Morgunblaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 35
Sýnd kl. 8 og 10.30
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Frábærtævintýri
fyrir alla
fjölskylduna!
Frábærtævintýri fyrir
alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 6 ísl tal
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu
Miðasala opnar kl. 17.15
Sími 551 9000
Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 10.15 B.i.14 áraSýnd kl. 10.30 B.i. 16 Sýnd kl. 6 Í þrívídd
Sýnd kl. 5.30 og 8 B.i 10 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i 16 ára
H.J. / Mbl.. . l.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG ÍSLANDI
☎553 2075
-S.V. Mbl.
-S.V. Mbl.
-dv-
S.U.S. XFM
flottur tryllir
-KVIKMYNDIR.IS
WWW. XY. IS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i 10 ára
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í
USA OG
ÍSLANDI
I
I Í
Í I
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Frábærtævintýri fyrir alla fjölskylduna!
Sýnd kl. 5.30 ísl tal
VINCE VAUGHN OWEN WILSON
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 35
Áþessu bíókvöldi vildi þaðtil að bíófélagar fundufyrir rælni dásamlegafranska grínmynd, sama
dag og henni var hleypt af stokk-
unum. Hún heitir La Cloche a
Sonné (Klukkan kallar) með snilld-
arleikaranum Fabrice Luchini.
Þessi mynd fannst í hæfilega
ruskulegu bíóhúsi með tólf sölum
við vegkantinn skammt frá Béz-
iers. Það hafði ekki staðið sér-
staklega til að fara í bíó, en það
var nú einu sinni miðvikudagur, sá
vikudagur þegar nýjar myndir eru
teknar til sýninga. Það sem lokk-
aði okkur við þessa huldumynd var
Fabrice Luchini. Jú og svo mátti
athuga hvernig til tækist með efn-
ið, gúrú sem tekur hóp til alhliða
meðferðar í einangrun á sveita-
setri. Bíófélagar voru ákveðnir í
því að fara bara út ef það yrði leið-
inlegt.
Það vildi svo vel til að bíófélagar
voru einir í salnum þetta síðdegi.
Hins vegar lét myndin á sér
standa og þegar klukkan var orðin
tíu mínútur yfir fórum við alla leið
niður í anddyri og hnipptum í ein-
hvern. Það hreif, og bíófélagar
breiddu úr sér í heilum sal, töluðu
hátt saman og hlógu eins og hýen-
ur.
Fabrice Luchini er beturþekktur fyrir annað engamanleik. Hann erfrægur úr myndum
Erics Rohmer og fyrir sviðsleik,
þar á meðal fyrir túlkun á textum
helstu skáldjöfra Frakklands. En
frammistaða hans í gríninu í
Klukkan kallar er líka alveg maka-
laus. Hann býr til þann ámátleg-
asta meðferðargúru sem hægt er
að ímynda sér, með runu af ólík-
indalegum svipbrigðum sem eru
svo hárnákvæm að hyldjúpt ruglið
á bak við þau er alltaf skiljanlegt.
Allt snýst um það hjá gúrúnum að
hafa stjórn á hópnum, að vera
sjálfur ofan á í hverri grein, með
sadistísku ívafi. Og þátttakendur
svo kurteisir og saklausir eins og
fólk er að það er í hæsta lagi einn
sem sér í gegnum húmbúkkið.
Sérstaklega vegna leikafreksins
hjá aðalmanninum ráðlegg ég
þeim sem hafa tök á að skoða
þessa mynd sem er nú verið að
sýna í meira en tvöhundruð bíósöl-
um í Frakklandi. Það fer sem sagt
lítið fyrir henni í fjölmiðlunum.
Það er segin saga hvernig þeir láta
mata sig í staðinn fyrir að fara
sjálfir á stúfana. Og ekki annað að
gera fyrir neytendur en að hafa úti
sína eigin þreifara og treysta
þeim.
Bíófélagar komust að því eftir á
að þeir eru ekki alveg einir um að
hafa sælir farið að sjá þessa bíó-
mynd, því hún fékk þrjár stjörnur
af fjórum í helsta kvikmynda-
tímariti Frakka, Cahiers du
Cinema og stór orð höfð um leik
Fabrice Luchini.
Það er ekkert grín þegarFrakkar taka sig til ígríninu, samanber þessatilteknu mynd, og Les
Visiteurs, svo eitthvað sé nefnt,
eða snilldarmyndirnar með Pierre
Richard, þeim ljóshærða. Bíó-
félagar eru nýbúnir að sjá eina
þeirra í sjónvarpi. Hún heitir Stóri
ljóshærði maðurinn í einum svört-
um skó. Þetta er sígild grínmynd
um leyniþjónustufólk og miður
gáfuleg tiltæki á þess vegum.
Dásamlegt franskt háð sem óhætt
er að mæla með fyrir alla fjöl-
skylduna.
B í ó k v ö l d í B é z i e r s
Dásamlegt franskt háð
Eftir Steinunni Sigurðardóttur
FYRSTA haustlínan sem Stella McCartn-
ey hefur hannað fyrir Adidas kemur í
verslun fyrirtækisins í Kringlunni í vik-
unni. Adidas og Stella McCartney til-
kynntu á síðasta hausti um upphafið á
samstarfi um vöruþróun og hönnun á
íþróttavörum fyrir konur. Hugsunin á
bak við þessa vörulínu er að láta gæði,
þægindi og kvenleika fara saman. Fötin
þykja bæði flott hönnuð og henta vel til
íþróttaiðkunar. Sumir nota þau jafnvel
sem föt til daglegrar notkunar. Línan er
þegar komin á markaði í völdum versl-
unum í Asíu, Bandaríkjunum og Evrópu
við góðar viðtökur.
„Aðaláherslurnar í haustlínunni 2005
eru hlaupa-, leikfimi- og sundfatnaður
ásamt íþróttaskóm og fylgihlutum. Að-
eins eru sex verslanir á Norðurlönd-
unum sem fá að hafa þessa línu á boð-
stólum, ein þeirra er Adidas Concept
Store í Kringlunni, “ segir í tilkynning-
unni en salan hefst næstkomandi laug-
ardag.
„Konur taka bæði íþróttaiðkun sína og
persónulegan stíl mjög alvarlega,“ hefur
varið haft eftir Stellu McCartney: „Því
skyldum við þurfa að fórna einu fyrir
annað?“
McCartney, sem er dóttir Bítilsins
Pauls, hefur áður hannað skó fyrir
Adidas í takmörkuðu upplagi. Hún hann-
ar einnig fyrir eigið tískuhús, Stella
McCartney.
Tíska | Stella McCartney hannar fyrir Adidas
Dæmi um hönnun í haustlínu Stellu McCartney fyrir Adidas.
Stella sjálf við kynningu á nýju línunni en hún vill ekki að konur
þurfi að fórna tískutilfinningu sinni í leikfimissalnum.
Kemur til landsins í vikunni
www.adidas.com/stellamccartney