Morgunblaðið - 31.08.2005, Side 4
ALLAN Borgvardt, danski
knattspyrnumaðurinn sem
hefur leikið með FH und-
anfarin þrjú tímabil, skrifaði í
gær undir hjá Viking Stav-
anger í Noregi, eftir að hafa
gengist undir læknisskoðun
hjá félaginu. Samningur hans
gildir út þetta tímabil en Erik
Forgaard, stjórnarmaður hjá
Viking, sagði við vef félagsins
að ekki væri um neinar
greiðslur að ræða að sinni, en
ef samið yrði við hann áfram
að tímabilinu loknu, yrði FH
greidd fyrir hann ákveðin
upphæð.
Borgvardt getur byrjað að
spila með Viking þegar liðið
mætir Rosenborg í úrvals-
deildinni 10. september. Hann
má ekki leika með félaginu í
UEFA-bikarnum þar sem
hann spilaði með FH í for-
keppni Meistaradeildar Evr-
ópu í sumar.
Borgvardt
skrifaði
undir í
Stavanger
SINISA Valdimar Kekic, Grinda-
vík, Mounir Ahandour, Grindavík,
Haukur Páll Sigurðsson, Þrótti, og
Ingvar Ólason, Fram, voru úrskurð-
aðir í eins leiks bann á fundi aga-
nefndar KSÍ í gær Kekic, Ahandour
og Haukur missa af leik Grindvíkur
og Þróttar og Ingvar missir af leik
Fram gegn Keflavík.
HANS Fróði Hansen, Petr Podz-
emski og Olgeir Sigurgeirsson, allir
úr Breiðabliki, voru úrskurðaðir í
eins leiks bann og aðrir leikmenn úr
1. deildinni sem taka út eins leiks
bann í næstsíðustu umferðinni eru:
Þórður Jensson, HK, Þórsararnir
Lárus Orri Sigurðsson og Ingi
Hrannar Heimisson og Suad Begic,
Víkingi Ólafsvík. Þá var Íris Andr-
ésdóttir, fyrirliði Vals, úrskurðuð í
eins leiks bann.
NÝJU útlendingarnir voru áber-
andi um síðustu helgi þegar Valur
sigraði Fram, 32:31, í úrslitaleiknum
á Opna Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik karla. Sergeiy Serenko frá
Úkraínu skoraði 10 mörk fyrir
Framara og hinn franski Mohamadi
Loutoufi skoraði 8 mörk fyrir Vals-
menn. Loutoufi er smávaxinn, að-
eins 1,67 m á hæð, en spilar samt
sem skytta og þykir sérlega snöggur
og skemmtilegur leikmaður.
FRÍÐA Rún Þórðardóttir, hlaup-
ari úr ÍR, vann til bronsverðlauna í
800 m hlaupi í flokki 35–39 ára á HM
öldunga í fyrradag, en mótið fer
fram í San Sebastian á Spáni. Fríða
hljóp á 2:18,10 mín, sem er hennar
besti tími á þessu ári. Sigurtíminn í
hlaupinu var 2:15,66 mín og annað
sæti 2:17,36 mín.
KRISTJÁN Gissurarson, stangar-
stökkvari úr Breiðabliki, tók þátt í
stangarstökki í flokki 50–-54 ára á
HM, en hann felldi byrjunarhæð
sína, sem var 3,80 metrar. Sigurveg-
arinn stökk 4,25 m og sá sem varð í
öðru sæti stökk 4,00 m.
HOLLENDINGURINN WILF-
RED Bouma hefur skrifað undir
þriggja ára samning við enska úr-
valsdeildarliðið Aston Villa og fær
PSV Eindhoven þrjár og hálfa millj-
ón punda, rétt tæpar 400 milljónir ís-
lenskra króna, í sinn hlut fyrir varn-
armanninn.
