Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.09.1959, Page 1

Mánudagsblaðið - 21.09.1959, Page 1
 jSlaÓfyrir alla 12. árgangur. ___ «n» Mánudagur 21. sept. 1959 34. tölublað. Bátsmaður hrakinn af varð- skipinu Þór Varðskipin að mesfu mönnuð óvönum - Vöskum sjómönnum bolað burtu af admirálnum í forsfjóraembæffinu. - Fermingarpilfar kjarninn í áhöfn helzfa varðskipsins okkar. - Skeyfi frá mömmu og pabha: Börnin í land - annars.. Blaðið hefur sannfrétt að Magnús Gíslason, bátsmaður á varð- skipinu Þór hafi fengið þau skilaboð er hann kom úr sumarleyfi, að hans væri ekki þörf um borð í v/s Þór. Magnús, sem hefur jiróf úr fiskimannadeild Sjómannaskólans og er þrautreyndur sjó- maður og hinn vaskasti maður, hefur verið á Þór í tvö ár. Hann er að dómi allra, sem til þekkja, hinn traustasti sjómaður, og skipsfélagar hans fara ekki dult með það, að hann hafi skipið sízt mátt missa af þilfari. Ekki þörf Magnús átti inni sumarleyfi frá því í fyrra, — tók sér því tvö- falt leyfi í sumar. Er hann hugð- ist- mæta til vinnu var honum tilkynnt að hans væri ekki þörf á skipinu. Óyggjandi upplýsing- ar liggja fyrir um að yfirmenn á Þór finna störfum Magnúsar ekkert til foráttu. Krafðisf kafaralauna Það er Pétur Sigurðsson, for- stjóri landhelgisgæzlunnar, sem bolar Magnúsi úr starfi vegna þess, að hann hefur gert kröfu til þess að fá launagreiðslur sem kafnri á skipinu. Hann hefur full réttindi sem kafari og lögum sam- kvæmt eiga varðskipin að hafa fullgilda kafara um borð til björgunarstarfa. Á fermingaraldri Kjör sjómanna á varðskipun- -jum,a;JU.Ít.anBÍg,..aJ tæpast líður svo ferð, að ekki gangi fleiri eða færri af þilfarsmönnum úr skip- rúrni. Verst eru þau á Þór þar sem yfirvinna er þar minnst. Fyr- ir hefur komið, er skipið hefur verið nýlagt úr höfn, að í ljós hefur komið að nokkrir háseta hafa verið undir lögaldri og ekki sjálfráða. Er skrpið lenti í kasti við Artic Viking í vor og skaut aðvörúnarskotunum undan Reykjanesi voru til dæmis með tveir fermingarpiltar. Bárust fyrirmæli frá foreldrum þeirra til skipstjóra um að skila þeim í land á næstu höfn. Þörf afbragðsmanna Pétri Sigurðssyni væri sæmri önnur iðja en að flæmá burtu þá fáu traustu sjómenn, sem Land- helgisgæzlan á kost á til starfa á varðskipunum. — Hann gæti til dæmis eytt tima sínum betur við hugleiðingar um eðh þeirra átaka, sem við eigum nú í við Breta, og væri vel ef hann kæm- ist að þeirri niðurstöðu, að nú væri rétt að biðjast lausnar úr embætti, svo að við stjórn gæzl- unnar geti tekið maður, sem heldur virðingu manna sinna. Landhelgismálið er nú á svó al- varlegu stigi, að þess er krafizt að af íslands hálfu gangi þeir fram fyrir skjöldu úrvalsmenn, sem meira eru reyndir af viti, en barnalegum ákafa. Þessa dagana sýna kunmr sovezkir nstamenn i Þjooleik- húsinu, en fyrr í vikunni sýndu þeir utanbæjar við mikla hrifningu. Listafólkið 2 konur og tveir karlar, eru hér á vegum MÍK og dvelja á Iandinu í hálfan mánuð. Myndin að ofan v4r tekin á fundi með blaðamönnum og beita Hsta- mennií-nir talið frá vinstri: Igor Politkovski, fiðluleikari, Ljúdmila Isaéva, sopran, M. Voskrensenskí, píanó og Taisia Merkúleva, píanóleikari. Héðan fer listafólkið til Akureyrar. MgsrráiHSt ertrgerð bæði fyr- ir sund og sólbað. Þau eru úr baðmullarefni, rauð eða blá skreytt hvítum rósum. Segja fulltrúar dómstólanna upp? MIKLAR LÍKUR BENDA til þess, að um áramótin segi allir fulltrúar hjá dómstólum hins op- inbera upp störfum sínum. Full- trúarnir telja, að kaup sitt sé alltof lágt, og vilja „ekki tærast upp í þjónustu hins opinbera.