Morgunblaðið - 29.08.2005, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FLÝJA NEW ORLEANS
Íbúum New Orleans var í gær
skipað að yfirgefa heimili sín því
fellibylurinn Katrín stefndi beint á
borgina, en vindhraðinn í honum var
allt að 282 km/klst.
Borgarstjórinn, Ray Nagin, sagði
brottflutninginn vera einsdæmi í
sögu Bandaríkjanna, en nauðsyn-
legan. Búist var við að Katrín skylli
af fullum þunga á borgina í dag. Við
það er hugsanlegt að meirihluti
borgarinnar fari á kaf þar sem hún
stendur að mestu leyti tvo metra
undir sjávarmáli.
Stjórnarskrá tilbúin
Jalal Talabani, forseti Íraks, sagði
í gær að stjórnarskrá landsins væri
tilbúin og að hún yrði lögð í dóm
þjóðarinnar. Áætlað er að þjóð-
aratkvæðagreiðsla verði haldin 15.
október næstkomandi.
Drögin voru lögð fyrir íraska
þingið í gær, en ekki var kosið um
hana þar. Súnnítar andmæla enn
drögunum.
Snæfellsjökull hopar
Vegna hlýnandi veðurs und-
anfarin ár hefur Snæfellsjökull
minnkað mikið á síðustu 10 árum, að
sögn þeirra sem fylgst hafa með
jöklinum. Oddur Sigurðsson, jarð-
fræðingur segir ástæðulaust að ör-
vænta, jökullinn muni ekki hverfa á
næstunni þó hlýnun haldi áfram.
Stærsti lax sumarsins?
Tuttugu og sex punda hængur
veiddist í Laxá í Aðaldal á laug-
ardagskvöldið og að sögn leiðsögu-
manna í ánni er það stærsti lax sum-
arsins. Bandaríkjamaðurin Art Lee
veiddi laxinn og tók hann um 40 mín-
útur að landa honum. Lee hefur
margoft veitt í Laxá áður og ekki í
fyrsta sinn sem hann veiðir stærsta
lax sumarsins.
50 konur á heimsfundi
Um 50 konur munu sitja heims-
fund menningarráðherra sem hefst
á Hótel Nordica í dag. Þar af eru um
30 menningarráðherrar og fulltrúar
alþjóðasamtaka en fundurinn er
haldinn í tilefni 75 ára afmælis Vig-
dísar Finnbogadóttur fyrr á árinu.
Meðal gesta er Cherie Booth Blair,
eiginkona Tonys Blair, forsætisráð-
herra Bretlands.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 28/31
Vesturland 11 Myndasögur 28
Skotveiði 12 Víkverji 28
Viðskipti 13 Staður og stund 30
Erlent 14/15 Leikhús 34
Daglegt líf 16/17 Menning 32/37
Umræðan 18/19 Bíó 34/37
Bréf 19 Ljósvakar 38
Forystugrein 20 Veður 39
Minningar 22/26 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FYRSTU réttir haustsins fóru fram í Mývatns-
sveit í gær, en smölun hófst sl. fimmtudag í leið-
inda norðan slagviðri og þoku. Tvær réttir eru í
Mývatnssveit, Baldursheimsrétt og Reykjahlíð-
arrétt, og var réttað í þeim báðum í gær.
Fé hefur fækkað töluvert í Mývatnssveit á
undanförnum árum og í Baldursheimsrétt komu
nú aðeins 500 fjár. Þá eru bændur sunnan vatns
flestir komnir með fé í lokuð hólf sem hver hugs-
ar um og smalar fyrir sig.
Til Reykjahlíðarréttar komu um 2.500 kindur
sem mikill mannfjöldi sá um að draga í dilka.
Réttarstjóri var Leifur Hallgrímsson í Vogum og
í réttinni var þeim gamla sið viðhaldið að bjóða
gestum upp á kaffi og meðlæti í tjaldi. | 10
Morgunblaðið/BFH
Mývetningar rétta fyrstir allra
LÖGREGLUNNI á Akureyri barst í
gærmorgun tilkynning frá vegfar-
anda um að bifreið hefði farið út af
Ólafsfjarðarvegi skammt norðan
við bæinn Hvamm og hefðu 2 menn
verið í bifreiðinni. Þá kom fram að
menn þessir væru nú á gangi til
norðurs eftir veginum. Er lögregla
kom á vettvang voru þeir hvergi
sjáanlegir en sést hafði til ferða
þeirra við útihús á bæ í nágrenninu.
Leitaði lögreglan mannanna í dá-
góða stund á því svæði sem talið var
að þeir héldu sig en án árangurs.
Var því skipulagðri leit hætt en
vakt höfð áfram á svæðinu sem skil-
aði því að laust fyrir hádegi sást til
ferða mannanna á Ólafsfjarðarvegi
skammt frá þeim stað er óhappið
varð og voru þeir handteknir, kald-
ir og blautir eftir að hafa haldið
kyrru fyrir í fjallshlíðinni í um 5
klukkustundir. Voru þeir færðir á
lögreglustöðina á Akureyri þar sem
frekari rannsókn málsins fór fram.
Fram kom í máli mannanna að
þar sem þeir hafi verið á lánsbifreið
hafi þeir orðið skelkaðir og því flú-
ið af vettvangi og hírst í skógar-
kjarri þar til kuldinn var þeim
óbærilegur. Lofthiti á þessum slóð-
um var um 4 gráður og svalt í veðri.
