Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 B 3
ARNAR Sigurðsson,
tennisleikari úr Tennis-
félagi Kópavogs, er
fyrstur Íslendinga
kominn á heimslista at-
vinnumanna í einliða-
leik. Þeim áfanga náði
hann eftir mót sem
hann lék á í Kassel í
Þýskalandi en mótið
var liður í ATP-móta-
röðinni.
Arnar vann þar alla
leiki sína í forkeppn-
inni og tókst þar með
komast inn í aðalkeppnina. Í
fyrstu umferðinni þar lagði hann
Ástralann Junad Rameez í þremur
settum og náði þar með í sitt
fyrsta ATP-stig í einliðaleik.
Í síðustu viku kom-
ust Arnar og Andri
Jónsson, úr tennisdeild
BK, í undanúrslit á
tennismóti atvinnu-
manna í Trier í Þýska-
landi og komust þar
með á heimslistann í
tvíliðaleik en þeir
hlutu fjögur ATP-stig
hvor.
Í dag halda þeir
Arnar og Andri, sem
báðir stunda háskóla-
nám í Bandaríkjunum,
til Dyflinnar á Írlandi þar sem
þeir munu keppa fyrir Íslands
hönd ásamt Davíð Halldórssyni og
Raj Bonifacius á heimsmeistara-
móti landsliða í tennis (Davis Cup).
Arnar Sigurðsson fyrstur
á heimslistann í einliðaleik
LEIKMENN færeyska liðsins
B36, sem mæta Eyjamönnum í
1. umferð forkeppni UEFA-
keppninnar í knattspyrnu í
Eyjum á fimmtudag, hafa boð-
að komu sína til Eyja á laugar-
dagskvöldið en þeir leggja af
stað til Íslands eftir leikinn á
móti KÍ sem er á laugardag.
Liðsmenn og forráðamenn
B36 ætla að nota Íslandsferð-
ina sem eins konar æfingabúð-
ir en liðið er í harðri baráttu í
færeysku deildarkeppninni.
B36, HB og Skála hafa öll 29
stig, eru sjö stigum á undan
næsta liði, og berjast um
sigurinn í deildinni en þrjár
umferðir eru eftir af deildinni.
B36 mætir
snemma
til Eyja
þar
efur
f er
öfðu
velli
nn í
hins
liðið
gest-
ax á
Ægir
góð-
eirs-
rson,
horn.
var
u og
rðist
ettir
Örn
Hjartarson barðist vel en var svelt-
ur í framlínunni og Sigurvin Ólafs-
son var einnig sterkur á miðjunni.
Fyrra mark ÍA var lýsandi dæmi
um einbeitingarleysi KR-inga. Á
27. mínútu barst boltinn til aftasta
varnarmanns Vesturbæinga, Jökuls
Elísarbetarsonar, eftir hornspyrnu.
Hafþór Ægir pressaði á hann og við
það kom óðagot á Jökul sem skrik-
aði fótur, Hafþór tók af honum bolt-
ann og var einn á auðum sjó – og
kláraði sóknina með sóma.
Úr litlu að moða fyrir
framherja KR
Gestirnir voru líklegri til að bæta
við öðru marki en KR að svara og
Hafþór var sérlega sprækur á
vinstri kantinum og fór illa með
Jökul hvað eftir annað. Sóknarað-
gerðir KR-inga voru ekki nægilega
markvissar og þrátt fyrir að liðið
næði að láta boltann ganga ágæt-
lega á miðjunni komst hann ekki til
framherjanna sem fengu úr afskap-
lega litlu að moða. Grétar sótti bolt-
ann meira á miðjuna í síðari hálfleik
en komst lítt áleiðis gegn vel stilltri
vörn ÍA.
Á 56. mínútu átti Guðjón Sveins-
son, leikmaður ÍA, fínt skot af
löngu færi, Kristján Finnbogason
þurfti að hafa sig allan við í marki
KR og hann sló boltann yfir slána.
Þremur mínútum síðar vildu
Skagamenn fá dæmda vítaspyrnu
þegar brotið var á Hirti Hjartar-
syni en Gylfi Orrason, dómari leiks-
ins, dæmdi aukaspyrnu á vítateigsl-
ínu. Hjörtur tók spyrnuna, átti
ágætt skot að marki, en Kristján
varði vel.
