Morgunblaðið - 04.08.2005, Síða 12

Morgunblaðið - 04.08.2005, Síða 12
800 4000 - siminn.is E N N E M M / S ÍA / N M 17 4 10 Uppfærsla á ADSL tengingum stendur nú yfir. Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem af þessu kunna að skapast. Eftir uppfærsluna verður Síminn kominn með svokallað ADSL2+ kerfi sem gefur möguleika á allt að 24 Mb/s hraða á Netinu ásamt aukinni þjónustu. Nánari upplýsingar á siminn.is/adsl2+ ADSL kerfi Símans Uppfærsla á Fjármögnun í takt við þínar þarfir ÞÝSKI íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur gert yfirtökutilboð í einn helsta keppinaut sinn, bandaríska fyrirtækið Reebok. Tilboðið hljóðar upp á 3,1 milljarð evra, sem samsvarar 243 milljörðum íslenskra króna. Frá þessu var greint á vefmiðli Financial Times í gær. Verði þessi samruni samþykktur fækkar forystufyrirtækjum í iðnaðinum um eitt en bandaríski framleiðandinn Nike verður sem fyrr stærsti aðili á íþróttavörumarkaði. Adidas verður áfram í öðru sæti en Reebok hefur hingað til verið þriðji stærsti aðilinn á þessum markaði. Puma kemur síðan í fjórða sæti en á ansi langt í land til þess að ná Nike og Adidas. Það er eftir miklu að sækjast fyrir Adidas en stjórnendur fyrirtækisins hafa lengi haft áhyggjur af því að staða fyrirtækisins sé ekki nægilega sterk. Samkvæmt FT er líklegt að sala Adidas í Bandaríkjunum muni tvö- faldast verði samruninn að veruleika. Reebok hefur gert mjög arðbæra samninga við félög í bandarísku NBA- og NFL-deildunum en meðal annarra félaga sem Reebok hefur samið við eru breska knattspyrnuliðið Liverpool sem varð Evrópumeistari í knatt- spyrnu í vor. Reuters Adidas býður í Reebok Hagnaður á pappírnum NORSKI pappírsframleiðandinn Norske Skog skilaði hagnaði á öðr- um fjórðungi ársins eftir afleita af- komu á sama tíma í fyrra. Hagn- aður tímabilsins nam 31 milljón norskra króna og er um 243 millj- óna króna afkomusveiflu að ræða frá því í fyrra en þá var 212 millj- óna króna tap á rekstrinum. Engu að síður urðu sérfræðingar fyrir vonbrigðum þar sem þeir bjuggust við betri afkomu. Velta tímabilsins var 6,4 millj- arðar norskra króna og hækkaði hún um 200 milljónir frá fyrra ári. Murdoch snýr aftur ÁSTRALSKI fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch mun snúa aftur til starfa sem útgefandi bandaríska æsifréttablaðsins New York Post en sonur hans Lachlan lét af því starfi fyrir um viku. Frá þessu greinir AFP-fréttaþjónustan. Sérfræðingar telja að hér sé bráðabirgðaráðstöfun á ferð en Murdoch, sem er orðinn 76 ára, vill að þeirra mati sýna starfsfólki fram á að allt sé eins og það á að vera. Murdoch keypti blaðið árið 1976 og starfaði sem útgefandi þess allt til ársins 1986. Lachlan Murdoch var af mörgum talinn arftaki föður síns sem stjórn- arformaður News Corp.-samsteyp- unnar, sem á New York Post, en hann sagði óvænt upp öllum sínum ábyrgðarstörfum fyrir um viku. Fjölmiðlar hafa gert því skóna að ástæðan sé fjölskylduerjur vegna erfðaskrár Murdochs hins eldri. Sá neitar því þó staðfastlega. E inar Þór Sverrisson lögmaður hefur verið viðriðinn íslenskt at- hafnalíf frá tvítugs- aldri. Þrátt fyrir að vera ekki eldri en 32 ára situr hann, eða hefur setið, í stjórnum nokkurra stærstu fyrirtækja landsins og mun á næstu dögum taka sæti í stjórn sænska flug- félagsins FlyMe fyrir hönd félags íslenskra fjárfesta sem nýlega keyptu hlut í flugfélaginu. Einar Þór fæddist árið 1973. Eftir stutta dvöl í leikskóla gafst hann upp á honum og krafðist þess að fá að fara í alvöru skóla. „Ég var þess vegna alltaf einu ári á undan, þótt ekki hafi aldursmun- urinn verið mikill,“ segir Einar Þór. Árið 1992 