Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 14.03.1960, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 14.03.1960, Blaðsíða 6
MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudag'ur 14. marz 1960 BEKTA BUCK; 14. JOA — ásiarsaga ungrar sfúiku FRAMHALDSSAGA 1 því sá ég að ritarinn hoppaði af hjólinu sínu og kom hlaupandi til okkar og hrópaði: „Frú Price, gét ég líka hjálpað ?“ „Jú, hjálpaðu mér að smyrja,“ sagði frú Price. „Það er te-tími, og við eig- um ærlega skilið að fá eitt- hvað til að hressa okkur á. Komdu með mér. Eg ætla að ná í hvitan dúk, brauð og smér og teketil og te.“ Tuttugu mínútum síðar var síðasta heyhlassinu ekið inn í hlöðu. Fólkið settist í grasið til að hvíla sig eftir erfiðið. Price settist sigri hrósandi á sláttuvélina, rétti höndina með tebollanum móti hinum ógnandi skýjum. ,Við vorum á undan ykk- ur,“ hrópaði hann. Eg hafði varpað mér nið- ur á nálægasta forsælublett- inn. Lífið var yndislegt á 'þessu augnabliki. Eg fann það streyma um allar mínar æðar. Mér var heitt, og ég var þreytt, en ég var mjög hamingjusöm. Því vinnan hafði fengið mig til að gleyma öllu öðru. Eg stakk vasaklútnum upp í ermina og sá í sama augnabliki, að þrír aðrir fyrir utan höfðu leitað sér skjóls í þessum svala krók. Elísabet hafði fleygt sér niður við hliðina á mér. Á eftir henni kom ofurstinn, og beint fyrir framan mig sat kapteininn og rétti okkur smurt brauð á stóru, grænu blaði. Við fjórmenningarnir átum með svo mikillí græðgi, að kaptein Holliday varð að orði um leið og hann stakk upp í sig brauðsneið, að það væri næstum því óviðeigandi. „Hvers vegna það?“ spurði Rielding ofursti. „Hvers vegna skyldum við ekki :njóta þess. Eg skal segja þér,- að þetta hérna“ — nú íékk hann sér meira te og krækti sér í meira brauð um leið og hann leit til Elísabet- ar — „þetta hérna er sú al- bezta máltíð, sem ég hef nokkurn tíma fengið.“ „Það er kannske af því, að þár hafið orðið að vinna svo rnikið fyrir henni.“ „Ónei, aldeilis ekki. Eg kæri mig ekkert um hluti, i;em ég hef unnið til. Hafi xnaður unnið til einhvers, rnissir það um leið aðdráttar- afl sitt — að minnsta kosti fyrir mig.“ „Þú hefur ekki oft haft á- stæðu til að prófa það, vin- xir minn,“ sagði kaptein Holliday. Mér hefur alltaf þótt gam- &n af að heyra góða vini stríða hvor öðrum. Við höfðum alveg gleymt óveðrinu, en nú skall það á. Kaptein Holliday stóð upp. „Nú er þrumuveðrið komið,“ hrópaði hann. Eg leit upp í loftið. Stórir regndropar féllu í andlit mér. „Hlaupið þið! Hlaupið heim að bænum,“ hrópuðu þeir báð ir. Eg sá Fielding taka í hönd ina á Elísabetu, bg þau hlupu á eftir hinu fólkinu. Við fór um á eftir. Þegar við komum inn í stóra eídhúsið, minnti það helzt á biðherbergi á járn- brautarstöð. Á bekknum fyrir framan eldstóna sat stúlka og þurrk- aði sér. Það var Muriel, sem hafði orðið holdvot í rigning- unni. Hún sneri sér við, þegar við komum inn. „Ert það þú, Joan? Þegar maður talar um sólina —“ sagði hún. Talar um sólina! Já, það var ekki að furða! Már varð litið frá henni til mannsins, sem stóð við hliðina á henni. Eg vissi reyndar, að hann var kominn aftur frá Saloniki, og ég vissi, að hann vann á skrif stofu herforingjaráðsins í London. Það var aðeins eins dags ferð frá London til Wales, og ég vissi líka, að Kaptein Harry Markham hafði orð á sér fyrir að vera alltaf að biðja um orlof. Það var þess vegna ástæðu laust að undrast yfir því, að hann hefði fengið viku frí hjá sínum gamla yfirmanni. Um leið og hann þrýsti hönd mína sagði hann þetta venjulega: „Nei, að hugsa sér, að ég skyldi hitta yður hérna,“ og „þér lítið ljómandi vel út.