Morgunblaðið - 29.08.2005, Qupperneq 34
Mikil ánægja og gleði ríktimeðal fjölmargra gestaHallgrímskirkju á laug-
ardagskvöldið sem leið þegar lista-
konan Rúrí flutti framlag sitt til
Kirkjulistahátíðar, en þar var um að
ræða gjörninginn „Röddun“ sem
Rúrí flutti í kirkjuskipinu. „Rödd-
un“ er viðamikið verk, en í því á sér
stað samruni gjörnings og marg-
miðlunarinnsetningar. Samtvinnast
þannig í því mörg listform.
Rúrí hafði tileinkað sér myndlist-
argjörning sem tjáningarform þeg-
ar hún kom fyrst fram á sjón-
arsviðið um miðjan sjöunda
áratuginn og á næstu árum framdi
hún fjölda gjörninga, sem hún flutti
jafnt á Íslandi sem erlendis, til að
mynda víða um Evrópu og í Norður-
Ameríku og nú síðast í Kína. Sex ár
eru liðin síðan Rúrí flutti síðast
gjörning á Íslandi.
Meðflytjendur í verki Rúríar voru
Hörður Áskelsson organisti Hall-
grímskirkju, Tjörvi Jóhannsson for-
ritari og hljóðmaður og Guðmundur
Vignir Karlsson fjöllistamaður.
Verkið birtist í mörgum víddum
og var gestum uppálagt að standa
ekki í stað, heldur flakka um kirkju-
skipið á meðan á flutningi þess
stæði.
Þetta er í fyrsta skipti sem Rúrí
sýnir verk af þessu tagi hér á landi
síðan hún hlaut þá miklu alþjóðlegu
viðurkenningu sem fólst í þátttöku
hennar í Tvíæringnum í Feneyjum
með verkinu Archive: Endangered
waters og viðtökum gesta hátíð-
arinnar við því.
Það er óhætt að segja að stemmn-
ingin hafi verið mögnuð í Hall-
grímskirkju og virtust gestirnir sér-
staklega ánægðir með leik Rúríar
að rými og hljómburði kirkjunnar.
Kirkjulistir | Rúrí flytur gjörninginn Röddun í Hallgrímskirkju
Viðamikill samruni fjölda listforma
Morgunblaðið/Eggert
Leikur ljóss og hljóðs flæddi um sali
kirkjunnar og skilningarvit gesta.
Ánægðir flytjendur eftir gjörninginn. Guðmundur Vignir Karls-
son, Hörður Ásgeirsson, Rúrí og Tjörvi Jóhannsson.
Gestirnir Thor Vilhjálmsson,
Erna Ragnarsdóttir og Jón
Júlíusson virtust hin ánægð-
ustu með gjörning Rúríar og
meðflytjenda hennar.
34 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
Sýnd kl. 4 ísl tal
Sýnd kl. 6 ísl tal
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Frábærtævintýri
fyrir alla
fjölskylduna!
Frábærtævintýri fyrir
alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 10.30 B.i 16 árakl. 4 og 6 Í þrívídd
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.50 og 10.10
Sýnd kl. 8 B.i 10 ára
KVIKMYNDIR.IS
I I .I
KVIKMYNDIR.COM
S.K. DV
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
kl. 5.20, 8 og 10.30
WWW. XY. IS
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.00
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.20 B.i 10 ára
Frábærtævintýri fyrir alla fjölskylduna!
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
BESTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Sýnd kl. 8 og 10.10
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
H.J. / Mbl.. . l.
DUKE-ÆTTIN í Hazzard, Georgíu,
er gengi fjallbrattra Suðurríkja-
manna þar sem frændurnir Luke
(Knoxville) og Bo (Scott) eru hvað
fyrirferðarmestir í frændgarðinum.
Þeir eru sleipir í kvennamálum,
kappakstri, slagsmálum og öðrum
þeim íþróttum sem virðast þykja
ósvikið ígildi karlmennsku þar
syðra. Ekki er kvenleggurinn síðri
því Daisy frænka (Simpson), er heit-
asta gella sýslunnar, og frænkur
hennar litlir eftirbátar í kvenlegum
yndisþokka. Heima á búgarðinum
situr ættarhöfðinginn Jesse
(Nelson), bruggar sinn eðallanda og
raular „On the Road Again“.
Vondu kallarnir eru glæpaforing-
inn Boss Hogg (Reynolds), og mein-
fýsið handbendi hans, Roscoe fógeti
(M.C. Gainey). Þeir sitja á svikráð-
um við bæinn sinn og íbúana og eru
jafnvel komnir vel á veg með að
sölsa undir sig ættaróðal Duke-anna
þegar þeir grípa til varnaraðgerða.
John O’Brien, höfundur handrits-
ins samdi einnig bíómynd byggða á
sjónvarpslöggunum Starsky og
Hutch og tókst þá mikið mun betur
upp, en Dukes of Hazzard sækir
einnig í þáttaröð sem naut vinsælda
um og upp úr ‘80.
Dukes á sína kafla og undirtekt-
irnar sýndu að hún virkar vel á yngri
aldurshópa og maður reynir að fljóta
með straumnum. Reynolds á augna-
blik sem minna á forna frægð, sömu-
leiðis söngdísin Simpson, Scott og
furðufuglinn Hefferman, en Knox-
ville (Jackass) er sýnu bestur og fær
óspart tækifæri að nýta innbyggða
ofvirknina sem allt snýst um. Flestir
líta út fyrir að vera á sterum, bílarn-
ir líka.
Sem betur fer er engin tilraun
gerð til að halda uppi vitrænum
söguþræði, en myndin látin rúlla
áfram í nánast óslitinni röð yfir-
gengilegs hasars og fíflaláta. Kylfa
ræður kasti hvort útkoman fær
mann til að líta á klukkuna eða brosa
út í annað, Fyndnasti kaflinn kemur
í blálokin, þegar áhorfendur eru að
tínast út úr salnum, í sömu atriðum
fær goðsögnin Nelson að njóta sín
með gítarinn, það hefði mátt vera
meira af slíku. Ekki má gleyma af-
rekum gamla Chargersins og
áhættuleikaranna, þeir stela líklega
senunni.Tveir góðir saman, áreiðanlega að bralla eitthvað misjafnt: Luke og
Bo Duke, Johnny Knoxville og Seann William Scott.
Ofvirkur Suður-
ríkjavargur
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Jay Chandrasekhar. Aðalleik-
arar: Johnny Knoxville, Seann William
Scott, Jessica Simpson, Burt Reynolds,
Joe Don Baker, Lynda Carter, Willie
Nelson, Kevin Heffernan. 105 mín.
Bandaríkin. 2005.
The Dukes of Hazzard Sæbjörn Valdimarsson