Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Qupperneq 2

Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 10. ágúst 1959 Flestir kannast við söguna um það, þegar Bakkabræður voni á ferðalagi í tunglsljósi á vetrarkvöldi. Einn þeirra reið merinni Brúnku, en við hlið hans sáu þeir annan mann ríðandi, en sá var fá- málugur, og höfðu þeir litla skemmtan af honum á leið- inni. Þegar heim kom, hvarf fer í burtu. Það hefur eflaust ýtt undir þessa trú, að þegar maðurinn liggur dauður á jörðinni, hverfur skugginn. Skugginn stendur einnig oft í nánu sambandi við trúna ái fylgjur. Stundum virðist hann vera aðalundirrót fylgjutrúarinnar, en hún hef- þó einnijg oft bíandazt Ólafur Hansson, mennfaskólakennari: dýradýrkun og tótemtrú. Skugginn hefur yfirleitt haft • margvísleg áhrif á anda- og draugatrú-frumstæðra þjóða. hami þeim með öllu. Þessi skopsaga á að sýna, hvílíkir fádæma fáráðlingar Bakka- bræður voru, að þekkja ekki einu sinni skuggann sinn. En því fer mjög fjarri, að þeir hafi verið einir um slíka fá- vizku. Allt frá bernsku mann kynsins og langt fram eftir öldum þótti skugginn oft hin mesta ráðgáta, og óteljandi skýringar hafa verið til á honum, flestar meira eða minna dulrænar. Þetta gildir jafnt um skugga manna, dýra, trjáa og dauðra hluta. Skugginn sem klukka Skugginn getur líka feng- ið hagnýta þýðingu hjá sum- um þjóðum. Hann getur orð- ið tímamælir. Menn reikna út, hve langt sé liðið á dag eftir því, hvar skuggi fellur af klettum, trjám eða jafnvel af lifandi mönnum. Slíkar skuggaklukkur þekkjast hjá mörgum frumstæðum þjóð- umj og dinnig hjá! hinum fornu menningarþjóðum Aust urlanda. Ýmsir halda, að óbelískarnir, hinar miklu steinstrýtur, sem Forn-Egypt ar reistu, hafi fyrst og fremst átt að vera tímamæl- ar, menn hafi getað séð nokk uð svo nákvæmlega, hve langt var liðið á dag, eftir því, hvar skugginn af þeim féll. Að visu eru til fleiri skýring- ar á því, í hvaða tilgangi ó- belískarnir hafi verið reistir. Skugginn sem sál Flestar frumstæðar þjóðir telja, að eitthvert leyndar- dómsfullt samband sé milli mannsins og skugga hans. Oft haida menn, að skugg. inn sé í rauninni sál manns- ins og öllu raunverulegri. en, maðurinn sjálfur. Þegar mað urinu deyr, yfirgefur skugg- jnn hann, það er sálin, sem Skugginn sem læknis- dómur í brennheitum sólarlönd- um hafa menn oftast miklar mætur á skugga og forsælu, jafnvel svo að menn berjist til að fá að vera í forsælunni. Skugganum er líka stund- um það til lista lagt að geta læknað ýmis mannanna mein. Skuggar sumra trjátegunda geta læknað, en skuggar manna eru hættulegir og geta valdið sjúkdómum. Skuggar af kirkjum geta oft læknað, einkum skuggar fornhelgra kirkna. Og á miðöldum urðu menn stundum alheilir, ef skuggar góðra manna og guð hræddra féllu á þá. Hællulegir skuggar En það er margs að gæta í sambandi við skuggann, Það verður að umgangast hann með varúð, því að stundum getur hann orðið hættulegur. 'I Indlandi, þar sem skipting in í rígskorðaðar erfðastéttir er enn í fullum blóma, reyna menn af hinum æðri stéttum að gæta þess vandlega, að skuggar lægri stéttar manna fáíli ekki á þá. En í umferð- inni í indyersku stórborgun- um er ekki alltaf svo auðvelt að koma í veg fyrir þetta. Og ef þessi ósköp henda ind- verska hástéttarmenn, verða þeir að hreinsa sig með alls konar seremoníum. En skugginn getur líka hreinlega valdið veikindum og dauða. Sá, sem verður fyr- ir skugga flogaveiks manns, verður flogaveikur sjálfur. Skuggar galdramanna eru lika oft' óholjir, þeir geta jafn vel orðið eigandanum sjálfum að bana, ef