Morgunblaðið - 04.08.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2005 B 7
www.heitirpottar.is
s. 482 2300RafmagnspottarHitaveitupottarAkureyri - s. 461 3066
Aukin vellíðan
í heitum potti
s. 568 0340
ll FÓLK
● BOGI Þór Sig-
uroddsson hefur tek-
ið við fram-
kvæmdastjórn hjá
Sindra-Stáli hf. en
hann keypti nýverið
allt hlutafé í félaginu.
Bergþór Konráðs-
son, sem gegnt hefur starfi fram-
kvæmdastjóra, hverfur að sama
skapi frá félaginu.
Sindra-Stál var stofnað árið 1949.
Félagið flytur inn stál, málma, bygg-
ingarvörur, festingavörur, vélar og
verkfæri. Áætlað er að velta Sindra-
Stáls á árinu 2005 verði um 1,8
milljarðar króna.
Bogi Þór í
Sindra-Stál
● INGÓLFUR Garð-
arsson hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri 3-
PLUS hf. en hann hef-
ur undanfarna mán-
uði starfað sem
sölustjóri fyrirtæk-
isins. Frá árinu 2000 til ársins 2005
starfaði Ingólfur sem markaðs- og
sölustjóri Lyfja & heilsu hf. og árin
1997-2000 sem forstöðumaður
markaðsráðgjafar og markaðs-
rannsókna hjá Pricewaterhouse-
Coopers. Á árunum 1994-1997 starf-
aði hann í markaðs- og söludeild
Coldwater Seafood í Bandaríkjunum.
Ingólfur er viðskiptafræðingur
Cand. Oecon. frá Háskóla Íslands og
MBA frá Fordham University í New
York. Helgi G. Sigurðsson sem starf-
að hefur sem framkvæmdastjóri 3-
PLUS hf. hefur tekið við sem stjórn-
arformaður.
3-PLUS framleiðir og selur leiktæki
og þroskandi tölvuleiki fyrir börn frá
þriggja ára aldri undir merkjum Dvd-
kids. Leikirnir byggja á heimsþekktum
teiknimyndapersónum sem leiða
barnið í gegnum margvíslegar þrautir
og þjálfun. Í enskumælandi löndum er
tækið selt í samvinnu við Fisher Price
undir merkjum InteractTv.
Nýr framkvæmda-
stjóri 3-PLUS
FLESTIR, sem eitthvað hafa með
tölvur að gera, kannast við Linux-
stýrikerfið og hugmyndina um
frjálsan hugbúnað (e. open source
software). Frjáls hugbúnaður er
ekki það sama og ókeypis hugbún-
aður, heldur felur hugtakið í sér að
hver sem er má nota hugbúnaðinn
og dreifa honum, svo lengi sem hann
birtir eigin breytingar opinberlega
og gefur notendum færi á að breyta
hinum breytta hugbúnaði.
Á ensku hefur orðið „free“ tví-
ræða merkingu og getur þýtt hvort
heldur sem er „frjáls“ eða „ókeypis“.
Af þessum sökum þótti einhverjum
ástæða til að útskýra muninn á
frjálsum og ókeypis hugbúnaði með
eftir farandi dæmi. „Frjáls hugbún-
aður er spurning um frelsi, ekki
verð. Til að skilja hugtakið á að
hugsa um tjáningarfrelsi, ekki
ókeypis bjór.“
Má græða á frelsinu
Hópur danskra tölvunema við
Tækniháskólann í Kaupmannahöfn
ákvað að snúa þessu dæmi á hvolf og
búa til frjálsan bjór undir sama
regluverki og frjálsum hugbúnaði er
dreift. Afraksturinn, Vores Øl (Okk-
ar bjór) er líklega fyrsti frjálsi bjór-
inn sem birtur er undir Creative
Commons Licence-kerfinu.
Samkvæmt því má hver sem er
nota uppskriftina til að framleiða bjór
og jafnvel selja hann öðrum. Eins og
áður segir er frelsishugmyndin í
þessu tilviki óháð verði bjórsins og
því mega framleiðendurnir græða
pening á sölu frjálsa bjórsins. Eina
kvöðin sem lögð er á framleiðend-
urna er að þeir birti opinberlega upp-
skriftina sem bjórinn er gerður eftir.
Uppskriftina má nálgast á heima-
síðunni www.voresoel.dk, en þar má
hala niður límmiða á bjórflöskur og
annað kynningar- og markaðsefni.
Frjáls bjór, en
ekki ókeypis
?! %
!! " #" $ % !
&$ '
(
" )
*+*
*
" !, !&'!$
( ! !!!%
!!"
"
)
(
"
FARÞEGUM Ryanair í júlí fjölg-
aði á milli ára. Alls flugu tæplega 3,2
milljónir farþega með írska lágfar-
gjaldaflugfélaginu og er það fjölgun
um 29% miðað við sama mánuð í
fyrra. Sætanýting félagsins var
óbreytt á milli ára en hún var 90%
sem þýðir að 9 af hverjum 10 sætum
sem fyrirtækið býður upp á voru not-
uð.
Farþegum Ryanair fjölgar