Morgunblaðið - 31.08.2005, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 31.08.2005, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 C 3 LA ND SB AN K AD EI LD IN ÞRÍR nýliðar eru í 21 árs lands- liðshópnum í knattspyrnu sem mætir Króötum á KR-vellinum á föstudaginn og Búlgaríu í Sofia á þriðjudaginn kemur. Leikirnir eru liðir í Evrópukeppninni í þessum aldursflokki. Andri Júlíusson, sóknarmaður úr ÍA, Andri Ólafsson, miðjumað- ur úr ÍBV, og Ingvar Þór Kale, markvörður úr Víkingi R., eru allir í hópnum í fyrsta skipti. Tveir af sterkustu leikmönnum liðsins eru fjarri góðu gamni, þeir Hannes Þ. Sigurðsson frá Viking Stavanger sem er meiddur á ökkla, en hann hefur skorað 6 af 7 mörkum Íslands í keppninni, og fyrirliðinn Ólafur Ingi Skúla- son frá Brentford sem sleit kross- band fyrr í þessum mánuði. Auk nýliðanna þriggja eru eft- irtaldir leikmenn í 18 manna hópi sem Eyjólfur Sverrisson, þjálfari 21 árs liðsins, valdi fyrir þessi verkefni: Bjarni Halldórsson (Fylki), Davíð Þór Viðarsson (FH), Sig- mundur Kristjánsson (KR), Viktor Bjarki Arnarsson (Fylki), Emil Hallfreðsson (Tottenham), Sölvi Geir Ottesen (Djurgården), Hörð- ur Sveinsson (Keflavík), Steinþór Gíslason (Val), Gunnar Þór Gunn- arsson (Fram), Tryggvi Bjarna- son (KR), Jónas Guðni Sævarsson (Keflavík), Pálmi Rafn Pálmason (KA), Ragnar Sigurðsson (Fylki), Garðar B. Gunnlaugsson (Val) og Helgi Pétur Magnússon (ÍA). Eyjólfur valdi þrjá nýliða fyrir verkefnin framundan HANNES Þ. Sigurðsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, heldur nú í vonina um að samningar náist á milli Viking í Noregi og Stoke City, svo hann geti haldið strax til Englands og hafið æfingar með nýju liði sínu. Á miðnætti í kvöld rennur fresturinn út fyrir félaga- skipti en þegar Morgunblaðið náði tali af Hannesi í gærkvöldi var Viking ekki búið að svara tilboði Stoke. „Það síðasta sem ég vissi var að félögin eiga í viðræðum og fyrr í kvöld kom tilboð frá Stoke en ég veit ekki hvort eða hvernig Viking hefur svarað því,“ sagði Hannes og vonaðist til að koma FH-ingsins Allans Borgvard til Viking liðkaði fyrir málunum. „Það ætti að hjálpa til enda ástæðan sem upphaflega var gefin skortur á framherjum. Ég held þó að það muni voðalega litlu á milli félaganna, aðallega að þau nái að sættast á eitthvað ákveðið svo allir fari frá borðum sáttir,“ sagði Hannes og reiknaði með að fljúga út til Englands í dag í læknisskoð- un ef allt gengi að óskum. Málin að skýrast hjá Hannesi Rúnarsson, sem skoraði sitt annað mark á tímabilinu. Fylkismenn léku oft á tíðum vel úti á vellinum en voru ekki á skotskónum uppi við mark Keflvíkinga. Varnarmenn liðs- ins stóðu fyrir sínu, einkum Valur Fann- ar og Ragnar Sigurðsson, Viktor Bjarki Arnarsson var sprækur framan af leik en Helgi Valur Daníelsson og Björgólfur Takefusa, tveir af lykilmönnum liðsins, náðu sér ekki fyllilega á strik. Jákvæðu fréttirnar fyrir Fylki eru þær að Haukur Ingi Guðnason og Ólafur Stígsson eru stignir upp úr erfiðum meiðslum – Hauk- ur Ingi byrjaði inná í fyrsta skipti en fékk högg á síðuna og þurfti að fara útaf og Ólafur lék síðasta hálftímann sínar fyrstu mínútur í sumar. Keflvíkingar geta verið sælir með stig- in þrjú ef mið er tekið af leiknum. Þeir voru í varnarhlutverki lengst af leiknum. „Þolinmæði er dyggð“ eru fleyg orð sem rötuðu úr munni fyrrverandi þjálfara liðsins, Guðjóns Þórðarsonar, og það átti vel við um leik Suðurnesjamanna í gær. Guðmundur Viðar Mete og Jónas Guðni Sævarsson léku vel í skipulagðri vörn, Hólmar Örn var lunkinn og gerði marga fína hluti og þá er vert að minnast á frammistöðu aldursforsetans, Gests Gylfasonar sem var óhemjuduglegur og stöðvaði ófáar sóknir Árbæinga. inná fyrir Hauk Inga Guðnason í upphafi síðari hálfleiks, skaut framhjá úr góðu færi. Það var eins og Fylkismenn misstu móðinn eftir þessa atlögu og Keflvíking- ar náðu smátt og smátt að komast inn í leikinn. Hörður Sveinsson fékk besta færi þeirra á 69. mínútu þegar hann komst einn á móti Bjarna Halldórssyni, markverði Fylkis, en Bjarni sá við Herði og varði skotið. Sjö mínútum síðar kom Bjarni hins vegar engum vörnum við þegar hinn útsjónarsami Hólmar Örn Rúnarsson smeygði sér framhjá sofandi leikmönnum Fylkis og skoraði eftir fyr- irgjöf frá varamanninum Guðjóni Anton- íussyni. Þær mínútur sem eftir voru héldu Keflvíkingar fengnum hlut