Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Qupperneq 2

Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Qupperneq 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 4. febrúar 1974 AFTURGðNGUR EM drauga Vökumenn og útburðir Klæðnaður drauga Draugarnir höfðu ólíkan bún ing, karldraugarnir voru oftast nær í mórauðri peysu með lamb húshetm og hengdu smala, sum- ir gengu við broddstaf. Kven- draugarnir voru með mórauðan draugarnir voru með mórauð skaut með afmrbognum króki og oft á rauðum sokkum og sugu fingurnar. Draugar hrökkva undan skoti Mjög eru allar vofur og draugar og alit annað óhreint hrætt við skot, og er það til marks að bóndi nokkur við sjó gekk einu sinni seint um kvöld með byssu sína hlaðna inn í sjó- búð nokkra. Ætlaði hann að menn væru þar fyrir. Því gekk hann þar um er hann fór heim frá refaskoti, en skipshöfnin hafði drukknað um daginn. En naumast var hann inn kominn fyr en búðin fylltist af sjóvotum mönnum Ætluðu þeit að hreppa hann inn að gafli, en hann snéri sér við og hleypti af byssunni. Hrukku þá allar vofurnar út um veggina eða sukku niður og sá maðurinn þær ekki framar og fór svo heim. Vörn gegn ásóknum drauga Til að verjast ásókn drauga á maður að signa sig ofan á höfuðið eða hvirfilinn því draugar sækjast helzt eftir að komast fyrst yfir höíuðið á mönnum, líklega til að ringla þá. Mussumaðurinn í Títskálakirkjugarði Einu sinni var grafið í Ut- skálakirkjugarði, sem þá var orðin timburkirkja, norðanmeg- in við hlöðin undir kirkjunni miðja vega. En er þeir voru bún ir að stinga upp fyrstu pálstorf- urnar verður graftarmönnum heldur en ekki bilt við, því þar undir lá maður með hatt á höfði og parrugg, í mussu svartri og sortuðum stuttbrókum og mó- rauðum sokkum. Hann leit upp á þá; þeir lögðu niður torfurn- ar og grófu annars staðar. Ctburðir Útburðir eru nokkurs konar draugar sem koma af því að púkar fara í börn er mdður bera út án þess þau hafi hlotið skírn, því skírnin rekur allt ó- hreint burtu. Því eru þeir menn óskyggnir er skírnarvatnið væt- ir augun í. Útburðir dragast á öðru hné og halda á dulu þeirri er þeir voru vafðir í. Ekki kom- ast útburðir langt þáðan er þeim var kastað út. Ekki geta þeir valdið villu manná rétt hjá sér, en stundum heyrist gól til þeirra, helzt í illveðrum eða dimmviðri. títburðarvæl Til útburða hafa menn þókzt heyra söng eða gau frá fyrri tímum til nálægra, enda ennlif- andi menn, fyrir stórviðrum, en enginn veit ég hafi nokkuð eftir þeim nema þetta sem þó er ó- víst hvar eða hvönær upp kom: Kopp átti, kirnu átti ég, reisa átti ég bú, til manns var ég ætlaður ekki síður en þú. „Móðir mín í kví, kví“ Móðir nokkur kastaði barni sínu einhvern tíma út i flag- pælu nokkra skammt frá kví- um. Sumarið eftir, nokkru fyrir réttir, átti að halda víkivaka um nótt að krikju nokkurri og ætl- aði kvensnift þessi þangað, en fékkst mjög um það að hún " héfði ekki riæg fÖt. Mo'rguninri næsta fyrir dansfundinn var hún að mjólka í kvíurium. Kom út- burðurinn þá á kvíavegginn og kvað: Móðir mín í kví, kví, kvíddu ekki því því, Eg skal lána þér duluna mína að-dansa í Sló hann síðan tuskunni í andlit henni. Missti hún þá sjón ina og var blind síðan. „Ég skal ljá þér blóðrauða dulu