Morgunblaðið - 22.06.2005, Síða 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞÓRDÍS GEIRSDÓTTIR VALIN Í LANDSLIÐIÐ Í GOLFI Á NÝ / C3
STUÐNINGSMENN enska úrvalsdeildarliðsins Man-
chester United þreytast ekki á að mótmæla yfirtöku
bandaríska auðkýfingsins Malcolm Glazer á félaginu
og hefur hópur stuðningsmanna sett á laggirnar nýtt
knattspyrnulið – FC United. Mun liðið leika í utan
deildarkeppninni á Englandi á næsta tímabili. Heima-
leikir félagsins fara fram á Droylsdens Butchers
Arms Park-vellinum sem tekur um 3.000 áhorfendur
en liðið keppir fyrst um sinn í NV-héraðsdeild þar
sem leikið verður gegn liðum á borð við Ashton
Town, Chadderton, Cheadle Town, Flixton og Old-
ham Town.
Sögur ganga af því í borginni að tveir fyrrverandi
leikmenn Manchester United hafi hug á því að leika
með FC United og staðarblaðið Manchester Evening
News telur að uppselt verði á alla heimaleiki liðsins á
næstu leiktíð. Ekki er búið að ráða framkvæmda-
stjóra fyrir liðið sem hefur aðeins fengið nafn en er
að leita að leikmönnum þessa stundina.
FC United orðið
að veruleika
Fjölmörg lið hafa verið á höttunumeftir landsliðsmiðherjanum og
Watford hefur meðal annars hafnað
tilboðum frá Sunderland og Sheffield
United en þau hljóðuðu upp á eina
milljón punda, 117 milljónir króna.
Ekki fékkst staðfest hvað Wigan
bauð í Heiðar en líklegt er talið að
það hafi verið sama upphæð, getum
var a.m.k. leitt að því í enskum fjöl-
miðlum í gær. Wigan er sagt hafa
verið tilbúið að greiða meira en Wat-
ford hafi ekki getað hafnað tilboðinu
sökum bágs fjárhags, en áður hafa
borist fregnir af því að Watford hafi
hækkað verðið á Dalvíkingnum í
tvær milljónir punda.
Dave Whelan, eigandi Wigan, hef-
ur sterkar skoðanir á því hvers konar
leikmenn hann vill fá til liðsins og
segir að fallnar stjörnur komi ekki til
greina.
Wigan vill baráttuhunda
„Við verðum að horfast í augu við
raunveruleikann – við getum ekki
keypt stórstjörnur,“ sagði Whelan
spurður um leikmannakaup. „Við
getum keypt góða leikmenn sem
farnir eru að dala en við viljum þá
ekki. Wigan vill leikmenn sem klæð-
ast búningi Wigan með ástríðu og
stolti og eru tilbúnir að berjast af
fullum krafti fyrir málstaðinn. Leik-
mennirnir sem unnu liðinu sæti í úr-
valsdeildinni eru hæfileikaríkir, bar-
áttuglaðir og framtakssamir og
þannig leikmenn getum við aðeins
samið við,“ sagði Whelan.
Watford
samþykkir
tilboð Wigan
í Heiðar
ENN er fjallað um Heiðar Helguson í enskum fjölmiðlum og síðast í
gær var fullyrt að lið hans Watford hefði tekið tilboði Wigan Athle-
tic, sem leikur í fyrsta skipti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á
næstu leiktíð. Heiðar staðfesti það í samtali við Morgunblaðið en
vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti, sagðist lítið hugsa út í þessi
mál fyrr en samningur liggur fyrir. Heiðar kemur til landsins á morg-
un í frí til 2. júlí og taldi ólíklegt að eitthvað myndi þokast í hans
málum fyrir þann tíma. Eins og staðan er núna þá gæti hann rétt
eins leikið með Watford á næsta tímabili.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Reuters
Þjóðverjar og Argentínumenn gerðu 2:2 jafntefli í Álfukeppninni í knattspyrnu í gær. Hér er
Asamoah, framherji Þjóðverja, í skemmtilegri rimmu við markvörð Argentínu.
