Mánudagsblaðið - 01.10.1973, Blaðsíða 5
Mánudagur 1. október 1973.
Mánudagsblaðið
5
Beztí vinur mannsins —
irerstí óvinur nágrannana
September 1973.
Ameríkumaðurinn sagði:
„Hundar eru skítugir og gera
allt skímg," og fleygði manni
og hundi hans út. Bezti vinur
mannsins, sennilega kvenmanns
ins, sem notar hunda til að
leika við börnin eða sem stað-
gengil barna, því hundar eru
jafn fyrirferðarmiklir, sóðaleg-
ir og matvandir sem gæludýr
en hafa þann kost að verða
aldrei að mönnum sem fara og
gera heimilið tómt og einmana
legt.
Eg er ekkert sérstaklega hrif
inn af hundum, þeir eru stórir
og smáir, í mörgum litum, en
hafa það sameiginlegt að þeir
útbía nýþvegna bíla og gang-
stéttir eða tré, garða og girð-
ingar. Versti ókosmr þeirra, frá
sjónarmiði nágrannans er háv-
aðinn frá þeim.
Lögreglan í vanda
Um allan heim eru hundar
mesta misklíðar- og þrætumál
í þéttbýli. I Pretoríu í S-Afríku
eru hundar lang algengasta
kærumál sem lögreglan hefur
við að stríða, borgarstjórnin er
að basla við að takmarka
hundahaldið við einbýlishús og
banna þá í fjölbýlishúsum.
Stundum verða gömbardagar í
S.-Afríku út af heimilishund-
um, fólk æðir út til að skilja
að hunda í slag, fólkið sem á
stóru grimmu úlfhundana sem
bíta og drepa litlu góðu hund-
ana fær stundum skammbyssu-
skot úr glugga og allt hverfið
logar í slagsmálum.
Ein íslenzk fjölskylda hér
hafði 3 stóra grimma hunda,
2 á stærð við kálfa, ógeðsleg-
ustu skepnur sem ég hefi séð,
þegar þau fóru úr hverfinu var
skálað í kampavíni þegar þessir
ófriðarseggir flutm. Hundana
höfðu þau til að gelta að svert-
ingjum en hvergi var brotist
jafn oft inn og hjá þeim þrátt
fyrir hundana.
Hundarnir
urðu hásir
Ég bjó eitt sinn á hóteli í 3
mánuði í Ródesíu þar sem ég
var við mælingar, þetta var
fallegt íbúðahverfi, blómskrýdd
tré og blóm meðfram götunum.
Á kvöldin, þegar dimma tók
byrjaði ballið. Allir hundar í
hverfinu byrjuðu að gelta og
stóð þetta viðstöðulaust fram
til klukkan 5 á morgnana. Þá
voru flestir hundarnir orðnir
hásir og rámir af gjammi. Þeim
fannst víst lítil ástæða til að
halda áfram því þar er farið
snemma á fæmr. Mér var
aldrei svefnsamt á þeim stað.
Milli 5 Qg 6 var smá hlé á
hávaðanum, en þá róru svert-
ingjarnir í eldhúsinu að
skvaldra og berja saman pott-
hlemmum, bera inn te eða
kaffi til að ræsa hótelgesti svo
þeir kæmust í morgunmat kl.
sjö. Þessi borg er á stærð við
Reykjavík, en þar voru skrá-
sett 29 alvarleg umferðarslys
af völdum hunda sem voru að
flækjast á gömnum, í einum
mánuði, enginn veit um óskráð
smærri óhöpp.
Segulbandshundur
Hjónin Don Evans í Scotts-
burg voru beztu vinir Frank
fólksins. Frank er djákni og
rekur hundaheimili í tómstund
um með konu sinni. Þau hafa
smndum í gistingu kjölturakka
sem eru taugaveiklaðir og
þurfa „móðurlega" aðhlynn-
ingu, svo þau taka venjulega
um 5 hunda með sér heim á
kvöldin. Við þetta fór vinskap-
urinn við nágrannana út um
þúfur. Kvartanir við prestinn
voru gagnslausar. Evansfólkið
náði sér því í segulbandstæki
og stóra hátalara. Hljómflóðið
drekkir geltinu í hundum ná-
grannanna, sem þau hafa hljóð
ritað, böffsi, spangóli, urri og
gelti. Hundafólkið segir að
Evans setji tækin á jafnvel þótt
ekki heyrist boffs hjá sínum
hundum, Um leið og hann spil
ar segulbandið logar allt hverf-
ið í gagngelti frá prestshund-
unum og nágrönnunum. Evans
skrúfar þá bara upp í hátölur-
unum. Þegar löggan og borgar
stjórn gám ekki hjálpað Evans
gegn hávaðanum frá nágrönn-
unum, tók hann Iögin í sínar
hendur. Presmrinn kvartar und-
an því að Evans geti spilað
„annarra hunda" gelt í mtmgu
mínúmr í hvaða hljómstyrk
sem er, og er alveg gáttaður á
að nokkur nágrenni skuli geta
látið svona útaf engu. Mínir
5 hundar gelta ekki að ástæðu
lausu þeir gelta þegar þeim sýn
ist, t.d. þegar mjólkurpósturinn
kemur.
