Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Page 4

Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Page 4
4 Mánudagsblaðið Mánudagur 4. februar 1974 Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: AGNAR BOGASON Sími ritstjórnar: 1 34 96 — Auglýsingasími: 1 34 96 Verð í lausasölu kr. 50,00 — Askriftir ekki teknar Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Enn um íslandsvarnir Þá er nú svo komið í landi okkar, að þjóðin hefur skipazt í tvær sveitir sem berjast með eða móti hlut- deild okkar í vörnum landsins í sambandi við NATO. Sá flokkur sem vill varnárlið áfram í landinu breyt- ingarlítið eða bréytingarlaust, ér að vísu miklu fjöl- mennari en háváðameniiirnir og öfgahóparnir sem vilja varnarliðið burtu. Það verður aldrei sagt að hlutverk Islands í sam- eiginlegum vörnum hafi verið erfitt. Varnarliði NATO er heimilt að hafa herbúðir sínar á óræktar- Iandi suður á Miðnesheiði, afskipti af innanlands- málum eða nokkrum málum Islendinga eru engin, vopnaðir menn sjást ekki, þjóðin fær stórtekjur af störfum við varnarliðið, og Bandaríkin kosta og halda við geysilega dýrum flugvelli, og láta okkur fá alla tæknilega hluti til reksturs hans Þau einu beinu ó- þægindi eru vallarhliðið og lögreglueftirlitið þar en nú eru þar ekki lehgur bandarískir herlögreglumenn heldur aðeins íslenzka lögreglan. Þessi fámenni varnarher sér hinsvegar um athug- anir á ferðum austrænna yfirgangsmanna, sem hrifsa mundu landið strax og varnarlaust yrði, hefur gát á auknum flugferðum þeirrá tíg kafbátum sém sigla í vaxandi mæli við strendur landsins Um njósnir Rúsa þarf ekki að ræða. Sendiráð þeirra er langfjölmennast allra erlendu sendiráðanna í Reýkjavík. Viðskipti okkar við Rússa er mikil, en vissulega mætti komast af með færra fólk en allan þann sæg sem er í sediráðinu auk þeirra viðskipta- nefnda sem hingað rekast ár hvert að austan. Það er eiðinlegt að þurfa að búa við varnarlið, én hinsvegar brýtur hér nauðsyn Iög. Island má þakka eða kenna legu sinni, að vestræna varnar- bandalagið NATO telur það höfuðnauðsyn í varnar- hlekk sínum, að Island búi við liðskost ef til átaka kæmi þótt hann sé ekki stór. Þó er enn Ieiðinlegra að hér hafa risið upp atvinnu- patríótar, ættjarðarvinir, eiðsvarnir Rússum um að koma hernum burtu. Þessir menn hafa eitrað hugar- far margra Islendinga, einkum þeirra yngri og ein- hvern hluta hins eldra fólks, sem auðtrúa er og fá- víst um háttu hinna austrænu ofbeldismanna. Það er aðeins liður í Iandráðastarfi þesara manna, að telja atburðina í ríkjum leppríkja Rússa „leiðindaatvik“ sem ekki myndu henda á Islandi. Æskan, sem nú rennur upp man hvorki örlög Eystrasaltslandanna, sem þurrkuð voru út, né heldur glögglega þær upp- reisnir og þá vorboða sem skotið hafa upp kollinum síðari áratugina og verið harðega bældar niður af vopnuðum rússnekum herjum með manndrápum og öðrum tegundum ofbeldis. Það er hart, að þessir menn skúli hafa kjark í sér til að stilla sér upp í hlut- verk Fjölnismanna. Svei! Það hlýtur að liggja í augum uppi, að undirSkrifir þær sem VARIÐ LAND hefur safnað gefur þeim í ríkisstjórninni sem meta að nokkru frelsi og sambúð vestrænna þjóða nokkra vísbendingu um vilja lýð- frjálsra Islendinga og þá haga verkum sínum í sam- ræmi við þann vilja. Hitt að meta nokkurs ofsa, yfirlýsingar og skrílmenningu þeirra sem hæst bera vopnin gegn varnarliðinu, er ekki annað en gungu- háttur sem ekki má líðast. ! ! k i Upplogin morð. Verk hryðjuverkamanna. ANGOLA: Hryðjuverkamenn á undanhaldi \ I k \ \ „Og nú komið þið inn á frelsað landsvæði.