Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 10. ágúst 1959 13. KAPÍTULI Að hann skyldi vera hérna og það svo nálægt, að hún þyrfti ekki annað en að rétta út höndina til að snerta hann, var svo ótrúlegt, að hún gat engu orði upp komið. Það sem virtist jafifvel enn þá óskiljanlegra, var gleðin, sem fyllti hjarta hennar við komu hans. Henni varð það allt í einu Ijóst, hver ástæðan var fyrir þeirri tilfinningu, að eitthvað vantaði, þrátt fyr ir hina miklu hamingju, sem hún hafði orðið aðnjótandi hérna — en jafnvel núna gat hún ekki horfzt í augu við þessi sannindi. 18 Hermina Biack: PAULINE FKAMHALDSSAGA „Verið þér ekki svona hrædd á svipinn,“ sagði Lucius, ,,ég er engin afturganga." Hann rétti henni höndina, og þegar hún fann svala hönd hans, kom hún aftur til sjálfr ar sín. ,,Dr. Bellamy, ég hef aldrei í lífi mínu orðið eins undr- andi. Hvað lengi — ég á við — ég hafði ekki hugmynd um, að þér væruð í Norður- Afríku.“ Þurfti hún nú endilega að stama? Hann hlyti að halda; að hún væri eitthvað skrýtin, en það leit ekki út fyrir, að hann tæki eftir því. „Eg kom til Alsír í dag. Eg hafði nú ákveðið að fara ekki til Frakklands, en svo datt mér allt í einu í hug, að skemmtilegra væri að koma hingað og endurnýja kynni mín af Afríku." „Og þér skrifuðuð ekki frú Arbuthnot um, að þér ætl- uðuð að koma? Hún var ein- mitt að segja í gær, að þér hefðuð ekki svarað síðasta bréfi hennar.“ „Eg h'afði svo mikið að gera áður en ég fór af stað. Það eru aðeins nokkrir dagar síðan ég ákvað að taka mér frí, og ég var ekki heldur viss um, hvert ég ætlaði að fara.“ ! Þetta var nú ekki alveg sannleikanum samkvæmt sem hann sagði, því að á því : augnabliki, sem hann ákvað áð taka sér frí, vissi hann ná- ; kvæmlega, hvert hann mundi : fara. < „Hér er vissulega ákaflega : fallegt," bætti hann við. Svo horfði hann beint á hana og ; sagði: „Og svo lítur út sem staðurinn eigi vel við yður. Þér lítið vel út og hafið fitn- ■ að svólítið.“"' „Hamingjan hjálpi mér, ég vona ekki of mikið,“ hrópaði Pauline. 1 „Nógu mikið til þess að þér lítið ekki út eins og þér j gætuð skriðið í gegnum skrá- ] argat,.“ ] Hann brosti, og hún fann til ákafs hjartsláttar. ] „Leit ég svona hrlæðilega f út?“ spurði hún. 1 „Ekki beinlínis. Þér voruð i þreytt og unnuð of mikið.“ ] Hann gekk fram eftir svölun- i um. ] „Hér er verulega fallegt út i sýni,“ en meðan augu hans 1 litu yfir garðinn og landslag- ið umhverfis, var það stúlk- an við hliðina á honum, sem hann sá. Pauline hafði svo ■ oft veríð í huga hans, en hann hafði alltaf reynt að bægja mynd hennar burt, þangað til hann ákvað að koma og ganga úr skugga um, hvort hún væri raunveru lega svona — ófyrirgefan- lega falleg. Hann sneri sér við. „Hvern ig líður sjúkling yðar?“ „Henni virðist líða mjög vel.“ „Ber ekkert á sjúkdómi hennar?“ „Það hefur ekkert borið á honum hingað til.“ Hann tók allt í einu eftir, hvað augun í henni voru ó- venjulega blágrá og minntu hann einhvernveginn á skýj- aðan sumardag. Pauline spurði: „Hafið þér borðað morgunverð ?“ „Fyrir nokkru síðan.“ „Viljið þér þá ekki svo- litla viðbót núna?