Málið telst upplýst og eigandi bif-
reiðarinnar búinn að fá hana aftur
en þó í heldur verra ásigkomulagi.
Skelkaðir eftir
útafakstur
HEIMIR Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar, seg-
ir að hér sé ekki til neinn listi yfir
þau flugfélög sem ekki er treyst til
að fljúga í íslenskri lofthelgi.
Eins og fram kom í frétt Morg-
unblaðsins um helgina hafa stjórn-
völd í Frakklandi og Belgíu nýlega
ákveðið að birta lista yfir þau flug-
félög, sem af öryggisástæðum er
bannað að fljúga inn í lofthelgi
landanna. Áður hafa slíkir listar
verið birtir í Bandaríkjunum, Bret-
landi og Sviss.
Heimir Már segir að þessi mál
séu þó stöðugt í umræðunni og
bendir jafnframt á að þau flugfélög
sem séu á bannlista hinna landanna
fljúgi ekki hingað til lands.
Enginn bannlisti
hér yfir flugfélög
FL GROUP mun þurfa að endurnýja
flugvélaflota sinn eftir um sjö til tíu
ár, en núverandi floti hentar félaginu
vel, segir Ragnhildur Geirsdóttir,
forstjóri FL Group. Í septemberriti
tímaritsins Airliner World er rætt
við Ragnhildi og Jón Karl Ólafsson,
forstjóra Icelandair, og segir Jón
meðal annars að draumastærð á vél-
um fyrir félagið væru vélar sem
tækju á milli 140 og 150 farþega.
Ragnhildur segir ekki á dagskrá
að taka aftur í notkun minni vélar.
„Ástæðan fyrir því að þetta var
sagt er að gott væri að hafa aðeins
minni vélar, sérstaklega á veturna
þegar farið er inn á nýja markaði,“
segir hún. „En til að keyra núverandi
leiðakerfi eru Boeing 757-vélarnar í
raun þær einu sem geta uppfyllt okk-
ar þarfir.“
Horft til nýrra tegunda
Ragnhildur segir að félagið muni
þurfa að endurnýja flugvélaflota sinn
einhvern tímann á árunum 2012 til
2015.
„Þá munum við örugglega horfa á
nýjar tegundir af flugvélum sem ver-
ið er að hanna hjá Boeing og Airbus,“
segir hún. „Ef á allt væri kosið væri
ágætt að hafa aðeins minni vélar, en
eins og staðan er í dag eru þær ekki
eins langdrægar og geta ekki tekið
eins mikla þyngd, svo þær passa ekki
inn hjá okkur.“
Ragnhildur segir ekki koma til
greina að nota tvær mismunandi teg-
undir af vélum, enda ríki mikil
ánægja með árangurinn af því að
hafa aðeins eina tegund. Boeing 757
og 767 séu notaðar í dag og það liggi
ljóst fyrir að þær verði notaðar
áfram næstu árin, enda henti þær
mjög vel.
FL Group þarf að endur-
nýja flotann eftir 7–10 ár
HJÖRVAR Steinn Grétarsson, 12 ára, varð yngstur til
að vinna sér sæti í landsliðsflokki í skák þegar hann
tryggði sér sigur í áskorendaflokki Skáksambands Ís-
lands í gær.
Hjörvar hlaut tvo vinninga í flokknum en aðrir kepp-
endur urðu jafnir í öðru til fjórða sæti með einn og hálfan
vinning.
Hjörvar tapaði í sinni síðustu skák fyrir Guðlaugu
Þorsteinsdóttur en þeir Jón Árni Halldórsson og Har-
aldur Bjarnason gerðu jafntefli og tryggði Hjörvar sér
þar með titilinn. Með sigrinum sló hann met þeirra
Hannesar Hlífars Stefánssonar og Þrastar Árnasonar,
sem voru 13 ára þegar þeir unnu sér sæti í landsliðs-
flokk.
Meiri væntingar eftir sigurinn
Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Hjörvar vera
ánægður með þennan árangur. Hann segir að í kjölfar
sigursins verði eflaust gerðar auknar væntingar til sín
og hann þurfi því að æfa sig meira en áður.
Framundan hjá honum er hins vegar Norðurlandamót
í skólaskák í Ósló en þar keppir hann fyrir sveit Rima-
skóla. Keppnin hefst 8. september og hefur Rimaskóli
þar titil að verja, en sveit skólans vann titilinn í fyrra.
Hjörvar er að byrja í 7. bekk nú í haust og segir hann
skólann taka sinn tíma.
„Þegar ég á frí reyni ég að æfa mig í skákinni en námið
hefur forgang,“ segir Hjörvar. Aðspurður hvaða mark-
mið hann hafi sett sér í skákinni segist hann einkum
horfa til þess að verja Norðurlandameistaratitilinn í
næsta mánuði en framhaldið verði svo að koma í ljós.
„Ég ætla allavega ekki að hætta á næstunni, þegar það
gengur svona vel,“ segir Hjörvar.
Hann býst þó ekki við miklum árangri í landsliðs-
flokknum til að byrja með, enda keppir hann þar við
sterka mótherja.
„Þetta verður mjög erfitt en maður reynir að gera sitt
besta,“ segir skákmeistarinn ungi.
Hjörvar sigraði í áskorendaflokki Skáksambandsins
Yngstur í landsliðsflokk
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hinn ungi Hjörvar Steinn Grétarsson að tafli.