Morgunblaðið - 22.06.2005, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
GRAEME Souness, knattspyrnustjóri
Newcastle, segist vera að undirbúa til-
boð í portúgalska knattspyrnumanninn
Luis Figo, en kappinn mun trúlega
ekki leika með Real Madrid á næstu
leiktíð, en þar hefur hann verið á mála
undanfarin ár.
Souness sagði í samtali við BBC í
gær að það væri rétt að Newcastle
hefði áhuga á að fá Figo til liðs við
sig. „Það er rétt að við höfum mikinn
áhuga á að fá Luis Figo í okkar raðir,
en meira vil ég ekki segja á þessu
stigi málsins,“ sagði Souness í gær.
Figo er fyrrverandi fyrirliði portú-
galska landsliðsins. Hann er 32 ára
gamall og hefur leikið með Real Ma-
drid undanfarin ár. Starfskrafta hans
er ekki óskað lengur á þeim bænum
og er honum heimilt að yfirgefa félag-
ið. Hann hefur lýst áhuga sínum á að
leika í Englandi, en Galatasaray í
Tyrklandi hefur einnig sýnt kappanum
áhuga.
Souness virðist með mörg járn í eld-
inum þessa dagana því líklegt er að
gert verði tilboð í Luis Boa Morte hjá
Fulham á næstu dögum og hann von-
ast eftir að undirrita samning við
Emre Belozoglu, miðjumann hjá Inter
Milan.
Figo hefur verið orðaður við fleiri
ensk lið síðan hann lét að því liggja að
hann langaði til að spila í Englandi.
Liverpool og Bolton hafa verið nefnd
til sögunnar. Rafael Benitez, stjóri
Liverpool, líst vel á að fá Figo til liðs
við sig en Sam Allardyce, stjóri Bolt-
on, segist ekki hafa fjármagn til að
kaupa kappann.
Graeme Souness ætlar sér
að krækja í Luis Figo
STÓRLEIKUR ÍBV og Íslandsmeistara Vals verður háður í
átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu en liðin
mættust í úrslitaleiknum í fyrra þar sem Eyjastúlkur höfðu
betur 2:0. Þegar liðin mættust hins vegar í Landsbankadeild-
inni 11. júní síðastliðinn sigraði Valur með sjö mörkum gegn
einu frá ÍBV.
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Valsstelpna og hún sagði
það klárlega á dagskránni að landa báðum stóru titlunum
þetta árið. „Þær höfðu betur í úrslitaleiknum í fyrra og þessi
leikur er því kærkomið tækifæri til að kvitta fyrir það. Þó að
okkur hafi gengið afar vel gegn þeim í undanförnum leikjum,
reyndar unnið þær mjög stórt, er klárt mál að við vanmetum
þær ekki. Þær urðu fyrir miklum skakkaföllum fyrir þetta
tímabil en hafa styrkst að undanförnu og fyrri leikir gefa ekk-
ert þegar út í þennan slag er komið,“ sagði Elísabet Gunnars-
dóttir.
Einnig mætast Breiðablik og Keflavík í Kópavogi, í Grafar-
vogi takast á Fjölnir og Keflavík og Stjörnustúlkur taka á
móti KR-ingum á Stjörnuvelli en allir leikirnir fara fram 12.
júlí.
Valur hefur harma að
hefna gegn Eyjaliðinu
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna,
Landsbankadeild
Breiðablik - ÍA ..........................................6:0
Casey McCluskey, Ólína Guðbjörg Viðars-
dóttir 2, Sandra Karlsdóttir 2, Erna Björk
Sigurðardóttir.
Keflavík - Stjarnan...................................5:2
Nína Kristinsdóttir, Ágústa Jóna Heiðdal,
Hrefna Magnea Guðmundsdóttir, Vesna
Smiljkovic, Ólöf Helgadóttir - Björk Gunn-
arsdóttir, Anna Margrét Gunnarsdóttir.
