Mánudagsblaðið - 26.10.1959, Side 5
Mánudagur 26. október 1959
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
'5
i------■-------—--------------------------------------------— ........— *"**
Rád við svefnleysi
1. Borðaðu ekki þungmelt-
an mat, áður en þú ferð að
sofa. Reyndu bolla af heitri
mjólk.
2. Stattu við opinn glugga
í nokkrar mínútur og dragðu
andann djúpt. Þegar þér
finnst þér verða kalt, þá
farðu í rúmið. Hlýjan frá
sængurfötunum gerir þig
syfjaðan.
3. Horfðu á eitthvað bjart,
stjörnu eða götuljós, eða
mynd þeirra í spegli. Starðu
á það um stund.
4. Reyndu að slaka á öll-
um vöðvum. Teygðu þægi-
lega úr þér og geispaðu. Jú,
þú getur látizt geispa, og áð-
ur en þú veizt af, ertu farinn
að geispa á eðlilegan hátt.
5. Hugsaðu þér, að þú sért
éinhversstaðar úti í náttúr-
unni, þar sem friður og ró
er. Þú liggur á mjúkum
mosa og.......
6. Teldu sjálfum þér trú
um, að fyrst þú getur ekki
sofið, sé eins gott fyrir þig
að fara á fætur. Þú hugsar
þér að þú lokir glugganum,
kveikir og farir í slopp. Að-
eins hugsunin um þetta kem-
Ur þér til að ákveða, að það
sé betra að vera í rúminu og
reyna að sofna.
7. Minnztu þess, að þó þú
getir ekki sofnað, þá get-
urðu hvílt fæturna og hvílt
augun og að fötin þvinga þig
ekkí. Þú hefur átta klukku-
tíma framundan til þess að
hvíla þig og að rifja upp
fyrir þér skemmtilegar
minningar — sem þú hefur
ekki tíma til að hugsa um á
daginn, og brátt munu þær
renna saman við drauma
þína.
8. Það er tilgangslaust að
telja kindur, en þú getur far-
ið yfir skáldskap í huganum
eða hugsað um uppáhalds-
lagið þitt.
9. En ef þú vilt sofa vært
og örugglega, farðu að sofa
reykjandi sígarettu. Þetta er
öruggasta svefnmeðalið, sem
ég þekki. Líklega sofnarðu
fyrir fullt og allt, og kannski
þarf ekki að hafa fyrir að
jarða þig.
I
Samlíningur
I Bandaríkjunum er gulur
máni á fingurnögl álitinn ör-
uggt merki um negrablóð í
æðum ------ Caesar var við-
riðinn tuttugu skilnaðarmál.
.... San Mariona, minnsta
land í heimi, flytur út frí-
Hitt
og
merki í stórum st.il. Aðrar
útflutningsvörur eru dýrir
steinar og vín ----- Mústafa
Kemal, fyrrverandi Tyrk-
landsforseti, átti 11.000
manséttuhnappa .... Þegar
franski þjóðsöngurinn var
skrifaður, var hann tileink-
aður Þjóðverja .... Margir
hinna miklu rithöfunda, eins
og Dante og Milton, þóttu
með afbrigðum leiðilegir í
samræðum .... Napoleon
Bonaporte var höfundur
eins aðalrits heimsbókmennt
anna um kurteisisreglur....
Spörfuglar blaka vængjun-
um þrettán sinnum á sek-
úndu, þegar þeir fljúga ....
Indíánar verða aldrei sköll-
óttir .... Konur með blá,
græn eða grá augu eru sagð-
ar skipta oftar skapi en
dökkeygðar .... Shake-
speare myndaði fleiri nýyrði
en öll ensk skáld önnur sam-
anlögð .... Kanadamenn
eru sagðir nota símann
meira en allar þjóðir aðrar
.... Það er hættulegt að
taka ljósmyndir af ljónynj-
um, meðan þau eru að éta.