FÓLK
Þróttur er fallinn úr efstu deild í10. skipti, og það eru nákvæm-
lega 50 ár síðan það gerðist fyrst, ár-
ið 1955. Þróttarar voru þá á meðal
þeirra sex liða sem skipuðu efstu
deildina á fyrsta ári deildaskipting-
arinnar, og urðu þess vafasama heið-
urs aðnjótandi að verða fyrsta liðið í
sögu íslenskrar knattspyrnu sem féll
um deild. Það var þriðja árið sem
þeir sendu lið í keppnina um Íslands-
meistaratitilinn. Frá þeim tíma hafa
Þróttarar níu sinnum unnið sig upp í
efstu deild og eru nú sem sagt fallnir
í 10. skipti. Átta sinnum hafa þeir
fallið eftir aðeins eitt ár í deildinni en
tvisvar hefur Þrótturum tekist að
leika þar í þrjú ár, 1978–1980 og
1983–1985. Eftir fyrsta fallið árið
1955 féllu þeir á fyrsta ári haustin
1959, 1964, 1966, 1976, 1998, 2003 og
loks 2005.
Breiðablik er komið upp í efstu
deild í áttunda skipti frá því félagið
vann sig upp í fyrsta skipti haustið
1970. Breiðablik lék fyrst í næstefstu
deild 1957 og síðan samfleytt frá
1960. Sjö sinnum hefur Kópavogslið-
ið fallið en aðeins einu sinni, 1986,
gerðist það á fyrsta ári. Breiðabliki
hefur oftast tekist að halda sér uppi í
þrjú ár, það hefur gerst fjórum sinn-
um, og einu sinni í fimm ár, frá 1980
til 1984.
Upp í úrvalsdeild að ári?
Breiðablik jafnaði á dögunum met
Þróttar, en félögin tvö hafa oftast
allra unnið næstefstu deildina, 6
sinnum hvort. FH, Keflavík, ÍBA
(Akureyri) og Víkingur R. hafa unn-
ið hana 4 sinnum hvert félag og ÍBV,
Fylkir og Fram þrisvar hvert.
Ef tekið er mið af sögunni eru
mestar líkur á að Þróttarar komi aft-
ur upp í úrvalsdeildina að ári og
Breiðablik spili þar næstu þrjú árin.
Þróttarar fallnir
í tíunda skipti
ÞRÓTTARAR eru fallnir úr úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Það lá
fyrir þegar flautað var til leiksloka í leik Vals og ÍBV í fyrrakvöld.
Breiðablik hefur þegar tryggt sér sæti í deildinni í staðinn og er
meistari 1. deildar. Það er óhætt að segja að þessi tvö félög gjör-
þekki þessa stöðu því þau hafa oftast allra ferðast á milli tveggja
efstu deildanna. Þróttarar undanfarna hálfa öld og Blikarnir síðustu
35 árin.
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Það var allt annað uppi á teningn-um núna miðað við fyrri leikinn
og bara nokkuð góður leikur sem við
lékum í kvöld,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson landsliðsþjálfari í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn í gær.
„Við spiluðum meirihlutann af
leiknum frábærlega og stóðum vel í
Kínverjunum. Munurinn á milli
leikja hjá okur var fyrst og fremst að
við vorum miklu einbeittari núna en í
fyrri leiknum. Við hittum líka miklu
betur og það er auðvitað rosalega
gott fyrir okkur að sjá að við getum
staðið í svona liði á þeirra heima-
velli,“ sagði Sigurður.
Íslenska liðið mætti ákveðið til
leiks í gær og var 24:22 yfir eftir
fyrsta leikhluta, en náðu ekki að
fylgja því nægilega vel eftir og
heimamenn voru 52:43 yfir í leikhléi
og munurinn var orðin 20 stig í lok
þriðja leikhluta, 82:62. Í síðasta leik-
hlutanum náði íslenska liðið aðeins
að rétta sinn hlut og vann leikhlutann
18:14 og lokatölur því 96:80.
Stóru mennirnir
í villuvandræðum
„Við lentum í villuvandræðum í
leiknum. Friðrik [Stefánsson] lenti í
miklum vanda og við hefðum alveg
þegið að hafa hann meira með en
hann lék í átján mínútur. Hlynur
[Bæringsson] fékk líka fimm villur
en átti stórleik eins og Magnús [Þór
Gunnarsson] og þeir tveir voru hyllt-
ir vel og lengi af áhorfendum, sem
kunnu vel að meta frammistöðu
þeirra og fleiri leikmanna reyndar.
