Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 2
2 A^ánudagshíaðið Mánudagur 1. október 1973 Einstakir galdramenn s Um Jón í Ási og Jón á Hellu Pípan Nú Iíður sumarið svo að eigi er geið að þeir nafnar ættist við. En er ganga skyldi um haustið kvaddi Jón hreppstjóri sveitarmenn til fjárleita. Var þá gengið á fjall og fé rekið ofan til byggðar og síðan til rétta. Þá var það eitt sinn á þeirri leið að Jón hreppstjóri kvað sig þyrsta mjög og lézt því mundu bregða sér heim á bæ einn er þar var skammt frá þeim og fá sér að drekka. Þar bjó vin- kona Jóns á Hellu, forn í skapi og haldin maðallagi góðgjörn. Jón ríður nú heim á bæinn og hittir kerlingu að máli; hún fagnar honum vel. Hann viður hana gefa sér að drekka og lézt vera þyrstur mjög. Hún biður hann þá koma með hér í mjólkurhús, því hún kveðst ei hafa ílát fyrir hendi það er honum sé boðlegt. Hann gerir svo; fær hún honum þá pípu og biður hann drekka þar úr trogi. Hann kvað sér það vel líka og tók við pípunni og leit á; því næst blæs hann í píp- una; hleypur þá úr henni padda ein, Ijót og ilyrmisleg. Jón leggur nú frá sér pípuna og verður honum þá Ijóð á munni: „Ég mun kotna jafnt Sem þú og Jón á Hellu fyrir guð í himnahöllu. Hvað er að gera sér skraf úr öllu? En svo er sagt að Jón á Hellu hefði áður keypt að kerl ingu að freista ef hún fengi fyrirkomið Jóni í Ási með gjörningum sínum. Varð nú fátt um kveðjur með þeim Jóni í Asi og kerlingu; kvað hann henni myndi hollast að leita ei oftar við að bana sér því að þess myndi henni ei auðið verða. Skilja þau við svo búið og ríður Jón afmr til manna sinna og reka þeir nú safnið til réttar. Að loknum réttum reið Jón heim til Áss og var nú allt kyrrt og tíðindalaust milli þeirra nafna um vemrinn. Skreiðarferð Jóns í Ási Það er sagt að um þessar mundir væri mjög fiskilítið kringum Eyjafjörð; fóm því margir lestarferðir til fiski- kaupa bæði suður á land og vesmr undir Jökul. Einn tíma um vorið kemur Jón í Ási að máli við konu sína og kveðst eiga lestaferð fyrir höndum suður á Akranes að kaupa fisk til bús þeirra. En þá var svo háttað högum Þorbjargar húsfreyju að hún var þunguð og langt á leið komin. Kvaðst Jón bóndi fara nauðugur þessa ferð þó svo yrði nú að vera, því sér væri eigi grunlaust um að Jón á Hellu myndi sitja um að vinna þeim báðum eitthvert mein ef hann mætti sér svo við koma. Bað hann konu sína það mest varast að stíga ekki fæti sínum út fyrir túngarð meðan hann væri í burm, hvað sem við lægi, og lét þá líkara að duga myndi, en mikið illt myndi af leiða ef hún brygði út af þessu. Hún lézt mundu gæta þess er hann mælti fyrir. Eftir það hélt Jón á stað suður, gengur hon- um ferðin vel, og kaupir fisk syðra sem hann þarfnast. Því næst heldur hann norður aftur og var þá komið að fráfærum er hann var kominn norður á Holtavörðuheiði. Nú víkur sögunni aftur heim að Ási. Læmr húsfreyja hreinsa tún að vanda og verja fyrir skepnum. En það bar til ný- lundu að hversu vel sem rekið var á kvöldum frá túni þá sóttu því meir á það gripir hvaðan- æva, og fór svo nokkur kvöld að jafnan var rekið, en heima- mönnum þótti þó túnið standa fullt eftir sem áður; þótti þeim þetta næsta kynlegt því það fylgdi og með að menn sáu ei tún bítast. Fór nú heimamenn að gruna að þetta mundi varla . vera einleikið og tóku að trén- ást upp á rekstrinum, en hús- freyja var því árvakrari um vörzluna. Eitt kvöld voru allir háttaðir nema Þorbjörg húsfreyja kem- ur hún þá út áður en hún gengi til hvílu og skyggnist um; þykir henni þá sem túnið standi full bæði af fé og naut- um. Hún skundar nú inn og biður vinnumenn sína reka úr túni er fullt standi með fénað; þeir taka lítt undir það og telja að vera muni missýningar ein- ar. Verður nú húsfreyja stygg við og snýr þegar út afmr og tekur að reka burt peninginn; gengur henni það seint, en um síðir fær hún þó nuddað hon- um út fyrir túngarðinn, en hann ryðst þegar inn aftur á hæla henni. Gekk þetta þóf þangað til hún reiddist og elti sjálf gripina út fyrir garðinn. En jafnskjótt sem hún er kom- in út fyrir garðinn tekur hún þar jóðsótt, skyndilega og á- kafa, svo að hún fær ekki kom- izt úr stað; elur hún þar nú barnið, en þegar hverfur það frá henni er hún hefir alið það svo hún veit aldrei hvað af því verður, en hún liggur þar eftir magnlaus og dauðvona óg fær enga björg sér veitt. Liggur hún þar langa hríð. Tekur nú heima fólki að leiðast er húsfreyja kemur ei inn aftur og