og þeir fögnuðu gríðarlega þegar Eyjólfur Magnús Kristinsson flautaði til leiks- loka. Takmarkið er þriðja sætið ,,Þetta var virkilega sætur sigur. Við kvöddum fallbaráttuna endanlega og settum pressu á Skagamennina í keppn- inni um þriðja sætið. Við höfum sett okk- ur það takmark að taka þriðja sætið og þessi sigur var því lífsnauðsynlegur. Við áttum lengi vel undir högg að sækja og Fylkismenn sköpuðu sér nokkur fín færi en við vorum þolinmóðir og hættulegir þegar á leikinn leið,“ sagði Hólmar Örn par Fylk- bænum Morgunblaðið/Árni Torfason öggi við Guðmund Viðar Mete á Árbæjarvelli í gær. BANDARÍSKA körfuknattleiks- konan Reshea Bristol hefur gert samning við Íslandsmeistara Keflavíkur um að hún leiki með liðinu á komandi tímabili. Bristol er ekki ókunnug Keflavíkurliðinu því að hún lék með liðinu fram til jóla á síðustu leiktíð en þurfti að halda til síns heima af persónu- legum ástæðum. Keflavíkurliðið, sem tapaði ekki leik með Bristol innanborðs, tapaði fjórum leikjum í röð við brotthvarf hennar en lið- inu tókst að ná áttum á nýjan leik og tryggja sér Íslandsmeistaratit- ilinn. Bristol skoraði 21,5 stig að með- altali í leikjunum tólf sem hún lék með Suðurnesjaliðinu á síðustu leiktíð og var lykilmaður liðsins í vörn sem sókn. Bristol aftur í Keflavík Fylkir 0:1 Keflavík Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla, 16. umferð Árbæjarvöllur Þriðjudaginn 30. ágúst 2005 Aðstæður: Hægur andvari, skýjað og 9 stiga hiti. Völl- urinn háll en góður. Áhorfendur: 955. Dómari: Eyjólfur Magnús Kristinsson, FH, 4. Aðstoðardómarar: Einar Guðmundsson, Sigurður Óli Þórleifsson Skot á mark: 19 (6) - 14 (8) Hornspyrnur: 3 - 7 Rangstöður: 3 - 6 Leikskipulag: 4-3-3 Bjarni Halldórsson M Ragnar Sigurðsson M Valur Fannar Gíslason M Hrafnkell Helgason Gunnar Þór Pétursson M Viktor Bjarki Arnarsson M Helgi Valur Daníelsson Jón B. Hermannsson (Christian Christiansen 77.) Eyjólfur Héðinsson (Ólafur Ingi Stígsson 60.) Björgólfur Takefusa Haukur Ingi Guðnason (Kjartan Ágúst Breiðdal 49.) Ómar Jóhannsson M Jónas Guðni Sævarsson M Kenneth Gustafsson Guðmundur Viðar Mete M Branislav Milicevic (Guðjón Árni Antoníusson 46.) Hólmar Örn Rúnarsson M Gestur Gylfason Baldur Sigurðsson M Hörður Sveinsson M Guðmundur Steinarsson (Stefán Örn Arnarson 83.) Símun Samuelsen (Issa Abdulkadir 68.) 0:1 (76.) Guðjón Árni Antoníusson átti góða fyrirgjöf fyrir mark Fylkis frá vinstri kanti á Hólmar Örn Rúnarsson sem skoraði af stuttu færi. Gul spjöld: Eyjólfur Héðinsson, Fylki (6.) fyrir brot  Kenneth Gustafsson, Keflavík (42.) fyrir brot  Gestur Gylfason, Keflavík (70.) fyrir brot Rauð spjöld: Engin Guðni Rúnar í fríi frá Fylki GUÐNI Rúnar Helgason, knattspyrnumaður úr Fylki, er kominn í frí hjá félaginu til áramóta vegna ósættis við Þorlák Árnason þjálf- ara. Guðni Rúnar er samningsbundinn Fylki út tímabilið 2006 en Þorlákur hættir störfum að þessu tímabili loknu, eins og fram kem- ur á öðrum stað í blaðinu. „Það kom upp ósætti á milli þeirra og orð féllu á þann hátt að það var ljóst að samstarfið gekk ekki upp. Eftir viðræður við Guðna óskaði hann eftir fríi til áramóta og hann hyggst reyna að komast að erlendis til að spila út þetta tímabil,“ sagði Ásgeir Ásgeirsson, formaður knattspyrnudeildar Fylkis, við Morgunblaðið í gær. Guðni Rúnar er 29 ára og var að ljúka sínu öðru tímabili í röðum Fylkismanna en hann kom til þeirra frá Val. Áður hafði hann spilað með ÍBV í efstu deild, með norsku liðunum Start og Hönefoss, þýska liðinu Wattenscheid og var einnig um tíma á unglingasamn- ingi hjá Sunderland í England. JOHN Terry, fyrirliði Englands- meistara Chelsea, dró sig í gær út úr enska landsliðshópnum sem mætir Wales og N-Írlandi í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Terry meiddist á hné í leik Chelsea og Tottenham um síðustu helgi og ljóst er að hann verður frá í allt að fjórar vikur. Zat Knight, varnarmaður Ful- ham, hefur verið valinn í hópinn í stað Terrys en líklegt er að Jamie Carr- agher eða Matthew Upson taki stöðu Terrys í miðvarðarstöðunni og leiki þar við hlið Rio Ferdinands. Þá er Steven Gerrard, fyrirliði Liv- erpool, tæpur vegna meiðsla sem hann hlaut í leik Liverpool og CSKA Moskva um síðustu helgi og hefur ekki æft með öðrum leikmönnum undanfarna daga. Terry ekki með enska landsliðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.