Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.01.1974, Síða 2

Mánudagsblaðið - 28.01.1974, Síða 2
2 MánudagsbSaðsð Mánudagur 28. janúar 1974 TIL BLADSINS Ósamræmi í matarprísum Hr. rkstjóri. í síðasta tölublaSi yðar er minnst á verð ýmissa matar- rétta á hótelum borgarinnar, (m.a. hangikjötsréttur á 5655,- kr., auðvitað prentvilla). Við hjónin athuguðum matseðla, brauðseðla og keyptum okkur drykk um helgina á einu af okkar stóru hótelum og allt kom þetta heim og saman við það sem blaðið sagði. En mig langar til að spyrja hótelmenn að einu. Eitt af að- alhótelum borgarinnar, Hótel Borg, býður hvern laugardag upp á kalt borð, stundum mjög gott og glæsilegt, en stundum, skiljanlega, heldur lakara. Þarna má éta að vild ýmsa rétti og góða frá klukkan 12 á hádegi til ld. 2 eða 2.30 fyrir kr. eitt þúsund. Kalt borð býður upp á flesta íslenska rétti og allskyns alþjóðarétti og eingin takmörk sett fyrir neysluna (sic.) Þá kemur spurn ingin: Hvernig stendur á því, að í kalda borðinu getvir hver og einn fengið sér 5—10 rækju- kokkteila með því að taka rækjur á disk og setja tóm- •wsóstr-á “ög'—étið jir ásáint ýmsum öðrum réttum, fyrir þessar kr. 1000,00, þegar rækjukokkteillinn ostar samt hvorki meira né minna en kr. 435,00 (með 25 rækjustykkj- um, litlum, eins og þér segið) á brauðseðlinum? Ég er ekki flinkur í reikningi en lætur ekki nærri að hver rækju- ræfill kosti ca. 15—18 krón- ur? Sama máli gildir um reyktan lax, en humar sá ég reyndar ekki á borðum, og fjölda aðra rétti. Hér finnst mér ekki þess- um hótelstjóra fremur en öðr- um hafa orðið laglega á í messunni, því það fyrirfinnst hvorki afsökun né skýring á þessu óheyrilega okri matsölu- staðanna og mun m.a. vera ein af ástæðunum fyrir því, að fólk neytir ekki matar á þess- um matsölustöðum nema er nauðsyn krefur og þá aðeins það ódýrasta. Fiskur og súpur eru seldar á ósvífnu verði, sem aðeins þingmenn eða stór- laxar hafa efni á, einkum súpuskálin, sem er hvorki eitt né neitt. Brennivín af erlend- um tegundum má vera dýrt, því það er munaður, þó hins- vegar íslenski óþverrinn, áka- víti, svarti dauði o.s.frv., sem framleitt er hér innanlands er selt á verði sem ALDREI verður kallað annað en hreinn þjófnaður. En vilji veitingamenn selja á svona prísum, þá er eins gott að þeir sýni ekki heimsku sína og „blotti" sig á þvílíku og að selja kalt borð á því verði að auðveldur samanburður sé fyr- ir hendi og ósamræmið í ok- urverðinu öllum augljós,- Utanbœjarhjón Varðandl hangikjötsprísana ber að geta þess, að verðið var leiðrétt í próförk en gleymdist hjá prentsmiðju. og yfirsást í samanburði, einfald- lega vegria þess að rifstjóri gleymdi að bera saman. Rétt verð er kr. 565,00 —fimm hundruð sextíu og fimm — fyrir hangikjöt og jafning. Ritstj. Öskilvísi hjá Póstinmn Hr. ritstjóri. Ég sá á dögunum kvörtun í blaði yðar um blaðaútburð. Því miður hefi ég heldur slæma reynslu af útburði bréfa og veit þó eigi hverju er um að kenna, annað en að póst- burðarmenn eru algjörlega sak- lausir. Á hitt vil ég benda. Við kaupum og fáum send blöð • að utanð, bæði dönsk og ensk og ef þau eru laus- lega pökkuð inn, eins og sum dönsku blöðin eða t.d. Time og Newsweek, þá hafa þau iðulega verið lesin af einhverj- um starfsmönnum póststofunn- ar. Nú er þetta kannski - ekki svo voðalegt fyrst þessi blöð koma til skila óskemmd. En þó er það staðreynd, að sum blöðin koma alls ekki til skila,, þótt við vitum, að er- lend útgáfufyrirtæki t.d. blaða- útgefendur eða tímarita, leggja eða setja (sic) stolt sitt í skil- vísi til áskrifenda, enda bygg- ist útbreiðsla þeirra á því, að áskrifendur þeirra fái blöðin. Óskandi væri, að yfirmaður þessarar stofnunar við Póst- hússtræti sýndi fólki sínu fram á, að því ber skylda að koma blöðum, sem öðrum pósti til skila. Sv. Þ. Þjóðviljinn og Guðmundur Hr. ritstjóri. Mig langar til þess að minn- ast á ágætan þátt í sjónvarp- inu en það var eitt af „horn- unum" er þeir áttust viðMorg- unblaðsritstjórinn Styrmir Gunnarsson og komminn Svavar Gestsson. í fyrsta sinni hefi ég séð Mbl. reglulega baka komma, enda sýndi komminn glöggt hug sinn er hann stakk upp á því, að auglýsingatollur af því sem Mbl. birtir skyldi fara í að halda uppi kommasneplinum! Mbl.maðurinn svaraði vel og stillilega fyrir sig og rak full- yrðingar og „vonarneistann" í kommaniun aftur til heima- húsa. Kommiun virðist seint ætla að skiljast, að sem aug- lýsingablað er Mbl. lang best, svo það hlýtur að vera eitt- hvað í blaðinu, sem almenn- ingur vill lesa. (Þó