Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 1
2005 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
MIKILL UPPGANGUR Í NOREGI, SEGIR ÁRNI GAUTUR / C4
BIRGIR Leifur Hafþórsson, at-
vinnukylfingur úr GKG, er með for-
ystu eftir fyrsta keppnisdaginn á
Open des Volcans golfmótinu sem
hófst í Frakklandi í gær en mótið er
hluti af Áskorendamótaröðinni.
Birgir Leifur lék á 66 höggum
eða fimm höggum undir pari vall-
arins og er einn í foyrstu. Miguel
Carballo frá Argentínu og Svíinn
Johan Edfors koma næstir á 67
höggum, eða fjórum undir parinu,
en 155 kylfingar hófu keppni á mótinu.
Birgir Leifur byrjaði mjög vel. Eftir þrjár fyrstu hol-
urnar var hann kominn með tvo fugla og var fjórum
höggum undir parinu eftir níu holur.
Birgir Leifur fékk 10 pör, fimm fugla, einn örn og
einn skolla. Fyrri níu holurnar lék hann á 32 höggum og
síðari níu á 34.
Birgir Leifur með
forystu í Frakklandi
Birgir Leifur
Magnús átti erfitt með komaorðum að ýmsum atvikum í
leiknum. „Við gáfum þeim tvö mörk
og fengum rautt spjald – það er ekki
hægt að vinna leiki svoleiðis. Þetta
eru skelfilegustu mörk sem ég hef
fengið á mig, annar dettur og hinn
hittir ekki boltann. Við höfum ekki
verið að spila vel og þeir ekki sýnt
sitt besta í sumar svo að ég átti von
á hörkuleik. Ég átti hins vegar ekki
von á og alger óþarfi að gefa þeim
tvö mörk. Við ætluðum að spila eins
og við höfum verið að gera, höfum
skapað okkur færi og skorað en ætl-
uðum að reyna að laga varnarleik-
inn en það gekk ekki betur en þetta.
Skaginn spilaði eins og ég átti von á,
þeir eru kröftugir og þetta var erf-
itt,“ bætti þjálfarinn við.
Fyrra mark Skagamanna kom
eftir að Jökull Elísabetarson, varn-
armaður KR, varð fyrir því óhappi
að renna til á blautum vellinum og
missa frá sér knöttinn, þannig að
Hafþór Ægir Vilhjálmsson náði
knettinum – brunaði fram völlinn
með hann og sendi knöttinn fram
hjá Kristjáni Finnbogasyni, mark-
verði og fyrirliða KR. Seinna mark-
ið skoraði Igor Pesic frá miðjum
vallarhelmingi ÍA, með því að senda
knöttinn hátt yfir Kristján mark-
vörð, sem var kominn langt út úr
marki sínu.
Morgunblaðið/Sverrir
Skagamenn fagna hér langþráðu marki. Fyrra markið sem Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði gegn KR í Frostaskjóli í gærkvöldi var
fyrsta markið sem Skagamenn skora á útivelli í Landsbankadeildinni í sumar. Allt um leikinn og viðbrögð á C2 og C3.
Engin uppgjöf hjá KR
þótt á móti blási
„VIÐ spilum alls ekki nógu vel og þurfum aldeilis að fara að taka
okkur saman í andlitinu ef ekki á að fara illa,“ sagði Magnús Gylfa-
son, þjálfari KR, eftir 2:0 tap fyrir ÍA í gærkvöldi – í leik sem bæði
mörkin komu eftir afar skrautleg mistök KR-inga. „Við verðum að
fara að hugsa þetta upp á nýtt. Það er engin uppgjöf í mér og hefur
aldrei hvarflað að mér að gefast upp þótt á móti blási.“
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
Vals-
konur til
Finnlands
ÍSLANDSMEISTARAR
kvenna í knattspyrnu, Val-
ur, leika í Finnlandi í 1.
umferð Evrópukeppni fé-
lagsliða kvenna, en Valur
tekur fyrir hönd Íslands
þátt í keppninni. Leikið
verður í níu fjögurra liða
riðlum í 1. umferð og
dróst Valsliðið í riðli með
norska liðinu Röa Idretts-
lag, Pärnu FC frá Eist-
landi og FC United frá
Finnlandi, en leikir riðils-
ins fara fram 9.–13. ágúst.
Sigurvegarar riðlanna
fara áfram í 2. umferð
keppninnar, þar sem leik-
ið verður í fjórum fjög-
urra liða riðlum í haust.