Morgunblaðið - 29.08.2005, Page 26
26 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGARRaðauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuherbergi
Til leigu rúmgott og snyrtilegt skrifstofu-
herbergi í Ármúla 29. Salerni og kaffistofa í
mjög góðri sameign. Góður staður.
Einnig 1—2 herb. á Suðurlandsbraut.
Upplýsingar gefur Þór í síma 899 3760.
Styrkir
Styrkir til leikskóla- og
grunnskólakennaranáms
Hreppsnefnd Höfðahrepps auglýsir eftir um-
sóknum um styrki til að stunda grunnskóla-
kennara- eða leikskólakennaranám.
Um er að ræða tvo styrki að upphæð 250 þús.
hvorn á ári til einstaklinga sem stunda fullt
staðnám í HÍ, KHÍ eða HA. Styrkirnir verða veitt-
ir með því skilyrði að viðkomandi einstaklingar
starfi að loknu námi, jafn mörg ár og styrktím-
anum nemur við grunnskólann eða leikskólann
á Skagaströnd.
Umsóknarfrestur er til 12. september nk.
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í
síma 452 2707.
Sveitarstjóri Höfðahrepps.
Tilboð/Útboð
Auglýsing um
deiliskipulag
Hvaleyrar, Hafnarfirði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi
sínum þann 8. febrúar 2005 að
auglýsa til kynningar deiliskipulag vegna
Hvaleyrar í Hafnarfirði í samræmi við 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
m.s.br.
Deiliskipulagið tekur til golfvallar Keilis á
Hvaleyri og á hrauninu þar fyrir vestan, lóðar
fyrir dælistöð fráveitu vestan golfvallarins og
strandlengjunnar allrar milli lóðar Alcan við
Straumsvík. Skipulagssvæðið afmarkast til
vesturs af lóð Alcan í Straumsvík, til suðurs af
veghelgunarsvæði Reykjanesbrautar í
núverandi legu að fyrirhuguðum
braðabirgðagatnamótum Reykjanesbrautar og
Krísuvíkurvegar og loks deiliskipulagsmörkum
íbúðarbyggðar á Hvaleyri til austurs.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá
29.ágúst - 26. september 2005. Nánari
upplýsingar eru veittar á umhverfis- og
tæknisviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar,
eigi síðar en 10. október 2005. Þeir sem ekki
gera athugasemd við breytinguna teljast
samþykkir henni.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveitar-
félagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma
585 5500 og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
Fréttir í tölvupósti
Systir okkar,
ÞYRI ÞORLÁKSDÓTTIR MYERS
lést á líknardeild Landakots 27. ágúst.
Ingi Sörensen,
Nanna Þorláksdóttir,
Helgi Þorláksson,
Ragnheiður Kristjana Þorláksdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA VILHELMÍNA DAVÍÐSDÓTTIR
frá Möðruvöllum í Hörgárdal,
lést föstudaginn 26. ágúst.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Mig langar að
minnast með örfáum
orðum hennar Sig-
rúnar.
Ekki að við höfum
verið svo góðar vin-
konur. Nei, það má kannski frekar
SIGRÚN EDDA
JÓNASDÓTTIR
✝ Sigrún EddaJónasdóttir
fæddist á Akureyri
11. október 1966.
Hún lést 19. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Glerárkirkju 26.
ágúst.
segja að við höfum
verið samferða í lífinu
smá stund. Ég minn-
ist hennar sem ást-
ríkrar móður sem
vildi allt fyrir börnin
sín gera. Ófáar eru
stundirnar sem við
höfum staðið á hlið-
arlínunni á hinum og
þessum fótboltavöll-
um landsins og hvatt
strákana okkar
áfram. Simmi og allir
hinir strákarnir í 4.
flokki Þórs á Akur-
eyri hafa misst góðan liðsmann og
hvatningskonu. En strákar, Sigrún
hefur ekki hætt að fylgjast með
ykkur né hætt að hvetja ykkur. Ég
minnist hennar líka á foreldrafund-
um í Síðuskóla þar sem við vorum
samferða í nokkur ár. Þar var það
eins og á fótboltavellinum. Börnin
hennar áttu einungis skilið það
besta. Ykkur börnunum og öðrum
aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð.
Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,
né blómstígar gullskrýddir alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngu til himinsins helgu borgar.
En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér birtu þó leiðin sér myrk.
Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(Höf. ók.)
Dýrleif Skjóldal.