það sé vandfundið, ritstj.) Þau eru ansi keimlík, Svav- ar og Vilborg Harðardóttir í að grípa hvert tækifæri til að afvegaleiða eða snúa út úr svörum viðmælenda sinna, en hvað annað eiga þau að gera með ekki betri málstað? Mikils hefur leiklistin misst fyrst Guðmundur Dagsbrúnar- kappi fór ekki á leiksvið. Ég hef aldrei séð annað eins skue- spil og framkomu hans í þætti varðandi ástandið í einu af stóru úthverfunum okkar. Það var allt í-senu-sett — hinn rólegi baráttumaður fjöldans, fullur af réttlætiskennd, með seiðandi málróm, valinn og vandaðan dialog, snjóflyksurn- ar dettandi á þykkar auga- brýrnar og samúðarsvipurinn með þeim undirokuðu. Guð hjálpi mér, og orðalagið. Það var þyngra en tárum tæki. Það er ekki svo lítið, sem leiklistin hefur misst. H. B. Kvensamir sóðar Mánudagsblaðið, Reykjavík. Þannig er mál með vexti, að eitt af sjúkrahúsum borgar- innar hefur nú tekið upp þann hátt að ráða til sín í vinnu menn af arabískum ættstofni og raunar fleiri framandi kyn- kvíslum, og virðist hafa þá í hávegum. Nú væri kannski ekkert við þessu að segja, ef þessir menn væru öðrum hæf- ari til starfa (ýmsar sögur ganga nú raunar af lærdómi þeirra og verkkunnáttu yfir- leitt). En að sögn stúlkna, sem þarna starfa, virðast sumir þess ara manna líta á staðinn sem einskonar „veiðistöð", og kvarta sáran yfir ágengni þeirra á vinnustað og utan, svo að sumar þeirra hafa engan frið fyrir þeim, hvorki nótt né dag. Þá er og mjög kvart- að yfir því, að hreinlætisvenj- um þessara manna sé mjög á- fátt. — Vildi nú ekki þetta annars áigæta sjúkrahús huga betur að því, hvað þarna er á ferðinni, og hvað af gæti hlotist? S. J. Staðfestingu getur ritstjóri fengið með því að hafa tal af starfsfólkinu á Landakotsspítala sem hér er átt við, og raunar getur engum dulist, sem þar hefur unnið um einhvern tíma. Auglýsií § MánuéugshlaSmu EINNAR MÍNÚTU GETRAUN: Hve slyngur runnsóknurí ertu? HUGBOÐIÐ „Ég kom aftur að veiðikofanum okkar, ja, ekki meira en tíu mínútum eftir Alice,“ sagði Harold Sherrod sorgbitinn, „en það var of seint — miklu of seint. Hún var þegar látin!“ „Svona, taktu það rólega, ungi maður — ég skil hve erfitt þetta er, en þú verður að harka af þér,“ sagði Fordney prófessor. „Svona nú — þetta er betra.“ „Við vorum að skjóta saman, austan við vatnið “, hélt Sherrod áfram. „Allt í einu var eins og konan mín yrði þreytt, og hún sagðis.t ætla aftur heim í kofann. Þar sem ég vissi að hún kæmist vel til baka, þá hikaði ég ekki við að láta hana fara eina. Ég sagði henni að ég myndi koma aftur innan tveggja stunda, en stuttu eftir að hún lagði af stað, þá duttu mér í hug sjálfsmorðshótanir hennar. Ég reyndi að hrinda þessum hugsunum frá mér, þar sem hún hafði verið svo glöð undanfarinn mánuð. En það var elcki hægt, hugsanirnar vildu ^ki. livexfa, svo ég lor að hafa áhyggjur og var sviptur allri hugarró. Þú getur kallað þetta hug- boð ef þú vilt, en svona var það — einhvers konar tilfinning um að eitthvað væri verulega að!“ „Þar sem mig langaði ekki lengur til að veiða, þá lagði ég af stað heim í veiðikofann og þar fann ég haná látna — kúluna gegnum gagnaug- að — og skammbyssan við hliðina á henni. Hún hafði lokins látið verða af því,“ sagði hann grátandi. „Varðstu var við nokkurn frá því að þú lagðir af stað að kofanum og þar til þú kall- aðir á lögregluna?“ „Ekki nokkra sálu. Það er fábýlt hér í sveit- inni.“ „Hve langt varstu frá kofanum?“ „Svona á að giska tvær eða þrjár mílur.“ „Það er skrítið að þú náðir ekki konunni þinni. Væri þér sama þó þú tækir polygraph- próf — (lygamaskína), Sherod?“ „Nei, því ætti ég að vera á móti því?“ „Hvers vegna? Vegna þess að við vitum að þú ert að ljúga. Ég get aðvarað þig — poly- graph-vélin sannar mál mitt.“ Hvers vegna hélt Fordney að Sherrod væri viðriðinn dauða konu sinnar? Gröðamöguleikar Laigihentir menn geta nú séð sér leik á borði og grætt stóran pening um þessar mundir. Ann- ríki er nú svo mikið hjá þeim aðilum er taka að sér að klæða bílsæti, að ekki er hægt að fá slíkt gert fyrr en í marzmánuði. Flestir nýir bílar eru með sætaáklæði úr leðurlíki og þyk- ir mörgum það heldur kalt á svölum vetrarmorgnum. Af þeim sökum eru hundruð eða réttara sagt þúsundir bíleigenda nú á biðlista til að fá bílsæti sn klædd með einhverju hlýlegu efni. Kostnaður nemur yfirleitt nokkrum þúsundum króna, en hvað er það miðað við þau þæg- indi að verða ekki kalt á boss- anum þegar hálfsofandi menn velta sér inn í bílinn á morgn- ana.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.