Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Side 7

Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Side 7
Mánudagur 4. febrúar 1974 AAánudagsblaðið 7 KEFLAVÍKURLÖGREGLAN Framliald af 1. síðu. ursinn með skírteini. Nú vildi svo óheppilega til fyrir nokkr um hluta farþeganna, að þeir höfðu ekki nafnskírteini sín meðferðis, þar á meðal 17 og 18 ára nemendur úr menntaskóla Reykjavíkur. Þessum ungmennum skipaði LÖGREGLUMAÐUR NR. 3 með harðri hendi að hypja sig hið bráðasta út úr sýsl- unni og kváðu bifreiðarstjóra ábyrgan fyrir að koma þeim hið bráðasta úr lögsagnarum dæminu. LÖGREGLA Ekki er vitað hvaðan þau lög eru upprunnin að bif- reiðarstjóra i hópferðabifreið sé skylt að krefja farþega — YFIR 16 ÁRA ALDRI — um skilríki, áður en hann flytur þá til staða sem þeir óska og hafa þegar greitt fyrir. DRUKKNIR FÁ GRIÐ! Ekki er öll sagan sögð með þessu, heldur útskýrði lög- reglumaður nr. 3 gerðir sínar og félaga sinna með þeim orðum, að ef til vill mundu þessi ungmenni neyta á- fengra drykkja, ef þau dveld- ust í kaupstaðnum, en áður höfðu laganna verðir gert rót tæka leit að áfengi á ung- mennum þeim er í bifreiðinni voru og er þeir höfðu fundið dreggjar í floskum hjá nokkr í um þsirra heppnu sem voru smeð nafnskírteini sín upp á vasann, fengu þeir fararleyfi inn í danshús staðarins, þótt á þeim sæist greinilega vott- ; ur einhverrar áfengisneyzlu. Þeir sem eftir voru í bifreið- inni, höfðu hinsvegar ekkert áfengi undir höndum og höfðu heldur ekki neytt þess í ferðinni. HVAÐAN KEMUR LÖGREGLUNNI LEYFI! Ein stúlkan bað leyfis að mega heimsækja frændfólk . sitt er býr í kaupstaðnum, en | ! ! fékk háværa neitun!! Er hægt að bjóða nokkurri persónu slíka framkomu í lýð frjálsu landi? Hvernig getur óbreyttur lögregluþjónn tekið sér það vald í hendur, að reka hrein- lega burtu úr lögsagnarum- dæminu hópferðabifreið með farþega án þess að fyrir liggi einhverjar sakir? Það eru engin skynsamleg rök fyrir því, að ákveða að einmitt þetta fólk mundi hegða sér illa af því að ein- hver hafði einhverntíma ein- hverstaðar eitthvað gert af sér. Er ekki nokkuð langt geng- ið, að óbreyttir þorpslögreglu menn setjast í dómarasætið og dæma án saka og full- nægja dómunum á staðnum? Stríð á Akureyri Framhald af 1. síðu. Sólnes lofar Magnús Kjartansson Þetta gremst þeim Jóni Sólnes og félögum golfklíkunnar stór- lega. Til að hefna sín á Hall- dóri og Lárusi Jónssyrii hefur hann nú snúist öndverðúr gegn þeim í orkumálum, en þeir fé- lagar hafa haidið uppi linnu- lausri skothríð á stefnu dagn- úsar Kjartanssonar í orkumálum norðan]|nds^.o^ rxTUdýn ^!Ja’|sn ísiendings, blaðs Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri, vár riett við nokkra menn um minnis verðustu atburði liðins árs. Allir þeir sem við var rætt töldu Vest- manaeyjagosið og lausn land- helgisdeilunnar metkústu atburð- ina — nema Jón Sólnes. Hann minnrist ekki.. einu orði á þau mál. Aðeins lausn Laxárdeilunn- ar. Þar lofaði hann Magnús Kjartánsson upp í hástert fyrir að Íéýsa þéssa „vandasömu deilu" og sagði að sér hefði aldrei liðið eins Vel fyrir hönd Iandsfjórðungsins eins og þegar hann ók heim á leið að loknum samnmgum. Á næstu síðu var svo leiðari og löng grein (fyrsta af þrem) eftir Lárus Jónsson, þar sem hann sýnir fram á að „úrræði" Magnúsar Kjartanssonar hafa gert það að verkum, að til hreins glundroða horfir í raf- orkumálum Norðlendinga. Tryggvi rauk burtu í fússi Tryggvi Helgason flugmaður, er