Þegar mæður bert út börn sín og hylja þau þar sem þau finnast ekki afmr verður úr • þeim vófa sem kallast útburður. . Þégar þeir sjást eru þeir iíkast-. ir hrafni eða einhvurjum1 fugli og reisa sig Upp á annað hnéð og aðra höndina og flaksast svo áfram. Limr á þeim fer eftir lit msku þeirrar sem um þá er vaf- ið. Ef maður sér útburð skal maður elta hann hiklaust og flýr hann þá til móður sinnar um síðir. Útburðir væla mikið undan óveðrum, en sjaldgæft er þeir tali nokkuð. Þó er sagt að einu sinni hafi útburður komið á kvíavegg til móður sinnar og kveðið þetta: Móðir mín í kví kví, kvíddu ekki því, því, ég skal ljá þér blóðrauða dulu mína dans í. Ýluþúfur og Stelpusteinn Austanvert í túninu í Laxár- holti er almæli að verið hafi blóthof; vottar þar enn fyrir tóftinni. Þar eru þúfur aflangar og grjót undir. En suannan til í sama túni eru þúfur tvær langt um hærri en aðrar; þær eru kallaðar Ýluþúfur. Á milli þeirra er sagt að séu útburður og hafi oft heyrzt ýlfrið í þeim og því hafi þær fengið þetta nafn. Annar útburður er sagt að sé undir Stelpusteini sem er steinn einn á landamerkjum milli Laxárholts og Skálaness. | Nikulás á Kvlavöllum Nikulás hét maður og kona hans Ingvöldur; þau bjuggu á Kvíavöllum í Kirkjubólshverfi. I Hann kom innan úr Útskála- sókn áleiðis heim til sín. En er i hann kom að Hrossalág innan- vert við Kirkjubólshverfið sér hanri hvar kvensvUnta með silf- urhnapp á liggur þar saman- brotin. Ætlar hann að taka í hnappinn, en náði henni aldri, gengur þanneg áfram að aldrei nær hann svuntunni þangað til hann er kominn upp á heiðina að hann var kominn að hól þeim er kallaður er Skiphóll. Þar yfirgaf hann svuntuna Nikulás hafði verið fáorður maður og hæglátur. Sagði hann Guðrúnu Gísladóttur þetta er hún var hjá honum unglings- stúlka hér um bil 1760. Var það haldinn útburður. títburðurinn í Sturlárrétt Fyrir utan Sturlá í Fljótsdal er forn fjárrétt úr Kiðafelli og villingadal. Sér þessi rétt út sem forn farvegur Sturlárinnar. Hef ur jafnan þótt fárlega reimt í þeirri rétt; því væri fé haft næt- urlangt í henni var eitthvað jafnan laskað eður lamað af því á morgnana. Líka heyrðust þar oft hljóð til útburðar. Eitt sinn var kona á Þorgeirsstöðum sem Sólrún hét. Hún sat um vor- tíma inn í baðstofu; var þar fátt manna hjá henni. Héyrir hún þá sem barn véini niður við Kéldá, en gefur sig ei að. Svo heyrir hún það í annað sinrt. Þá hleyp ur hún út og heyrir þessi óhljóð eru í Sturlárréttinni og skildi um leið að þetta var útburður- inn sem á að vera í réttinni. Nýdauðir menn „Þú ert ekki búin að bíta úr nálinni“ Þegar saumað er utan um lík á ekki að hnýta hnúta á þráð- inn, ekki þræða upp í hendina eða að sér og ekki bíta úr nál- inni. Einu sinni ætluðu konur að sauma hjúp um lík og varð þeim tilrætt um að ekki mundi saka þó bitinn væri þráðurinn EINNAR MÍNÚTU GETRAUN: Hve slyngur rannsóknarí ertu? Athyglisgáfa Adams sannar sig ,,Þú veist það Jim“ sagði prófessor Fordney hugsi, „að ég hefi talsvert af gáfuðum piltum í bekknum mínum í lögregluskólanum. Það er sannarlega þakk- arvert að sjá hve vel þeim gengur, flestum." ,,Þú minnir á gamla hænu með ungana sína" svar- aði Kelly glettnislega gegnum tóbaksreykinn, „hvers- kyns Herkúlesar