“ Eg sá strax, að mitt gamla ,,skot“ var ennþá unglegri en hann hafði verið, grennri og ekki eins hrokafullur. Þetta var eins og draumur fyrir mig, að ég skyldi standa hér fyrir framan þann mann, sem ég hafði verið hrifin af, og manninum, sem ég elskaði nú, og stúlkunni, sem hafði tekið þá báða frá mér! Tilfinningar mínar voru mjög á reiki, þegar ég settist á eldhússtólinn við hliðina á stóru klukkunni. Muriel Elvey kynnti kap- tein Holliday fyrir Harry. Kaptein Holliday leit ein- kennilega spyrjandi augum á Harry, en ég hafði líka tekið eftir, að hann hafði horft á okkur, þegar við heilsuðumst. Svo var Harry kynntur fyrir Fielding ofursta, sem hafði farið frá Elísabetu og sat nú á istólbríkinni hjá Muriel í stellingum, sem gáfu til kynna, að Muriel væri f yr- ’ ir hann eina stúlkan í heimin um. Þvílík skepna! Nú var öll lífsgleði aftur horfin úr andliti vinkonu minnar. Svo var aftur boðið te og sígarettur. Eg sat og hlustaði eins og áhorfandi í leikhúsi — samtalið var um uppsker- una, óveðrið og útlitið fyrir að veðrið batnaði á morgun. Price stóð og horfði út um gluggann og sagðist ekki bú- ast við, að veðrið mundi batna. „Ó, passið upp á fínu skóna hennar ungfrú Elvey, að þeir brenni ekki,“ hrópaði frú Price, „ég vona að þeir hafi ekki skemmzt —“. „Þér verðið líklega að fara í stígvél og legghlífar, ungfrú Elvey,1 sagði ofurstinn. „Ó, guð, ofursti Fielding. Getið þér virkilega hugsað yður mig brúka svo hræðileg- an fótabúnað," sagði hún og leit niður á silkisokkana sína. „Það er náttúrlega óskaplega gott, að það skuli vera til fólk, sem getur gengið í slíku.“ og nú leit hún á Elísa- betu og mig. „Eg hefi sjálf sagt átt að bjóða mig fram í landherinn — nú, af hverju eruð þér að hlæja mr. Price?“ sagði hún þykkjulega við bú- stjórann. „Haldið þér ekki, að ég hefði átt erindi þang- að ?“ „Nei, eiginlega ekki,“ sagði hinn góðlátlegi risi og brosti, „nema þá upp á punt.“ „Þetta er ekki fallega sagt, og mig langar mest til að sanna yður, að þetta er ekki rétt. Eina ástæðan fyrir því, að ég gekk ekki í herinn, var sú, að ég gat ekki skilið við mömmu. Eg elska sveita- lífið, er það ekki satt, Dick? Og ég bókstaflega þrái að fá að raka hey. Og það var þess vegna, sem ég lcom hingað með kaptein Markham, en svo kom rigningin, og við urðum að leita skjóls hér. Þið hafið ekki !hugmynd um, hvað ég dáist að þessum duglegu stúlkum hérna, sem eru svo hugaðar og vinnu- samar, og kæra sig kollótta, þótt þær skemmi svo á sér húðina, hálsinn og armana, að þær geta aldrei aftur sýnt sig i samkvæmiskjól," hélt Muriel áfram og horfði á mig, sem sat þögul. „Þegar maður á dýrindis perlur, þá er það bara ekki hægt, ég mundi líta út eins og fugla- hræða. Það er ég alveg viss um,“ sagði Muriel og flissaði og skotraði augunum til Harrys. Eg sá hann brosa til henn- ar, sama brosinu, sem hann áður hafði svo oft brosað til mín. Það umlaði í honum, að sól bruni væri í sumum tilfellum helgispjöll! Muriel hló og sagði: „Það er allt annað mál með karl- menn, þó að þeir verði dökkir eins og negrar. Þér eruð til dæmis, orðinn svo brúnn, að ég ætlaði ekki að þekkja yður aftur á járnbrautarstöðinni. Jóan,“ sagði hún við mig, „finnst þér ekki Harry hafa horazt mikið og vera orðinn sólbrunninn við að fara til Saloniki?