“ Tals- og baráttumaður fulltrú- anna er GuÐMUNDUR INGVI SIGURÐSSON, lulltrúi hjá saka- dómara, liarðskeyttur maður, en Lögmannafélag' íslands mun veita fulltrúunum allan stuðn- ing. Þessi stuðningur er reyndar auðskilinn því lögfræðingar eru dauðhræddir um að fulltrúarnir fari að setja upp skrifstofur og keppa við þá í braskinu. Furðuleg fímmeyringssjónarmii vinstrí sinna Telja alþýðu trú um að auðmenn standi í smásvindli Ýms félög, jafnvel stéttir í nágrannaríkjum okkar og víð- ar hafa síðari árin bundizt samtökum til þess að verjast taumlausum ágangi og gerræði hins opinbera gagnvart ein- .stökum borgurum þjóðfélagsins. Hefur þessum samtökum orðið vel ágengt, en starfi þeirra má, í vissum efnum, líkja við starf Neytendafélagsins. Nota sér fáfræði Á íslandi hafa engin slik sam- tök verið mynduð síðan Skatt greiðendafélagið sæla og húseig- enda-„grínið“ voru hér á ferðinni með hagsmuni forustumannanna ■t.fararbi;oddi-Eins;qg.kunnugt er, þá er mörgum borgaranum sví- virðilega misboðið af svonefnd- um embættismönnum, sem í senn nota sér f áfræði einstaklinga, sem undir þá þurfa að sækja og þá staðreynd að almenningur hefur engin samtök, sem hlaupa með þeim undir bagga. Óréftlæti Um þessar mundir talár bær- inn um nýja skatta og útsvör, en þar kurrar hver maður í sínu horni, utan þess að þjóðþekktir rnenn verða fyrir barðinu hjá ó- vinveittum blöðum. Það er fjarri oss að halda með Vilhjálmi Þór, Ólafi Thors, Gunn- ari Thor eða Bjarna Ben., en þessir aðilar eru nú bezta bitbein blaðanna. Furðuleg staðhæfing En dettur nokkrum rökrétt liugsandi manni í hug, að þess- ir menn, hva'ð sem um þá mætti segja — og margt rétt — létu sér detta í hug, að óska eftir eða láta þræla sína gefa sér eftir opinber gjöld — — kannski nokkur þúsund krónur, og stofna persónu sinni og flokki í vandræði og hættu út af slíku? Þetta eru fráleitar ásakanir byggðar á fávíslegri óskhyggju, sem hvergi á sér stað. Ef Thorsara- auðurinn og Vilhjálms Þórs milljónirnar blikna undir þessum gjöldum eru þessir menn naumast f jáðari en svo, að einstaklingsauður á land- inu væri enginn. Hér er um að ræða hundómerkilegt póli- tískt nart úr kommúnistum og fylgifiskum þeirra, sem allir vita betur. Þeirra eigin menn í nefndinni geta borið um þaS. Vonleysi einsfaklinga Það sem miklu fremur skiptir máli er sú vonlausa aðstaða sem einstaklingar búa við gegn op- inberum aðilum. Menn kvarta í Framahld á 6. síðu Öreigafélag bíó- eigenda og frétta- myndir Ekki láta blessaðir örcigarnir okkar, DlOeigendurnir, enn frá sér heyra í sambandi við frétta- myndir. Alþjóð veit, að þessir menn, sem eyða lífi sínu í að upp- lýsa alþjóð á sviði lista og leik- bókmennta, eru í fjárhagsörðug- leikum, en þótt þeir háfi myndatf með sér mikið félag — Félag þío- stjóra — þá hefur sá góði félags- skapur ekki gefið neina skýringw á skorti fréttamynda, | íslenzkum kvikmyndaliúsgest- um þætti gaman og fræðandi a$ sjá heimsviðburði á kvikmynd t. d. fund Krústjoffs og EisenhovvW ers, ferðalag Ikes til London, Bonn og Parísar, eitthvað frá bar- dögum í Alsír eða keppnum í í« þróttum, listasýningar á frægum söfnum — persónuleika í heims- fréttunum, sem áður þóttu góðat sýningar, og hinu fjölmarga öðri* í heimsviðburðum, sem íslenzkit bíóeigendur neita að sýna bió-i gestum. Það er nú kominn tími til, að bíóin annaðhvort fái svona mynd- ir til sýninga hér, eða gefi skýr- ingu sameiginlega á því að þess- ar myndir fást ekki hingað. Það er á vitorði allra, að bíó- eigendur fá rekstrarheimild fyrir fyrirtæki sín á þeim forsendum að einstaklingsrekstur auki fjöl- breytni og skapi heilbrigða sam- kcppni, en ef svona sleifarlag á að ríkja er betra að allur rekst- ur kvikmyndahúsa sé tekinn til alvarlegrar endurskoðunar.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.