ekki er öll gát höfð á. Ekki má mæla skugga manna, það getur valdið þeim bráðum bana. Skugginn gerir uppreisn í einu af ævintýrum H. C. Andersen er það svo, að skugginn gerir uppreisn gegn eiganda sínum og lætur taka hann af lífi. Hjá skáldinu er þessi saga táknræn, skugg- jnn táknar hér hið ytra glys og glingur, sem drepur allt manngildi í manninum sjálf- um. En annars er uppreisn skuggans alþekkt mótiv í þjóðsögum. Stundum ræðst hann á eiganda sinn án nokk- urrar ástæðu, hann gerir sér lítið fyrir og kyrkir hann í greip sinni eða togar hann með sér í jörð niður. Þetta er skylt sögunum um það, þegar spegilmyndir manna koma út úr speglinum og ráðast á þá.. Stundum ræðst skugginn á menn, ef þeir stríða honum, t. d. gefa hon- um langt nef. Og honum er meinilla við það, ef eigandi hans fer að búa til skugga- myndir á vegg með fingrun- um. Þá getur hann orðið svo reiður, að hann ræðst á eig- anda sinn. Reyndar er slík skuggamyndagerð ekki nærri alltaf talin haéttuleg. Skugga leikir, þar sem skuggar af fólki eða leikbrúðum eru látnir falla á tjald, eru algeng ir frá fornu fari í Austurlönd- um, einkum í Kína, og hafa einnig borizt til Evrópu. En allur er varinn góður og það er eins gott að vera ekki að stríða skugganum sínum. Okkur yrði sennilega anzi bylt við, ef hann tæki einn góðan veðurdag upp á því að ráðast á okkur eða jafnvel bara, ef hann færi að fara sinna eigin ferða. SkuggaSausi maðurinn Til er aragrúi af sögum um menn, sem hafa misst skugg- ann sinn, en þessar sögur eru mjög sundurleitar. Sumir helgir menn í Austurlöndum voru svo góðir, að skugginn yfirgaf þá. Slíkar helgisagn- ir eru til um Múhameð og þekkjast einr.ig með kristn- um þjóðum. Um ýmis há- heilög hof í Austurlöndum ganga þær sögur, að þar inni varpi engir hlutir skugga, hvorki lifandi né dauðir. Og þessar sögur hafa færzt yfir á sumar kristnar kirkjur, einkum í grísk-kaþólskum löndum. Draugar varpa engum skugga, en menn, sem eru bráðfeigir, gera það ekki held ur.Og dins qg mjög góðir menn geta misst skuggann sinn, geta mjög vondir menn það einnig. Glæpamenn og meinsærismenn missa stund- um skuggann. Og margar sögur eru til um það, að f jand inn hafi krækt í skugga manna. Hann greip skugga Sæmundar fróða, þegar Sæ- mundur smaug úr greipum Hans’í Svartásköía. Var Sæ- mundur skuggalaus upp frá því. Stundum selja menn fjandanum skuggann sinn. Framhald á 8. síðu Tilkynning til síldarsaltenda suiinan- lands og vestan Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld sunnanlands og vestan á komandi vertíð, þuría samkv. 8. gr. laga nr. 74 írá 1934 að sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar. Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða. 2. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni. 3. Eigi umsækjendur tunnur og salt, þá hve mikið. Umsóknir burfa að berast skrifstofu nefnd- arinnar í Reykjavík sem allra fyrst og eigi •síðar en 10. þ.m. Óski saltendur eftir að kaupa tunnur og salt af nefndinni, er nauðsynlegt að ákveðnar pantanir berist sem allra fyrst eða í síðasta lagi 10. þ.m. Tunnurnar og saltið verður að greiða áður en afhending fer fram. Síldarútvegsnefnó GRÆNLANDSFLUG Sökum mikillar eftirspurnar er ákveðið að efna til fimmtu skemmtiferðarinnar til Grænlands, laugardaginn 15. ágúst. Þar sem færri en vildu komust í fyrri ferðirnar, skal væntanlegum þátttakendum bent á að tryggja sér far í tíma. 1 Flugfélag íslands ICELANDAIR LOKAÐ vegna sumarleyfa til 1. september. Pétur Thomsen kgX j hirðljósmyndari. Ingólfsstræti

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.