Mánudagsblaðið - 04.02.1974, Qupperneq 8
RAUNIR RICHARDS
BURTONS OG LI2
ÚR HEIMS
PRESSUNNI
SÁ HLÆR
BEST...
Emile Shukeir ferðaðist
tvisvar í viku milli Beirut
og Aþenu. En hann var ekki
hinn venjulegi busnessmaður
eins og hann Ieit út fyrir.
Hann flaug til Aþenu með
sérstakar falskar tennur í
gómum sér. Gómarnir voru
úr platinum, tennurnar sjálf-
ar úr hvítagulli, fylltar dem-
öntum. I höfuðborg Grikk-
lands seldi hann gebissið fyr-
ir mjög mikinn ágóða og
snéri heim aftur með venju-
legar tennur.
En á dögunum, þá sagði
grunlaus tollvörður Emile
dónalegan brandara og hann
skellihló — og tollvörðurinn
sá skína í gimsteinana. Em-
i!c hlaut 1000 sterlingspunda
sekL
Það virðist ekki eiga að
blása byrlega fyrir þeim
Sverri Kristjánssyni sagníræð-
ingi og atvinnu-minninga-
greinahöfundi (flott orð) og
Hugh Hefner, útgcfanda
og eiganda Playboy blaðsins
og klúbbanna ásamt mörgu
öðru. Þegar Sverrir ætlaði
að scgja frá Árna hcitnum
Pálssyni sögu í útvarpinu,
scm ættingjamir ekki vildu
heyra, þá kom lögbann á
þáttinn og nú þcgar átti að
gcra kvikmynd af næturlifi
Hefners, þá kom brezki
„censorinn“ til málanna og
allt er það í steik. Margar
berar þokkagyðjur koma
fram í myndina sem þeir
Dufferin lávarður og Tony
Palmer ætluðu að gera fyrir
brezka sjónvarpið, cn útscnd-
ingar áttu að hefjast á þriðju
Hinn kunni Richard Bur-
ton, annar aðalleikandi í
skrípaleiknum milli hans og
konu hans, hinnar þekktu
Elizabeth Taylor, hafa nú
náð saman eftir sex mánaða
skilnað, sem verið hefur í
öllum heimsblöðum. Nýlega
bar hann sig upp við blaða-
konu um allar þessar stymp-
ingar í hjónabandinu (þau
hafa hlaupið sundur tugum
sinnum) en nú er hann kom-
inn heim aftur. „Án hennar
væri ég dauður og hún Iíka,“
sagði glaður en um leið sorg-
bitinn leikarinn, og alveg ó-
vænt bætti hann við: „Hún
hefur ekki haldið framhjá
mér, en ég er hræddur
um að það hafi hinsvegar
komið fyrir mig.“ Ánnars
hefur hjónabandsfrægð þeirra
aðallega byggzt á hinum
frægu brotthlaupum, hún
fimmgift, og heimurinn hef-
ur staðið á öndinni um hvaða
gjafir þau gæfu hvort öðru
þegar þau sættust. Fyrir
nokkrum árum var það venja
að hún gaf honum flugvél
cftir að hann kom heim, en
hann gaf henni demanta,
einu sinni var einn demant-
urinn virtur á 1,2 milljónir
dollara. Þá var þeim bannað
daginn og ansi seiðandi glcfs-
ur úr lífi hins auðuga út-
gefanda. Það eru músikmcnn
sem stöðvuð uútkomuna,
sögðust ekki vilja að „þeirra“
músík yrði heyrð í sambandi
við svona filmu og atriði.
Myndin sýnir hinar mjög svo
sexy playmates (Ieikfélaga
okkar hér í blaðinu) allsnakt-
ar og í ákaflega fögrum og
—eflaust — æsandi - stelling-
um. 1 aðalhlutverki er Mari-
lyn Cole, Bunny eða kanína,
átti að leika eitt af aðalhlut-
vcrkunum en þau munu vera
mörg því myndin hcitir The
World of Hugh Hefner, og
segja myndasmiðirnir, er alls
ekki dónalcg.
..En svona cru áhyggjur
heimsmanna eins og Sverris
og Hefners.
að hafa hunda sína í land
meöan þau eyddu sex mán-
uöum í kvikmyndatöku í
Englandi en þau bara leigðu
sér snekkju undir hundana,
sem bundin var við bryggju
í London svo þau gætu heim-
sótt þá, en málið komst í
brezka þingið því kosta varð
pólitímann til að gæta þess
að hundarnir ekki slyppu í
land. Verkalýðsleiðtogi spurði
Burton og Liz.
á þingi hver borgaði pólití-
mann á þessari hundavakt,
en það gerði rikið, og þótti
sveltandi Bretum nóg um
þessa eyðslu, en ekki minnk-
aði öfundin þegar upp komst
að þau greiddu tvö þúsund
dollara á viku fyrir snekkju-
leiguna. ........
SÚKKULAÐI
OSTUR
Nú er-allt að verða brjál-
að í Bandaríkjunum út af
súkkulaðiosti. Hann er bú-
inn til úr átta únsum af veik-
um osti, þremur fjórðu úr
bolla af sykri, fimm teskcið-
um-af kókó og þvínæst fryst-
ur. Uppfinningamaðurinn, dr.
