Mánudagsblaðið - 06.07.1959, Qupperneq 8
OR EINU I ANNAD
Öhreinar ieigubifreiðir — Úr næfurlífinu — Háfur
i Tjörninni — Magnús Jónsson — Heimildarieysi
% P og afbrof — Hýr vegur —
Kvartað er að venju um óhreinlæti í leigubifreið-
um og þá tíðast bent á bifreiðir Hreyfils og Bifrastar
og númer nefnd. Það er staðreynd að nokkrir bifreiða-
stjórar á þessum stöðvum eru slíkir endemissóðar að
telja verður varhugavert fyrir stöðvarstjórnirnar að
láta þá aka áfram nema þeir breyti til batnaðar. Til
eru bílstjórar á þessum stöðvum sem eni að staðaldri
engu skárri en bílarnir hvað „hreinan óþrifnað" snert-
ir. Meirihluti ökumanna eru prýðismenn, en fáir sóðar
koma óorði á alla stéttina og spilla fyrir viðskiptum.
Þessu ættu stöðvaryfirvöldin að kippa í lag.
Lido hefur nú fengið nýja söngkonu, Jackie Lynn,
hinn mesta „kropp“ sem líka getur sungið, Ungfrú
Lynn syngur hvert kvöld og vekur mikla athygli ....
Breytingar miklar verða nú á Hótel Borgar-hljómsveit-
inni, en 10. júlí n. k. koma þrír nýir hljómsveitar-
menn m. a. Ragnar Bjarnason og Ólafur Gauluir hinn
kunni „3. síðu“ höfundur Tímans. Þá mun Björn R.
einnig fá nýjan píanóleikara .... í ágúst kemur ung-
frú Guy Yvette, hin franska, aftur í Leikhúskjallarann,
þar sem sún söng í fyrravor .... Annað er vart títt
úr heimi hljómleikamanna.
Máfurinn, sá vinsæli fugl, herjar nú aftur á and-
arungana, sem komnir eru úr hreiðrum. Nú er sann-
arlega þörf á því að hin ágæta skytta Lárus Saló-
monsson taki upp vörð við Tjörnina, einkum snemma
á morgnana, en þá er ásókn máfanna mest.
Sönglist hefur sjaldan verið rædd í þessum dálki,
(>í en unnendur sönglistar ræða mjög konsert Magnúsar
Jónssonar, sem hann hélt hér á dögunum. Magnús hef-
}4' ur unnið mikinn frama í Danmörku hlotið stórt lof
í K.hafnarblöðunum fyrir aðalhlutverk í óperum. Sumt
af því fólki, sem hlustaði á Magnús um daginn, segir
hann eins góðan og Stefán íslandi, er hann var upp á
sitt bezta og víst er um eitt, að Magnúsar bíður glæsi-
leg framtíð.
Eitt dagblaðanna birtir þá frétt, að neyðaróp
stúlku hafi heyrzt úr Varðarhúsinu, en lögreglan ekki
getað að gert vegna skorts á heimild til að fara inn
í húsið! Þetta eru furðuleg tíðindi, ef sönn reynast,
en það fylgir fréttinni, að lögrelgan haf i tvívegis horfið
frá. Sannarlega þarf að athuga þegar í stað, gildandi
reglur í svona tilfellum til að fyrirbyggja að slíkt sem
þetta geti endurtekið sig.
Fyrsta verkefni verktakanna á Keflavíkurflug-
velli frá og með næstu áramótum verður að leggja
hinn nýja veg, sem varnarherinn hyggst greiða fyrir.
Vegurinn verður frá vellinum upp í Hvalfjörð og er
sannarlega engin vanþörf á slíkum vegi. Gamansamir
náungar segja Ameríkana hafa boðið Bolla Thor og
Einar Páls vinnu, en báðir hafnað á þeim forsendum,
að þeir verði ennþá í Miklubrautinni.
1 Hva<5 á aS gera i kvöld?
Gamla bíó: Balur konunganna. R. Taylor. Kl. 5’ 7, 9.
Nýja bíó: Betlistúdentinn. Kl. 5, 7, 9.
Tjarnarbíó: Umbúðalaus sannleikur. T. Thomas. Kl. 5, 7, 9.
Austurbæjarbíó: Bravo, Caterina. C. Valente. Kl. 5, 7, 9.
Stjörnubíó: Skugginn á glugganum. P. Carey. Kl. 5, 7, 9.
Trípólibíó: Víkingarnir. K. Douglas. Kl. 5, 7, 9.
Hafnarbíó: Næturlest til Miinchen. R. Harrison. Kl. 5, 7, 9.
Þjóðleikhúsið: Kristín Lavransdóttir. R. Tellefsen. Kl. 20.