Ég á svo erfitt með
að trúa því að nú sértu
farin frá okkur, það er
einfaldlega of sárt til
að vera satt en það er víst staðreynd
og nokkuð sem við verðum að sætta
okkur við og læra að lifa með. Ég
veit ekki hvar skal byrja enda erfitt
að lýsa svona einstakri manneskju
eins og þér. Þú varst manneskja með
stórt hjarta og vildir allt fyrir alla
gera og sérstaklega þá sem áttu
bágt. Þú varst þrjósk og sérstaklega
ef maður vildi ekki borða en alltaf fór
maður nú með fullan maga af góð-
gæti vegna þrjóskunnar í þér.
Ég minnist þeirra stunda er við
eyddum saman, allar eru þær jafn
æðislegar og gefandi. Það var alltaf
tekið vel á móti manni þegar maður
kom í heimsókn til þín, dekrað við
mann hægri vinstri. Það verður
vissulega skrýtin tilfinning, vægast
sagt ólýsanleg, að koma ekki við hjá
ömmu þegar maður á leið í gegnum
Keflavík. Ég tala nú ekki um þegar
við förum til útlanda, það að gista hjá
ömmu finnst mér bara regla áður en
maður fer út. Þú vaknaðir alltaf með
okkur, sama hvenær við áttum flug.
Þú varst alltaf komin á undan okkur
á fætur og búin að fylla borðið af
kökum og öðru góðgæti.
Þegar mamma og pabbi sögðu
GUÐMUNDÍNA
SIGUREY
SIGURÐARDÓTTIR
✝ GuðmundínaSigurey Sigurð-
ardóttir fæddist á
Eyjum í Kaldrana-
neshreppi í Stranda-
sýslu 1. janúar 1929.
Hún andaðist á
Landspítalanum 19.
júlí síðastliðinn og
fór útför hennar
fram í kyrrþey.
mér að þú hefðir
fengið hjartastopp
fannst mér veröldin
bara hrynja. Sama
hvað bjátaði á eða
hversu veik þú varst;
alltaf reistu upp aftur,
en í þetta skiptið
dugði það bara ekki,
hjartað gaf sig. Þegar
ég kom á spítalann til
þín vonaði ég alltaf
svo innilega að þú
gætir vaknað eitt
auknablik, svo ég
gæti sagt þér hvað
mér þætti vænt um þig, en því miður
varð ekki af því. Ég virti þig alla fyr-
ir mér þegar þú lást þarna alveg
ósjálfbjarga, það mátti ekki hafa
augun af þér því það gæti eitthvað
gerst. Við biðum öll og vonuðumst
eftir einhverjum jákvæðum fréttum
en því miður, þér hrakaði frekar. En
elsku amma mín, ég gæti skrifað
endalaust til þín, svo ég læt þetta
duga. Ég elska þig meira en orð fá
lýst, ég kveð þig hér með bæninni
okkar:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín
Steinunn Ragna.
Fallin er frá einstök manneskja.
Við systkinin nutum þeirra forrétt-
inda að alast upp í sama húsi og
Munda. Þegar við vorum lítil fluttum
við í sömu blokk og fljótlega mynd-
aðist vinskapur milli móður okkar og
hennar sem þróaðist yfir í mikinn
kærleika og sterkt vinarsamband.
Móðir okkar og Munda voru mjög
nánar vinkonur og hafði Munda á
orði þegar móðir okkar lést árið
2001, að eitthvað hefði dáið inni í sér
um leið. Það lýsir þeim sterku bönd-
um sem þær voru tengdar. Við
systkinin munum eftir okkur þegar
við komum heim úr skóla og á móti
okkur kom ilmandi kleinulykt frá
Mundu sem við nutum góðs af. Börn-
in okkar fengu að kynnast Mundu og
fannst alltaf gaman að koma til
hennar. Tekið var á móti okkur með
hlaðborði af bakkelsi þrátt fyrir að
heilsan væri ekki alltaf sem best.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Með þessum fallegu orðum Valdi-
mars Briem þökkum við Mundu fyr-
ir samfylgdina hér á jörðu. Nú hafa
vinkonurnar hist að nýju.
Börnum Mundu, barnabörnum og
ættingjum sendum við samúðar-
kveðjur.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Blessuð sé minning Guðmundínu
Sigurðardóttur. Kveðja
Hannesína, Svanur Már, Krist-
mundur og fjölskyldur þeirra.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningar-
greinar