“ Sá sem þetta sagði, var spaugsamur kapteinn í ný- lenduher Portúgala, Victor Vincente dos Santos að nafni. Hanh var óvopnaður og í bílnurn með honum voru ekki aðrir en ég og amerísk- ur sendiráðsmaður auk ekils- ins sem var negri og hét Ignacio. Við ókum eftir nýja asfaltveginum, sem liggur frá Cabinda til Miconge, nærsta liornsins á hinu olíuríka yf- irráðasvæði Portúgala norð- an Kongó-fljótsins. Litskrúðugur hitabeltisskóg urinn báðum megin við hinn nýlagða veg er margar fer- rnílur að víðáttu og hinn á- kjósanlegasti til að veita ó- vinum fyrirsát. Þetta er líka sá hluti Cabindasvæðisins, sem hermdarverkamenn MPLA (Frelsishreyfing Ang- ólu) segist hafa frelsað. LÍTIÐ UM HERMDARVERK En hermdarverkastarfsemi á Cabindasvæðinu er í raun og veru engin, eins og sjá rná af því, að yfirvöldin skuli leyfa erlendum sendi- ráðsmanni að ferðast um svæðið verndarlaust. Nokkrir hermdarverkamenn hafa komið fyrir jarðsprengjum í nánd við Miconge, sem er lítil portúgölsk herstöð á smáhæð, aðeins nokkra metra frá landamærum alþýðulýð- veidisins Congo, sem hefur skotið skjólshúsi yfir MPLA. Það var þarna, sem eini at- burðurinn af ófriðartagi hef- ur átt sér stað nýlega. Þetta gerðist 8. október s.l., en var fremur landamæraþjark held- ur en hermdarverkastarfsemi. MPLA hafði óvænt skotið nokkrum skotum frá Congo- og ég gat séð af nokkrum svæðinu inn í Miconge (eins holum í virkinu, sem búið var að gera við), en þessi árás var fljótlega bæld niður af hinu fámenna setuliði, sem drap fimm hryðjuverkamenn. Eini hlutinn. af Cabinda, þar sem manni er fengin herfylgd eru hinar fáu mílur, sem liggja að-Mieongevirkinu.- SVARTAR VÍKINGASVEITIR 1 aðalbækistöðvum yfir- mamis portúgölsku riddara- Eftir Hans Germani liðssveitarinnar, sem gætir Miconge svæðisins, en hann heitir Mario Delgado og hef- ur reyndar tekið þátt í hesta- mennsku á Oiympíuleikum, uppgötvaði ég hver var ein af ástæðunum til þess, að Portúgölum hefur gengiðsvo vel að uppræta hryðjuverk í Angola: svartar víkingasveitir skipaðar fyrrverandi hryðju- verkamönnum, sem hafa gengið í lið með Portúgölum og leita nú uppi sína fyrri félaga. VINUR CHE GUEVARA Francisco Lubota, sem nú stjórnar herflokki sérþjálf- aðra manna er gott dæmi um þessa menh. Hanh var einu * siimi háttsettur leiðtogi í MPLA og hafði verið her- bergisfélagi yfirmanns MPLA Agostino Neto og hafði þá kynnzt Che Guevara, sem þá var hægri hönd Fidel Castro og í heimsókn á landamæra- svæðinu til að leggja forystu- mönnum MPLA ráðin, hvern ig hefja skyldi hryðjuverka- styrjöld. SKÝRING LUBOTA Luböta gefur einfalda skýr- ingu á viðbrögðum sínum: „Ég hljópst á brott með öll- um mínum ættbálki, þegar Robertouppreisnin hófst í Angóla. Okkur var sagt, að Portúgalar væru að drepa hvern sem hönd á festi. Ég fór tU Kína, Alsír og Kúbu. Ég sneri aftur til Congo til að stjórna baráttunni, en ég var fullur af heimþrá. Ég komst að því að öll mín fjöl- skylda hafði snúið aftur heim til portúgalskra yfirráða- svæða. Ég heimsótti þau með leynd og uppgötvaði að Portúgalir höfðu ekki drepið mannsbarn. Mér snerist hug- ur og ákvað að það væri betra að vera í mínu heima- landi og að lífið með Portú- gölum var betra.“ UPPRÆTT STARFSEMI Erlendir diplómatar og aðrir sem gista landið, eru á einu máli um að ástandið sé jafnvel enn betra í aðalbæki- stöðvum Angólu. Hernaðar- sérfræðmgar sögðu mér, að milli þorpsins Gago Coutinho í Austur-Angólu og landa- mæra Zambíu og fáeinar að- gerðalausar deildir úr UNI- TA (hryðjuverkahópur, sem hefur klofið sig úr MMPLA) Framhald á síðu 6. ! i i

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.