SKRÝTLUR
Konu, sem varð fyrir
taugaáfalli, var ráðlegt að
fara til sálfræðings. Hann
lét hana fá langan lista yfir
það, hvað hún ætti að gera
og sagði henni að koma til
sín einu sinni í viku. En þeg-
ar tvær viður liðu og hún
kom ekki, hringdi hann til
að vita hvers vegna hún
hefði ekki komið.
En hún svaraði: „Þér
sögðuð mér, að ég ætti ekki
að umgangast fólk, sem færi
í taugarnar á mér, en ég
þekki engan, sem fer eins
illa í taugarnar á mér eins
og þér gerið.“
—★—
Vinir manns nokkurs ráð-
lögðu honum að fara til sál-
fræðings, vegna þess að
ihann fékk þá flugu í höfuð-
ið, að hann ætti von á að
verða ríkur. Hann hélt því
fram, að hann fengi tvö
bréf, þar sem honum yrði
skýrt fi’á því, að hann hefði
erft olíulindir í Texas og
nokkrar námur í Suður-
Ameríku.
„Þetta var erfiður sjúkl-
ingur“, sagði sálfræðingur-
inn, ,,og ég hafði mikið fyrir
að lækna hann. Og einmitt
þegar ég var búinn að lækna
hann — komu bæði bréfin.“
Pólsk viðskipti
Plasfvörur frá Prodimex
Vefnaðarvörur frá Cefebe
Papp írsvörur frá Paged
Sfriga- og gúmmískófafnaður frá Skórimpex
Leðurvörur frá Skórimpex
Oólffeppi frá Cefebe
íþróffavörur frá Yarimex
Leikföng frá Coopexim
íslenzk-erlenda verzlunarfélagið hi.
Garðasfræti 2. Símar 15S33 og 19698
I *
verður haldinn í Reykjavík sunnudaginn
25. október 1959, og hefst hann kl. 9 ár-
degis.
Kosnir verða alþingismenn fyrrir Reykja-
vík, 12 aðalmenn svo og varamenn, fyrir
næsta kjörtímabih
Kosið verður i ’AusturHæJarskóla, Breiða-
gerðisskóla, Langholtsskóla, Laugarnes-
skóla, Melaskóla, Miðbæjarskóla, Sjó-
mannaskóla og Elliheimilinu Grund, og
mun borgarstjórinn í Reykjavík auglýsa
skiptingu milli kjörstaða og kjördeilda.
Kjörstöðum verður lokað kl. 11 síðdegis
á kosningadaginn* /
Aðsetur yfirkjörstjórnar verður í Miðbæj-
arskólanum meðan kosning fer fram.
Talning atkvæða hefst mánudaginn 26.
-JT ÐktóKef [1959, kl. 6 síðdegis 1 Miðbæjar-
skólanum.
.Yfirkjörstjórnin í Reykjavík, 19. okt. 1959.
Kr. Kristjánsson, W
Sveinbjörn Dagfinnsson,
Einar Arnalds. '•?
Jónas Jósteinsson, 'W
Þorvaldur Þóraxinsson.
Krossgóta )
Mónudagsblaðsinsj
Lárétt: 1 Land, 5 Ósoðin 8 Drukkin, 9 Dónalegur, 10
Gola, 11 Rösk, 12 Fjallgarður í Sovétríkjunum, 14 Sund-
fugl, 15 Nagdýrl8 Upphafsstafir, 20 Glöð, 21 Upphafsstaf-
ir, 22 Vond 24 Leynimakk, 26 Askar, 28 Fjárgirðing, 20
Tindurinn, 30 Spil. j
Lóðrétt: 1 íshettan, 2 Verkfæri, 3 Skaut, 4 Samtenging,
5 Bráðna, 6 Ósamstæðir, 7 Geislabaugur, 9 Bolti, 13
Hlemmur, 16 Dugnaður, 17 Kaka, 19 Votlendi, 21 Hnífur,
.23 Þuhnt, 25 Matur, 27 Guð.