“ Eg sá, að kaptein Holliday horfði hvasst á mig. Nú vissi hann það! Hann vissi, að þarna var maðurinn, sem ég hafði ympr að á við hann. Nú vissi Dick Holliday, sem sjálfur var hrif inn af Muriel alla mína heimskulegu og auðmýkj- andi sorgarsögu. Eg sneri mér við og óskaði, að eldhúsgólfið opnaði sig og gleypti mig. Á sama augnabliki kom Elísabet til mín. „Við skulum koma heim,“ hvíslaði hún raunalega. Við fórum án þess kveðja nokkurn. Þögular gengum við heim í braggann, og ég er viss um, að ef nokkur hefði séð okkur seinna um kvöldið hlæjandi með ungfrú East- on og Vick eða séð okkur dansa foxtrot saman eftir gargandi grammófónmúsikk, hefði hann ekki grunað, að við Elísabet værum óham- ingjusömustu stúlkurnar í öllum landhernum þetta kvöld, 14. KAPÍTULI Morguninn eftir höfðum við aftur jafnað okkur. Elísa- bet minntist ekki á það einu orði við mig, að’ við höfðum hitt Harry stjanandi við Muriel eins og ástfanginn unglingur. Eg minntist ekki heldur með einu orði á Fielding of- ursta, og kaptein Holliday var ekki nefndur á nafn. Elísabet hlakkaði til að hjálpa frú Price við að baka, og ég átti að hjálpa smalan- um við að rýja. Meðan ég var önnum kafin við þetta verk, kom Price til okkar með gest, og það var enginn annar en Fielding ofursti, sem spurði feimnislega, hvort hann mætti ekki hjálpa okkur við klippinguna, annað hvort Ivar, smalanum, eða urígfrú Matthews. Ivar var rólegur maður í dökkbláum léreftsjakka. Hann leit upp og brosti til offisérans. „Ivar kann ekki ensku,“ sagði hr. Price, ,,en allt ann- að kann hann vel, sérstak- lega hefur hann vel vit á kind um.“ „Þá er það heppni, að lækn irinn skyldi senda yður hann, svo hann geti hjálpað yður hérna á búgarðinum.“ „Ó, já, en þið hafið ekki misst neins við, því hann væri lélegur hermaður,“ sagði bústjórinn. „Hann er mjög óframfærinn maður.“ Ivar brosti aftur. Lambið, sern hann hafði verið að enda við að klippa, hristi sig, og hann fór með það og kom með annað í staðinn. „Nú byrjum við aftur,“ sagði hann á welsku, og ég byrjaði að snúa hjólinu. Eg hélt áfram að vinna og velti því fyrir mér, hvort hann hefði búizt við að hitta Elísabetu hérna. „Má ég ekki hjálpa yður svolítið, svo að þé getið hvílt yður á meðan,“ sagði hann. „Takk, ég er ekki þreytt“, sagði ég kuldalega. Eg þoldi ekki þennan mann, sem lék sér með tilfinningar Elísabet- ar. Hún var alltof góð til þess að vera stundargaman þessa unga manns, sem daðraði við aðrar á mjög ósmekklegan hátt. Elísabet hafði sagt margt ljótt um Harry, meðan ég var skotin í honum, en hún hafði aldrei sagt eða hugsað eins ljótt og ég hugs- aði um þennan unga mann núna. í sínum blíðasta tón sagði hann: „Þér eruð kannske ekki þreyttar, en hvers vegna eruð þér svo — hm — svo full af galli í minn garð?“ Og áður en ég gæti svarað, sagði hann jafn blíðlega: „Þér hatið mig, af því að yður finnst .ég daðra samvizkulaust við vin- konu yðar.“ Eg rak upp stór augu! Hann leit á kindasmalann. „Svo hann kann ekki ensku? Það vildi ég óska, að þjón- ustufólk kynni ekki yfirleitt. Það mundi gera mörgum lífið léttbærara. —“ BLÓM Daglega ný afskorin blóm. BLÓMABÚÐIN, HRÍSATEIGI 1. §ÍMI 34174. (Gegnt Laugarneskirkju).

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.