Mánudagsblaðið - 05.08.1974, Síða 4
4
Mánudagsbiaðið
Mánudagur 5. ágúsí 1974
‘Blaé fyrir alla
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: AGNAR BOGASON.
Símj ritstjórnar: 1 34 96. — Aulýsingasími: l 34 96
Verð í lausasölu kr. 80,00. — Áskriftir ekki teknar.
Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Alþý&uflokkurinn
Framhald af 1. síðu.
og Magnúsi Kjartanssyni, sem
sér óskir kommúnista rætast
með undansláttarhætti krat-
anna. Jafnvel þótt Keflavíkur-
flugvöllur héti áfram NATO-
stöð, verða þar engar varnir
eftir formúlu Benedikts Grön-
dal, og ákjósanleg aðstaða fyr-
ir kommúnista til þess að
hreiðra um sig þar og koma
sínum mönnum í ábyrgðarstöð-
ur.
Þetta er líka sú stefna, sem
Þórarinn Þórarinsson (Tíma-
Tóti) hlýtur að gleðjast yfir,
því hann hefur leynt og ljóst
rekið mikinn kommúnistaáróð-
ur I TÍMANUM og heldur
ekki vatni af tilhlökkun yfir
þeim árangri, sem hann virðist
vera í þann veginn að ná með
þvi að svínbeygja kratana.
Það er ekki ólíklegt að Þór-
arinn eigi eftir að fá fleiri gisti-
boð til Austur-Þýzkalands og
Sovétríkjanna ef þetta tekst hjá
honum.
En hvað segir svo hægri
armur Framsóknarflokksins?
Ætlar hann virkilega að láta
það viðgangast að fórnað verði
sjálfstæði landsins með varnar-
leysi fyrir fárra ára setu í rík-
isstjórn með kommúnistum og
krötum sem allir sjá að leiöir
einnig til upplausnar í efna-
hagsmálum og þrengir hag
allra þeirra einstaklinga og
fyrirtækja, sem byggja afkomu
sína á frjálsri verzlun.
Því verður ekki trúað, að
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra, sem staðið hefur sig vel
i einkastyrjöld sinni við komm-
únistana Magnús og Lúðvík,
láti það slys henda sig að
máttleysisstefna Benedikts
Gröndal fái að ráða næstu ár-
in. Þá er voðinn vís.
Þvílík uppgjöf væri það fyr-
ir Einar, að láta t.d. Benedikt
eftir utanríkismálin og vera
sjálfur settur í eitthvert minni-
háttar embætti. Þá fengi Ragn-
ar Arnalds ósk sína uppfyllta,
cn hann hefur jafnframt á-
huga á að setja Lúðvík til
hliðar, sem kommúnistum
finnst hafa staðið sig illa í
landhelgismálinu, þrátt fyrir
fjölmargar kokhreystilegar yf-
irlýsingar, sem hann varð að
margkyngja þegar forsæiisráð-
herra tók af skarið í samning-
unum við Breta.
Innan Alþýðubandalagsins
er hann uppnefndur „landhelg-
isþrjóturinn“, sem kyngir
munnvatni jregar mest á ríð-
ur að gefa ábyggilegar yfirlýs-
ingar; er háll eins og áll og
segir ætíð að það sé ekkert
að í efnahagsmálum, þótt all-
ir viti betur, að gjaldeyrisvara-
sjóðurinn tæmist óðum og fyr-
irsjáanleg sé veruleg gengis-
lækkun.
Lánsfjárkreppan er nú að
komast í algleyming og það
verður fróðlegt að fylgjast með
því þegar Landsbankinn og Út-
vegsbankinn þurfa að inn-
heimta hjá viðskiptavinum sín-
um nokkra milljarða króna til
þess að gerast kvittir við Seðla-
bankann, á sama tíma og þeir
þurfa að speða í útgerðina og
iðnaðinn jafnmiklu fé svo ekki
verði alger stöðvun í rekstri.
Þetta ásíand kallaði .Lúðvík
Jósepsson gott ástand í nýaf-
staðinni kosningabaráttu. Og
þaðt. eru orö, að sönnu hjá hon-
um, því að þetta er einmitt
ástandið, sem komn/únistar
þurfa að hafa til þess ,að halda
í og auka fylgi sitt. Nógu mik-
il vitleysa og þá verður al-
menningur þreyttur og hendir
atkvæði sínu á kommana.
