Mánudagsblaðið - 26.10.1959, Page 8
OR EINU I ANNAD
Spánskur Skugga-Sveinn — Máíurinn og lögregl-
an — Lögmenn deila — Leikhúshornið — Bar-
þjónar — Bezla kosningahandbókin — Sorp-
eyðing og sýklar —
,Blóðbrullaup‘ Lorcas, sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu
þykir yfirleitt mjög léleg sýning, enda hefur aðsókn
verið dræm þær fáu sýningar sem af eru. Eftir frum-
sýningu var rætt mikið um ástæðuna fyrir því að
sýningin hefði misheppnast og frumsýningargestir í
Leikhúskjallaranum voru á ýmsu máli um ástæðuna.
Þórður Albertsson, gem manna bezt þekkir til þess
sem spænskt er, lagði fátt til málanna, unz hann
mælti:
„Þetta er líkast því, að Spánverjar færu að setja
upp Skugga-Svein.“ ■—
r
k
i
I
i
*
I
I
I
I
w
I
*
l
f
w
w
I
k
u
§
Lögreglan hóf ,í s.l. viku, herferð á hendur máfum
á Reykjavíkurtjörn. Voru nokkrir máfar drepnir
og hurfu alveg af Tjörninni þann dag, en komu strax
aftur næsta dag. Það er þýðingarlaust annað en halda
uppi látlausri skothríð á óvininn, því smááhlaup eru
gagnslaus. Jafnframt þessu væri ekki úr vegi að
herja á óvættinn í höfninni, því ef á hann er líka
skotið þar, þorir hann síður yfir bæinn og á Tjörnina.
•-----------------------------
Magnús Thorlacius og Gunnar Þorsteinsson, hinir
kunnu og harðskeyttu lögmenn er börðust um sölu-
réttindi Jóhannesar Borgarbónda á hóteli sínu, eru
nú komnir í hár saman persónulega. Gunnar gjör-
sigraði Magnús í Borgardeilunni, en reit síðan smá-
athugasemd í Mbl. um málfærslu og túlkun Magnús-
ar á lögum. Nú hefur Magnús stefnt Gunnari fyrir
meiðyrði og verður gaman að sjá þá kappana eig-
ast við, þó enn meira gaman væri að sjá hve vel
þeir fengu greitt fyrir flutning Borgarmálsins.
f' Það er undarlegt, að jafn vel gefinn leikari og Har-
ldur Björnsson, skuli heimta að leika hlutverk Júlíus-
ar Caesars í samnefndu leikriti. Þessi ákvörðun er
}l næsta óheppileg ............ Enn hefur utanhæjarleik-
; félag ráðist í að sýna listir sínar hér í Iðnó. Þetta er
} vel meint en heldur kjánalegt. Það er alveg ágætt að
þessi félög sýni í sveit og þorpi en vart heppilegt áð
koma til höfuðstaðarins.
n.
Barþjónar í Reykjavík eru nú að skreppa á vikufund
sem álþjóðafélag barþjóna heldur í Kaupmannahöfn.
Það er sannarlega gott, að þessi þarfastétt sæki nám
og þekkingu til starfsbræðra sinna ytra, því það er
sannarlega ekki hvers manns geta að þjóna við bar.
Og víst er mikill munur að venjulegri veitingaþjón-
ustu og vinnu á bar, þótt ýmsir menn í veitingastétt
skilji þetta ekki alveg, og mun þar nokkru um ráða
ágirnd fremur en réttsýni.
/ •--------------------------------
Þótt hart sé undir að búa, er það þó mála sannast,
f að kosningahandbók Fjölvíss, sem kommar gefa út,
er enn bezta handbókin, sem út kemur um þessar
kosningar. Sjálfstæðismenn gefa út rétt þokkalega
| bók, Framsókn hlutdræga bók, en kommar, af öllum
aðilum, hlutlausa og skilgóða kosningahandbók, sem
) óhætt er að mæla með.
Sagt er, að svo sé komið að rannsaka verði alla starf-
p;- semi Sorpeyðingarstöðvarinnar. Upp er komið að ofn-
)$* ar hennar ráða ekki við að hreinsa fullnægjandi vel
Jj* þann úrgang, sem í þá er látinn, og skapar þetta geig-
þ vænlegt ástand. Sýklar ýmiskonar þróast í stöðinni,
|/ og síðan er þeim dreift um bæinn. Nánar verður
F skrifað m* þetta *æst
Ajax skrik'ar
Framhald af 1. síðu.
vegu.
Nú er Lúðvík Jósepsson
öruggur um kosningu, allur
spennirtgur um það mun vera
úr sögunni. I öðru sæti er
svo Ásmundur Sigurðsson,
en í þriðja sæti er Helgi
Seljan kennari. Það er alveg
furðulegt, hvílíkthaturÞjóð-
varnarmenn hafa lagt á
Helga þennan, sem einu sinni
var flokksmaður þeirra, en
yfirgaf þá svo. Þeir gnísta
bókstaflega tönnum af
heift, ef á hann er minnzt.