Ekki var á það bætandi fyrir
heimamenn þegar Bjarnólfur Lár-
usson var rekinn af velli á 63. mín-
útu fyrir glórulaus samskipti við
Reyni Leósson í vítateig ÍA. Gylfi
Orrason ráðfærði sig við aðstoðar-
dómara sem sá atvikið vel og nið-
urstaðan varð rautt spjald. Einum
manni færri fengu KR-ingar sitt
hættulegasta færi á 73. mínútu þeg-
ar Garðar Jóhannsson skallaði að
marki eftir fína sendingu frá Gesti
Pálssyni af vinstri vængnum.
Bjarki Freyr Guðmundsson varði
hins vegar mjög vel og sló boltann
yfir þverslána.
Glæsimark Pesic
gulltryggir sigur
Það sem eftir lifði leiks réðu
Skagamenn ferðinni og hleyptu
KR-ingum aldrei nálægt eigin víta-
teig. Þeir héldu boltanum vel innan
liðsins á meðan hver sendingin á
fætur annarri fór forgörðum hjá
heimamönnum. Það var því í takt
við leikinn þegar Igor Pesic skoraði
kostulegt mark fimm mínútum fyrir
leikslok, hann sá að Kristján var
langt frá markinu og tók skot af 55-
60 metra færi. Boltinn hafnaði í net-
inu og gífurleg fagnaðarlæti brut-
ust út meðal áhangenda ÍA sem
fögnuðu enn innilegar eftir að flaut-
að var til leiksloka. Sigur Skaga-
manna var fyllilega verðskuldaður,
barátta liðsins var til fyrirmyndar
og vilji leikmanna til að gera vel og
rífa liðið upp úr lægðinni var greini-
legur. Sá vilji virtist hins vegar ekki
vera fyrir hendi hjá KR-ingum en í
samtali við Morgunblaðið fyrr í vik-
unni sagði Magnús Gylfason, þjálf-
ari KR, að liðið væri fínt en hefði
ekki alltaf náð vel saman í sumar.
KR-ingar náðu svo sannarlega
ekki vel saman í gærkvöldi og fyrir
utan einbeitingarleysi virtust sam-
skiptin inni á vellinum einnig vera í
ólagi. Leiðtoga vantar og eitthvað
verður að breytast ætli Vesturbæ-
ingar sér ekki að berjast í bökkum í
síðari hluta deildarkeppninnar.
Morgunblaðið/Sverrir
amanna, Igor Pesic og Hafþór Vilhjálmsson, fagna marki þess síðarnefnda á KR-vellinum í gærkvöld.
ngu fargi
af Skaga-
mönnum
r sigri á KR-vellinum lauk í gærkvöldi
erðar Landsbankadeildar karla fór
og hungur var í leikmönnum ÍA sem
áttlausum KR-ingum sem áttu á köflum
amenn. Fyrir vikið höfðu liðin sæta-
sæti deildarinnar með þrettán stig en
fyrir neðan með tíu stig.
KR 0:2 ÍA
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
9. umferð
KR-völlur
Fimmtudaginn 7. júlí 2005
Aðstæður:
Hiti um 12 stig, skúrir og
gola. KR-völlurinn í fínu
standi.
Áhorfendur: 984
Dómari:
Gylfi Þór Orrason,
Fram, 4
Aðstoðardómarar:
Sigurður Óli Þórleifsson,
Eyjólfur Finnsson
Skot á mark: 6(4) - 7(6)
Hornspyrnur: 4 - 4
Rangstöður: 1 - 4
Leikskipulag: 4-5-1
Kristján Finnbogason
Jökull I. Elísabetarson
Sölvi Davíðsson
Tryggvi Sveinn Bjarnason
Gunnar Kristjánsson
Garðar Jóhannsson
Sigurvin Ólafsson M
(Sölvi Davíðsson 83.)
Bjarnólfur Lárusson
Gestur Pálsson
(Kristinn J. Magnússon 78.)
Rógvi Jacobsen
Grétar Ólafur Hjartarson M
Bjarki Guðmundsson M
Finnbogi Llorens Izaguirre
(Andri Júlíusson 69.)
Reynir Leósson M
Gunnlaugur Jónsson M
Guðjón H. Sveinsson
Unnar Örn Valgeirsson
(Helgi Pétur Magnússon 31.)
Pálmi Haraldsson M
Igor Pesic M
Kári Steinn Reynisson
Hafþór Vilhjálmsson M
Hjörtur J. Hjartarson
(Sigurður Ragnar Eyjólfsson 83.)
