Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.01.1974, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 28.01.1974, Blaðsíða 8
ÚR HEIMS PRESSUNNI Edward Kennedy og knattspynwkonan ÚR BflJ ! ! ! I ! Onassis ríkari Jæja, nú er skorið úr því fyrir fullt og allt. Aristotle Onassis er ríkari en aðal- kcppinautur hans Stavros Niarchos, en um þessa skipa- kónga gátuni viö í síöusta blaði. Onassis er talinn eiga ncttó um 500 milljónir ster- lingspunda en Niarchos að- cins 400 milljónir sterlings- punda. Edward Kennedy, öldunga- deildarþingmaður, er nú bú- inn að krækja sér í l'egursta knuttspyrnukvcnmann heims- að best er vitað. Hún heitir Bernadette Kovae og hún og hinn 41 árs þingmaöur hafa sést saman oítar og oftar síð- an þau kynntust fyrir þrem mánuðum. Ungfrú Kovac var kynnt fyrir þingmanninum er hún var í liði knattspyrnu- kvenna frá Ungverjalandi. Nú er hún húsett í Bandarikjun- um og herma sagnir að hún hitti Kennedy þegar þess er nokkur kostur. Ungfrú Kovac ,sem er ákaflcga lík Jaqucline Bisset, hinni frægu leikkonu, er sú nýjasta af þeim ungu stúlk- um sem settar hafa verið í ástarsamband við iildunga- Býttaði á konunni íyrír máiverk Þctta ætti að geta gefið islcnskum listmálurum „blod paa tanden“. Listamaöur í Róm, málari, varð alveg orð- laus þegar túristi frá Banda- ríkjunum stakk upp á eftir- farandi: Hann bauðst til að býtta á konu sinni, ungri og vel vaxinni, 38-24-36, og mál- verki 18x14 þumlungar af Rómaborg eða hluta hennar, séðri af húsþaki. Málarinn skýrði svo frá: „Eiginmaðurinn varð ástfang- inn af olíumálverkinu og verðið, 1200 pund, var of hátt fyrir hann. Meðan við ræddum þetta yfir vínglasi, þá hældi ég konu hans fyrir fcgurð. Þá stakk hinn miö- afdra Amcríkumaöur upp á að býtta á henni og mál- verkinu í sex mánuði. Kona hans, Natasha, seiðandi, há- leggjuð Ijóska, hrífandi fög- ur, tvítug að aldri, horfði eggjandi á málarann, sem cr laglcgur 30 ára meðlimur Sikileyjaraðalsins — og varð því samþykkt.“ Daginn eftir kom feröa- langurinn frá Californíu í ^tudio Godfredo Trifiros pró- fessors og með skjal sem báö- ir menn undirrituðu. Klukkutíma seinna kom Natasha með tvær ferðatösk- ur og hundinn sinn. Eigin- maður hennar pakkaði inn myndinn og hélt af stað til Los Angeles. En nú er svo komiö, aö búið er að biöja Natöshu aö fara á brott. Trifiro skýrir svo frá: „Ég er vanur að vinna 18 kiukku- stundir á sólarhring. Hún er voöalega barnalcg og vildi að ég væri hjá henni einni allan tímann. Satt best sagt, þá vil ég heldur myndina sem ég skipti á í sex mánuði. Natasha var líka afbrýðisöm út í fyrirsæturnar mínar og rifrildi kom upp. Þess vegna leigði ég herbergi handa hcnni á hóteli hér í Róma- borg.