ÍBV - KR.....................................................3:2
Elín Anna Steinarsdóttir ÍBV (vsp.) 70.,
Suzanne Malone 80., Hólmfríður Magnús-
dóttir 87. -
Vauja Stefanovic 29., Lilja Dögg Valþórs-
dóttir KR 90.
Áhorfendur: 70
Aðstæður: Norðaustan strekkingsvindur.
Valur - FH..................................................4:1
Margrét Lára Viðarsdóttir 3, Dóra María
Lárusdóttir - Lovísa Erlingsdóttir.
Staðan:
Breiðablik 6 6 0 0 21:5 18
Valur 6 5 0 1 31:8 15
KR 6 4 0 2 22:11 12
ÍBV 6 3 0 3 22:15 9
FH 6 2 0 4 6:14 6
Stjarnan 6 2 0 4 6:17 6
Keflavík 6 2 0 4 11:23 6
ÍA 6 0 0 6 6:32 0
Markahæstar:
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val ................. 9
Hólmfríður Magnúsdóttir, ÍBV ................. 8
Laufey Ólafsdóttir, Val ............................... 7
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR.............. 7
Álfukeppnin
A-riðill:
Argentína - Þýskaland............................ 2:2
Juan Riquelme 32., Esteban Cambiasso 74.
- Kevin Kuranyi 30., Gerard Asamoah 51.
Ástralía - Túnis ........................................ 0:2
Santos 26., 70.
Lokastaðan:
Þýskaland 3 2 1 0 9:5 7
Argentína 3 2 1 0 8:5 7
Túnis 3 1 0 2 3:5 3
Ástralía 3 0 0 3 5:10 0
Svíþjóð
Sundsvall – Kalmar .................................. 0:2
Staðan:
Djurgården 11 7 2 2 24:14 23
Kalmar 11 5 4 2 10:6 19
Malmö FF 11 6 1 4 13:11 19
Halmstad 11 5 2 4 18:13 17
Gautaborg 10 4 5 1 10:6 17
Helsingborg 11 5 2 4 17:17 17
Häcken 10 5 1 4 17:11 16
Elfsborg 11 4 3 4 17:17 15
Hammarby 11 4 3 4 13:14 15
Örgryte 11 4 2 5 14:17 14
Landskrona 11 3 4 4 14:20 13
Sundsvall 11 3 1 7 12:19 10
Gefle 11 3 1 7 9:16 10
Assyriska 11 2 1 8 7:14 7
Góð þátttaka á Ostamótinu
Mjög góð þátttaka á þriðja stigamóti ársins
í golfi, Ostamótinu á Toyotamótaröðinni og
er ljóst að þeir kylfingar sem eru með
hærri forgjöf en 4 í karlaflokki fá ekki að
taka þátt þar sem að hámarksfjöldi kepp-
enda er 90. Mjög góð þátttaka er í kvenna-
flokki þar sem að 22 kylfingar eru skráðir
til leiks og er kvennaflokkurinn fullskip-
aður í fyrsta sinn.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna A:
Ásvellir: Haukar – Fjölnir.........................20
ÍR-völlur: ÍR – Þróttur R. .........................20
Fylkisvöllur: Fylkir – HK/Víkingur .........20
Í KVÖLD
AÐSTOÐARDÓMARI í leik
Breiðabliks og ÍA í Landsbankadeild
kvenna í gær veiktist er aðeins 10
mínútur voru liðnar af leiknum. Örn
Jónsson sem er Breiðabliksmaður
fékk grænt ljós frá KSÍ um að hlaupa
í skarðið eftir að þjálfari ÍA hafði gef-
ið sitt samþykki um að Örn myndi
taka að sér starfið.
CHELSEA festi í gærkvöld kaup á
spænska landsliðsmanninum Asier
Del Horno frá spænska liðinu Atle-
tico Bilbao. Chelsea pungaði út 8
milljónum punda, 955 milljónum ís-
lenskra króna, fyrir leikmanninn sem
gerði þriggja ára samning við ensku
meistarana. Horno er 24 ára og hefur
verið í herbúðum Bilbao frá 11 ára
aldri.