útskrifaðist hann frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og hóf nám við Lagadeild Háskóla Íslands. „Ég tók aðeins lengri tíma en flestir í að klára það nám, enda var ég í fullri vinnu allan námsferilinn, fyrir utan fyrstu önnina. Strax eftir þá önn hóf ég hins vegar störf sem aðstoð- armaður Pálma Haraldssonar, sem þá var framkvæmdastjóri Sölu- félags garðyrkjumanna. Þar vann ég allan tímann meðan ég lagði stund á laganám,“ segir Einar. „Árið 1999, að náminu loknu, hóf ég störf sem framkvæmdastjóri Ávaxtahússins Nýtt og ferskt ehf., sem var í eigu Pálma og Baugs hf. Þremur árum síðar, árið 2002, byrjaði ég í lögmennsku og í fyrra hóf ég störf hjá Lögmönnum Mörkinni, þar sem ég er meðeig- andi.“ Einar segir lögmennskuna og viðskiptin eiga vel saman. „Mér finnst lögmennskan og þátttaka í viðskiptalífinu virka mjög vel sam- an, enda hef ég unnið mikið á sviði viðskiptalögfræði, þótt ekki sé það eingöngu.“ Einar segist hafa mik- inn áhuga á viðskiptum, enda sitji hann í stjórnum nokkurra fyr- irtækja, en hann hefur þó ekki viljað varpa lögfræðinni fyrir borð og helga sig alfarið athafnalífinu. Spennandi flugrekstur Eins og áður segir situr Einar í stjórnum nokkurra fyrirtækja. Þannig situr hann, eða hefur setið, í stjórnum Skeljungs og Fast- eignafélagsins Stoða auk þess sem hann er varamaður í stjórn Baugs Group. Tengslin við Pálma Haraldsson hafa verið sterk frá því að þeir unnu fyrst saman hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og nú á dögunum keypti Fons, félag í eigu Pálma og Jóhannesar Kristinssonar, 11% hlut í lágfargjaldaflugfélaginu sænska FlyMe og mun Einar taka sæti í stjórn félagsins hinn 15. ágúst næstkomandi fyrir hönd Fons. „Mér líst mjög vel á að taka þátt í starfsemi flugfélagsins, enda finnst mér farþegaflug einna mest spennandi allra viðskipta sem ég hef komið nálægt, en ég hef setið í stjórnum bæði Flugleiða og Ice- land Express og hef því kynnst þessu nokkuð vel.“ Félagar Einars og vinnufélagar, sem rætt var við, bera honum al- mennt vel söguna. „Hann er fastur fyrir og fylginn sér án þess þó að vera frekur,“ sagði einn þeirra. „Það er mjög gott að vinna með Einari ef maður á annað borð kann að – og vill – vinna vel,“ sagði annar félagi hans. Einar segist sjálfur vinna frekar hratt og geta orðið óþolinmóður þegar honum þyki aðrir ekki halda í við sig. „Ég reyni samt alltaf að taka tillit til annarra og valta ekki yfir þá,“ segir hann. „Þá leita ég eftir og hlusta á álit annarra og ráðleggingar þegar ákvarðanir eru teknar, en að þeim teknum vil ég standa við þær og fylgja þeim eft- ir,“ segir Einar. Sögur og sagnfræði Meðal áhugamála Einars eru úti- vist og ferðalög. „Mér gefst hins vegar ekki nægur tími núna til að sinna þessum áhugamálum, enda er maður með ung börn og hefur nóg að gera í vinnunni,“ segir hann. „Ég hef líka afskaplega gaman að lesa og finnst mjög gott að hreiðra um mig með góða skáldsögu eða sagnfræðirit í hönd- unum.“ Einar segist ekki eiga neinn sérstakan uppáhaldshöfund, en hann hafi hins vegar mikinn áhuga á sögu Íslands á nítjándu öld. Eiginkona Einars Þórs er Anna Jóna Aðalsteinsdóttir og á hann tvö börn, sjö ára dreng og tveggja ára stúlku. Fastur fyrir án þess að vera frekur Morgunblaðið/Sverrir Spennandi rekstur Einar Þór seg- ist hlakka til að taka sæti í stjórn sænska FlyMe flugfélagsins, enda þyki honum flugrekstur einkar spennandi og skemmtilegur. Einar Þór Sverrisson hefur tekið virkan þátt í íslensku at- hafnalífi frá tvítugs- aldri. Bjarni Ólafsson bregður upp svip- mynd af Einari. SVIPMYND bjarni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.