“ Prófessor Trifiro hefur sent ciginmanninum skeyti og beð ið hann um að skila aftur málverkinu. Kennedy deildarmanninn síöari árin. Og þcssi vinátta er sögð vera farin að hafa ókyrrandi áhrif á eiginkonu Edwards, Joan. Hjónaband Kcnncdyanna, samkvæmt fréttum, hefur oft verið komið að skilnaði und- anfarið, en veikindi sonar þeirra, Edward jr„ en nýlega var tekinn af honum iotur- inn, virðist hafa fært þau saman eilítið, a.m.k. um sinn. Vinur Kennedys heíur sagt, að Bernadettc sé sú tcgund stúlku sem freistar hvers ein- asta manns, sem nokkurs er viröi. Og hún hcfur auk þess sýnilega fallið fyrir Ted — gælunafn Kennedys. Chaban ná aftur á uppleið Eins og menn muna, þá var Jacques Chaban-Del- mas, sem sparkað var sem forsætisráðherra Frakk- lands fyrir 18 mánuðum. Nú hefur hann hafið baráttu til að ná aftur fyrri völdum, jafnvel verða eftirmaður Pompidous. Þar sem allar líkur eru til þess, að Pompi- dou muni ekki bjóða sig fram í forsetakosningunum eftir 3 ár, þá er Chaban álitinn meða æðstu manna Gaullista sterkur frambjóð- andi miðflokkshugsjónanna á móti hinni miklu hættu og varanlegu sem Francois Hvort vilji’ði strák eða stelpu Langar ykkur að eignast svcinbarn, stúlkur? Þá skuluo þiö láta ciginmanninn krcista kattarskott meöan hann er í ástarlciknum. Eða viljiö þið hcldur telpu? Þá eigið þiö sjálfar að strjúka kettinum meðan á athöfninni stendur. Þcssi viska eða ráð kemur frá lækni forsetans í Kam- pala, sem cftir að hafa get- iö af sér fjórar stúlkur og fimm drcngi, fullyrðir að þcssar aðferðir hafi lukkast í öli skiptin hjá þeim hjónum. Mitterand og sósíalistar hans hafa skapað og í síð- ustu kosningum neyddu kommúnsta til að fylgja sér. Fall Chabans á síðasta ári þ.e. 1972 varð vegna kæru um meint svik í tekju- skattsframtali í fjögur ár. Hin veikbyggða vörn hans hafði litil áhrif á almenn- ings. Þegar annar kom í stað hans sem forsætisráð- herra, þá neitaði hann að láta sigrast og byrjaði að skipuleggja afturkomu sina og brúkaði aðstöðu sína sem borgarstjóri í Bordeux, höfuðborg vinframleiðslunn ar, og svo aðstöðu sína og styrk í þinginu. Tvær nýleg- ar skoðanakannanir hafa sýnt geysilega mikla vin- sæidaaukningu hjá hinni gömlu hetju andspyrnu- hreyfingarinnar og íþrótta- hetju, sem síðar varð stjórn málamaður, og þykir það sanna hversu vel honum muni takast að ná takmarki sínu. I ! ! I Alli og dvergarnir — Lúaaðferðir komma — Miklar undir- tektir — Skjalaþjófar — Glæponar og borgin — Ljósaæði í umferð — Sakavottorð ritstjórans SKÖMMU FYRIR borgarstjórnarfund voru 'allir fulltrúar mættir nema fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Voru þeir eitt- hvað að bauka saman, en að því loknu komu þeir allir inn í fundarsalinn í einu, allir þeir 8, sem eru meirihlutinn. Alfreð Þorsteinsson, bogarfulltrúi Framsóknar, var í sæti sinu og er hann sá hópinn koma inn, vatt hann sér að sessunaut sín- um og sagði hljóðega: ,,Nú, þarna kemur Albert Guðmundsson og dvergarnir sjö.