afrek hefur einhver þeirra unnið nú, má ég spyrja?" Prófessorinn hló góðlátlega. „Þér er kunnugt um hve geysilega áherzlu ég hefi lagt á hversu mikils- vert það er að nota eftirtektargáfuna — í stuttu máli, þá var handtaka Carters árangurinn af henni. Það var ekki alvarlegt mál, en það gæti hafa orðið það“. „Þeir Charles Adams og Bill Jeffries, sem báðir eru leynilögreglumenn voru að aka í lögreglubíl sín- um á leiðinni að flugvellinum. Klukkan 7.45 að morgni og auk þess sunnudagur meðan á síðasta stríði stóð og báðir strákarnir voru uppgefnir eftir næturvakt- ina. Allt í einu snéri Charles sér að félaga sínum og benti á bifreið sem kom á móti þeim, og spurði. „Hvað er að hér?" „Ekki nokkur skapaður hlutur" svaraði Jeffries syfjulega. Það voru tveir menn í bílnum, eldri maður sem ók og unglingur sem sat í miðju aftursætinu, sýnilega flautandi einhvern slagara, og óku hægt og ánægjulega, báðir venjulegir og ógrunsamlegir ein- staklinar í útliti. Auk þess var allt útlit hins gamla, opna Fordbíls í fyllsta lagi. En samt fannst Adams að eitthvað væri að. Þeir skipuðu samt bifreiðinna að nema staðar við vegarbrún, eftir að hafa snúið við eftir henni, og fun.du 50 lítra kút af flugvélabenzíni milli fram og aftursætanna (benzín var skammtað í stríðinu). „Adarris hefur bara haft eitthvað á tilfinningunni" sagði Kelley, „hversvegna stöðvuðu þeir bílinn?" „Vegna þess hve vel ég innrætti þeim að brúka athyglisgáfuna" svaraði Fordney. Hverju tók Adams eftir sem vakti grun hans. Svar á 6. síðu. úr nálinni og kvaðst sú er fyrst tók til að sauma mundi reyna það og svo varð. Varð henni þá eittlrvað það að hún mátti hætta sauminu. Allar freistuðu hins sama og fór á sömu leið þangað til kom að þeirri seiriustu. Tók hún líka að sauma og þegar hún hafði saumað nálþráðinn á enda mælti hún: „Ekki finn ég neitt á mér." Heyrðist þá mælt: „Þú er ekki búin að bíta úr nálinni." Ekki lét stúlkan sér bilt við verða, beit hún þá þegar úr nál- inni og stakk henni um leið í il þess dauða og mælti: „Búin er ég að því." Varð henni og elcki meint við. Manni varnað að ganga aftur Einhverju sinni voru tveir mennsamferða í trippaleit. Var það á öndverðri jólaföstu. Voru snjóþyngsli mikil svo þeir bjugg ust ekki við að ná til byggða með trippin fyr en í völtulok enda tók þar tunglskin við sem dag þraut. Um kvöldið varð þeim sundurorða og kom svo að annar heitaðist við hinn að ganga afmr og drepa hann; síð- an datt hann dauður niður. Fór hinn þá að stumra yfir honum og ætlaði að færa líkið að byrgi á hól nokkrum skammt í burtu. En að vörmu spori gjörðist líkið svo þungt að hann kom því ekki úr stað; tók það að þrútna, blána og bólgna upp. Vildi hinn þá ekki bíða þess að hann næði að ganga aftur. Greip hann þá staf þann er hann hafði gengið við, braut stafinn sundur í miðju, lagði brotin í kross og batt ofan á brjóst líkinu. Hætti það þá að blása upp. Síðan komst hann til byggða um kvöldið. Daginn eftir fékk hann hesta og menn til að sækja líkið. Var það þá eins og þegar hann geldc frá því Bjó hann líkið svo til jarðar að hann lagði trékross yfir það, en stakk nálum í iljar þess í kross svo það' gat ekki gengið aftur.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.