Mánudagsblaðið - 04.11.1968, Page 2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 4. nóvember 1968
Þjóðleikhúsið: 1
unangsilmur
Höf.: Shelagh Delanev. Leikstj.: Brian Murphy.
Svo er að sjá, að fleira þurfi en
gott leikritaval og sæmilegan leik
til að fá fólk til að sækja Þjóðíeik-
h'úsið. Eftir fremur lélegt leikár í
fyrra og áfleita byrjun í ár, þá
frumsýndi leikhúsið HUNANGS-
ILM eftir Shelagh Delaney, fyrir
rösklega hálfu húsi og við þokka-
legar en alls ekki yfir góðar und-
irtektir.
Hunangsilmur Þjóðleikhússins
er endurupptaka af Litla sviðiny,
en þar var sýningum hætt vegna
veikinda Helgu heitinnar Valtýs-
dóttur. Var nú Ieiknum rumpað
upp af skyndingu, enskur leikstjóri,
Brian Murphy, fenginn að utan og
verkinu dembt hálfæfðu á sviðið.
Er hér um að ræða freklega ósvífni
í garð leikhúsgesta, því betur er
heima setið en af stað farið í svona
tilfellum, þótt heppnin væri að
nokkru leyti með í þetta skiptið.
Hunangsilmur er ein af þessum
þjóðfélagsádeilum, þar sem sorinn
er nýttur til að gefa stemningu og
gripið til nýjustu sjúkdómanna,
kynþáttavandamálanna, og þeim
blandað þar til áherzlu og áróðurs,
og enn er drepið á kynvillu til að
allir fái sitt. Nokkrar breytingar
hafa orðið frá fyrri uppsetningu,
flestar, éinkum varðandi sviðsetn-
ingu til bóta, en sumar skera niður
nokkuð persónulýsingu t.d. Helen-
ar. Hráðinn er góður, lýsing og
hljómlist Carl Billichs, en leikend-
ur náðu ekki fyllilega kröfum leiks
ins t.d. óbeinum ávörpum til á-
horfenda og er þar vitanlega um
að kenna að ekki var nægilega æft.
Nokkur áhrif hefur það, að sviðið
er miklu stærra en þegar þessir leik
arar fullæfðu þáð á Litla sviðinu,
en það kemur þó ekki svo mjög að
sök. Höfundur er ófeimimi, hressi-
legur í orði og verki, penpíuskapur
er þar enginn farartálmi, en, eins
og vant er, verður allt hrjúft orð-
far enn hrjúfara í okkar málfari,
við náum ekki brezkum orðtökum
það vel, að það sé sambærilegt við
dreggjarnar úr því brezka, þótt
ekki sé það sérlega fíngert.
Mest mæðir í leiknum á Þóru
Friðriksdóttur, Helenu, gleðikonu
og röskfeikamanneskju, sem er fylli
Iega ákveðin í að njóta gæðanna
hérna megin og allsendis ófeimin
að láta þá skoðun í ljós athafna-
Iega, þótt við dótturina sé að eiga.
Vændiskonur lægri stéttanna eru
og verða alltaf harðneskjulegar,
raunsæjar og klúrar, leiknar í list-
inni og algjörlega án allra tyllihug-
mynda um störf sín. Frú Þóra hefur
ríka hæfileika til að túlka þessa
konu. Hún lánar furðu lítið hjá
Helgu heitinni, sköpun hennar er
hrjúf, að vonum, leikurinn hisp-
urslaus, oft kaldranalegur, og ekki
laust við ofleik á köflum. En hjá
henni eru líka ágætir sprettir, sem
sanna vandvirkni og innlifun, og
eflaust mun frú Þóra vaxa í þessu
Verkefni er frá líður. Hún er glæsi
Ieg á velli, búningur og ■ fas með
ágætum. Er þetta ein bezta frammi
staða hennar til þessa. Brynja Bene-
diktsdóttir, nær litlu úr hinu barns
I'ega í fari Jo, en gerir víða all-vel,
talandinn góður. Sjá má, að aldur
færist mjög yfir hana, enda er ekk-
ert gert til að varna því, andlitið,
þótt laglegt, nokkuð stórskorið og
haldgrannt. Virðist hún á köflum,
útlitsins vegna, nokkuð reyndari
en móðirin í þessari „lífsbaráttu",
og verður aldrei hin umkomulausa
stúlka, sem ætlazt er til. Bregður
yfir leik hennar oft kjánalegum
bohemskum blæ, sem ekki á
Þóra Friðriksdóttir og Brynja Benediktsdóttir.