Hann er í þeirra augum í-
mynd - erkisvikarans, og
margt ófagurt segja þeir um
hann. Hlutlaust fólk segir,
að þetta sé meinleysismað-
ur, svolítið spjátrungslegur,
en bezta skinn.
Góður maður á þessum
lista er Sigurður Blöndal
skógræktarmaður á Hall-
ormsstað, greindur maður og
gegn, eins og hann á kyn til.
Alþýðuflokkurinn fékk tvö
hundruð atkvæði á Austur-
landi í síðustu kosningum,
svo að hann kemur auðvitað
ekki neinum manni að. Efst-
ur á listanum er Bjarni Vil-
hjálmsson cand mag. og
skjalavörður. Bjarni er ætt-
aður úr Neskaupstað og er
frændsterkur á þeim slóðum.
Hann mun vera gamall skóla
bróðir Lúðvíks Jósepssonar.
Bjarni er mun vænlegri til
fylgis en Oddur Sigurjóns-
son, sem bæði er aðkomumað
ur og á erfitt með að sam-
lagast fólki. Annar maður á
þessum lista er Arnþór Jens-
sen útgerðarmaður á Eski-
firði, og neðar á listanum er
sonur Arnþórs, Gauti lækn-
ir í Neskaupstað.
Ajax.
Mánudagur 26. október 1959
Vonin er til hægri — hrunið til vinstri
Framhald af 1. síðu.
tíð vinstri stjórnarinnar undir forustu Hermanns. Al-
þýðuflokkurinn hefur hvort sem það er af einlægni eða
örvæntingu um hnignandi fylgi haft kjark til að spyrna
fótum við ósómanum, enda eruí margir þeirrar skoðunar
að skapazt hafi dálítill vísir að jafnvægi í fjár- og lands-
málum þannig, að hinn stöðugi ótti og óvissa í atvinnu-
vegum og viðskiptum hefur rénað og vonir skapazt um
að þetta jafnvægisástand kunni að ríkja enn um stund.
Veröi það svo, má gera ráð fyrir að einstaklingar og
þjóðin öll fari smátt og smátt að sefast og hyggja af
þessu brjálæðislega „styrjaldaræði“ sem enn þá ríkir og
stefnir öllu í voða.
Sjálfstæðisflokkurinn berst um af kappi fyrir frjálsri
verzlun, viðskiptum og öllu því frjálsræði, sem um getur
í veröldinni. Þó er sá hængur á, að loforðin eru í öfugu
hlutfalli við þær efndir, sem þjóðin hefur kynnzt. Enn
sem komið er hafa Sjálfstæðismenn alltaf byggt á þolin-
mæði kjósenda, blaðastyrk ok gleymsku manna frá ári
til árs, ásamt þeirri gullvægu hótun, að „margir kokkar
spilla matnum“. Farsæld flokksins liggur aðailega I því,
að það er lund þjóðarinnar að kenna sig við frelsi og
sjálfstæði miklu fremur en að fyrrverandi gjörðir flokks-
ins séu að verulegu leyti í samræmi við frelsi og athafna-
útrás einstaklinga. Það er kannski nú, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er farinn að sjá, að stór hluti flokksmanna
er í hæsta máta óánægður með stefnuna undanfarin ár
og krefst þess að tekin sé upp heilbrigð og ákveðin
stefniV í samræmi við upprunalega ætlun stofnenda
hans. Auövitað verður flokknum enn gefið tækifæri, en
það verða svo mörg mál, sem lofað hefur veriö að fram-
fylgja og almenningur reiðir sig á aö framfylgt verði, að
nú duga lengur engar undanfærslur né undansláttur.
í dag getur þú kjósandi góður gert upp við þig hvað
þú vilt — óvinina, vinstristefnuna, Framsókn og Al-
þýðubandalagið — eða vonina, Sjálfstæðisflokkinn móð-
urskipið, sem ennþá hefir möguleika til að snúa þjóð-
inni á heillavænlega, braut.
Austur-
bæjarbíó
sýnir nú
amerísku
söngva-
myndina
Serenade,
en aðal-
hlutverkið
syngur
Mario
Lanza, sem
nýlega er
látinn. Efn-
ið er um
ástir og af-
brýði, vel
unnið, en
auk Lanzas
leika Joan
Fontaine,
Vincent
Price og
hin undur-
fagra Santa
Montiel.
Mynd þessi
er hugð-
næm og
fögur og
ber öllum
saman um
að Mario
Lanza hafi
sjaldan
sungð eins
vel og nú.