“ „Nei, þakka yður fyrir. En ef þér hefðuð bolla af kaffi —“ Hann leit á borðið. „Það tekur ekki eina mín- Útu að koma með nýtt kaffi. Ef þér vilduð setjast niður —en áður en hún hafði lok ið setningunni, var Abdul komin með nýlagað kaffi handa gestinum og spurði hann, hvort hann vildi ekki neitt annað. Lucius neitaði, en um leið og hann settist niður, spurði hann Pauline: „Bíður frú Arbuthnot eftir yður?“ Hún leit á klukkuna. „Nei, það éru tuttugu mín- útúr þangað til, en ég er viss um, að hún vildi vita, að —“ „Þér megið ómögulega ó- náða -'barfav- Eg hef nógan tíma fyrirrmér.“ Hann hló. Hún undraðist með sjálfri sér, hvort hún hefði nokkurn tíma heyrt hann hlæja. „Það hljómar éinkenni- lega,“ sagði hann, að maður skuli hafa nógan tíma. Það er fyrst núna, eftir að ég hef tek ið mér frí, að ég finn, að ég hef unnið of mikið síðustu mánuðina. Svo að frú Arbut- hnot líður vel ? Auðvitað haf- ið þér séð um, að hún hafi haft það rólegt?“ „Já,“ svaraði Pauline, „en | það eru þessar síðustu vikur“ — allt í einu mundi hún, og það var eins og ský hefði dregið fyrir sólu, hvers slags idiót hún hafði verið að sjá ekki strax, hvaða ástæða lá til þess, að hann kom til Al- sír í fríinu sínu. Það var auð vitað vegna þess, að Clare var hérna. „Hvað hefur komið fyrir síðustu vikurnár?“ spurði hann. „Bara það, að ég held, að það hafi verið fullmikil hreyf ing fyrir hana, síðan ungfrú Maradick , kom. Auðvitað langaði hana til að —“ „Hvað þá?“ Sykurmolinn, sem hann hafði tekið upp með töngum, datt niður í sykur- karið aftur. „Sögðuð þér ung frú Maradick?“ „Já, hún kom í síðustu viku. Vissuð þér ekki —?“ „Hvern fjandann er Clare Maradick að gera hérna?“ Gamli óþolinmæði tónninn var kominn í rödd hans, og hann horfði á hana reiður á svip- inn. Pauline hugsaði: Það er eins og þetta sé mér að kenna. „Ungfrú Maradick kom al- veg óvænt,“ sagði hún, „og auðvitað hefur frú Arbuthnot gert allt, sem í hennar valdi stendur, til að skemmta henni.“ „Hvað í ósköpunum er Clare Maradick að gera hér í Alsír?“ „Eg hélt kannske, að þér vissuð það.“ „Því í andskotanum ættj ég að vita það?“ Hún roðnaði og sagði svo stamandi:: „Sir Richard —“ ,,Eg hef ekki hitt Sir Ric- hard. Honum er illt í fætinum, og hann er í fríi í írlandi. I þetta sinn —“, og nú brosti hann aftur — „hef ég skilið sjúklinga hans eins og mína í annarra manna höndum. Eg hef nú ekki nema tíu daga frí. En segið þér mér nú um Clare, setur hún ekki allt á annan endann? Hún er gömul kunningjakona mín, og ég þekki það, að henni er annað betur gefið en að vera róleg.“ „Eg held hún sé að koma,“ sagði Pauline og reis á fætur, þegar Clare heyrðist kalla: „Bless þangað til á morgun.“ Áj næstá augnabliki sáu þau hana koma, granna og í vel sniðnum reiðfötum, með barðastóran hatt og með svipu undir handleggnum.' Lucius stóð líka á fætur og horfði á hana koma hægt upp á svalirnar, en hún sá hann ekki fyrr en hún var rétt kom in að honum. En þegar hún sá hann, sleppti hún svipunni og rétti honum báðar hend- urnar. „Lucius, elskan, en yndis- legt að hitta þig.“ „Halló, Clare, þessu bjóst ég ekki við. Hann tók útréttar hendur hennar. „Hvað ert þú að gera hér?