Mánudagsblaðið - 26.10.1959, Page 1
39. tölublað.
BlaS fyrir alla
12. árgangur.
Mánudagur 26. október 1959
Furðuleg framkoma Hreyfilsbílstjóra
Tekur fé farþega til gegmslu — Prjózkast
við að greiða -» Málið komið í rannsókn
I vor skrapp ungur maður, Bergur Pálsson, til Baufarhafnar
að sækja ýmislegt dót, sem hann átti þar. Með honum fór félagi
hans, Árni Jóhannsson. Ferðalag þetta er hið furðulegasta í einu
og öllu hvað framkomu bifreiðarstjórans, Ólafs Jóhannssonar,
R—2575, áhrærir, og má efa, að Hreyfill hafi efni á að veita slík-
um mönnum atvinnu er svona koma fram. Smágrein um þetta
efni birtist í dagblöðum í sumar, en eftirfarandi grein hefur
legið í athugun hjá blaðinu rösklega l'A mánuð, en efni hennár
verið í athugun hjá lögfræðingi ásamt undirrituðum plöggum
og öðrum skjölum, framburði lögreglumanna o. fl. Greinin er svo-
hljóðandi; hefst eftir að þeir félagar hafa ákveðið að leigja bif-
reið til Raufarhafnar.
„Förum við nú út á bifr.st.
„Hreyfill“ og sjáum við þar hina
glæsilegu bifreið Ö—128. (Nú
R—2575). Næ ég tali af bif-
reiðarstjórantún Ólafi Jakobs-
syni og bið hann að aka
mér til Raufarhafnar ásamt
Árna Jóhannssyni og tekur hann
vel í það og stígum við upp í
bílinn og ökum út í Landsbanka
og fæ ég þar skipt ávísun að upp-
hæð 10.000,00.
Semjum við nú um túrinn.
Segi ég Ólafi að fyrst þurfi ég
að aka austur að Eyrarbakka að
sækja dót er ég átti þar. Segi ég
honum jafnframt að ég aki ekki
af stað með honum nema að
borga honum túrinn fyrirfram.
Segir hann mér þá að hann sé
dekkjalaus að aftan og þurfi að
kaupa tvö ný dekk undir bílinn
að aftan. Segi ég honum þá að
ég skuli kaupa dekkin og þeir
peningar komi sem greiðsla upp
í túrinn.
Fyrsfa gjald
Ekið er nú inn af benzínstöð-
ínni við Hlemmtorg, og þar af-
hendi ég honum kr. 2.000,00, og
fer hann þar inn og kaupir tvö
Er það satt, að uppi sé
fótur og fit varðandi
rannsókn á starfsháttum
Skattstofunnar — og að
ýmsir háttsettir menn þar
muni innan skamms snúa
bakinu við yfirboðurum
sínum og leysa frá skjóð-
linni.
ný dekk. Ekur nú Ólafur upp á
hjólbarðaverkstæði á Grettis-
götu og er skipt þar um dekk.
Er því er lokið semjum við Ól-
afur um túrinn, og býðst hann
til að fara hann fyrir kr. 4.000,00,
en setur sem skilyrði að hann
verði minnst 4 daga, og geng ég
að því.
Annað gjald - hefj-
asf deilur og suð
Greiði ég honum þarna á
staðnum kr. 2.000,00 í viðbót, og
er ég þá búinn að greiða honum
að fullu. Ökum við nú í Austur-
ríki, þar afhendi ég Ólafi kr.
500, og bið hann að kaupa fyrir
mig 2 flöskur af brennivíni og
gerir hann það, og afhendir mér
vínið, en neitar að borga mér til
baka kr. 220,00. Læt ég það kyrrt
liggja. Er nú ekið heim til Ólafs
inn á Langholtsveg, en á leiðinni
er hann alltaf að suða í mér að
geyma fyrir mig peninga þá er
ég hafði á mér. Meðan Ólafur
fer inn til sín legg ég kr. 5000,00
í sætið hans til þess að losna við
suðið í honum. Er Ólafur kemur
út, tekur hann upphæðina og
tekur til geymslu og reynist hún
rétt. Er nú ekið til Eyrarbakka,
og greiðir Ólafur þar fyrir mig
kr. 100,00 er ég skuldaði. Ökum
við nú á Selfoss og borðum við
Árni í Tryggvaskála, en Ólafur
annarsstaðar. Er hann kemur
aftur, byrjar hann með sama suð-
ið að geyma fyrir mig peninga,
leiðist mér þetta suð í honum en
afhendi honum samt kr. 1000,00
í viðbót. Ökum við svo af stað
norður en stönzum aðeins við
Efra-Sog, en höldum svo áfram
og erum komnir að Hreðavatni
rétt eftir miðnætti og gistum
við þar. Um kl. 8 á föstudags-
morgun leggjum við af stað og
stönzum við næst við verzlun
við Hrútafjarðará, borgar Ólafur
þar kr. 200,00 fyrir vörur er ég
keypti þar.
Bílstjórinn týnist -
íer i heimsókn
Áfram er svo haldið og kom-
um við til Akureyrar um kl. 1,
lætur Ólafur smyrja bílkin, en á
meðan bíðum við inni á Hress-
ingarskálanum. Er við höfðum
beðið góða stund leiðist okkur
biðin og tek ég þá leigubíl og
keyri fyrir kr. 60,00 til að leita
að Ólafi en finn hann hvergi. Er
ég hafði leitað fram til kl. 5 sé
ég bílinn fyrir utan Hótel KEA,
og finn ég hann þar inni. Er ég
mjög argur þar sem við ætluðum
»löngu að vera komnir af stað en
við ökum í áfengisverzlun og
réttir Ólafur mér þá kr. 2000,00
en ég fer inn og kaupi 1 kassa
af áfengi. Eftir það fáum við
okkur að borða og ökum svo
af stað til Húsavíkur. Spurðum
við okkur þar til vegar áleiðis
til Raufarhafnar og höldum svo
áfram, en vill Ólafur þá hitta
vinkonu sína og barn er hann
átti þar. Þessi bær er í nágrenni
Kópaskers og nefnist Ærlækur.