Þóra og Bessi Bjarnason.
fyllilega við. Enginn er svikinn af
snilldarlegri túlkun Bessa Bjarna-
sonar, Peters, og nær Bessi hrein-
um listamannstökum á þessum á-
gæta, eineyga spjátrungi, kvenna-
bósa og-^peningamanni". Gísli Al-
freðison, Jimmi, svertingi í sjóher
hennar hátignar, er gæddur ein-
hverri barnslegri einlægni, ein-
hverjum gufukenndum hugsjónum,
sem enginn sjóliði með snefil af
sjálfsVirðingu, myndi þola. Eitt
mynd- og leikrænasta atriði leiks-
ins, milli hans og Jo, undir luktar-
staurnum er .eins steindautt og
hugsazt getur, og svefnherbergis-
senan er næsta ótrúleg og ólík sjó-
liða x ástaleik nýkomnum af sjón-
um. Ef höfundurinn ætlar
sér að vera raunsær, því ekki að
vera það, ekki sízt þegar höfundur
er kona, reynslurík og veraldarvön.
Sigurður Skúlason, Geoffrey, nær
ósköp Jitlu úr verkefni sínu, skortir
flest í fremur erfitt hlutverk, enda
er svo helzt að sjá, sem aðrir leik-
endur átti sig eíginlega ekki á per-
sónunni heldur. Geldur Sigurður
eflaust æsku og reynsluleysis, ó-
nógrar ieikstjórnar. Búningar og
leikmyndir Unu Collins voru ef-
Iaust í stíl við hið hefðbundna.
Það er undarlegt, að ekki skuli
meiri aðsókn vera að þessu verki.
Það er vissulega þess virði.
A. B.
Nftt útgerðarféhg
Almenna útgerðarfélagið hf. hef
ur nú hafið sölu hlutabréfa á al-
mennum markaði. Hlutabréfin eru
sem kunnugt er tvenns konar, ann-
ars vegar 1000,00 kr. hlutabréf og
hinsvegar 5000,00 kr. hlutabréf.
Undirtektir almennings hafa verið
góðar, enda lofar félagið 15% arðs
hluta á ári. Hlutafélagið er byggt
upp sem almenningshlutafélag, en
það er gert til þess, að gefa sem
flestum aðildarrétt og rétt til á-
hrifa í félaginu. Ábyrgð hluthafa
og arðsréttindi fer eftir hlutafjár-
eign í félaginu. Bráðabirgðastjórn
hcfur verið skipuð í félaginu og er
Snorri Ólafsson stjórnarformaður.
Félagið hyggst á næstunni auka upp
lýsingastarfsemi um félagið, jafnt
á höfuðborgarsvæðinu sem út á
landsbyggðinni. Fyrsta verkefni fé-
lagsins verður kaup og rekstur tog-
arans Gyífa, sem nú er í vörslu Rík
isábyrgðarsjóðs Seðlabankans, en
síðan hyggst félagið festa kaup á
skuttogara og hefja fiskvinnslu.
Myndi slíkt auðsjáanlega hafa mik-
il áhrif í atvinnulífi Iandsmanna
og gjaldeyrissköpun.
Almenningshlutafélög eru byggð
upp þannig, að almenningur geti
haft áhrif á atvinnulífið. Með því
að kaupa hlutabréf í almennings-
hlutafélagi, er hluteigandi orðinn
áhrifavaldur um gang félagsins,
hann hefur atkvæðisrétt á félags-
fundi samkvæmt eignarhluta. Ef
illa tekst til um reksturinn, er hann
aðeins ábyrgur samkvæmt sínum
eignarhluta og verður aðeins gerð
krafa á hendur honum samkvæmt
hlutfallslegri eignarstærð hans í fé-
Iaginu. Hlutaðeigandi hefur því tak
markaða ábyrgð gagnvart skuld-
bindingum félagsins, miðað við
sinil eignarhlut. Þetta er þannig
gert til þess, að gera mönnum kleift
að Ieggja fé í fyrirtæki, án þess að
taka meiri áhættu, en þeir vilja
sjálfir í það og það skiptið. Stjórn
félagsins sér svo um rekstur félags
ins, en er ábyrg gagnvart hluthöf-
um, sem láta álit sitt í ljós á aðal-
fundi félagsins. Ef óánægja er með
al félagsmanna, þá verður stjórn
félagsins ekki endurkjörin en ef að
hluthafar eru ánægðir, þá verður
stjórnin endurkosin og gefið um-
boð fyrif félagið næsta árið.
LÍpplýsingar eru veittar á skrif-
stofu félágsins að Sjávárbraut 2.