fer það á fæmr að leita hennar. Finnst hún um síðir þar sem hún lá fyrir utan garðinn nær dauða en lífi; er hún nú borin heim og hjúkrað í öllu sem varð. Hresstist hún þá vonum bróðar svo að hún kemst á fætur. Nú víkur sögunni aftur til Jóns bónda, að hann er kom- ínn norður á leið á miðja Holtavörðuheiði svo sem fyr segir, eti þá sér hann að barn hans hið nýfædda kemur þar á móti honum og ræðst þegar á hann; bregður honum nú mjög við þesas sendingu er hann þykist sjá að Jón á Hellu hafi nú drepið barn sitt og vakið það síðan upp afmr til að bana sér, en þó verður hann nú í móti að taka þessari hrylli- legu sendingu og tókst honum brátt að koma henni fyrir. Eftir það heldur hann leið sína unz kemur heim. Situr hann nú heima um sumarið og er held- ur fálátur og óglaður. Jón á Hellu hafði mjög í skimping- um hvað lengi hún gengi með, hreppstjórakonan í Ási, og bár- ust þær ræður til eyrna Jóni bónda hennar, en hann lét sem hann heyrði eigi. Líður nú til þess um haustið. Þá var Jón í Ási einn' dág í smiðju sinni og smíðaði nokk- uð. Kemur þar þá til hans mað ur nokkur gamall og grár fyrir hærum; hann var kynjaður vest an af Hornströndum og hélt lér uppi á beiningaférðum. Þeir Jón tókust tali við; fann bóndi það skjótt að karl mundi fróð- ur vel í fornum vísindum, enda vildi hann og helzt þar um ræða, Kvaðst karj hafa spurn af að Jón mundi marg- fróður vera, en hinn lét lítið hæft tun það, en heldur mætti það segja um Jón á Hellu að hann vissi frá sér. „Já," segir karl, „hvað er að tala um hann, djöfulinn þann, sem alstaðar hefir umbúir nema í kjaftin- ,um." Jón hjó eftir þessu, en ræddi þó eigi um. Bauð hann því næst karli inn og veitti hon um góðan beina. Eftir það skildu þeir og er karl úr sög- unnL h Ævilok Jóns á Hellu Nokkrum tíma síðar er svo sagt að Jón í Ási fær sér flugu eina og magnar hana með göldrum og forneskju, en síðan sendir hann hana Jóni á Hellu. Eitt kvöld um haustið er Jón á Hellu að raka gæru; sat hann á stóli við dyrastaf og stóð lampi í stafnum, en Jón son hans sat á rúmi. Kerling var að elda graut til matar þeim og var ýmist uppi eða niðri. Þegar kérling Sat uppi tók hún eftir því að fluga ein var alltaf að flökta kringum ljósið; hafði hún orð á því við þá feðga hvað Ijót sér þætti þessi fluga og illileg og bað þá drepa hana, en þeir höfðu þessar um tölur hennar að skimti og kváðu vera venjulega baðstofu- flugu. Því næst skammtar kerl- Framhald á 6. síðu. EINNAR MlNUTU GETRAUN: Hwe slyngnr rannsóknari ertu? Hvernig lézt frú Belamy? Þegar prófessor Fordney ók um hina miklu um- ferðaræð, þá skotbremsaði hann skyndilega svo að bíllinn hans snarstoppaði. Hann hafði ekið framhjá hrúgaldi, sem lá á miðri götunni. Hann hljóp þegar á staðinn, og sá þá að það var kona, á að gizka fimmtug, klædd venjulegum heimafötum og í peysu, en á enninu var Ijótur áverki. Að útilokað var að hjálpa henni var skjótt augljóst. Líkið var kalt og eflaust var skýring á dauðanum sú, að ekið hafði verið yfir hana, því tvenn dekkjaför voru brjóstinu á henni. Fordney skipaði einum lögregluþjónanna, sem var að bægja hinum fjölmenna hópi vegfarenda sem safnazt höfðu saman, frá slysstaðnum, að hringja þegar á lögreglustöðina. Klukkustund seinna var prófessor Fordney enn að reyna að finna einhvern, sem varpað gæti Ijósi á atburðinn. Eftir langdregna og erfiða rannsókn tókst honum að upplýsa að konan væri frú Belamy, sem bjó í út- hverfum borgarinnar. Þá tókst lögreglunni loksins að hafa upp á Nick Chester, sem var leigjandi hjá hinni látnu konu, og sem játaði þegar í stað, að hann hefði ekið hennfi'borgina í sínum eigin bíl. Hann sagði ’áð hun h’éfði fárið ur bílnum um það bil tvær blokkir frá þeim stað, sem Fordney hafði fundið hana. Þegar. hann heyrði að frá Belamy hefði ekki verið með gler- augun sín þegar hún fannst, þá gat hann til að hún hefði gengið fyrir bifreið og ekillinn ekið burtu. Prófessorinn stundi þungan. Hann myndi ekki sleppa úr hitasvækju borgarinnar um þessa helgi. Vinnan kæmi fyrst, svo var nú það. ,,Nú jæja, hvernig stóð á því, að frú Belamy var klædd í karlmannspeysu? Og hvers vegna var líkinu af henni kastað út á þessum stað? Hún hafði sannar- lega ekki orðið fyrir bíl eða verið myrt hérna“, taut- aði prófessorinn við sjálfan sig gremjulegur á svip- inn. Hvernig vissi prófessorinn þetta? Svar á 6. síðu. Weifcnachfs zum Se?&«r- macheni

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.