Theodore Hedrick frá Michi-
gan háskólanum segir um
uppfinningu sína: „Það er
eins og að kynnast Brigitte
Bardot í samfestingi. Maður
hefur ekki hugmynd um á-
nægjuna sem býr innifyrir.“
HUGH HEFNER BANN-
ADUR-PLA YBOY-MYND
Ný stétt í Mílanó- karlhérur
Konur í æðstu forstjóra-
stöðum I Mílanó cru nú farn-
ar að krefjast sömu fríðinda
og karlmenn í sambærilegum
stöðum, þ.á.m. kynferðislegt
jafnrétti. Og eins og við var
að búast, þá er komin upp
spánný stétt þar í borg, þ.e.
karlhórur. Tvö hundruð karl-
menn milli 18 og 30 ára eru
sagðir hafa að aðalstarfi
karlmellustarfið og kostar
„skrensinn“ kvenmanninn 20
sterlingspund. Hér opnast
nýir mögulcikar fyrir Vísi.
0
Þetta er það nýjasta frá Míl-
anó. Karlar hafa tekið yfir
hlutverk kvenna, en þær eru
þó ekki af baki dottnar —
úr im
ÍANNAÐ
Matur og prísar — Tímaeyðsla á útvarpi — Sérkennilegur
matseðill — Reynir hinn sterki — Hverjir ráða skólunum?
ANNARS MÁ alveg eins ræða einu sinni hér í dálkunum dá-
lítið um mat og matarprísa, sem nú hafa komizt himinhátt
í verði og það, þó ekki sé um neitt sérstakan mat að ræða.
öll hótel og matstaðir eiga það sammerkt að selja mat
rándýru verði og oft eiginlega lélegan mat. Þegar svo er
komið, að venjulegur borgari getur ekki fengið ódýra eða;
sanngjarna prísa á mat t.d. fiski, súpu eða venjulegum kjöt-
réttum, þá er veitingamaðurinn þegar búinn að brjóta af sér.
Það er áberandi að nú eru það mestmegnis þeir, sem „éta;
fyrir fyrirtæki sín“ og hafa svokallaða expense-account, sem
setjast að krásum á matstöðum, enda greiða fyrirtækin.
Hvort það er rétt skal látið milli hluta en heimferðin á mat-
málstímum eða þá í mötuneytið borgar sig geysilega vel.
HEFUR ÚTVARPIÐ reiknað út hve langan tíma það tekur í
hinum ýmsu þáttum t.d. Óskalögum o. s. frv., að þylja upp
sömu kveðjurnar með sama laginu í stað þess að þylja
kveðjuna einu sinni og svo nöfnin? Þetta japl og mælgi er
bæði hvimleitt og svo veldur hún því að miklu færri lög kom-
ast að. Þetta er að verða eins og jólakveðjurnar illræmdu
þegar jafnvel kveðja frá heimilisrakkanum er send í einhverju
viðkvæmniskasti viðkomandi sendanda. Er þettaækki genglð
nógu langt?
•--------------------------
NÚ ÞEGAR þorrablótin eru óðum að hefjast með ollum sin-
um margvíslegu kræsingum, nýjum og súrum, er ekki úr vegi
að geta einstaklega skemmtilegs matseðils, sem rak á fjörur
okkar fyrir stuttu. Það er veitingahúsið Bautinn á Akureyri
sem sendir frá sér þennan matseðil, og fylgir hann þorramat
hússins. Seðillinn er á heimabökuðu hrognamáli, en skiljan-
legu þó. Sem dæmi um nöfnin á réttunum má nefna', að
bringukollar heita; á matseðlinum Suro Bringokolli de
Animale, sviðin Brenndo Hauses de Rolla, hrútsptingamlr
Confecto (La Mille Foto), hákarl Hacarles (Multo Fýlo), og
slátrið nefnist Blod de Animales Tortures, mixe a Haframjöle.
Alls eru á seðlinum 13 matartegundir og eru þær allar í
svipuðum dúr á seðlinum. Það eru svona húmoristar, sem
gerg átið skemmtilegt.
TALANDI um Akureyri. Reynir Leósson, kraftakarlinn frá
Keflavík, hefur verið á ferðalagi um Norðurland og bjó þá
á templarahótelinu Varðborg. Það þótti í frásögur færandi,
þegar hann eitt sinn ætlaði að borga framreiðslustúlkunni
einn Thule með 50 króna peningi (það er prísinn á pilsnern-
um hjá templurunum) og gætti ekki að sér, heldur keng-
beygði peninginn milli fingra sér, um leið og hann rétti hann
að dömunni. Eitt sinn kom hann líka niður stigann, hálf-
skömmustulegur á svip með handklæðisbúta í sitt hvorri
hendi. Hann hafði verið að baða sig, og þegar hann var að
þurrka á sér bakið, slitnaði handklæðið!
•---------------------------
NÚ MÁ FARA að spyrja: Hverjir eiga. að ráða unglinga-
skólunum? Á dögunum skrópaði hópur unglinga sem ríkið
kostar til náms, í tíma, til að ræða við ráðherra!!! um hljóm-
sveitarleik á dansiböllum skólans! Skólastjóri hafði gefið
krökkunum, ÖLLUM undir lögaldri, tækifæri til að bæta
háttu sína, en drykkjuskapur keyrir úr hófi. Þetta viðbjóðs-
lega dekur við þessi börn sýnir á hvaða stigi ráðherra er
í þessum málum. Ef til væri snefill af uppeldi, þá hefði ráð-
herra átt að skipa að refsa unglingunum hæfilega, en hrein-
lega sparka þeim af skólajötunni ef þeir ekki skipuðust við
áminningu.
/td hatUfrmAkó
H ERRAD E I L D
t