Því veröur ekki trúað fyrr (
en á reynir, að þeir Eggert
Þorsteinsson og Jón Ármann
Héðinsson samþykki óþvingað-
ir að Alþýðuflokkurinn gerist
aðili að stjórnarsamvinnu með |
kommúnistum. Þeir hljóta að I
sjá, að utanríkis- og efnahags*
ráðstafanir, sem gerðar verða
í samvinnu við kommúnista,
eru einungis kommum til
framdráttar og kosningar verða
fyrr en kratar gera sér grein
fyrir.
Þá verður enginn Alþýðu- j
flokkur til á Alþingi Islend- j
inga, en stærri og sVerkari ,
Kommúnistaflokkur. I
Það koma stundum þær
stundir fyrir okkur öll, að við
getum ekki sofnað. Nýlega
lagði ameríska tímaritið U.S.
News & World Report nokkrar
spurningar fyrir Harold L.
Williams, yfirmann geðdeildar
Walter Reed-spítalans í Wash-
ington, og fer viðtalið hér á
eftir:
Spuming: Doktor Williams,
er mikið um, að fólk kvarti
um svefnleysi?
Já, það er mjög algengt. Lík-
lega eigum við öll erfitt með
svefn á köflum. Þetta er afleið-
ing daglegrar spennu og kvíða.
Að vísu er ekki til nein form-
leg skýring á svefnleysi, en ef
einhver kvartar um svefnleysi,
þá er svefnleysi fyrir hendi, og
ef það háir honum verulega,
ætti hann að leita til taugalækn-
is.
Flestir læknar munu þó senni
lega segja, að ef menn hafi á-
hyggjur af svefnleysi, geri á-
hyggjurnar illt verra. Segja
þeim, að ef þeir geti ekki sofið,
skuli þeir lesa, eða fara á fæmr
og gera eitthvað, sem þeir hafa
áhuga á.
Spurning: Er hcetta á, að
svefnleysi haldi áfram um ó-
ákveðinn tíma?
Svar: Maður sofnar fyrr eða
síðar. Bezta ráðið við svefnleysi,
hugsa ég, er svefnleysi. Það er
ólíklegt, að maður geti haldið
sér vakandi — ef hann í raun
og veru vill sofna — lengur en
í 36 til 46 klst. Nema því að-
eins, að hann fái sér blund og
blund á daginn. Þess vegna
reyna Iæknar að fá fólk til að
hætta við að fá sér smáblund
á daginn til að bæta sér upp
svefnlausar nætur. Aðalatriðið
er að komast í háttinn á skikk-
anlegum tíma og gera það
reglubundið.
Spurning: Hve lengi cettu
menn að sofa á nóttunni?
Svar: Yfirleitt þarf fólk sjö
til átta klukkustundir, en það
er enginn almennur mæli-
kvarði. Sumir komast mjög vel
af með sex tíma; aðrir þurfa
þetta níu til tíu tíma.
Spurning: Getur það verið
heilsuspillandi, að missa úr
svefn hvern sólarhring?
Já, það álítum við. Við höld-
um, að menn geti safnað svefn-
„skuld", ef þetta er til langs
tíma. Og það getur haft afleið-
ingar, sem elcki liggja ljóst fyrir,
því að það er ekki víst, að
maðurinn sjálfur verði þeirra
var.
Spurning: Er hcegt að vinna
svefnmissinn upp?
Svar: Já, ekki er annað að
sjá. Þegar menn hafa verið
sviptir svefni í fjóra sólar-
hringa, til dæmis. og er síðan
leyft að sofa eins lengi og þeir
vilja, þá sofa þeir oftast 9V2
eða 10 stundir í fyrstu Iotu,
fremur en þær 8, sem þeir eru
vanir. Og þessu heldur áfram
næstu þrjá eða fjóra sólar-
hringa. En samt sem áður er
þessi uppbótarsvefn talsvert
styttri, en sá, sem þeir hafa
misst úr.
Spurning: Getur maður, ef
svo mcetti að orði kveða, sett
svefninn „í sparisjóð”? Ef mað-
ur á sérstaklega erfitt tímabil
fyrir höndum, vceri þá ekki
gott að sofa lengur nokkrar
undanfarndi ncetur?
Svar: Nei, við erum nokk-
urnveginn vissir um, að það
væri til einskis. Hins vegar er
gott að fá sér smáblund, ef mað
ur á vökunótt fyrir höndum.