0:1 (27.) Boltinn barst á miðjan völlinn eftir hornspyrnu KR, Jökull Elísabet-
arson fékk hann en skrikaði fótur. Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti auð-
velt með að hirða boltann af honum, geystist að marki og skoraði auð-
veldlega framhjá Kristjáni Finnbogasyni í hægra markhornið.
0:2 (85.) Igor Pesic fékk boltann á miðjum vallarhelming ÍA, sá að Kristján var
framarlega og skaut að marki af um sextíu metra færi. Boltinn sveif yf-
ir Kristján og hafnaði í netinu. Stórglæsilegt mark.
Gul spjöld: Kári Steinn Reynisson, ÍA (22.) Fyrir leikbrot. Finnbogi Llorens Izaguirre, ÍA
(38.) Fyrir leikbrot. Hjörtur J. Hjartarson, ÍA (83.) Fyrir leikbrot.
Rauð spjöld: Bjarnólfur Lárusson, KR (63.) Fyrir leikbrot.
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í golfi
tapaði öllum viðureignum sínum
gegn Hollendingum á Evrópumótinu
sem fram fer í Karlstad í Svíþjóð um
þessar mundir, en leiknir voru fimm
leikir gegn Hollendingum í gær. Eftir
höggleikinn sem stóð yfir fyrstu tvo
dagana var íslenska liðið í 15. og
neðsta sæti mótsins en Hollendingar
enduðu í 9. sæti mótsins. Liðin eru
því í B-riðli mótsins.
ANNA Lísa Jóhannsdóttir og Hel-
ena Árnadóttir úr GR léku saman í
fjórmenning og töpuðu 1/0. Nína
Björk Geirsdóttir úr Kili tapaði 4/3,
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili tapaði
1/0 og Þórdís Geirsdóttir úr Keili
tapaði 4/3.
RAGNHILDUR Sigurðardóttir úr
GR lék á 79 höggum eða sjö höggum
yfir parinu á opna Rejmes-mótinu í
golfi sem hófst í Svíþjóð í gær.
ÍSLENSKA U17 ára landslið
kvenna í knattspyrnu tapaði fyrir
Frökkum, 4:2, í gær á opna Norður-
landamótinu í knattspyrnu sem
stendur yfir í Þrándheimi í Noregi.
Sandra Sif Magnúsdóttir og Elísa
Pálsdóttir skoruðu mörkin fyrir ís-
lenska liðið og komu þau bæði í fyrri
hálfleik. Íslensku stelpurnar töpuðu
öllum þremur leikjum sínum í riðla-
keppninni, 3:0 fyrir Dönum, 6:0 gegn
Norðmönnum og nú 4:2 fyrir Frökk-
um
FINNSKI landsliðmaðurinn Jari
Litmanen gekk í gær til liðs við
sænska úrvalsdeildarliðið Malmö.
Þessi 34 ára gamli miðjumaður – og
framherji, sem leikið hefur með Ajax,
Barcelona og Liverpool, lék með
Hansa Rostock í Þýskalandi á síðustu
leiktíð.
ENSKI landsliðsmarkvörðurinn
Paul Robinson skrifaði í gær undir
nýjan samning við Tottenham, sem
gildir til ársins 2010. Robinson kom
til félagsins frá Leeds í fyrra og þótti
standa sig með afbrigðum vel á síð-
asta tímabili.
HUGO Viana er á nýjan leik á leið-
inni til Newcastle. Þessi 22 ára gamli
Portúgali var keyptur til Newcastle
frá Sporting Lissabon fyrir 8,5 millj-
ónir punda, jafnvirði milljarðs króna,
sumarið 2002, og á hann þrjú ár eftir
af samningi sínum við félagið. Hann
náði þó ekki að festa sig í sessi og lék
sem lánsmaður á síðasta tímabili hjá
sínu gamla félagi, Sporting Lissabon.
LANCE Armstrong hélt foryst-
unni í Frakklandshjólreiðunum eftir
sjötta áfangann í gær en hjólað var
milli Troyes og Nancy, 199 km vega-
lengd. Ítalinn Lorenzo Bernucci var
fljótastur en Armstrong varð í 32.
sæti. Armstrong hefur forustu í
heildarkeppninni og er 55 sekúndum
á undan liðsfélaga sínum George
Hincapie. Alexandre Vinokourov frá
Kasakstan komst í þriðja sætið og er
rúmri mínútu á eftir Armstrong.
FÓLK
Arnar Sigurðsson