Vorumi við því mótfallnir að
Framhald á 2. síðui
Vinstri-Hægri
Vonin er til hægri — hrunið ti! vinstri
Sunnudagur 25. október 1959, alvarlegur dagur, bræð-
ur, háalvarleg stund systur. í dag gerir þjóðin upp við
flokkana, sýnir að hún er þreytt á svikum sumra, en
bindur von sína við orðheldni annarra. Það er margfc
um að kjósa til hægri og vinstri.
Til dæmis má nefna hvort þér sé í huga, kjósandí
góður, að veita vinstri mönnum atkvæði þitt, annaðhvort
Alþýðubandalaginu eða Framsókn. Þetta er reynandi ef
þú vilt áframhaldandi sukk og lækkun krónunnar, þverr-
andi kaupmátt og endanlegt hrun. Það er nefnilega svo
komið að nær ómögulegt er að bjarga þessari þjóð nema
staöið sé við þær efnahagslegu aðgerðir sem kratar hafa
byrjað en Sjálfstæðismenn stutt. Alþýðubanddlagið mið-
ar allt við það, að hér skapist vanhöld, efnahagsleg,
því aðeins undir slíkum kringumstæðum hefur það von
til að ná endanlegum völdum. Um Framsókn gegnir líku
máli. Ef Framsókn missir þau litlu áhrif, sem hún enn
hefur verður versti óvinur Reykjavíkur SÍS, endanlega
gert upp og verzlunarfrelsi heldur aftur innreið á ís~
landi. Þetta yrði heillavænlegasta skrefið, sem í langan
tíma hefur verið stigið í íslenzkum stjórnmálum. Fram-
sókn (SÍS) er mesti einstaki bölvaldurinn, sem ríkir J
landinu og þangað má rekja nær allan krankleika ís-
lenzks viðskiptalífs. Þennan flokk kýs enginn Reykvík*
ingur, nema þeir, sem hatast við höfuðstaðinn.
Því var að vísu aldrei spáð, að Alþýðuflokkurinn yrðí
til að bjarga fósturjörðinni, en því verður ekki neitað, ai2F
undir stjórn hans og með stuðningi Sj álfstæðismannat
hefur lekizt að litlu leyti að stöðva þá óheillaskriðu í
fjármálum, sem komst af stað fyrir áratug en á hástig í
Framhald á 8. síðu.
AJax skrifar 11111
smn
Ausfurlandskjördæmi
Þar eru úrslitin nokkurn-
veginn augljós. Framsókn
fær þrjá menn kjörna, Sjálf
stæðisflokkurinn einn og Al-
þýðubandalagið einn.
Áður hafði Framsókn sex
menn af þessu svæði. Nú
verða kjörnir þar Eysteinn
Jónsson, Halldór Ásgrímsson
og Páll Þorsteinsson, en þeir
Björgvin Jónsson og Vil-
hjálmur Hjálmarsson eru í
fjórða og fimmta sæti. Páll
Zóphóníasson hverfur nú af
þingi, hann lauk þing-
mennskuferli sínum með því
að slá fullan boxara niður,
og var það vel af sér vikið
af manni á áttræðisaldri.
Flestir hinir gömlu, sérkenni
legu þingmenn eru nú sem
óðast að hverfa úr þingsöl-
unum, en litlaus vélmenni og
já-menn að koma í þeirra
stað.
Svona er þróunin, hvort
sem manni líkar betur eða
verr. Typa eins og Páll Zóp-
hóníasson kemui’ sennilega
ekki aftur á þing í bráðina,
og það er hætt við, að hús-
mæðrunum í Norður-Múla-
sýslu bregði við, ef þær
þurfa að kaupa saumavélar
eða önnur búsáhöld.
Mikill styrr kvað hafa
staðið um það, hver ætti að
hreppa þingsæti Sjálfstæðis-
clokksins á Austurlandi,
Sveinn á Egilsstöðum vildi
vera efstur og Einar Sigurðs
son einnig. En mótspyrna
var í héraðinu gegn þessum
mönnum. Sveinn á Egils-
stöðum hefur aldrei verið
ýkja vinsæll í sínum heima-
högum, þó að þetta sé
bezti karl, og margir
Sjálfstæðismenn á Austur-
landi voru heldur ekkert
hrifnir af því að fá útgerð-
armann að sunnan fyrir full-
trúa sinn. Útkoman varð sú,
að Jónas Pétursson tilrauna-
stjóri hreppti hnossið, og hef :
ur það líklega verið skynsam
lega ráðið, eins og spilin
lágu. Hann á áreiðanlega
meira fylgi á Austurlandi en
þeir Sveinn og Einar. Þetta.
er farsæll maður og æsinga-
laus og þaulkunnugur land-
búnaðarmálum. Sumir eru að
segja, að fylgismenn Einars
niðri á f jörðum séu að skipu
leggja útst.rikanir á Jónasi,
en kannske er þetta ekki
rétt hermt. Það virðist vera
alveg nóg að hafa aðvífandi
stórútgerðarmenn í öðru og
þriðja sæti. Góður maður er
Theódór Blöndal bankastjóri
á Seyðisfirði, sem er í fjórða
sætinu. Hann er ljúfmenni,
en þó aristokrat, að hinum
stendur blátt blóð á marga
Framhald á 8. síðu