“.
Á því tímabili, sem hún nú
var erlendis, hafði hún hæki-
stöð sina í Lundúnum. Þaðan
fór 'hún um England og söng
á konsertum, einnig kom 'hún
þar fram í útvarpi og sjón-
varpi. Á hljómplötur, er seld-
ar eru á heimsmarkaði, söng
hún létt lög fyrir His Mast-
er’s Voice, en þær urðu met-
söluplötur hér heima á síðast-
liðnu ári, og erlendis hafa
þær vakið mikla eftirtekt,
enda gengur salan þar einnig
vel. Nokkru áður en hún fór
frá Lundúnum, söng hún þar
á segulband fyrir brezka út-
varpið, BBC, og verður söng
hennar útvarpað þaðan í
næsta mánuði.
Einnig fór Guðrún á þessu
tímabili í hið mikla tíu þús-
und kílómetra söngferðalag
um Sovétríkin og hélt þar
fiölda konserta í mörgum
stórborgum, auk þess sem
’nín söng þar í útvarp og sjón
• arp eins og kunnugt er.
Þó að hér hafi verið stiklað
\ stóru, má öllum það ljóst
vera, hvílík afrek Guorún hef
i;r uimið á erlendum vett-
•. :mgi á svo skömmum tíma.
Tlvarvetna, þar sem hún kom
vam, austan jámtjalds sem
/estan, hlaut hún hið mesta
' >f fyrir list sína og fram-
imu alla. Auk þess að kynna
íenzka sönglist, lét hún
.udrei undir höfuð leggjast að
flytja tónsmiðar íslenzkra tón
skálda. Slík kynning á menn-
ingaiverðmætimi þjóðarinnar
er ómetanleg, einhver sú
bezta, sem hugsast getur.
Að þessu sinni verður ekki
getið fyrri afreka Guðrúnar,
sem þó eru mörg og glæsileg,
bæði hér heima og erlendis,
svo sem kunnugt er. Þó má
minnast söngsigra hennar á
Norðurlöndum haustið 1954.
Veri Guðrún velkomin
heim.
Ný bókavezrlun, Bókhlaðan, opnnð
að Laugavegi 47.
Sl. fösfcudag var opnuð ný bókaverzlun, Bókhlaðan, að
Laugavegi 47, og verða þar á boðstólum flestar fáanlegar
inn- og erlendar bækur, ritföng og annað er slíkar verzlanir
selja. Er verzlunin mjög smekklega innréttuð og sá Sveinn
Kjarvel um það.
Hvað á að gera í kvi&M?
Xvikmyndahús:
Gamla bíó: Perla suðurhafseyja. V. Mayo. Kl. 5, 7 og 9..
Nýja bíó: Raddir vorsins. Þýzk. Kl. 5, 7 og 9.
Tjamarbíó: Gef mér barnið aftur. C. Borchers. Kl. 5, 7 og 9.
Austurbæjarbíó: Tommy Steel. T. Steel. KI. 5, 7 og 9.
Tripolibíó: Greifinn af Monte Christo. Kl. 5, 7 og 9.
Stjörnubíó: Maðurinn frá Lorraine. Kl. 5, 7 og 9.
Eaugarásbíó: Undir merki ástargyðjunnar. S. Loren.
Kl. 5, 7 og 9.
Jlafnarbíó: Til heljar og heim aftur. Kl. 5, 7 og 9.
(Birt án ábyrgðar.)
Omakleg....
framhald aí 3. síðu
urrar fáfræði og áberandi smekk
leysis, þykist ég þess fullviss, að
þar muni hvorugur „feðganna“
vera á ferð. — Hver sem hann
annars er höfundurinn, sem kall
ar sig „Kolbein kaldaljós". —
Þá virðist einna nærtækast, ef á
jannað borð á að kenna hann við
„ljós“, að þát ætti hann að kalla
sig „mýrarljós"! — En þeir sem
kunnugir eru þjóðsögunum, vita
gjörla hversu farsæl leiðarljós
það voru.
S. K. Steindórs.
(Dálítið stytt. Ritstj.).
Gólfplássið er 90 fm, af-
greiðsluborðum er haganlega
og þægilega komið f.yrir, út-
stillingagluggar óvenjustórir
oig rúmgóðir. í verzluninni er
sér-stök barnadeild og fást
þar bæði leikföng og barna-
bækur. Þá eru og flest blöð
og timarit til sölu.
Forráðamenn verzlunar-
innar skýrðu svo frá, að sér-
stök áherzla yrði lögð á að
hafa sem fjölbreyttast úrval
íslenzkra bóka m. a. Norðra-
bækurnar að meðtöldum Is-
lendingasögunum, riddarasög
unum o. s. frv. með afborgun-
arskilmálum. Þá er og mikið
úi'val útlendrá bóka bæði í
varaútgáfum og vönduðum
útgáfum.
Framkvæmdastjóii Bók-
hlöðunnar er Arnbjörn Krist-
insson en verzlunarstjóri
Kristján Amgrínvsson. Auk
Sveins Kjarvals unnu að inn-
réttingu Bokhlöðmmar Össur
Sigurvinsson, trésmíði, Finn-
ur Kristjánsson, raflögn, og
Lúther Salomonsson, mið-
stöðvarlögn.
Eins og-að ofan getur er
búðin öll hin smekklegasta og
frágangur hentugur og vand-
aður.