Ólafur Ingi er 22 ára gamall fæddur og upp-alinn Fylkismaður. Hann á 2 leiki að baki
með A-landsliðinu og 12 með U-21 árs liðinu.
Ólafur gekk í raðir Arsenal árið 2001 þar sem
hann lék með unglinga- og varaliði félagsins en
í síðasta mánuði var ljóst að dvöl hans hjá Ars-
enal yrði ekki lengri. Mörg lið hafa á undan-
förnum vikum sýnt áhuga á að fá Ólaf í sínar
raðir. Hann var til reynslu hjá skoska liðinu
Hearts á dögunum og lið bæði í ensku 1. og 2.
deildinni hafa haft hann undir smásjánni sem
og norska liðið Viking og Örgryte í Svíþjóð.
,,Ég er feginn að þessi mál skulu nú vera að
komast á hreint og ég er bara mjög spenntur
fyrir því að fara til Brentford. Maður hefði
kannski viljað eitthvað stærra en mér leist best
á að fara til Brentford þegar upp var staðið.
Það er mikill hugur í félaginu. Liðið er þegar
búið að bæta við sig þremur leikmönnum og
stefnan hefur verið tekin upp í 1. deildina. Ef
maður stendur sig vel í þessari deild þá geta
opnast möguleikar í efri deildum og auðvitað
stefnir maður þangað,“ sagði Ólafur Ingi við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Þriðji Íslendingurinn
Ólafur verður þriðji íslenski knattspyrnu-
maðurinn sem spilar með Brentford. Hermann
Hreiðarsson lék með liðinu tvö tímabil frá
1998-99 og Ívar Ingimarsson var í herbúðum
Brentford í þrjú ár, 1999-2002.
,,Ég ráðfærði mig við Hermann og Ívar og
þeir gáfu félaginu góð meðmæli,“ sagði Ólafur.
Knattspyrnustjóri Brentford, Martin Allen,
er mikill aðdáandi Ólafs Inga. Þegar hann var
við stjórnvölinn hjá utandeildarliðinu Barnet
sá hann Ólaf oft með varaliði Arsenal þar sem
Arsenal lék leiki sína á velli Barnet. Eftir að
hann var ráðinn stjóri hjá Brentford reyndi
hann ítrekað að fá Ólaf að láni frá Arsenal.
,,Það sem reið baggamuninum að ég ákvað að
velja Brentford er sú að þjálfarinn hefur trölla-
trú á mér. Hann reyndi í tvígang að fá mig til
liðsins að láni og hefur verið í stöðugu sam-
bandi við mig. Hann er í miklum metum og
mörg stærri lið hafa reynt að krækja í hann.“
Ólafur Ingi segist hafa verið ákveðinn í að
halda kyrru fyrir á Englandi. „Já ég vildi vera
þar áfram. Mekka fótboltans er á Englandi og
best af öllu er að ég verð áfram í London. Ég er
öllum hnútum kunnugur í London og fyrir vik-
ið tekur minni tíma að komast inn í hlutina hjá
liðinu,“ sagði Ólafur Ingi.
Brentford hafnaði í fjórða sæti í ensku 2.
deildinni í vor en í umspili um laust sæti í 1.
deildinni tapaði liðið fyrir Sheffield Wedn-
esday í tveimur leikjum.
Ólafur Ingi semur við Brentford
ÓLAFUR Ingi Skúlason, fyrirliði U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu og fyrrum leik-
maður Arsenal, skrifar að öllu óbreyttu undir 2ja ára samning við enska 2. deildar-
liðið Brentford í dag. Ólafur Ingi, sem hélt utan til Lundúna í morgun ásamt umboðs-
manni sínum, Ólafi Garðarssyni, er búinn að ná samningi við félagið um kaup og kjör
og eftir læknisskoðun eftir hádegi í dag verður gengið frá samningnum.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is