“ Svona mundi enginn heilsa stúlku, sem hann væri hérum bil trúlofaður. Pauline fór inn í húsið til herbergja frú Arbuthnot. Til- firiningar hennar voru bland aðar hamingju og kvíða á víxl. II. Er Pauline keyrði Alvísbíl- inn eftir veginum inn í hvíta borgina, átti hún erfitt með að halda huganum föstum við það, sem hún var að gera. Hlutirnir höfðu breytzt. Áður fannst henni hún vera í samræmi við umhverfið, eri nú fannst henni hún vera ó- róleg og kvíðafull. Það voru aðeins þrír dag- ar, síðan Lucius hafði komið svona óvænt. Fyrsta daginn hafði hann aðeins staðið stutta stund við til að heilsa upp á frú Arbuthnot, sem hafði verið svo fegin að sjá hann, að hún hafði komizt í svo mikið uppnám, að Paul- ine hafði skipað henni að hvíla sig allan daginn í her- berginu sínu. Næsta dag hafði hann kom ið til morgunverðar og Clare, sem vissi, aið hann mundi koma, sveik loforð sitt um að borðá með de Nevois greifa og bróður hans, og hún lét jLudjus vita, að hún hefði gjört það hans vegna, en hann svaraði aðeins: „Þetta hefðirðu ekki átt að gera. Við frú Arbuthnot skemmtum okkur prýðilega saman.“ Pauline var að hugsa um þetta, þegar hún skildi bílinn sínn éftirí ááíægt markaðs- torginu og fór svo fótgang- nr. ;-öír.:K:;K< * a ru . „ andi erinda sinna. Du Bois-fjölskyldan hafði boðið henni á dansleik á föstu daginn, og þó hún í fyrstunni hafði ætlað að neita að fara, skipaði frú Arbuthnot henni að taka á móti boðinu. Hún skipaði henni líka að fá sér nýjan kjól í tilefni þess og lét senda sér úr bænum marga kvöldkjóla, svo hún gæti val- ið úr. Kjóllinn hékk nú í fata- skápnum, og frú Arbuthnot vildi endilega lána henni háls festi, armbönd og eyrnalokka með bleikum steinum, sem áttu við kjólinn. Skartgripirn ir höfðu verið geymdir í banka í Alsír síðan fyrir stríðið, en eitt armbandið l^afði verið brotið, og það hafði verið sent til gullsmiðs í Biskra til að láta gera við það í tíma. Pauline var á leiðinni til að sækja það núna. Það var í búð, sem gamall Arabi hafði nálægt markaðsstaðnum'. Hún var því fegin, að gamli, skeggjaði Arabinn var ekki í búðinni þennan morg- un. Hann hafði þekkt frú Ar- buthnot frá því hún kom fyrst til Biskra sem ung.þrúð ur, og þegar hann komst að því, að Pauline gat talað frönsku, slapp hún ekki hjá því að þiggja te, og á síð- ustu heimsókn hennar hafði masið í honum tafið hana í klukkutíma. En nú þurfti hún að flýta sér Pauline var á leiðinni að bílnum aftur, þegar hún mætti Luciusi. „Það er langur vegur frá horninu á Wimpolegötu — og engin umferðarljós,11 sagði hann. „Góðan daginn, dr. Bell- amy. Saknið þér Wimpole- götu?“ „Alls ekki. Eg er ákaflega ánægður með að vera sem lengst í burtu frá Wimpole- götu,“ sagði hann hlægjandi. „Eruð þér að fara beint heim?,“ spurði Jiann og slóst í fylgd með henni. „Eg var einmitt að hugsa, hvort það væri ekki of snemmt að koma í heimsókn." „Frú Arbuthnot verður allt af glöð við að sjá yður. Eg er með bíl hérna, ef þér kærið yður um að koma með.“ „Þakka yður fyrir. Eg hafði ákveðið að ganga, en eruð þér að flýta yður?“ spurði hann. . „Nei, frú Arbuthnot býst ekki við mér ennþá,“ sagði Pauline, „ég á líka eftir að gera meira, og hún hefur bók að lesa, sem hana langaði til að klára.“ ,,0g ég þarf að fara heim á hótelið mitt og ná í mynda- vélina mína. Hvernig væri, að við hittumst á Continent- alhóteli, þegar þér hafið lok- ið yður af.“ „Eg held, að það væri á- gætt,“ samþykkti hún. „Þetta tekur mig ekki nema kortér.“ „Þá ætla ég að bíða eftic yður.“ OÖIk-.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.