DAVID Stern framkvæmdastjóri
NBA-deildarinnar í körfuknattleik
tilkynnti fyrir leik San Antonio
Spurs og Detroit Pistons í nótt að
samkomulag verði undirritað á milli
eigenda NBA-liða og samtaka leik-
manna um skiptingu tekna af sjón-
varpssamningum sem gerðir verða á
næstu árum. Eigendur NBA-liða
áttu allt eins von á því að samtök leik-
manna myndu ekki ganga að samn-
ingaborðinu en Stern er líklega feg-
inn því að samningar hafi nást.
ENSKIR fjölmiðlar greindu frá því
í gær að Mark Hughes knattspyrnu-
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Blackburn hefði áhuga á að fá norska
landsliðsframherjann John Carew til
liðsins en hann leikur í Tyrklandi um
þessar mundir með Besiktas. Tals-
maður tyrkneska liðsins segir að nú
þegar hafi tilboði frá franska liðinu
Paris SG verið hafnað en tyrkneska
liðið vill fá um 1,3 milljarða kr. fyrir
leikmanninn.
PORTSMOUTH er að reyna að
krækja í ástralska landsliðsmiðherj-
ann John Aloisi sem leikur með Osas-
una á Spáni. Aloisi, sem er 29 ára og
hefur skorað þrjú mörk fyrir Ástrala
í Álfukeppninni, lék með Coventry
fyrir nokkrum árum.
ÞJÓÐVERJAR og Argentínumenn
gerðu 2:2 jafntefli í lokaumferð A-rið-
ils í Álfukeppninni í knattspyrnu í
gærkvöld. Þjóðverjar komust tvíveg-
is yfir í leiknum en jafnteflið dugði
Þjóðverjum til að hreppa fyrsta sætið
í riðlinum. Kevin Kuranyi og Gerarld
Asamoah gerðu mörk Þjóðverja en
Riquelme og Esteban Cambiasso
gerðu mörk Argentínumanna.
ÞJÓÐVERJAR hafa aðeins tapað
einum leik af 14 síðan Jürgen Klins-
mann tók við þjálfun liðsins af Rudi
Völler. Í kvöld skýrist hvaða þjóðir
eigast við í undanúrslitunum. Þjóð-
verjar mæta liðinu sem hafnar í öðru
sæti í B-riðli, Brasilíumönnum eða
Japönum, sem eigast við kvöld, og
Argentínumenn eiga í höggi við liðið
sem sigrar í þeim slag.
FÓLK
AÐEINS ein viðureign verður á milli
liða í Landsbankadeild karla í 16-liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ, VISA-
bikarnum, en dregið var til þeirra í
gær. Grindavík tekur á móti Fylki á
Grindavíkurvelli. Áætlað er að leikir
umferðarinnar fari fram 4. og 5. júlí
en óvíst er reyndar með leikdag hjá
ÍA þar sem hann ræðst af gengi liðs-
ins í Intertoto-keppninni. Þá er
Reykjavíkurslagur Víkings og KR í
Víkinni, Þór frá Akureyri fær Fram í
heimsókn, Njarðvíkingar fara til
Vestmannaeyja, Valur og Haukar
eigast við á Hlíðarenda og á Akra-
nesi mætast ÍA og Breiðablik. Í
Kaplakrika taka Íslandsmeistarar
FH á móti KA en FH-ingum hefur
gengið illa með Akureyringa í gegn-
um árin og töpuðu meðal annars fyr-
ir þeim í undanúrslitum bikarsins í
fyrra. Bikarmeistarar Keflavíkur
sækja þá HK heim í Kópavog en liðin
mættust einnig í undanúrslitunum í
fyrra. Keflavík vann þá með minnsta
mun en eina mark leiksins var sjálfs-
mark á 11. mínútu. Kristján Guð-
mundsson, þjálfari Keflavíkur, var
spar á stóru orðin og spáði hörkuleik.