Sími 14025.
Hótel Saga
Framhald af 6. síðu.
kominn til starfa að Hótel Sögu, og
mun á fyrrnefridum dögum hafa
áðalyfirumsjón í matargerð í súlna-
salnum, en aðra daga verða yfir-
kokkur í Grilli, sem nú er nefnt
Stjörnusalur — klaufalegt nafn —
sem Konráð óskar eftir að verði
vinsælt hjá almenningi.
Hr. Kreiner, sem er ungur mað-
ur, kom á fund blaðamanna og
svaraði því til, aðspurður, að ljann
hyggðist koma á nokkrum nýjung-
um og fjölbreytni í matseld hótels-
ins. Bauð hann upp á, í matarboði
blaðamanna fyrir skömmu, ýmsar
nýjungar, sem reyndust mjög góm-
sætar, hreindýrakjöt og alls kyns
góðgæti, matreitt á sérstakan hátt.
Taldi hann alla möguleika á að
bæta mjög matargerð alla, en á allra
vitorði er, að hún er heldur ein-
hæf og býður ekki upp á það „var-
iety" sem æskilegt er á hóteli, sem
í mörgu stendur hvergi að baki er-
lendum hótelum í framreiðslu og
þjónustu.
Konráð hótelstjóri hefur í þessu
sambandi tekið upp þá nýbreyttni
að við hvern „disk" verður spurn-
ingalisti, en þar eru gestir beðnir
að bera fram skriflega raunir sínar
og uppástungur um betri þjónustu,
segja álit sitt á réttum, hljómlist,
þjónustu, framkomu þjóna o.s.frv.
Mun hótelið taka mjög til greina
umkvartanir þær, sem berast og
ekki eru'ritaðar af rætsii né skæt-
mgi,
Konráð
ræddi ýms vandamál
veitingamanna, taídi sumu abota-*
vant, en benti á að hér væru á
prjónunum hjá ýmsum veitinga-
stöðum mjög lofsverðar breytingar,
enda áhugi hjá forstöðumönnum
veitingahúsa. Hótelstjórinn benti
á ýmislegt í almennum rekstri,
sem betur mætti fara, en kvað þó
ofp við ramman reip að draga, er
fytir væru ýmis yfirvöld, sem
sýndu ekki of glöggan skilning á
óskum þeirra. Voru blaðamenn
mjög sammála honum um ýmislegt,
sem þar væri til vandræða og ó-
þæginda.
Það er alkunna, að Konráð hefur
verið vakinn og sofinn yfir rekstri
hótelsins síðan hann - tók þar við,
og fylgzt mjög vel með öllum
rekstri og störfum fólks í þjónustu
sinni. Kvað hann, að íslenzkir þjón-
ustumenn væru í flestu jafnokar
starfsbræðra sinna erlendis, þótt að
stæður hér og ýmsir gestir væru
næsta ólíkir því, sem tíðkaðist í
sambærilegum stöðum erlendis.
Sjónvarpið
Framhald af 6. síðu.
þekkinguna hefur. Markús. er far-
inn að fá á sig skemmtilegan og
„authitiskari" svip í flutningi,
sem er talsverð bót frá fræðarasvipn
um, sem oft vill vera einskonar að-
alsmerki bæði sjónvarps- og út-
varpsmanna.
Yfirleitt voru kvikmyndir ágæt-
ar, erlendar, og mjög frambærileg-
ar. Væri það mörgum fnjög mikið
áhugamál ef hægt væri að viða að
sér meira af slíku efni, jafnvel hafa
„late show" myndir um eða eftir
kl. 11 á kvöldi, sleppa kostnaði við
þýðingar, því mestur hluti ungs
fólks þekkir ótrúlega mikið til
málsins, og fylgist oftar eins vel
með og þýðandinn.
Fréttamyndir voru með skárra
^ moti nú undanfarið, en það
þýðir á engan hátt að þær væru
góðar né tæmandi. Þetta eru orðin
mestu vandræði með fréttamyndir,
því nóg efni er af að taka. Frétta-
deild sjónvarpsins á hér geysilegt
verkefni óunnið. Samanborið við
myndir í hliðstæðum stofnunum
ytra erum við fátæklega óupplýst
um heimsviðburði — og algjörlega
að ástæðulausu. ■
Stærsta farþegaþota heims
Stœrsta farþegaþota heims er af gerðinni Boeing 747, og má sjá á mynd-
inni að hún er ekkert smásmíði, ef borin er saman við fólk, bíla og önn-
ur tceki í kring um hana.