“ MIKIÐ MUN undirskriftasöfnun „Varið land“ ganga vel og hafa íslendingar flestir brugðizt mjög vel við þessum vanda, sem yrði ef varnarliðið hyrfi á brott. Listar eru svo þús- undum skiptir í „gangi' og menn áfjáðir í að skrifa nöfn sín. Kommar eru alltaf samir við sig og læðast nú að gömlu sjónlitlu fólki, sem þeir abbast upp á á götum, biðja það að skrifa á lista gegn hervernd en Ijúga því um leið, að gamla fólkinu að þetta séu listar frá „Vörðu landi“. Það er eins og við segjum: Það er ekkert svo lágt og lúalegt, að kommakvikindin geri sér það ekki að mat. UNDIRSKRIFTASÖFNUNIN hjá Sambandi íslenzkra sam- vinnufélaga við Sölfhólsgötu gekk svo vel að undrum sætti, með tilliti til aðstöðu Framsóknarflokksins í málinu. Þar rit- uðu 68% starfsfólksins undir listann og víða hefur verið allt að 100% starfsfólksins, sem ritað hefur nöfn sín undir á- skorun um að herinn verði kyrr. Kommabælið við Hamrahlíð, þ. e. menntaskólinn þar er nú nýttur til upphlaupsverka á fundum og er ærið hart að við þurfum að greiða fyrir þessi skólagrey, sem ekki virðast hafa anna að gera en hópast á fundi. Vera má, að skólastjórinn sé þarna að misnota að- stöðu sína því honum er ekki ætlað að hvetja nema til slíks fólskuverka. KAUPSÝSLUMENN eða skrifstofustjórar sem láta lista sína standa óvarða ættu að varast þann rumpulýð, sem kommar hafa sent frá sér, sem gegnur á skrifstofur og rífur listana ef ekki er haft eftirlit mð þeim. Svona pilta, ef nást á hiklaust að taka fasta og refsa fyrir þjófnað og eyðileggingu skjala, sem þeim kemur ekki við. Þó er eitt gott við þetta. Fólk fær nú loksins að sjá fjesið á landráðamönnum og þær aðferðir sem notaðar yrðu í framtíðinni ef þessi skríll næði völdum. SPYRJA MÁ borgarstjóra: Er hægt að fóðra það, að smá- glæponar sem settir hafa verið á upptökuheimilið í Kópa- vogi taki leigubifreiðir að lokini „Fitl“ skemmtun í Tónabæ og láti skrifa þær hjá borginni? Að þessu eru mikil brögð á bifreiðastöðvum. Upptökuheimili þetta liggur undir hinu versta orði fyrir ribbaldahátt og allskyns hrottamennsku ungliganna, svo og getuleysi eftirlitsfólksins og fíflaskap svokallara „sálfræðinga", en ekki bætir úr ef við eigum nú að greiða fyrir bíltúra þessa fólks. Meðal annarra orða: Er það ein af lækningunum að leyfa þessum unglingum að hanga til miðnættis í Tónabæ? ÞAÐ VÆRI EKKI vanþörf á því, að svokallað umferðarráð reyni að stemma stigu við þeim öfgum sem orðnar eru í ljósa-,,gangi“ bifreiða. Áróður ráðsins varðandi Ijós í tíma og ótíma hefur leitt til þess að sumir bifreiðastjórar aka með „stóru" Ijósunum um hábjartan dag, jafnvel í glaðasól- skini. Svona öfgar eru eins hlálegar og þær geta verið hættulegar og ætti lögreglan að reyna að koma vitinu fyrir þá, sem lengst ganga í þessu Ijósabrölti. STRÁKLINGUR á Tímanum birti í óleyfi ritstjórnar sinnar fallinn dóm á ritstjóra þessa blaðs, auk þess sem hann taldi hæfa að telja upp aðra dóma og sakarvottorð hans, þ.e. aðra meiðyrðadóma, sem dæmdir hafa verið á hann undanfarin 26 ár. Þetta er algert siðleysi, því ritstjórinn hefur aðeins hlotið meiðyrðasektir en ekki aðra dóma, og lög mæla svo fyrir að bannað sé að birta slíkt. Hinsvegar mætti þessi Gautlandasveinstauli hafa í huga þegar næst er reynt að ata honum í foraðið, að það eru aðrir ritstjórar bæði Tímans og Mbl., Þjóðviljans o. s. frv., sem hafa í þessum efnum helmingi lengri sakavottorð. i

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.