„HK er með sterkt lið sem hefur
valdið sér sjálfu mestum vonbrigð-
um í ár miðað við hvað þeir ætluðu
sér og miðað við spilamennsku
þeirra í fyrra. Þeir hugsa áreiðan-
lega til baka til undanúrslitaleiksins í
fyrra og ætla sér að borga fyrir
hann. Ég er búinn að sjá þá spila í
sumar og þeir eru með fínasta lið
þannig að leikurinn verður okkur
mjög erfiður, rétt eins og leikurinn á
móti Fjölni í 32-liða úrslitunum og
við þurfum að mæta talsvert ein-
beittari til leiks ef við ætlum ekki að
falla í sömu gryfju,“ sagði Kristján
en Keflavík lenti í talsverðu basli
með 1. deildarlið Fjölnis og marði 4:3
sigur eftir að hafa tvívegis lent undir
í leiknum.
Morgunblaðið/Kristinn
Keflavík og HK mætast í 16-liða úrslitum VISA bikarkeppn-
innar nú en liðin mættust í undanúrslitum keppninnar í fyrra
og þá hafði Keflavíkur betur, vann naumlega 1:0, á sjálfsmarki.
Bikarmeist-
ararnir
mæta HK
Eyjakonur náðu í þrjú stig þegar KRkom í heimsókn til Eyja í gærkvöldi.
Þær sigruðu leikinn 3:2 eftir að hafa verið
undir lengst af í leiknum. Leikurinn var í
járnum framan af en þó voru heimastúlk-
urnar sterkari, enda spiluðu þær undan
strekkingsvindi. Fyrsta færi leiksins kom
strax á fimmtu mínútu þegar Guðrún
Soffía Viðarsdóttir komst í sannkallað
dauðafæri en skot hennar var langt yfir.
Gestirnir hresstust heldur þegar leið á
hálfleikinn og átti Ásgerður Ingibergs-
dóttir gott skot í slá Eyjamarkið á 24.
mínútu og fimm mínútum síðar lá knött-
urinn í netinu hjá ÍBV. Fjóla Dröfn Frið-
riksdóttir átti þá góðan sprett upp hægri
kantinn, gaf fyrir og þriðji markvörður
Eyjakvenna í sumar, Anne Marberger,
sló knöttinn frá en beint á skallann á
Vauja Stefanovic sem átti ekki í vandræð-
um með að skora. Heldur lygndi í síðari
hálfleik og enn hélt baráttan áfram en
hvorugt liðið náði að eigna sér miðjuna í
leiknum. Þegar tuttugu mínútur voru eft-
ir af leiknum sendi Guðrún Soffía fyrir
mark KR, Elfa Björk Erlingsdóttir tók
boltann niður og að mati dómarans fór
knötturinn í handlegginn á henni og
dæmdi hann umsvifalaust vítaspyrnu. El-
ín Anna Steinarsdóttir fór á punktinn og
skoraði örugglega. Eyjastúlkur hresstust
mikið við það að jafna og héldu áfram að
þjarma að KR-markinu og það bar árang-
ur á 80. mínútu þegar Rachel Kruze átti
góða sendingu inn fyrir vörn gestanna,
beint fyrir lappir Suzanne Malone sem
gerði engin mistök og sendi knöttinn
f
m
f
g
H
E
þ
v
a
m
s
k
3
l
v
„
e
æ
f
h
o
e
s
k
d
o
l
þ
t
„
a
b
l
m
þ
Hallbera Gísladóttir, leikmaðu
KR lá
BREIÐABLIK hélt sigurgöngu sinni áfra
knattspyrnu í gær. Blikar skelltu Skagak
stiga eftir sex umferðir, ÍBV vann góðan
betur á móti FH, 4:1, þar sem Margrét L
Keflavík hafði betur á móti Stjörnunni, 5
Eftir Sigursvein Þórðarson