Magnús var stigahæstur með 21 stig.
Jón Arnór [Stefánsson] átti líka stór-
leik í kvöld,“ sagði Sigurður.
Helsta stjarna Kínverja, hinn
tröllvaxni leikmaður Houston Rock-
ets, Yao Ming, lék minna í þessum
leik en þeim fyrri en það var vegna
þess að hann átti ekki eins góðan
dag. Hann skoraði 15 stig og tók 7
fráköst.
Kínverska liðið er engin smásmíði
því í liðinu eru átta leikmenn yfir tvo
metra, Ming þeirra hæstur enda 228
sentimetrar og 140 kíló. En íslenska
liðinu gekk ágætlega að stöðva þá há-
vöxnu. „Við tókum fleiri fráköst en
Kínverjarnir í báðum leikjunum og
það segir ýmislegt um hversu mikill
kraftur var í okkar mönnum. Hlynur
var með flest fráköst allra á vellinum
í báðum leikjunum, tók 11 fráköst í
kvöld,“ sagði Sigurður.
Ótrúleg upplifun og
ógleymanleg
Hann sagði að ferðin til Kína yrði
öllum leikmönnum ógleymanleg.
„Þetta er búið að vera alveg ótrúleg
upplifun. Móttökurnar sem við höf-
um fengið eru til mikillar fyrirmynd-
ar og maður vissi að Kínverjar væru
fjölmennir en nú sér maður það svart
á hvítu hversu fjölmenn þjóð þetta
er. Við erum nú búnir að keyra í rút-
unni frá íþróttahöllinni í talsverðan
tíma og það er ennþá fullt af fólki í
kringum rútuna til að reyna að sjá
kínversku leikmennina – og okkur
reyndar líka. Þetta er mikið fjör og
alls ekki eins og við eigum að venjast
og ég held að í rauninni sé þetta ekki
svona á mörgum stöðum í heiminum.
Það var auðvitað uppselt á báða leik-
ina og þúsundir manna utan við báð-
ar hallirnar löngu fyrir og eftir leik-
ina,“ sagði Sigurður.
Leikmenn fóru á hótelið eftir leik-
inn í gær en héldu síðan árla morg-
uns til Peking þaðan sem flogið verð-
ur í dag til Kaupmannahafnar og
Keflavíkur en áætlað er að lenda þar
seint í kvöld. „Það er tæplega tveggja
tíma flug frá Harbin til Peking þann-
ig að þetta verður dálítið langt ferða-
lag hjá okkur,“ sagði Sigurður.
Aðalleikurinn á laugardaginn
Íslenska liðið mætir Dönum í Evr-
ópukeppninni á laugardaginn og
hefst leikurinn klukkan 14 í Keflavík.
„Nú er það alvaran og ef við leikum
svona á laugardaginn erum við í
virkilega góðum málum. Við verðum
að nota ferðalagið heim til að stilla
okkur inná þennan leik við Dani sem
er aðalleikurinn fyrir okkur. Við ætl-
um að vinna þann leik þannig að við
eigum möguleika á að komast áfram.
Leikurinn er snemma á laugardag-
inn og við viljum endilega fá fullt hús
í Keflavík enda er allur stuðningur
góður,“ sagði Sigurður.
Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari ánægður með Kínaferðina
Góð æfing fyrir
leikinn gegn Dönum
ÍSLENSKA landsliðið í körfuknattleik karla tapaði síðari leiknum
gegn Kínverjum 80:96 í gær, en leikið var í borginni Harbin. Ís-
lenska liðið var 24:22 yfir eftir fyrsta leikhluta en staðan í leikhléi
var 52:43, Kínverjum í vil.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Reuters
Kínverski risinn Yao Ming reynir að skjóta yfir Friðrik Stef-
ánsson sem aðeins lék í átján mínútur vegna villuvandræða.