Mánudagsblaðið - 01.10.1973, Side 7
Mánudagur 1. október 1973.
Mánudagsblaðið
7
•v SWBWWIÍ|»Í8S?FW!*1
8 ráð Gettys
Framhald aí bls. 4.
stórum eða smáum stíl þú eig-
ir aó hefjast handa-
Miðaðu ekki of hátt, því
þá cr hætt við að þú missir
aigjörlega marks með fyrsta
skotinu, og eigir svo ekki eft-
ir fleiri skot í byssuna.
En ekki máttu heldur miða
of lágt. Hinir deigu og hug-
Sundrung
Framhald at I. sxöu.
flokkinn um stórsvik í sam-
bandi við þessar kosningar og
sannaði að hann hefði fengið
mun fleifi atkvæði en upp var
gefið .
Of skorinorður
Nú óttast Sjálfstæðismenn
fyrir norðan að það sama muni
koma upp í þeirra herbúðuni.
Ef prófkosningar munu fara
fram, sem almennt er reiknað
með, þá er víst að Trygigvimun
bjóða sig fram í þeim. Vegna
starfs síns á hann talsverðu fylgi
að fagna .Hins vegar vill flokk-
urinn ekki fyrir nokkurn mun
fá hann á þing því það er vitað
mál að það nalda honum engin
Ef við værum sjálf galla-
Iaus hefðum við ekki eins
mikla ánægju af að finna
galla hjá öðrum.
(Rochefaucauld.)
Vinir • segjast hreinskilnir,
óvinir eru það; þess vegna
á maður að nota ámæli
þeirra til sjálfsþekkingar —
sem beizkt læknislyf.
' (Schopenhauer)
litlu komast sjaldan langt í
fjármálum.
4. Gerðu áætlanir og undir-
búðu hvert skref með mikilli
gaumgæfni. Varastu bráðræði
og gerðu ekkert án vandlegrar
yfirvegunar.
Kynntu þér eins vel og
framast er unnt hinar ýmsu
hliðar fyrirtækisins, sem þú
3 Akureyri
flokksbönd og hann mundi
segja ýmsa óþægilega hluti sem
kæmi illa við t.d. Sólnes og
Magnús frá Mel.
„Sana“ skýtur
upp kollinum
En þau helztu vandræði sem
Sólnes og Halldór Blöndal
standa frammi fyrir núna er
það, að ef þeir neita Tryggva
um þátttöku í prófkjörinu, þá
er hann vís til að greina ýtarlega
frá ýmsum vafasömum fjár-
málareddingum sem þeir Sólnes
og Magnús stóðu fyrir á sín-
um tíma og nægir þar að nefna
Sanamálið. Ef Tryggvi aftur á
móti fær að taka þátt í próf-
kjörinu er eins víst að hann
ógnaði sæti Blöndals. Það erþví
úr vöndu að "áða fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á Norðurlandi
þessa dagana.
Vill sparka öllum
Halldór vill sparka Lárusi,
Sólnes vill sparka Magnúsi og
Tryggvi vill helzt sparka þeim
öllum. Þess skal að Iokum get-
ið, að helsta 'baráttumál Tryggva
er að leggja niður Sinfóníu-
hljómsveitina og hætta að
styrkja Þjóðleikhúsið.
velur þér ,og láttu þér ekki
sjást yfir smáatriðin.
5. Þú verður að gæta mik-
illar hagsýni við fé það, sem
þú festir í fyrirtækinu, skera
ekki við nögl í þá hluti, sem
miða að því að fyrirtækið geti
átt þroskavænlega byrjun, en
fjárfestingin verður samt að
vera í hófi.
Eyddu ekki öllum höfuð-
stólnum þínum í byrjun. Þú
munt þurfa tiltækan fjárstofn
til að halda fyrirtækinu gang-
andi og varasjóð í viðlögum.
6. Leggðu fyrir góðan slatta
af arðinum til þess að hafa
allt með nýtízku lagi og geta
fært út kvíarnar. Vertu boð-
inn og búinn til að leggja mik-
inn hluta af gróðanum aftur í
fyrirtækið
7. Vertu stöðugt á hnotskóg
eftir góðu færi til að stækka
og auka fyrirtækið. Gríptu
slík tækifæri hiklaust.
8. Hugsaðu fyrst og fremst
sem svo, að þú sért að láta í
té verzlunar- og viðskiptaþjón-
ustu, ekki bara að safna pen-
ingum í hrúgur.
Líttu á fyrirtækið þitt sem
skapandi átak — sem, a. m. k.
að nokkru leyti, muni leggja
skerf til velfarnaðar og vel-
megunar heildarinnar-
Hafðu hugfast, að hinn raun
verulegi tilgangur allrar kaup-
sýslu er að framleiða meiri og
betri vörur og þjónustu handa
fleira fólki og við lægra verði.
Og fylgir þú þessum ráð-
leggingum, þá er ekki óhugs-
andi ,að einnig þú eignist hús
við milljónaragötu“, því flestir
sem þar eiga heima, byrjuðu
með lítið, en urðu stórir, og
því skyldir þú ekki geta það
líka?
axminster
Nafniö, sem allir þekkja
Gólfteppin eru framleidd úr 100% íslenzkri ull ® Býður upp á eitt mesta
úrval lita og mynstra, sem völ er á Í RÖGGVA er nýjung, sem allir dást
að ® AXMINSTER-kjör gera öllum mögulegt að eignast teppi.
AXMINSTER - annaö ekki
axminster
GrensásTegi 8 Reykjavík, sími 30676. Einiibi. Aknreyri, sími 11536. Sigbyggm lónsson ðlaisiiiii. sími 62321.
.II.I.I..