Hundar í stríði
Hundar eru notaðir til margs
annars en að hefna sín á ná-
grannanum. Her og lögregla
nota hunda til að hemja afbrot.
Sumir hundar eru þjálfaðir í
að þefa uppi eiturlyf eða á-
fengi í tollstöðvum. Það fór illa
fyrir einum slíkum. Hasshund-
urinn í Mexíkó þefaði uppi al-
saklausan ambassador og var
rekinn fyrir bragðið.
Portúgalar hafa þjálfað
hunda til að þefa uppi rússnesk
ar og kínverskar sprengjur og
önnur morðvopn sem svartir
skæruliðar nota í Afríku, eða
til að þefa uppi grunsamleg
spor og feril óbótamanna sem
herja á frumstæðar svertingja-
Viggó Oddsson skrifar frá Suður-Afríku:
byggðir. Hundarnir vita að þeir
mega ekki grafa þegar þeir
finna lykt af TNT sprengiefni,
en eru fljótir að grafa upp ef
þeir finna lékt af byssu eða
öðrum birgðum sem grafnar
hafa verið í jörðu. Á æfingum
gróf einn hundur upp jarð-
sprengju sem sett hafði verið
niður fyrir heilum mánuði.
Lögreglan notar hunda óspart
til að hemja óeirðir og stúdenta
slagi. Eða á kvöldgöngum þeg-
ar þjófar eru að pukrast, ásamt
öðrum illþolandi vandræðaper-
sónum.
Hundar stýra flugvél
Ég hefi eina grínsögu sem
ég hefi frétt frá gömlum flug-
manni. Amerísk sprengjuflug-
vél flaug yfir Frakkland og var
með 6 þaul-þjálfaða her-hunda
sem átti að nota til vissra starfa.
Þjóðverjarnir baunuðu á flug-
vélina og kviknaði í henni.
Ameríkanarnir stukku út í fall
hlífum en flugvélin lenti heilu
og höldnu, sjáifkrafa. Kotung-
arnir á næstu bæjum þustu að
til að bjarga flugmönnunum,
en það eina sem var kvikt, voru
6 hundar sem þustu út úr
brennandi flugvélinni. Frakk-
arnir fengu sér duglega neðan
í því í næstu krá og sögðu að
nú væri stríðið áreiðanlega tap-
ar.
Gæludýrin
Það er kreppa hér og kreppa
þar. Hundunum er alveg sama.
Það er orkuskortur og alheims
skortur á mat og hundruð millj
óna manna svelta heilu og
hálfu hungri. En hundarnir
svelta ekki. Þeir dingla bara
rófunni, bíta póstmanninn eða
sendlana, gelta að svertingjum
og halda vöku fyrir nágrannan-
um og fá fyrir: Allt það bezta.
Þeir éta engar ruður eins og
þegar ég var að alast upp. Það
er þúsund milljóna matvæla-
framleiðsla handa kjölmrökk-
um og dekurdýrum og hundruð
um milljóna er varið í hunda-
mats auglýsingar.
Ameríkanar útvarpa pípi
sem er á bylgjulengd sem liund
ar heyra einir og þegar hunda
maturinn er auglýstur í sjón-
varpi gelta hundar.nir og
„hundamamman" kaupir hunda
matinn sem hvutta langaði í á
sjónvarpinu.. Á meðan falla
börn úr ófeiti í Afríku og Asíu,
jafnvel Evrópu og S.-Ameríku.
Hundurinn, sem Reyk-
víkingar eru að bítast um
Þið uppskerið eins og þið
sáið og hafið til unnið ef hunda
fárið herjar á þessa misjöfnu
borg.
Við viljum vekja athygli
yðar á því, að iánastofn-
anir gera kröfu um, að úti-
hús þau, sem lánað er út
á, séu brunatryggð fullu
verði.
Samvinnutryggingar taka
að sér slíkar brunatrygg-
ingar með beztu fáanlegu
kjörum. Iðgjald fyrir hús,
sem byggt er eingöngu úr
steini, er aðeins kr. 80.00
á ári fyrir 100 þúsund kr.
tryggingu;
Ef þér hafið ekki þegar
brunatryggt útihús yðar,
þá hafið samband við
næsta umboð og gangið
frá fullnægjandi trygging-
um á útihúsum yðar.
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38 500
UMBO'Ð UM ALLT LAND
SAMVlNrSUTRYGGINGAR
Brautarholti 16 sími 25775
Prentmynda^arð — Offsetþjónusta
Reynið viðskiptin
PRcnTfnvnDASTOPfln hp.
i