Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 30.07.1973, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 30.07.1973, Blaðsíða 7
Mánudagur 30. júlí 1973 Mánudagsblaðið 7 Stéttir og almenningsálit Framhald af 1. síðu. ákaflega fá stig og liggja nokk- uð jafnt, en eru þó í þessari röð: Opinberir embættismenn Ráðherrar Verkalýðsf oringj ar Þingmenn Blaðamenn Bissnessmenn Fólkið sem var spurt, var beð- ið um að nefna tvær stéttir af 12 sem það gat valið um, sem það treysti bezt og tvær stéttir sem það treysti verst. Læknar fengu 75% atkvæða, dómarar 55% og lögfræðingar 23%. Aftur á móti fengu þing- menn ekki nema 4% atkvæða og í sama sæti voru blaðamenn. Þá var merkilegt við þessa könnun að fólk var beðið jafn- framt um álit á því, hvaða stétt- ir hefðu mest áhrif á framvindu þjóðfélagsins. Þar voru efstir á blaði verkalýðsfélögin, síðan for- sætisráðherra, þá blöðin og sjón- varp, brezka þingið og áfram, en næst neðst var sjálf drottn- ingin brezka. Þegar farið var að kanna af hverju fólkið treysti þingmönn- um ekki betur en raun ber vitni, og þar kom fram að fólkið treystir orðum þeirra einna bezt þegar engar kosningar eru í nánd, en treystir orðum þeirra alls ekki þegar kosningar eru í nánd. Meir en helmingur taldi að þingmenn væru í þessu starfi af einberum eiginhagsmunahvöt- um. Við getum svo gamnað okkur við að hugleiða hvernig íslenzk- ur almenningur myndi svara svona spurningum, en það er varla nokkur hætta á að íslenzku dagblöðin geri sér dagamun af þessu tagi. Pepsi Cola 30 ára Framhald af 8. síðu. Jónas eru nú báðir látnir. For- scjóri hins nýstofnaða hlutafélags var ráðinn Sigurður Waage, og hefur hann gegnt því starfi síð- an. . Merkustu tímamót í sögu San- itas má fortakslaust telja að verði árið 1943, er samstarfið hefst við Pepsi-Cola, en með til- komu þess drykkjar verða alger þáttaskil í framleiðslu okkar. Jafnskjótt og Pepsi-Cola kom á markaðinn jókst framleiðsla verk smiðjunnar hröðum skrefum. Náði drykkurinn þegar miklum vinsældum og fyrr en varði var Pepsi-Cöla. orðinn Iangstærsti þáttur framleiðslu Sanitas. Hef- ur samstarf okkar við Pepsi-Cola "ullt ffá’úpphafi verið hið. ánægju legáesta. Pepsi-Cola er ekki eini drykk- urinn, sem við framleiðum í umboði Pepsico hér á landi, því árið 1967 hófum við framleiðslu og sölu hér á landi á appelsínu- drykknum Mirinda. KAKALI Fratnhald af bls. 4. timarnir hafa breytzt og honum beri að samræmast þeim breytingum sem stjórn- anda. eins og stærstu og virðulegustu samkomustöð- um þessa lands? Sumir gætu haldið, að KAKALA væri í nöp við þetta hótel af einhverjum á- stæðum. Því fer víðs fjarri. Þangað sæki ég kvöld- skemmtanir mínar, þegar svo ber undir og fer sjaldan á aðra staði. Það er að vísu ekki vegna hótelstjórans heldur vegna afburðagóðrar þjónustu starfsliðsins og lip- urmennsku í hvívetna, auk þess, sem ég er af þeim gamla skóla, að bera bindi, skyrtu og jakka, auk annars fatnaðar, oftast samtalshæf- ur við vín, hef mig í burt ef svífur óþægilega á mig. (Þó henti það mig fyrir tveim ár- um eða svo, að eftir að hafa verið í ökuferð út í sveit, þá „droppaði“ ég inn á Sögu, upp á Austrabar, drakk þar sjúss hjá Stefáni, vappaði síðan niður á Mímisbar, sem var nær mannlaus, fékk mér þar annan hjá Vali barþjón, sem benti mér á að marg- menni væri í Átthagasaln- um, þá nýopnuðum, kunn- Þá er ótalinn enn einn merk- ur þáttur í ánægjulegu samstarfi okkar við Pepsico, sem sé sá er við í samráði við þá urðum fyrst ir til að setja hér upp fram- leiðslu- og afgreiðslutæki fyrir gosdrykki. Eru