verið hefur á flandri milli flokka nyrðra undanfarin ár, hefur nú sagt sig úr Sjálfstæðisflokkniun. Gerði það á gamlársdag í harð- orðu bréfi til flokksstjórnar. Hafði hann ritað langa grein um landsmálin, aðallega sam- göngumál, sem hann ætlaðist til að birtist í áramótablaði íslend- ings. Ritstjóra blaðsins, Halldóri Blöndal, leist samsetningur þessi hins vegar harla vafasamur og ekki til þess fallin að auka hróð- ur sinn sem ritstjóra. Hann tók því á málinu með „festu og djörfung" og neitaði að birta greinina. Draumurinn búinn — Nýstárleg úrræði Varð Tryggvi ókvæða við, enda skapmaður hinn mesti, og sagði sig úr flokknum. Hrundi þar með þingmannsdraumur hans, hvað Sjálfstæðisflokkinn snerti. Þetta hefur ugglaust ver- ið erfiður biti að kyngja fyrir Tryggva, þar sem hann hafði lýst því yfir í viðtali við Morg- unblaðið, að hann ædaði sér að verða þingmaður fjokksins eftir næstu kosningar. Hugðist hann aðallega vinna sér átít manna með snaggaralegri láusn á sam- gönguerfiðleikum stjrálbýlla staða, sem oftlega lokast af ef snjóar á fjallvegum. Hans lausn er einföld: Bara grafa gegnum öll fjöil, þannig að ekki verði um neina fjalílvegi áð ræða til að teppast. Snaggaraleg lausn á erfiðu vandamáli! SFY vildu hann ekki Píslargöngu Tryggva Helgason- ar er þó ekki lokið enn. Hann sótti um inngöngu í Samtök frjálslyndra og vinstri manna, þar sem honum þótti auðsætt, að flokkur samgönguráðherra hlyti að hafa ágimd á manni með svo stórbrotnar hugmyndir um vegalagnir. í intökubeiðni sína setti hann það skilyrði, að hann yrði í öruggu sæti í næstu þingkosningum. Félagsmönnum SFV leist hins vegar sending þessi vafasöm og neituðu Tryggva um inngöngu. Er nú úr vöndu að ráða hjá flugmanninum, þar sem eini flokkurinn sem eftir er er Al- þýðubandalagið, en Tryggvi hef- ur það álit á kommúnistum, að þeir séu slæmir menn (lái hon- um hver sem vill) og slagi hátt upp í hönnuði fjallvega að vonsku. DÆMDUR FJÓRUM SINNUM Framhald af 3. síðu. vera að bíða eftir rukkurunum? Ótal vitni hafa borið, að frú Schröder hafi velt fyrir sér þeim möguleika að flytja í burtu, og losna þannig við að greiðaskuld- ir sínar. Og það endaði með því að hún seldi húseign sína í Langen við Frankfurt og fór með Imiela til sumarbústaðar- ins á Fehmern. Síðan í árslok 1968 hefur ekk- ert til hennar spurst. Engar lík- amsleifar hafa enn fundist, sem bent geti til hennar. Sá mögu- leiki er að sjálfsögðu fyrir hendi, að hún haldi sig á einhverjum óþekktum stað í Suður-Evrópu eða S-Ameríku, — en eigi að síður var Imiela dæmdur fyr- ir morðið á henni. Maria Anne Kieferle 74 ára móðir hinnar horfnu Annemarie Schröder, kynntist Imiela í gegnum dóttur sína. Og það Ieið ekki á löngu þar til hún seldi húseign sína í Geis- ling við Ulm og fór til Feh- mern. Hún hvarf sporlaust, eins og dóttirin. Hvað hana snertir er heldur ekkert lík til að styðj- ast við í uppkvaðningu dauða- dómsins. Ákæruvaldið álítur þó, aðum morð hafi verið að ræða í sam- bandi við hvarf mæðgnanna. Og í ákæruskjalinu stendur einnig, að hann hafi verið í kynferðis- legu sambandi við konurnar og síðan komið þeim fyrir kattar- nef. Sönnun um þetta atriði á- kærunnar er þó ekki fyrir hendi. Arwed Imiela hefur hinsveg- ar staðfest, að hann hafi verið heirbundinn — eða látið sem hann væri heitbundinn — Annemarie Schröder og Urte Evels. éum S®Iber« machenl rA Va i • ANNAÐ EKKI xminster \ \ I t

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.