(Birt án ábyrgðar).
Mánudagur (>. júlí 1959.
ira»erinoj
iValenfei
Austurbæjar- 1
bíó sýnir nú
smellna þýzka
söngvamynd,
sem nefnist
„Bravo Cater-
ina“. Sögu-
þráðurinn er
unga revíu-
leikkonu og
alls kyns æfin-
týri, ástir og
óheppni, sem
þó rætist úr.
Efnið er bráð-
fyndið en laust
við að vera
endaleysa, en
aðalhlutverkið
leikur Catarina
Valente ásamt
Rudolf Prack;
það er góö
kvöldstund að
sjá þessa
mynd.
Leikstjóri er
Werner
Jacobs.
Bráðsnjöll gamanmynd í
Tjarnarbíói
Tjarnarbíó sýnir um þessar
mundir bráðfyndna brezka gam-
anmyndi, Umbúðalaus sannleik-
ur, — eina af beztUj gaman*
myndum, sem hér hafa sézt upp
á síðkastið. Efnið er um fjárkúg-
ara, sem selur greinar um ýmis
persónuleg hneykslunarefni, sem
hent hafa merkilegt og frægt
fólk — fyrir stórar fjárhæðir. Ef
þær eru ekki greiddar hótar
hann að birta greinarnar. Fjögur
væntanleg fórnardýr koma til
sögunnar og gerast bráðlega hin-
ir kátlegustu atburðir með hverj
um fyrir sig en að lokum öllum
í hóp. Öll reyna fórnardýrin að
koma fjárkúgaranum fyrir katt-
arnef, eða biðja miskunnar en
hvorttveggja er vonlaust. Það er
ekkert smáfólk á ferð, lávarður,
sjónvarpsstjarna, tízkudama og
heimsfrægur rithöfundur. Skipti
þessara aðila og dónans eru í
senn fágæt og frábær en jafn-
framt sérlega gamansöm.
„Brandarar'1 myndarinnar eru
vel samdir og skemmtilega sagð-
ir, einkum hjá rithöí'undinum, en
hinir eru varla síðri, þótt sumir
séu dálítið lengra sóttir.
Aðalhlutverk Peter Sellers,
Peg'gy Mount og Terris Thomas.
Þetta er mynd, sem öllum er ráð-
lagt að sjá.
A. B.
„Víkingarnir" algerlega
misheppnuð
Það féll ekki í hlut Kirk Doug-
las leikara og leikstjóra að gera
víkinga Noregs ódauðlega á hinu
hvíta lérefti. Myndin „The Vik-
ings“ sem nú er sýnd í Trípóli-
bíó hefur allt hið glæsilega og
litríka, sem eina slíka mynd má
prýða, en leikur, kvikmyndahand
rit og léleg og hugmyndasnauð
leikstjórn brjóta allt -það niður,
sem fé og íburður byggðu upp.
Söguþráðurinn um feðgana frá
Noregi, ránsferðir þeirra til Eng-
lands, þrælinn, sem er launsonur
víkingsins, aðalborinn og auð-
vitað sá, sem sigrar stúlkuna,
fellir skúrkinn — á fremur lúa-,
legu lagi — og að lokum þær
plestísku tilraunir sem gerðar
eru til hátíðleika, er jafngötóttur
og hann er leiðinlegur, og laus
við spenning. Jafnvel hinar fjöl-
mennu orustur, einvígi og dauð-
inn í úlfagryfjunni fara í handa
skolum. Feðgarnir — hinir miklu
Víkingar — gera lítið annað en
hlæja tröllslega og berja á þræl-
um, en þess á milli ræða þeir um
kvennafar og þamba í sig öl.
Samtölin minna helzt á prakk-
arastráka, sem kætast yfir að
hafa brotið rúðu hjá kaupmann-
inum.
En íburðinn vantar ekki —
heilar sex milljónir bandarískra
dollara fara í að framleiða mynd-
ina og það verður ekki deilt um
það, að hið jarðneska góss lætur
ekki sitt eftir liggja í þessari
mynd, þótt hið andlega virðist
að mestu fjötrað. í stuttu máli
.— mestu vonbrigði í kvikmynd-
um síðari ára.
A. B.
Nú um helgina
fékk Tivoli þau
Lott og Joe
Anders frá
Danmörku til
aö sýna alls-
kyns listir á
háum lijólum.
Eru það ótrú-
legustu jafn-
Vægislistir,
keilu og kylfu-
leikir, en sjálft
er hjólið, sem
er einhjól, allt
aö því 4 metra
liátt. Þau sýna
nú í Tivoli, á
sýningarpall-
inum og svo
aftur um
næstu helgi.