vélar þessar eink- um ædaðar stærri sölustöðum, svo sem hótelum og veitinga- stöðum. Starfsfólk Sanitas hf. er nú 50 manns. Framleiðsluvörum fyr irtækisins er dreift um allt land. Dreifingarsvæði verksmiðjunnar sjálfrar i-.eð eigin bifreiðum nær að Kirkjubæjarklaustri í austri og um allt Suðvestiírlánd sunnan Holtavörðulieiðat "b£ súánan Breiðafjarðar. Á öðrum stöðum eru umboðsmenn, er sjá um dreifingu og flutninga. Núverandi stjórn Sanitas skipa þessir menn: Sigurður Waage formaður, Björn Þorláksson og Sigurður S. Waage meðstjórn- endur, en til vara Ágúst Sverris- son og Matthías Waage." ingjar og fleiri, (sá salur heitir nú Lækjarhvammi, ein sú heimskulegas(a nafngift, sem enn hefur trónað í ís- lenzkri veitingamennsku). En viti menn. 1 dyrum Átthaga- salsins er hinn síðasti eftir- lits- og dyravörður 19. ald- ar (sá áður um talaði) og neitar með öllu að ég fari inn svona klæddur!! Þá var ég klæddur einskonar Safari- jakka, sem ég nota ýmist á skytteríi eða á hestum, tár- hreinum, og ljósri rúllu- kragapeysu, ódrukkinn. Og til að kóróna þetta, þá voru inni útlendingar í nær öllum hugsanlegum klæðum, jafn- vel jakkalausir. En eftir væg mótmæli þá hvarf ég á brott, nennti ekki að gera veður út af svona máli. Hótelstjórinn verður að svara því, hvort til sé ætl- azt að þrjár reglur um klæðaburð gildi á hóteli hans, hvort útlendingar séu rétthærri en íslenzkir, hvort kvenfólki leyfist allur ósómi í klæðaburði, eða hvort hann neiti að viðurkenna þá framför eða a.m.k. breyt- ingu á kröfum um klæða- burð, sem orðin er. Meðan ég man, þá má bæta því við að sá káti maður sem hér cr getið um að ofan, og bauð með sér dömunum, hafði þá fyrr um daginn komið frá London og fengið sér drykk við barinn á Claridges án þess, að þeir gömlu og aftur- haldssömu, skreyttu þjónar, hefðu nokkuð að athuga við klæðaburð hans. Reyktur Laxness Framhald af 8. síðu. Þá fullyrðir hinn danski blaðamaður, að menn séu í leit að fjársjóði á Heimaey. Pen- ingageymslur bæjarins á staðn- um liggi nefnilega undir ösku á eyni og þar séu faldar millj- ónir króna. Því er eðlilegt, að fjöldi sjálfboðaliða hafi gefið sig fram við hreinsun bæjar- ins. Brille gerir lúmskt gaman af flokki Ásatrúarmanna. Seg- ir hann að þeir trúi því, að sá sem deyi í sæng sinni fari beint til vítis, en þeir sem deyja í stríði fái eilífa sælu. Hann bendir á, að i»ú sé tæki- færið fyrir ásatrúarmenn, þar sem landhelgisstríðið sé annars vegar. Með því að Iáta sig falla fyrir brezkum byssukúlum geti menn úr trúflokknum öðlazt eiíífa sælu. Að lokum er ekki úr vegi að segja eina sögu, sem hinn danski grínisti lét á þrykk ganga. Höfðingi nokkur úr hinni svörm Afríku kom til íslands með eina stóra ósk. Hún var sú, að hann vildi endilega fá að smakka reyktan Laxness. Kvaðst hann hafa heyrt, að það væri einn dá- semdarrétmr! Velkomin á Edduhótelin Edduhótelin eru sumargistihús, sem Ferða- skrifstofa ríkisins rekur á eftirtöldum stöðum: Reykjavík Varmalandi Reykjum í Hrútafirði Húnavöllum Akureyri Eiðum Kirkjubæjarklaustri Skógum Laugarvatni Matur og gisting — Svefnpokapláss Ferðizt ódýrt — Heimsækið Edduhótelin afköst hagkvœmni oryg Cú —s CQ Œ cn AFKÖST HAGKVÆMNI ÖRYGGI Lykilorð þungavinnuvélanna frá BM VOLVO. Við veitum yður fúslega hvers konar upplýsingar um BM VOLVO. Hins vegar er reynsla vélanna sjálfra, bæði hérlendis og erlendis, bestu meðmælin. B VELTIR HF Suöurlandsbraut 16«Reykjavik • Sirtinefni: Volver • Simi 35200 AMOKSTtlRSVf.LAR LM 845 LYFTIKUANI MK 692 /(3)@

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.