Spurning: Hvernig stendur á,
að sumt fólk byltir sér á alla
vegu heilu nceturnar, og sofnar
svo vcerum svefni undir morg-
un?
Svar: Ef menn fara að óttast,
að þeir geti ekki sofnað, þá
.eykur.það.spetyiuna, og það er
þá, sem menn fara að bylta sér
á alla vegu.
Spurning: Geta andlegar cef-
ingar rétt fyrir háttinn staðið
manni fyrir svefni?
Svar: Eg held, að andlegar
æfingar í þeim skilningi að
glíma við þrautir sér til
skemmtunar, hjálpi fólki til að
slaka á taugunum. Á hinn bóg-
inn gemr það haft öfug áhrif
að glíma við raunveruleg vanda
mál, svo sem að láta tekjur og
útgjöld standast á.
Spurning: Heldur kaffi fyrir
mannivöku?
Svar: Já, vissulega. Kaffi
hefur örfandi áhrif, sennilega
um það bil hálfan styrkleika á
við lyf, sem eru sérstaklega bú-
in til að halda mönnum vak-
andi.
En ég er ekki að tala um
kaffi, sem er drukkið með há-
degisverði eða kvöldmat eða
jafnvel klukkustundu áður en
menn hátta. Satt að segja er
líklegt, að þeir, sem drekka
mikið kaffi — marga bolla á
dag — verði svo vanir því, að
þetta hafi lítil sem engin áhrif
á svefn þeirra.
Spurning: En hvað um „nátt-
húfu" — að fá sér glas af
whiskey — til að sofna við?
Svar: Tja, allt sem slakar á
líkamanum hjálpar mönnum til
að sofna. En þetta er einstakl-
ingsbundið. Allt sem menn gera
reglulega til þess að sofna verð-
ur á endanum til þess að hjálpa
þeim til að sofna. Hin almenna
regla er þessi: Ef maður hefur
sæmilega þægilegt rúm á ró-
legum stað og setur sig í hinar
venjulegu stellingar, er líklegt,
að hann sofni.
Spurning: Er til nokkurs að
telja kindur?
Svar: Það hefur sennilega ein
hver áhrif, eins og allt sem hef-
ur reglubundna hrynjandi.
Brezkur sálfræðingur hefur
rannsakað þetta og komst áð
þeirri niðurstöðu, að það mátti
svæfa menn með hinum ólíkleg
ustu meðulum, ef það var gert
á reglubundinn hátt. Með vissu
millibili lét hann skært ljós
skína í augu sjúklinganna, gaf
þeim um leið allsterkt raflost
og lét háan tón duna við eyrun
á þeim. Reyndin varð sú, að
þeir sofruðu fljótt, og það jafn-
vel þeir, sem nývaknaðir voru
eftir fullan svefn.
Spvrnifo; En er þetta ekki
ekki öllu þPT/rdm
heitir að slaka á?
Svar: Það skyldi maður
halda, en þess ber að gæta, að
þe??! örvur.armeðul fylgdu
regh.bu.ninu tilbreytingarleysi.
Ef eiuhvað kemur manni ó-
vænt til dæmis ef maður
Ocynt í sfienu úti fyrir — er
rn«ðx;i skyndil. glaðvaknaður.
ReyntJar þarf mjög Iítið til að
vekja menn, ef það kemur þeim
algerlegá á óvart. Hins vegar
geta menn sofið vært við mik-
inn hávaða, ef hann er reglu-
bundinn og fylgir vissri hrynj-
andi.
Spurning: Þýðir þetta, að ef
maður hefði hátt-tifandi klukku
í svefnherberginu sínu, þá
svcefi hann kannske betur?
Svar: Já, ég hugsa það sé lík-
lega rétt.
Framhald á 7. síðu.
Á mánudag verður dregið í 8. flokki.
4.500 vinningar að f járhæð 42.000.000 króna
Á föstudag er síðasti endurnýjunardagur.
8. FLOKKUR:
4 á 1.000.000 kr 4.000.000 kr.
4 á 500.000 — 2.000.000 —
4 á 200.000 — 800.000 —
160 á 50.000 — 8.000.000 —
1.040 á 10.000 — 10.400.000 —
3.280 á 5.000 — 16.400.000 —
4.492 41.600.000 —
Aukavinningar:
8 á 50.000 kr. 400.000 kr.
4.500 42.000.000 —